Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Lakkrískaupandi í Danmörku segir upp samningi
við sælgætisverksmiðjuna Nóa-Síríus
Starfsmönnum á
Akureyri sagt upp
Morgunblaðið/Kristján
Húsnæði Nóa-Sín'usar við Hvannavelli á Akureyri, þar sem skrifstofa
SH var einnig til húsa.
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður Hróarsson, Jón Kristinsson og Kristján Þór Júliusson við at-
höfn í bæjarstjórnarsalnum þar sem Jón tilkynnti um stofngjöf til
menningarhúss á Akureyri.
Stofngjöf Jóns Kristinssonar til
væntanlegs menningarhúss
Gaf eina milljón
króna sem nýtast
mun leikurum
JÓN Kristinsson afhenti í gær eina
milljón króna sem stofngjöf til
væntanlegs menningarhúss á Akur-
eyri. Tilgangur gjafarinnar er að
þvi er fram kemur í gjafabréfi sá að
hún verði nýtt til að standa undir
kostnaði við lokafrágang leikhúss
(menningarhússins) og kemur hún
þá íyrst til útgreiðslu þegar innrétt-
ing byggingarinnar er hafin. Leik-
hússtjóra Leikfélags Akureyrar er
falin nánari ráðstöfun gjafarinnar
til innréttingar á búningsherbergi
leikara, kaffistofu leikara og starfs-
manna eða annað sambærilegt.
Starfshópur um byggingu menn-
ingarhúss á Akureyri skilaði
skýrslu sinni í síðustu viku, en hóp-
urinn hóf að vinna að undirbúningi
í kjölfar samþykktar ríkisstjórnar-
innar í byrjun árs um byggingu
menningarhúsa á landsbyggðinni.
Leggur hópurinn til að byggt verði
hús sem hýsi m.a. starfsemi Leik-
félags Akureyrar, Tónlistarskóla
Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands. Kostnaður er áætlað-
ur 1,6 milljarðar króna.
Sigurður Hróarsson, leikhús-
stjóri LA, sagði Jón um áratuga-
skeið hafa verið baráttumann fyrir
byggingu nýs leikhúss á Akureyri
og nú hillti undir að draumur hans
rættist. Jón starfaði með Leikfé-
lagi Akureyrar óslitið í yfir fjóra
áratugi, m.a. var hann formaður
þess í 12 ár í tveimur lotum. í hans
tíð var grettistaki lyft þegar at-
vinnuleikhús varð til á Akureyri.
Byggingin á
byrjunarreit
Jón minntist þess að hafa fyrir
aldarfjórðungi bent á nauðsyn þess
að leikfélagið eignaðist nýtt hús-
næði, en það mætti einnig nota til
tónleika- og ráðstefnuhalds. Við-
brögð hefðu á þeim tíma verið lítil.
Nú kvaðst hann ánægður með að
byggingin væri komin á byrjunar-
reit og vænti hann þess að hún yrði
risin að þremur árum liðnum. Jón
sagðist vonast til að ríkissjóður
greiddi ríkulegan bróðurpart, en
skoraði hann jafnframt á bæjarbúa
að leggjast á eitt svo draumurinn
um menningarhús gæti ræst. Benti
hann á að þannig hefði t.d. hjúkr-
unarheimilið Sel verið reist, ein-
ungis með frjálsum framlögum,
„og ég trúi því að sagan geti endur-
tekið sig“, sagði Jón.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri sagði framlag Jóns stórt og
mikið „og meðan við eigum menn
sem hugsa í þessum anda þurfum
við ekki að kvíða að menningarhús-
ið verði ekki reist.“
Jón hefur stofnað reikning í
Landsbanka Islands, Akureyri,
Byggingarsjóð tónlistar- og leik-
listarhúss og er hann númer 70.
ÖLLU starfsfólki framleiðsludeild-
ar Nóa-Síríusar á Akureyri hefur
verið sagt upp störfum, samtals
átta manns. Uppsagnarfrestur
þessara starfsmanna er mismun-
andi, tveir, þrír og sex mánuðir.
Svavar Hannesson, framleiðslu-
stjóri á Akureyri, sagði að í kjölfar
þessara uppsagna stefndi í að
framleiðslu á vegum fyrirtækisins
yrði hætt í bænum. Ekki kom til
uppsagna fjögurra starfsmanna í
markaðs- og söludeild og eins
starfsmanns við ræstingu.
Við þessa breytingu fækkar enn
þeim störfum sem Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna lofaði bæjaryfir-
völdum á Akureyri að skapa árið
1995, gegn því að halda viðskiptum
með afurðir Útgerðarfélags Akur-
eyringa. Alls lofaði SH 80 nýjum
störfum í bænum á sínum tíma og
vissulega fjölgaði þeim umtalsvert
í kjölfarið. Þessum störfum hefur
hins vegar fækkað aftur jafnt og
þétt undanfarin misseri.
Þenslan stoppaði á
einhverri heiðinni
Þorsteinn Arnórsson, formaður
iðnverkadeildar Einingai-Iðju,
sagði að þótt ekki sé hér um stóran
vinnustað að ræða, sé þetta vissu-
lega mikið áfall og hann er ósáttur
við að þessi störf skuli lögð niður.
