Morgunblaðið - 02.12.1999, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Islandsbanki og Islandssími bjóða landsmöniium ókeypis tengingu við Netið
Þúsund manns
skráði sig fyrir
ókeypis netað-
gangi í gær
✓ ✓
Islandsbanki og Islandssími hafa skrifað
undir samning sem felur í sér að Islands-
banki býður öllum landsmönnum ókeypis
tengingu við Netið og sér um skráningu
umsækjenda. Islandssími sér um rekstur
kerfisins og tryggir rekstraröryggið. Eftir
sem áður greiðir fólk fyrir notkun símans.
Um þúsund manns skráði sig fyrir ókeypis
aðgangi á um þremur tímum í gær.
FYRIRTÆKIN segja að þeir sem
nýti sér tilboð þeirra spari hver um
sig 13-24 þúsund krónur í áskriftar-
gjöld á ári. Ef allar fjölskyldur í
landinu væru með nettengingu sam-
svari þetta tilboð rúmum milljarði á
ári að þeirra sögn.
Valur Valsson, bankastjóri íslan-
dsbanka, og Eyþór Amalds, fram-
kvæmdastjóri Islandssíma, undirrit-
uðu samninginn í Listasafni
Kópavogs í gær, og var Björn
Bjamason menntamálaráðherra
einnig viðstaddur, og skráði hann sig
fyrstur manna fyrir netaðgangi.
Eyþór segir í samtali við Frétta-
vef Morgunblaðsins að fyrirtækin
skipti með sér kostnaðinum af
rekstri þjónustunnar, Islandssími
sjái um rekstur kerfisins, en Islan-
dsbanki hafi meðal annai’s umsjón
með skráningunni og kynningu. Isl-
andssími hefur nokkrar tekjur af
þjónustunni, því hann fær hluta af
skrefagjaldi símtalanna sem fara í
gegnum kerfi Landssímans. „Svo er
auðvitað beggja hagur að vinna sér
inn velvilja almennings," segir
Eyþór.
Opnaður hefur verið sérstakur
vefur þar sem fólk getur skráð sig en
skráningargögn liggja einnig
frammi í öllum útibúum Islands-
banka. Opnað verður fyrir tengingar
10. janúar árið 2000. Vefslóðin er
www.isl.is Við skráningu er meðal
annars beðið um upplýsingar um
áhugamál notenda, en ekki er nauð-
synlegt að svara þeim spurningum.
Eyþór segir að gera megi ráð fyrir
að boðið verði upp á aukna þjónustu í
framtíðinni, og þá verði upplýsing-
arnar notaðar, en þær verði ekki
framseldar þriðja aðila. „Bæði bank-
inn og símafyrirtækið þurfa að halda
orðstír sínum og munu því varðveita
upplýsingarnar sem trúnaðarmál."
Eyþór segir að vænta megi frek-
ari tíðinda af netstarfsemi Islands-
síma á næstunni.
Landssíminn samdi við
Landsbankann
Olafur Stephensen, talsmaður
Morgunblaðið/Sverrir
Björn Bjarnason menntamálaráðherra skráði sig fyrstur manna fyrir netaðgangi eftir að Valur Valsson, bank-
astjöri Islandsbanka, og Eyþðr Arnalds, framkvæmdastjóri Íslandssíma, undirrituðu samninginn um netað-
gang án endurgjalds í Listasafni Kópavogs í gær.
Landssímans, segir að samstarfsvið-
ræður hafi verið í gangi við ýmis fyr-
irtæki um svipaða lausn og þá sem
Íslandssími og íslandsbanki bjóða
nú upp á. í gærkvöldi kom tilkynn-
ing frá Landsbanka íslands og
Landssímanum um að fyrirtækin
hafi ákveðið að hefja samstarf um
rekstur intemetþjónustu með nýju
sniði. „Því miður náðum við ekki að
verða fyrstir, en við verðum varla
langt á eftir.“
Olafur segir að Landssíminn eigi
tvö netveitufyrirtæki, Símann Int-
ernet og Skímu, sem séu með um
þriðjung markaðarins, samtals
nærri tuttugu þúsund viðskiptavini.
Auk þess á Landssíminn hlut í fyrir-
tækinu Margmiðlun.
Hann segir að ekki sé ljóst hvaða
áhrif þessi þróun muni hafa á starf-
semi þessara fyrirtækja og annarra
sem veita sambærilega þjónustu.
„Auðvitað veldur þetta einhverj-
um breytingum á starfsemi þeirra,
og þetta hlýtur að hafa áhrif á allan
markaðinn. Það hefur reyndar ekki
verið mjög ábatasamt að bjóða upp á
netaðgang."
