Morgunblaðið - 02.12.1999, Side 26

Morgunblaðið - 02.12.1999, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU SAMKOMULAG hefur náðst milli stjórnar Básafells hf. og heima- manna á Suðureyri um yfírtöku á rekstri félagsins á staðnum. Hópur heimamanna á Flateyri á einnig í við- ræðum við Básafell um að taka við rekstri félagsins þar og er gert ráð fyrir að farin verði svipuð leið og far- in var á Suðureyri. Eins og greint hefur verið frá í fréttum hefur stjóm Básafells hf. ákveðið að hætta starfsemi á Flat- eyri og Suðureyri um næstu áramót og sagt öllu starfsfólki sínu á þessum stöðum upp störfum. Á stjórnarfundi Básafells hf. hinn 26. nóvember sl. var Guðmundi Kristjánssyni fram- kvæmdastjóra fahð að taka upp við- ræður við heimamenn á Isafirði, Flateyri og Suðureyri með það að markmiði að stokka upp rekstur Básafells hf. með þátttöku heima- manna. Treystum á heimamenn í hráefnisöflun Uppsagnir á Suðureyri voru þann- ig dregnar til baka og hafa heima- menn náð samkomulagi við stjórn Básafells um að taka yfír rekstur fé- lagsins á staðnum. Óðinn Gestsson, forsvarsmaður heimamanna, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki geta upplýst hverjir það væru sem að kaupunum stæðu en það væru að Flateyringar hyggjast yfírtaka rekstur Básafells á staðnum mestu leyti heimamenn. Hann sagði að stofnað yrði nýtt félag sem keypti eignir Básafells á Suðureyri, meðal annars fiskvinnsluhús með tilheyr- andi tækjum og bát með 242 tonna kvóta í þorskaflahámarki. Ennfrem- ur yrði treyst á heimamenn við öflun hráefnis. „Úgerð á Suðureyri byggist að miklu leyti á smábátum og við treystum á að þeir landi hjá okkur, eins og þeir reyndar hafa mikið gert til þessa. Líklega hafa um 70% af afl- anum komið til vinnslu á staðnum. Við höfum fulla trú á að hér sé hægt að reka fiskvinnslu og hér er mikið af bjartsýnu fólki. Hér eru hins vegar einnig margir sem hreinlega trúa ekki enn hvernig staða er komin upp,“ sagði Óðinn. Hópur heimamanna á Flateyri átti í gær í viðræðum við forsvarsmenn Básafells um að yfirtaka rekstur fiskverkunar félagsins á staðnum en í gær var ekki ljóst hvað í kaupunum fælist að sögn Hinriks Kristjánsson- ar, framleiðslustjóra Básafells hf. á Flateyri, en hann var í forsvari SJÁLFSTYRKING K V E N N A BÓK SEM ÆTLUÐ ER KONUM Á ÖLLUM ALDRI Louise L. Hay er höfundur 18 metsölubóka, þar á meðal HjáJpaðu sjálfum þér. Bókin Sjálfstyrking kvenna er leiðarvísir til velgengni í lífinu fyrir allar konur. Fæst í öllum helstu bókaverslunum. LEYNDARDOMAR STJATUnAT A JAMES Hinrik Kristjánsson, vinnslustjóri Básafells á Flateyri. þingimaður og fyrrverandi stjórnar- formaður Kambs, tók í sama streng. „Við fórum inn í þessa sameiningu með mikilli bjartsýni og bundum miklar vonir við hana. Þær hafa ekki gengið eftir og ástandið er einfald- lega hörmulegt," sagði Einar. Ekki farin að örvænta Ágústa Guðmundsdóttir, formað- ur Verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri, sagði heimamenn enn halda í þá von að rekstri Básafells yrði haldið óbreyttum áfram undir nýrri stjóm. Hún sagði 45 starfsmenn Básafells á Flateyri í verkalýðsfélag- inu og það væri stór biti að kyngja yrði þetta fólk svipt atvinnunni. Hún sagði atvinnuástandið á Flateyri gott þessa dagana þótt stöðvun á rekstri Skelfisks ehf. síðastliðið haust hefði verið nokkurt áfall. „Básafell er vissulega stærsti atvinnurekandinn á staðnum en fjölmargir fá