Morgunblaðið - 02.12.1999, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kristján Eldjárn gítarleikari lék fyrir börnin. Hann lék bæði á klassískan gítar og raf-
magnsgítar og voru börnin svo spennt að það hefði mátt heyra saumnál detta þegar hann
byrjaði að spila.
Krakkarnir í Álftanesskóla hlýða á leiðbeiningar um hvernig þau eigi að bera sig að í rat-
Ieiknum sem er í þann mund að hefjast. Hinn hugvitsami kennari þeirra notar umferðar-
keiiu eins og gjallarhorn til að þau heyri betur í honum.
Dagur með
þjóðlegu ívafi
Alftanes
MARGIR grunnskólar brutu
upp hcfbundna kennslu í
gær, ítilefni fullveldisdags-
ins, nemendum og kennurum
til ánægju og kannski ekki
síður fróðleiks.
Álftanesskóli var þeirra á
meðal og létu börnin í Álfta-
nesskóla snjókomuna og
kuldann ekkert á sig fá þegar
þau þeystust um nágrenni
skólans í gærmorgun og
kepptu sín á milli í þjóðlegum
ratleik.
Þjóðlegt hátíðarnesti
Nemendur Álftanesskóla
byijuðu reyndar daginn á því
að fara í tíma til umsjónar-
kennara sfns þar sem þau
fræddust og unnu sérstök
verkefni sem tengdust efni
ratleiksins. Að tímanum
loknum snæddu þau hátíðar-
nesti, hangikjöt, slátur og
fleira og hlýddu á meðan á
upplestur úr þjóðsögum.
Fullveldisratleikur Álfta-
nesskóla
Þá var lagt af stað í Full-
veldisratleik Álftanesskóla.
Krökkunum var skipt í hópa
með tilliti til þess að aldur
innan hvers hóps væri sem
breiðastur og þannig voru
börn á aldrinum sex til tólf
ára í öllum hópum. Hóparnir
fengu kort af svæðinu og
svarblað til að merkja inn
svör við þeim spurningum og
þrautum sem lagðar voru
fyrir á hverri stöð.
Hluti af leiknum var að
finna stöðvarnar og svo las
einn félagi hópsins upp þá
spurningu sem var á hverri
stöð og allir hjálpuðust að við
að finna rétt svar og merkja
inn á svarblaðið. Meðal ann-
ars var spurt hverjir hefðu
gegnt embætti forseta ís-
lands, hvað litirnir í fána
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Arnþór Ies upp spurningu á einni stöð ratleiksins, fyrir hópinn sinn. Daníel fylgist með.
okkar táknuðu, hvernig
fyrsta línan í þjóðsöngnum
hljóðaði, hvar Jón Sigurðsson
hefði fæðst og hvaða land-
vættir prýddu skjaldamerk-
ið.
Krakkarnir hlupu á milli
stöðva, sem þeim tókst
merkilega vel að finna þrátt
fyrir snjókomuna, og leystu
samviskusamlega þær þraut-
ir sem urðu á vegi þeirra.
Þau virtust vel að sér í þjóð-
legum fróðleik því svör við
spurningunum vöfðust
sjaldnast fyrir þeim.
Tónlist fyrir alla
Eftir ratleikinn fóru þau
inn í hlýjuna þar sem stján
Kristján Eldjárn gítarleikari
tók á móti þeim og spilaði
fyrir þau bæði á klassískan
gítar og rafmagnsgítar. Dag-
skrá hans nefndist tónlist fyr-
ir alla og kynnti hann meðal
annars þjóðlög og aðra þjóð-
lega tónlist fyrir börnunum.
Það hefði mátt heyra
saumnál dettaþegar Kristján
hafði mundað gítarinn og bjó
sig undir að hefja leikinn og
horfðu ki-akkamir á og hlust-
uðu af miklum áhuga og inn-
lifun. Sum þeirra sögðust
sjálf eiga gítar og hver veit
nema einhveijir litlir tilvon-
andi gítarsnillingar hafi
leynst meðal áheyrenda í
gær.
Skrúðganga og ætljarð-
arsöngvar
Um hádegisbil var svo
marserað í skrúðgöngu um
íþróttahúsið. Þar hófst svo
fjöldasöngur og sungu börn-
in fjölmarga ættjarðar-
söngva og aðra góða íslenska
söngva sem þeim hafa verið
kenndir.