„Maður er farinn að spyrja sjálfan
sig út í þessi loforð sem SH gaf á
sínum og hvort þessi störf hafi að-
eins átt að vera í boði í stuttan
tíma. Það var alveg á mörkunum
við fengjum öll þau störf sem um
var talað við SH og því er kannski
rétt að auglýsa eftir þeim fáu störf-
um sem eftir eru,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði langt síðan atvinnuá-
standið var jafn gott og það er nú
en það mætti þó alveg vera betra.
„Þensla er hér engin norðan heiða
og ég er hræddur um að hún hafi
stoppað á einhverri heiðinni og þá
frekar sunnarlega."
Starfsemi Nóa-Síríusar á Akur-
eyri hafði verið breytt og almennri
sælgætisframleiðslu hætt en í stað
þess hafin sérhæfð lakkrísfram-
leiðsla til útflutnings. Lakkrísinn
var seldur til Danmerkur en eftir
að kaupandinn þar sagði samningi
við Nóa-Síríus upp i vikunni var
gi’undvellinum kippt undan starf-
seminni á Akureyri, að sögn
Svavars.
í tengslum við loforð SH við
bæjai-yfirvöld á Akureyri flutti fé-
lagið um þriðjung af starfsemi
sinni til Akureyrar og störfuðu þar
um 30 manns þegar mest var. St-
arfsemin, sem var í Linduhúsinu
svokallaða á Akureyri, dróst fljót-
lega saman og fyrr á þessu ári var
skrifstofunni lokað og nær öllu
starfsfólki, tæplega 10 manns, sagt
upp störfum. SH og Upphaf settu á
stofn kexverksmiðju árið 1996 sem
skapaði vinnu fyrir 12-15 manns og
er eignarhlutur SH 25%. I
Kexsmiðjunni starfa nú 18 manns,
þar af tveir í Reykjavík.
Nói-Síríus skapaði
20 störf á Akureyri
SH lagði til umtalsverð viðskipti
í Akoplast, sem nú heitir Akopla-
stos og eru þau viðskipti grunnur-
inn að stækkun fyrirtækisins. Hins
vegar hefur SH sagt upp þeim
samningum sem lagt var af stað
með við Akoplast í upphafi og í dag
er um mjög takmörkuð viðskipti að
ræða milli SH og Akoplastos. Þá
sögðu SH-menn á sínum tíma að
fjölgun starfa hjá Eimskipi, Slipp-
stöðinni og Vörumiðum, hafi verið
til komin vegna aukinna umsvifa
félagsins á Akureyri. Einnig greið-
ir SH laun prófessors við Háskól-
ann á Akureyri.
SH keypti sælgætisverksmiðj-
una Opal og endurseldi reksturinn
til Nóa-Síríusar. Samningurinn
kvað á um að Nói-Síríus hæfi starf-
semi í Linduhúsinu og skapaði
störf fyrir 20 manns. Þar hefur
verið rekin sælgætisframleiðsla í
tæp fjögur ár. í kjölfar breytinga á
framleiðslu fyrirtækisins úr al-
mennu sælgæti í lakkrís fækkaði
starfsfólki en þó án þess að til upp-
sagna kæmi. í dag vinna þar 13
starfsmenn en sem fyrr sagði hafa
8 þeirra nú fengið uppsagnarbréf í
hendur.
Róbert Guðfinnsson, formaður
stjórnar SH, sagði í samtali við
Morgunblaðið í maí sl. er tilkynnt
var um lokun starfsstöðvar félags-
ins á Akureyri, að það hafi ekki
verið mistök að setja upp starfsemi
á Akureyri. Hann lagði hins vegar
áherslu á að fyrirtæki yrðu að laga
sig að breyttum aðstæðum.
Ekki náðist í Finn Geirsson,
framkvæmdastjóra Nóa-Síríusar, í
gær.
Morgunblaðið/Kristján
Matvöruverslanir KEA
Einungis viður-
kenndir kjúklingar
FRÁ og með 1. desember munu matvöruverslanir KEA einungis bjóða
upp á ferska kjúklinga frá fyrirtækjum sem hafa fengið vicjurkenningu
þess efnis að vara þeirra sé laus við camphylobakter-sýkingu að því er
fram kemur í frétt frá matvöruverslunum KEA.
Einnig kemur fram að ákvörðun-
in sé tekin í ljósi nýlegrar úttektar
á ástandi þessara mála hjá alifugla-
búum og þeirrar umræðu sem hef-
ur átt sér stað að undanförnu, m.a.
hjá heilbrigðisyfirvöldum í Reykja-
vík og víðar.
Sem kunnugt er af fréttum
hyggst heilbrigðisnefnd Reykjavík-
ur ekki heimila sölu á sýktum
kjúklingum frá og með næstu ára-
mótum.
Verslanirnar sem um ræðir eru
Nettó í Mjódd og Akureyri, Strax í
Kópavogi, Ólafsfirði, Dalvík og við
Byggðaveg og Sunnuhlíð á Akur-
eyri, Hrísalundur á Akureyri og
Matbær og Þingey á Húsavík.
Virki grafið
í snjó-
ruðninginn
NOKKRIR félagar af Oddeyri,
þeir Valur, Ari, Hjörvar, Sindri,
Ásgeir og Tryggvi gengu rösk-
lega til verks þar sem þeir voru
mættir upp í vænan snjóruðning
en þar hugðust þeir grafa sér
snjóhús og virki. Þeir voru vopn-
aðir skóflu og kúbeini auk þess
sem hendurnar komu að góðu
gagni við það að grafa snjóinn út.