vinnu hjá minni fyrirtækjum sem ganga í flest- um tilfellum vel. Við erum að minnsta kosti ekki farin að örvænta ennþá og vonum svo sannarlega að rekstri fiskvinnslu Básafells verði haldið áfram hér á staðnum,“ sagði Ágústa. Skrifstofa NEAFC AÐALSKRIFSTOFA Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) var formlega opnuð í London meðan á aðalfundi nefnd- arinnar stóð nú í vikunni en sam- tökin hafa hingað til ekki haft þak yfir höfuðið. Arni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, segir mikil- vægt fyrir NEAFC að hafa slíka aðstöðu, enda veiðar á um- ráðasvæði samtakanna orðnar miklar og samráð um hvernig staðið skuli að veiðunum nauðsyn- legt. Á myndinni eru nokkrir sjáv- arútvegsráðherrar aðildarríkja NEAFC við opnun aðalskrifstof- unnar, f.v. Simon Olsen, sjávar- útvegsráðherra Grænlands, Árni opnuð M. Mathiesen, sjávarútvegsráð- herra Islands, Franz Fischler, yf- irmaður sjávarútvegsmála Evrópusambandsins, Elliot Mor- ley, sjávarútvegsráðherra Bret- lands, Peter Angelsen, sjávar- útvegsráðherra Noregs, og Jörgen Niclasen, sjávarútvegsráðherra Færeyja. Pöntunarsímar: GSM 698 3850 og 435 6810. LEIÐÁRLJOS þeirra sem að kaupunum standa. Saltfiskvinnsla Básafells hefur eink- um farið fram á Flateyri, auk lítils- háttar flakafi-ystingar. Hinrik sagði að enn væri verið að kanna hversu mikla getu og stuðning heimamenn hefðu til að taka rekstur- inn yfir. Hann sagðist engu að síður bjartsýnn á að ná góðri lendingu í málinu. 2.400 tonna kvóti í súginn Básafell hf. á ísafirði varð til árið 1996 við sameiningu rækjuverks- miðja Básafells hf. og Rits hf. á ísa- firði, útgerðarfélaganna Sléttaness hf. á Þingeyri og Togaraútgerðar ísafjarðar hf. og útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækjanna Norðurtang- ans hf. á ísafirði og Kambs hf. á Flat- eyri. Kambur gerði út línubátana Styrmi, Gylli, Jónínu, Jóhannes Ivar og Stakk og voru þessir bátar með samanlagt 1.358 þorskígildistonna kvóta en alls námu heimildir Kambs hf. um 2.400 þorskígildistonnum þeg- ar af sameiningunni varð. Hinrik, sem áður var fram- kvæmdastjóri Kambs, sagði það mik- il vonbrigði hvernig rekstur Bása- fells hf. hefði þróast. „Við lögðum allt undir i þessari sameiningu á sínum tíma og höfðum trú á henni. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að ákvörðun- in hafi verið rétt þá. En því miður hefur reksturinn þróast eins og flest- um er kunnugt og þau 2.400 tonn sem við lögðum til við sameininguna er augljóslega ekki lengur til staðar fyr- ir okkur að vinna úr. Þessi staða er sérstaklega sár fyrir Flateyringa í ljósi þess að þessi eining innan Bása- fells hefur ekki tapað peningum og skilað mjög viðunandi afkomu. En við verðum að horfast í augu við stað- reyndir og vinna úr því sem við höf- um úr að spila,“ sagði Hinrik. Einar Oddur Kristjánsson, al- Skáldsaga efitir metsöluhöfund Celestine handritsins, James Redfield * Bókin kemur út á sama tíma hér og í Bandaríkjunum. * J. Redfield er einn af metsöluhöfundum samtímans. * Leyndardómar Shambala er bók sem aðdáendur J. Redfield hafa beðið eftir. Fæst í öllum helstu bókaverslunum. Um 2.400 tonna kvóti farinn frá Flateyri Þjónustuver Símans OHD7000 Gjaldfrjálst númer Fylgstu með símtalskostnaðinum SIMINN www.simi.is Nú er hægt að fylgjast með símtalskostnaði á skjánum á ISDN símtækinu þínu, jafnóðum og talað er.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.