Meðal söngva sem börnin
sungu voru Island ögrum
skorið, Hver á sér fegra föð-
urland, Yfir voru ættarlandi
og Land míns föður.
Það var mál bæði kennara
og nemenda að vel hefði tek-
ist til og að þetta hafi verið
skemmtilegur dagur. Krakk-
arnir sögðu ratleikinn hafa
verið mjög skemmtilegan og
að þau hafi lært mikið. Samt
sögðu sumir að það hefði eig-
inlega verið ennþá skemmti-
legra að komast inn í hlýjuna
og fá að hlusta á gítarleikinn
og syngja.
Hafnarfjördur
BÆJARSTJÓRN Hafnar-
fjarðar hefur, að tillögu skipu-
lags- og umferðarnefndar
bæjarins, samþykkt að aftur-
kalla tillögu að deiliskipulagi
athafnasvæðisins í Hellna-
hrauni, sem nefndin hafði látið
vinna og bæjarstjómin hafði
samþykkt og sent til kynning-
ar hinn 7. nóvember sl. Ástæða
afturköllunarinnar er kröftug
mótmæli forsvarsmanna fyrir-
tækja á svæðinu. „Það sem við
vorum óánægðir með var að
það var búið að skipuleggja
okkur burtu af svæðinu. Við
vissum ekki af því fyrr en búið
var að hengja skipulagið upp,“
sagði Haraldur Ólason, for-
stjóri málmendurvinnslunnar
Furu í samtali við Morgun-
blaðið.
„Það var ekki haft samráð
við okkur um gerð þessa deil-
iskipulags, þess vegna urðu
menn klumsa við þegar þetta
var hengt upp til kynningar,"
sagði Haraldur. Hann sagðist
hafa gert kröftugar athuga-
semdir og þær hefðu verið
teknar til greina. „Við vorum
hreinlega ekki inni á skipulag-
inu. Það var búið að brytja lóð-
ina sem við erum á í sex lóðir.
Gámaþjónustan, sem er að
byggja heilmikið á svæðinu,
var komin út af líka. Við töld-
um okkur ekki geta unað því
að sitja hér með deiliskipulag
ofan á okkur, sem við vorum
ekki með á. Nú er búið að
Deiliskipulagstillaga í Hellnahrauni dregin til baka
„Var búið að skipuleggja
okkur burt af svæðinu“
kippa þessu í liðinn og það á að
breyta þessu þannig að ég
vona að við fáum góða lend-
ingu í þessu máli,“ sagði
Haraldur.
Önnur fyrirtæki á svæðinu,
sem einnig þótti að sér þrengt
voru t.d. malbikunarstöð
Hlaðbæjar-Colas og steypu-
stöð.
Brugðumst
hratt við
Magnús Gunnarsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, sagði í
samtali við Morgunblaðið í
gær að ástæða þess að deilis-
kipulagstillagan var dregin til
baka úr kynningu væri sú að
uppi hefðu verið hugmyndir
um að flokka svæðið niður eft-
ir tegundum atvinnustarfsemi.
„Menn veltu fyrir sér þeim
möguleikum hvort það gæti
orðið um það að ræða að
ákveðin fyrirtæki mundu færa
sig um set á einhverjum tíma-
punkti í framtíðinni. Síðan
þegar þetta er lagt fram, komu
að máli við okkur forráðamenn
fyrirtækjanna og töldu að efni
deiliskipulagstillögunnar, eins
og hún væri lögð upp, væri
ekki í þeim anda að þeir gætu
fellt sig við hana. Þá brugð-
umst við í raun og veru hratt
við, drógum þetta til baka og
viljum með þessum fyrirtækj-
um leggjast á eina sveif um að
þetta geti gengið þannig upp
að eins mikil sátt ríki um deil-
iskipulagið milli þessara fyrir-
tækja og bæjarins eins og
hægt er,“ sagði Magnús.
Magnús sagði að meðan á
skipulagsvinnunni stóð hefði
verið talað við einstök fyrir-
tæki um þennan möguleika,
sem tillagan gerði ráð fyrir, en
ekki hefði komið fram sérstak-
ur áhugi hjá þeim að flytja
starfsemi sína annað. Um það
hvort fyrirtækin hefðu verið
skipulögð út af svæðinu sagði
Magnús að á vissan hátt mætti
segja að sú tillaga sem var lögð
fram hafi gert ráð fyrir breyt-
ingum á lóðamörkum og öðru
miðað við þá tillögu og þau
lóðamörk sem fyrirtækin búa
við í dag. „Hins vegar má segja
að í greinargerð, sem lögð var
fram með tillögunni, var rætt
um að ekki væru áform um að
starfsemin mundi verða færð
annað.“
Magnús sagði að bærinn
hefði fallist á athugasemdir
fyrirtækjanna. „Við teljum að
hægt sé að leysa málið á þann
hátt að allir geti vel við unað.