Guðmundur Unnsteinsson, fram-
kvæmdastjóri netþjónustunnar
Hringiðunnar og formaður Félags
endursöluaðila internetþjónustu,
segist munu leita álits Samkeppnis-
stofnunar vegna tilboðs Íslandssíma
og íslandsbanka um ókeypis netað-
gang.
Leitar álits Samkeppnis-
stofnunar
Hann bendir á að ef netaðgangur-
inn sé ókeypis hljóti tekjumar að
koma af einhverju öðru, og því
hyggst hann leita álits Samkeppnis-
stofnunar á því hvort slík millifærsla
sé leyfileg.
Guðmundur segist ekki búast við
því að viðskiptavinir netþjónustufyr-
irtækjanna sem fyrir eru muni segja
upp áskrift sinni, enda eigi eftir að
koma í ljós hvort þjónustan verði
nógu góð hjá Íslandssíma. „Verð og
þjónusta hlýtur að fara saman. Það
hafa margir viðskiptavinir stóru net-
þjónustufyrirtækjanna sem bjóða
lægsta verðið verið að færa sig yfir
til okkar vegna þess að þeir hafa
ekki fengið næga þjónustu. Menn
lenda oftar í vandræðum með netað-
gang heldur en til dæmis venjulega
síma, þannig að það er þörf á meiri
þjónustu.
Um klukkan 17:15 í gær hafði yfir
þúsund manns skráð sig fyrir ókeyp-
is Netaðgangi Íslandssíma og
Islandsbanka sem tilkynnt var um
síðdegis. Jón Þórisson, forstöðumað-
ur útibúasviðs Islandsbanka, segir
að viðbrögðin séu framar björtustu
vonum.
Um 20% viðskiptavina Islands-
banka notfæra sér nú Netið í banka-
viðskiptum.
Sjá fram á bankaviðskipti
á netinu
„Við auðvitað sjáum eins og marg-
ir aðrir að banka- og fjármálavið-
skipti munu verða á Netinu fram-
vegis, og við viljum gera allt sem við
getum til að greiða fyrir þvi,“ segir
Jón. „Við höldum að gjaldið sem
greiða hefur þurft fyrir Netaðgang-
inn hafi verið ákveðinn þröskuldur.
Við erum því að vonast til þess að í
kjölfar þess muni menn í vaxandi
mæli færa viðskipti sín inn á Netið,
enda er það hagkvæmt fyrir okkur.“
Jón segir að sú þjónusta sem boðið
er upp á í Netbanka íslandsbanka sé
nægileg til að sinna helstu daglegu
þörfum viðskiptavinanna. Hann seg-
ir að ætlunin sé þó ekki að fækka úti-
búum bankans, en þau muni líklega
taka að sér ný verkefni, til dæmis
aukna sérhæfða fjármálaráðgjöf.
Oddviti sjálfstæðismanna um fjárhagsáætlunina
„Get ekki séð að heild-
arskuldir lækki“
Yfírlýsing frá Kára
Stefánssyni
„ÞEGAR rætt er um að náðst hafi
gott jafnvægi í fjármálum Reykja-
víkurborgar ber að hafa í huga að
menn hafa ekki náð neinum böndum
á útgjaldaþenslu borgarinnar," segir
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur, er hún er innt eftir áliti
á frumvarpi til fjárhagsáætlunar
Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár.
Hún bendir sömuleiðis á að þegar
talað sé um að selja eignir til að
greiða niður skuldir borgarsjóðs sé í
raun verið að færa eignir úr einum
vasa í annan. Með öðrum orðum sé
verið að millifæra fé frá Orkuveitu
Reykjavíkur til borgarsjóðs. „Þetta
er gert með skuldabréfi sem er út-
gefið af Orkuveitunni," útskýrir hún,
„en samtals er Orkuveita Reykjavík-
ur skuldsett fyrir fjórum milljörðum
króna sem koma inn í borgarsjóð.
Annars vegar kemur einn milljarður
á yfirstandandi ári og hins vegar þrír
milljarðar á árinu 2000. Þessa millj-
arða verður Orkuveitan að fjár-
magna með erlendum lántökum. Það
kallar að sjálfsögðu á meiri vaxta-
byrði hjá Orkuveitunni og versnandi
stöðu fyrirtækisins.“ Inga Jóna ít-
rekar að þessar millifærslur hreyfi í
engu við skuldastöðu borgarinnar.
„Sömuleiðis er gert ráð fyrir því
að sala eigna muni skila borgarsjóði
sautján hundruð milljónum króna,“
segir Inga Jóna, „en með því er fyrst
og fremst verið að reikna með sölu á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. í reikning-
um ársins 2000 er hins vegar ekki
gert ráð fyrir því að sú tala skili sér
inn í niðurgreiðslu á lánum.“ Það
þýðir með öðrum orðum, segir Inga
Jóna, að niðurgreiðsla á lánum borg-
arsjóðs er öll tilkomin vegna skulda-
bréfalánsins frá Orkuveitunni.
