Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 51
LISTIR
N^jar bækur
• ÞÚ ert mín er
eftir Mary Higg-
ins Clark, í þýð-
ingu Jóns Daní-
elssonar.
Sagt er frá rað-
morðingja, sem
einbeitir sér að
einmana konum
um borð í glæsi-
legum skemmti-
ferðaskipum.
Pegar sálfræðingurinn Susan
Chandler ákveður að fjalla í útvarps-
þætti um konur sem horfið hafa
sporlaust með dularfullum hætti,
grunar hana síst af öllu að hún sé að
setja sjálfa sig - og sína nánustu - í
alvarlega hættu.
Kona, sem hringir í þáttinn til að
gefa upplýsingar um eitt þessara
mála, verður fyrir bíl nokkrum
klukkustundum síðar. Roskin kona,
sem telur sig hafa séð henni hrint
fyrir bílinn, er myrt áður en henni
gefst færi á að tala við lögreglu.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
328 bls.Verðkr. 3.480.
• ÓGNARÖFL (bækur 7 og 8) eftir
Chris Woodin í þýðingu Guðna Kol-
beinssonar er spennubókaflokkur í 9
heftum.
Kía og Röskvi halda áfram bar-
áttu sinni gegn útsendurum Makans
konungs. Þau komust með naumind-
um til Os Dakar. Þar koma Vikar og
Deplir fram á sögusviðið.
Ognaröfl gerast í framandlegum
en ævintýi’alegum heimi þar sem
háð er miskunnarlaus barátta gegn
öflum ógnar og kúgunar.
Útgefandi erÆskan ehf. hvort
hefti er 90 bls. prentað í Odda hf.
Verð: 489 kr. hvort hefti.
• LEXICON islandicum -
Orðfræðirit fyrri alda er eftir
Guðmund Andrésson.
Orðabókin kom fyrst út í Kaup-
mannahöfn árið 1683, nálega þrjátíu
árum eftir dauða höfundar. Ut-
gáfunni var mjög ábótavant, mis-
lestrar og prentvillur blasa við á
hverri síðu. í þessari nýju útgáfu er
bætt úr helstu ágöllum hinnar fyrri,
m.a. með stuðningi við handrit sem
kann að vera eftirrit af eiginhand-
arriti Guðmundar.
Bókin er því öðrum þræði merk
heimild um íslenskan orðaforða á 17.
öld og áfangi í sögu íslenskra orða-
bóka, segir í fréttatilkynningu.
Guðmundur Andrésson var and-
ófsmaður á sinni tíð og komst í kast
við yfirvöldin fyrir gagnrýni á Stóra-
dóm. Hann var fluttur fanginn úr
landi og settur í varðhald í Kaup-
mannahöfn. Ur varðhaldinu komst
hann í Hafnarháskóla en átti ekki
afturkvæmt til Islands og starfaði í
Höfn til dauðadags, 1658.
Útgefandi er Orðabók Háskólans
en Hiðísl. bókmenntafélag sér um
dreifmgu. Bókin er 297 bls. ogkost-
ar 3.500 kr.
• HEILSA karla er eftir Joe Arm-
strong í þýðingu Reynis Harðarson-
ar. Magnús Scheving skrifar for-
mála bókarinnar.
Þetta er önnur bókin í bóka-
flokknum Heilbrigt viðhorf. Áður
kom út bókin Breytingaskeiðið eftir
Ruth Appleby.
I fréttatilkynningu segir m.a.
„Sumir karlar geta verið mjög
ábyrgir á ýmsum sviðum tilverunnar
en gjörsamlega kærulausir þegar
kemur að þeirra eigin heilsu. Það er
miklu ólíklegra að karlar leiti til
læknis en konur en miklu líklegra að
það sé komið með þá í skyndi á
sjúkrahús með hjartaáfall eða heila-
blóðfall."
Útgefandi er PP-forlag. Bókin er
120 síður, kilja. Verð: 1.380 kr.
• MÖLLUBÆKURNAR er eftir
Lucy Cousins.
Þessar bækur fjalla um þá sömu
Möllu og börnin þekkja úr sjónvarp-
inu.
Dagur Möllu og klæddu Möllu eru
límmiðabækur með Möllu, þar sem
lesandinn fær tækifæri til að klæða
Möllu í alls konar föt, skoða og
spjalla um leið og lesa einfaldar setn-
ingar. Bækurnar eru einkum ætlað-
ar börnum á forskólaaldri.
Útgefandi er Æskan. Hvor bók er
16 bls. Þær eru prentaðar á Italíu.
Verð 790 kr. eintakið.
• CYPRAEA islandica - dýrgiipur-
inn á ströndinni er unglingasaga eft-
ir Moshe Okon í þýðingu Sigrúnar
Birnu Birnisdóttur.
Konný er 16 ára Reykjavíkur-
stúlka og stundar sumaivinnu í Vík í
Mýrdal. Þar kynnist hún Sindra sem
er á líku reki, en önnur stelpa hefur
einnig augastað á honum og beitir
ýmsum klækjum til að ná hylli hans.
Konný finnur dýnnætan kuðung á
ströndinni, en það hrindir af stað at-
burðarás sem reynist örlagan'k.
Þetta er dramatísk ástarsaga þar
sem íslensk náttúra leikur stórt hlut-
verk þó sjóndeildarhringurinn
spanni vítt svið. Höfundurinn, ísra-
elsmaður sem býr hluta ársins á ís-
landi, skrifaði söguna á ensku.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 120 bls., prentuð í Odda hf.
Verð: 2.290 kr.
• EINN eftirlifandi er eftir Dean
Koontz, í þýðingu Jónsar Daníels-
sonar.
Stór breiðþota ferst með 330
manns innanborðs. Enginn kemst
af. Þrátt fyrir ítarlega rannsókn
finnst aldrei nein skýring á því sem
gerðist. Meðal farþega voru eigin-
kona og tvær dætur glæpafrétta-
mannsins Joes Carpenter.
Ári eftir slysið er hann enn miður
sín af sorg. Þá verður á vegi hans
kona að nafni Rose sem kveðst hafa
verið með vélinni - lifað af.
Bækur Dean Koontz hafa verið
þýdjdar á hátt á fjörutíu tungumál.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
371 bls. Verð kr. 3.480.
Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins
er stuðningur við mikilvægt forvarnastarf
cPe/ttu - o ertu m exf /
{örexjí J24, de&emóer'
fjoldi uUH>finn« núOð U7 000 ’
ÞAÐ KOSTAR ÞIG AÐEINS
16-574 kr.
Á MÁNUÐI AÐ AUKA
AFKÖSTIN í VINNUNNI
Rekstrarleigusamningur
til 24 mánaða.
Engin útborgun
16.574 kr. á mánuði.
Innifalið
• 20.000 km akstur á ári
• Smurþjónusta
• Þjónustuskoðanir og viðhald
• Auka dekkjagangur
• Umfelganir vor og haust
Rekitraiieiga er miBuð er við 24 mánuði f erlendri mynt. Verð er án vsU.
| Vinir erler
[56
Vinir erlendis spara 50% á millilandasímtölum!
1-HERB
ATVINNUBÍLAR
FyRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Grjótháls 1
Sfmi 575 1200
Söludeild 575 1225/575 1226
HYunoni
LONDON, PARI'S, NEW YORK
RÓM. EÐA BARA VERA HEIMJ
lyi
TM UIMA OU
LmNINb, m
habitat Heima er best.
Opið um helgar: laugard. 10-18 og sunnud. 13-17.