Skipulagshöfundar ásamt
skipulagsyfirvöldum hér mátu
stöðuna hér eftir þessar at-
hugasemdir að það væri eðli-
legra að draga tillöguna til
baka strax heldur en að fara í
kynningarferil og fá þar at-
hugasemdir, sem í raun voru
þegar komnar fram hjá fyrir-
tækjunum. Miklu eðlilegra
væri að viðurkenna það að það
væri hægt að fara aðra leið og
ná lendingu sem þjónaði hags-
munum fyrirtækjanna og bæj-
aryfirvalda."
Eðlileg viðbrögð við
athugasemdunum
Um hvort ekki hefði verið
eðlilegt að kalla eftir athuga-
semdum fyrirtækjanna og
vinna í samráði við þau áður en
tillagan var afgreidd af bæjar-
stjóminni og lögð fram til
kynningar, sagði Magnús: „Ég
get alveg viðurkennt það og
sagt að þetta er ekki venjan að
deiliskipulag sé dregið til
baka. Hins vegar voru þetta
mjög eðlileg viðbrögð bæjaryf-
irvalda þegar athugasemdir
komu fram því menn skulu
átta sig á því að ferillinn var al-
veg eðlilegur og fyrh-tækin
höfðu alveg möguleika á að
koma fram með sínar athuga-
semdir. Kynningarfrestur var
ekld liðinn, hann var rétt að
hefjast. En í stað þess að
lengja þann tíma sem það tæki
að geta hafið vinnu með fyrir-
tækjunum var eðlilegra að
taka þetta til baka, vinna hratt
og vel í samvinnu við fyrirtæk-
in og aðila á svæðinu þannig að
við gætum komið svæðinu sem
fyrst í úthlutun."
Magnús sagði að kostnaður
bæjarins vegar þessa yrði ekki
mikill. „Þetta tefur skipulag-
svinnuna um einhveijar vikur
en að öðru leyti á kostnaður
ekki að vera mikill fyrir bæjar-
sjóð. Við erum að bregðast
hratt við kröftugum athuga-
semdum fyrirtækjanna og ég
held að við séum ekkert minni
menn fyrir.“
Heimavinna ekki unnin
„Þessi vinnubrögð eru með
ólíkindum,“ sagði Lúðvík
Geirsson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar í Hafnarfirði.
„Þetta er örugglega í fyrsta
skipti sem sveitarfélag stend-
ur frammi fyrir því að þurfa að
kippa til baka skipulagstillög-
um, sem eni í kynningu. Menn
hafa greinilega alls ekki unnið
sína heimavinnu; þ.e. að vinna
þetta í samvinnu og samráði
við þá aðUa, sem eru á svæð-
inu. Það hefur komið berlega í
Ijós. Það er búið að kosta til
heilmiklum fjármunum í þessa
hluti og nú standa menn
frammi fyrir því að þurfa að
taka þetta mál upp á nýtt. Eft-
ir stendur auðvitað spuming-
in: hvernig atvinnurekstur
vilja mann hafa á þessu svæði
ef menn eru að tala um að
þarna eigi að vera þrifalegri
rekstur í næsta nágrenni við
íbúðarbyggð.“
Lúðvík sagði að máhð hefði
verið þannig kynnt í bæjar-
stjórn að það hefði verið unnið
í samráði við fyrirtækin og
enginn ágreiningur væri uppi.
Hann sagði að málið væri til
mai-ks um flumbrugang þehTa
sem færu með yfirstjórn og
ábyrgð í skipulagsstjórn í
bænum. „Við vísum þessu al-
farið yfir á meirihlutann. Það
var hann sem lagði þetta svona
fyrir.“
Með samþykkt bæjarstjórn-
ar Hafnarfjarðar á bæjar-
stjórnarfundi hinn 25. nóvem-
ber var samþykkt að draga
tillöguna til baka og jafnframt
að fela skipulagsnefnd að
vinna nýja deiliskipulagstil-
lögu, sem kynna á bæjarstjórn
hinn 18. janúar næstkomandi.
h