Varasamt að ganga nærri
Orkuveitunni
„Að mínu viti er mjög varasamt að
ganga svona nærri Orkuveitunni
sem til viðbótar þarf að greiða veru-
lega háar fjárhæðir í arðgreiðslur til
borgarsjóðs. Núna á tveggja ára
tímabili, þ.e. 1999 og 2000, mun
borgarsjóður taka út úr rekstri
Orkuveitunnar rúmlega 6 milljarða
króna til að leiðrétta eigin stöðu, þ.e.
með þessu skuldabréfi, sem er niður-
færsla eigin fjár og með arðgreiðsl-
um. Þetta hefur þær afleiðingar að
vaxtabyrði Orkuveitunnar hækkar
og lausafjárstaða fyrirtækisins veik-
ist að mun,“ segir Inga Jóna og held-
ur áfram: „Þegar lausafjárstaðan er
komin á hættumörk er bara tvennt
til bragðs að taka. Annars vegar það
að fyrirtækið taki á sig skammtíma-
lán til að fjármagna veltuna og hins
vegar það að fyrirtækið hækki gjöld;
hækki verð á seldri þjónustu, hita,
rafmagni og vatni. Þannig að meðan
þetta fyrh-tæki er keyrt svona hart
til þess að sýna betri stöðu á borgar-
sjóði, er Reykjavíkurborg í raun að
byggja á mjög veikri undirstöðu."
Inga Jóna telur því mikilvægt að
menn átti sig á því hvar hinn svokall-
aði bati sé sóttur.
Inga Jóna segir ennfremur að
vissulega hafi tekist að ná rekstrar-
gjöldunum sem „ágætu hlutfalli af
skatttekjunum", en það sé fyrst og
fremst vegna þess að skattbyrðin
hafi aukist með hærri útsvarsálag-
ningu en áður. „Eg get því ekki séð
að heildarskuldir borgarinnar séu
nokkuð að lækka á þessu ári og það
sem er auðvitað slæmt við þessar að-
stæður, þ.e. á meðan við njótum góð-
ærisins, er að við getum ekki notað
uppsveifluna í efnahagslífinu til að
grynnka raunverulega á skuldun-
um.“
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfai-andi yfirlýsing frá Kára Stef-
ánssyni:
Nýja bókaforlagið hefur gefið út
bók sem heitir Kári í jötunmóð og á
að fjalla um hluta ævi minnar. Eins
og komið hefur fram er bókin skrifuð
án samráðs við mig og gegn vilja mín-
um. Ég hef ekkert við það að athuga
að fjallað sé um ágreiningsmál tengd
í slenskri erfðagreiningu á prenti.
Höfundur þessarar bókar fellur hins
vegar í þá gryfju að draga vafasamar
ályktanir um sögu mína og fyrirtæk-
isins, oft á grundvelli ónafngreindra
heimilda. Höfundur reynir einnig
víða að styðja mál sitt með tilvitnun-
HEILBRIGÐISNEFND Reykja-
víkur telut- óviðunandi að framleið-
endum verði leyft að setja ferska
kjúklinga úr allt að 10% eldishópa
mengaða campylobacter-sýklum á
markað á næsta ári. Nefndin vill að
allri mengaðri framleiðslu verði beint
í frystingu, hitameðferð eða förgun.
Rögnvaldur Ingólfsson, sviðsstjóri
matvælasviðs Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, segir að
Heilbrigðiseftirlitið sé sammála
um sem hafa ekkert með það að gera.
Þegar þar við bætist að höfundur fer
víða rangt með staðreyndir hlýt ég að
fullyrða, að gildi þessai’ar bókar sem
heimildar um mig og sögu þess fyrir-
tækis sem ég setti á laggirnar sé
mjög takmarkað.
Á undanförnum árum hafa starfs-
menn íslenskrar erfðagreiningar
unnið að því hörðum höndum að
byggja upp nýja atvinnustarfsemi í
landinu. Það er einlæg von mín að
bók sem byggir á vegvilltri frásagn-
argleði annai'ra um mig verði á engan
hátt til þess að spilla þeii-ri viðleitni.
Að öðru leyti ætla ég ekki að tjá mig
frekar um þessa bók.
Hollustusvernd ríkisins í því að ekki
sé hægt að tryggja að öll framleiðsla
á kjúklingum sé án mengunar. Hann
segir að heilbrigðisyfirvöld vilji vinna
með framleiðendum að því að tryggja
eins vel og unnt er að um góða vöru
sé að ræða og það verði m.a. gert
með því að fylgjast með campyl-
obacter- og salmonellumengun í öll-
um eldishópum kjúklinga fyrir slátr-
un og með auknu eftirliti úti á
markaðnum.
Vilja vinna með
framleiðendum