Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 79
BRÉF TIL BLAÐSINS
*
A heimaslóð Háskólans
við þröskuld þúsaldar
Frá Pétri Péturssyni:
HOLLVINIR Háskóla íslands
hafa stofnað samtök til eflingar
starfí stofnunarinnar. Almúginn
fylgist með og hugsar sitt.
Hyggjum nú að því sem við blas-
ir þegar gengið er um götur Há-
skólahverfis og fyrir augu ber
menntastofnanir, sem þjóðin hefir
reist í því skyni að varðveita þjóð-
menningu sína. Örnefnastofnun
skrásetur nöfn og heiti, sem tengj-
ast þjóðarsögu. Þar eru smíðuð orð
og nafngiftir nýjar. Þar varð til
orðið „þúsöld". Meðan forstöðu-
maður Örnefnastofnunar hyggur
að Gullinbrú og kveður dýrt, að
hætti Eddu og fornyrða, sitja
kaupsýslumenn og gullkálfsdýrk-
endur og etja kappi í orðasmíð. Ef
marka má dagblöð og fjölmiðla
bera þeir sigurorð af „Þúsaldar-
mönnum“. Þegar gengið er um
verslunarhverfi Reykjavíkurborg-
ar er ljóst að verslanaheiti eru ekki
sótt í smiðju Örnefnastofnunar né
Islenskrar málnefndar. „Red and
green“, „Dressman", „Blu di blu“,
„Select", „Club Clinton", „Oxford
Street“. „Radisson Hótel Saga“
(Bændahöllin) o.fl.
Þegar Olíufélagið Skeljungur
var stofnað þótti við hæfi að nefna
það íslensku heiti. „Shell“ var
breska nafnið þótt það væri annars
ættað úr nýlendum Hollendinga á
Súmatra, Borneó og Java. Margar
olíulindir hafa þornað og nýjar
opnast síðan Hallgrímur Bene-
diktsson glímukappi, sigurvegari í
konungsglímu 1907, gekk til liðs
við hluthafa Skeljungs. Nú stýrir
auglýsingaherferð ungur afkom-
andi Einars H. Kvaran, rithöfund-
ar, sem tilnefndur var til Nóbels-
verðlauna. Gunnar Kvaran var
fréttamaður Ríkisútvarps og sjón-
varps. Aðstoðarframkvæmdastjóri
Ríkisútvarpsins um skeið. Þeir sem
áður áttu leið um háskólahverfíð
minnast þess að Háskólabíó var
uppljómað í ljósadýrð, baðað geisl-
um rafljósa, höfuðprýði hverfisins.
Nú hafa orðið mikil umskipti. Há-
skólabíó horfið til hlés. Nýtt ljósa-
skilti hefir rutt sér til rúms og
varpar ofbirtu í augu vegfarenda.
„Select", verslunarheiti Shell, hefir
slíka yfirburði í hverfi menntast-
ofnana með Landsbókasafn, Þjóð-
arbókhlöðu og Háskólabíó, Orða-
bók Háskólans og Islenska málstöð
sem nágranna ásamt Bændahöll-
inni, sem nú má ekki nefna á ís-
lensku, Hótel Radisson skal það
vera.
Böðvar Kvaran er þjóðkunnur
fyrir bókvísi, bókasöfnun og fræða-
störf. Hann hefir unnið af frábærri
elju og atorku að bókasöfnun og
ritstörfum. Smekkvís, fjölfróður og
ritfær. Mun hans jafnan minnst
sem samverkamanns Einars há-
skólabókavarðar og nafn hans
nefnt með virðingu og þökk. Þá
leitar hugurinn einnig til Guðrúnar
Kvaran, sem hefir árum saman
frætt útvarpshlustendur um ís-
lenskt mál í þáttum sínum í Ríkis-
útvarpi á vegum Orðabókar Há-
skólans.
Nú vandast málið svo ekki sé
farið yfir landamæri velsæmis og
drengskapar. Jafnframt menning-
arstarfi sínu í þágu bókmennta hef-
ir Böðvar Kvaran verið skrifstof-
ustjóri Olíufélagsins Skeljungs. Nú
er spurningin. Hefir Skeljungur
heimild borgaryfirvalda og há-
skólahverfis til þess að ráðast með
slíku ofríki inn á svið íslenskra
menntastofnana að Háskólabíó og
Þjóðarbókhlaða hverfi í skuggann
af ljósadýrð „Selects".
Nýleg könnun á stöðu grunn-
skólanemenda vekur til umhugsun-
ar um þá sorglegu staðreynd að
Ríkisútvarpið vanrækir hlutverk
sitt. A degi íslenskrar tungu, fæð-
ingardegi Jónasar Hallgrímssonar,
flutti Ríkissjónvarpið af mynd-
bandi lagið „Love Supernatural".
Það skein engin ástarstjarna yfir
Hraundranga.
Svo lætur Ríkissjónvarpið sér
sæma að segja rangt til um klukk-
una þrjár helgar í röð. Hver trúir
slíkri stofnun fyrir gæslu almanna-
varna? Það er sama hversu mörg
afhöggvin eyru ganga um fjöru-
borð Markúsar Arnar. Sá sem seg-
ir rangt til um tímann er ekki fær
um almannavarnir.
PÉTUR PÉTURSSON
þulur.
IJOBIS BLUE EAGLE JAEGER
DRAGTIR
Afsláttur af vönduðum
drögtum að eigin vali til 4. des.
Þú setur saman jakka og pils,
buxur eða kjól.
Opið á laugardag til kl. 16.
• • • mkm
v i ð Óðinstorg
10 1 Reykj avík
s í m i 552 5177
Aðsendar greinar á Netinu
mbl.is
_/KL.LTAf= eiTTH\SAÐ A/ÝTT
Er skiptinemadvöl
á vegum AFS eitthvað fyrir þig?
Ertu á aldrinum 15-18? Langar þig að upplifa eitthvað öðruvísi? Dansa salsa
í S-Ameríku, borða með prjónum í Asíu, vera unglingur í Evrópu eða
stunda nám í High School í Bandaríkjunum? Þetta og margt fleira upplifa
þeir sem gerast AFS skiptinemar auk þess að læra nýtt tungumál í leiðinni.
Heilt ár, hálft ár
eða sumardvöl,
hvað hentar þér?
Erum að taka á móti
umsóknum til landa
með brottför í
júní-september 2000.
Ingólfsstræti 3,
sími 552 5450, www.afs.is
AFS nemar í Ekvador
OROBLU skrefi framar
Kynnum nýju
vetrartískuna í dag
fró kl.l 4.00-18.00.
20%
kynningarafsláttur
af öllum
OROBLU
sokkabuxum.
\?Lyfaheilsa
Melhaga, sími 552 2190.
Jólasöluhelgin í
glerverkstæðinu
Hin árlega jólasala á útlitsgölluðu
gleri verður haldin I verkstæðinu helgina
4. og 5. desember.
Opið:
Laugardaginn 4. des. kl. 10:00-17:00
Sunnudaginn 5. des. kl. 10:00-15:00
Glerblástur, kaffi og piparkökur
Allir velkomnir.
cfcr
^ í BERGVÍK
Ki Víkurgrund 8-10, Kjalarnesi, 116 Reykjavík
■a* 566 7067 • Fax: 566 7061
sœtir
sofar
Smiöjuvegi 9 • S. 564 1475