Morgunblaðið - 02.12.1999, Síða 32

Morgunblaðið - 02.12.1999, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Rannsókn fjöldagrafanna í Mexrkó AP Tveir grírauklæddir lögreglumenn mexíkósku alrfkislögreglunnar standa vörð við búgarð þar sem Qöldagrafjr hafa fundist. Bilun í sjálfvirkum sleppibúnaði? Ósltf. AP. HUGSANLEGT er talið að sjálf- virkur sleppibúnaður björgunar- báta á farþegaferjunni Sleipni, sem sökk við Vestur-Noreg, hafi ekki virkað. Þetta er haft eftir Magne Rodland, yfirmanni sjó- ferðaeftirlitsins í Bergen. Systurskip Sleipnis, Draupnir, hefur nú verið kyrrsett í höfn í Björgvin meðan prófanir verða gerðar á sleppibúnaði björgunar- báta þess. Ferjan Sleipnir strandaði á skeri og sökk síðar í mjög vondu veðri skammt utan við Haugasund sl. föstudagskvöld. Allir þeir sem staddir voru um borð þurftu að fleygja sér útbyrðis áður en ferjan sökk og var fimmtiu þeirra bjarg- að úr hafinu við mjög illan leik. Þrettán lík hafa fundist, þriggja er enn saknað og eru þeir taldir af. Á ferjunni voru fjórir björgun- arbátar sem hver um sig rúmaði 140 manns. Rodland segir að grunsemdir um að sleppibúnaður hafi ekki virkað byggist meðal annars á vitnisburði þeiri'a sem lentu í slysinu. Ferjan sjálf liggur á um 100 metra dýpi en talið er að myndir teknar úr fjarstýrðum kafbáti geti varpað frekara ljósi á hvort grunsemdirnar eru á rökum reistar. Tveir björgunarbátar fundust á floti á þeim slóðum þar sem slysið varð en ekki hefur tek- ist að upplýsa hvort þeir komu frá Sleipni eða einhverju þeirra björgunarskipa sem komu farþeg- um ferjunnar til hjálpar. Farþegar, sem komust lífs af úr slysinu, hafa kvartað undan því að áhöfn ferjunnar hafi brugðist seint við og að björgunarvesti sem um borð voru hafi verið gölluð. www.olis.is Líkamsleifar tveg’gja fundnar Ciudad Juarez. AP, AFP, Washington Post. BANDARÍSKIR og mexíkóskir lög- reglumenn og sérfræðingar héldu í gær áfram að leita að jarðneskum leiíúm allt að hundrað manna sem talið er að eiturlyfjasmyglarar hafi drepið og grafið í fjöldagrafir nálægt landamærum ríkjanna. Tilkynnt var um miðjan dag í gær að líkamsleifar tveggja manna hefðu fundist en ekki hefur tekist að upplýsa af hverjum þær séu. Að líkindum mun þurfa að fara fram rannsókn á erfðaefni í leif- unum áður en hægt verður að segja til um það. Fjöldagrafirnar eru nálægt tveim- ur búgörðum við borgina Ciudad Ju- arez, sem er skammt sunnan við landamæri Mexíkó og Texas-fylkis. Á þeim slóðum er talið að eiturlyfja- hringur sem kenndur er við borgina hafi stundað umfangsmikið eitur- lyfjasmygl og eru líkin talin vera af fórnarlömbum hans. Talið er að mexíkósk lögregla kunni að hafa ver- ið í vitorði með glæpamönnunum þar sem talið er að nokkur þeirra líka sem liggja grafin á svæðinu séu af fólki sem síðast sást í vörslu lögreglu. Það var einn fyrrverandi meðlimur Juarez-eituriyfjahringsins sem gaf sig fram við yfirmenn FBI í Was- hington fyrr á árinu og sagði frá til- vist grafanna. Uppljóstrarinn sagði að allt að 100 lík gætu verið grafin á staðnum, þ. á m. líkamsleifar manna sem hafi gefið bandarískri lögreglu upplýsingar um starfsemi eiturlyfja- hringsins. Rannsóknarmenn á vegum Banda- rísku alríkislögreglunnar (FBI) komu í gær á staðinn þar sem talið er að líkin séu grafin og hafa unnið með mexíkóskum rannsóknarmönnum að leit og uppgreftri þar. Talið er að lík 22 Bandaríkjamanna geti legið í fjöldagröfunum og auk þess er talið að þar sé að finna lík kólumbískra eit- urlyfjasmyglai'a. Bill Clinton, Bandaríkjaforseti, sagði í gær að málið væri hi*yllilegt dæmi um framferði mexíkóskra eit- uriyfjahringa. „Fundurinn gerir það enn meira aðkallandi fyrir okkur, ekki aðeins að veija landamæri íyrir eiturlyfjasmygli, heldur einnig að vinna náið með mexíkóskum yfirvöld- um í því að uppræta starfsemi smygl- hringanna," sagði forsetinn í gær. Lykilvitni hurfu sporlaust Fyrir nokkrum árum náðist góður árangur í baráttunni gegn eiturlyija- hringum í Kólumbíu og er talið að ein afleiðing þess hafi orðið sú að starf- semi þeirra fluttist til Mexíkó. Á síð- astliðnum fimm árum hafa yfirvöld í Mexíkó reynt að uppræta starfsemi fimm öflugra eiturlyfjahringa sem starfa í landinu. Tilraunirnar hafa að mestu mistekist vegna þess að lykil- vitni hafa horfið sporlaust. Talið er að í fjöldagröfunum sem fundist hafa nú sé að finna einhver þeirra vitna sem horfið hafa á undanfömum árum. Einn æðsti yfirmaður FBI sagði í gær að líkur væru á að flest líkanna hefðu legið 2-8 ár í gröfunum. Það þykir styðja kenningar um að um fómarlömb Juarez-hringsins sé að ræða. Hermt er að um miðjan þenn- an áratug hafi auður og áhrif hrings- ins verið mest og á þeim tíma voru mörg mannshvörf tilkynnt á svæð- inu. Talið er að hringurinn hafi sent flugvélar hlaðnar kókaíni til Banda- ríkjanna á þessum áram. Síðan hefur heldur hallað undan fæti í samkeppn- inni við aðra glæpamannahópa. Reuters Rússneskir hermenn orna sér við eldstæði nærri þorpi í Tsjetsjníu. Herför Rússa hefur ntí staðið í tvo mánuði. Rússar játa að Tsjetsjníustríðið geti dregist á langinn Segjast munu hrinda gagnsókn Tsjetsjena Grosní, Peking, París. Reuters, AP, AFP. RÚSSAR hétu í gær að brjóta á bak aftur gagnsókn Tsjetsjena, sem hófst sl. laugardag, en viður- kenndu um leið, að það gæti tekið aðra þrjá mánuði að ná allri Tsjet- sjníu. Voru harðir bardagar við bæina Alleroi, Novogroznenskí, Noibyora og Argun og einnig var barist í úthverfum Gudermes, sem Rússar náðu á sitt vald fyrir nokkru. Átt þú DINGE lampa Efþú átt DINGE lampa vinsamlega skilaðu honum í verslunina sem fyrst. Því miSur þurfum viS aS biSja alla (oá viSskiptavini okkar sem fest hafa kaup á DINGE lampa aS skila honum til verslunarinnar sem fyrst. IKEA hefur uppgötvaS framleiSslugalla á slökkvara sem aetur haft í för meo sér lífshættulegar arleiSingar. Lampar þurfa 230 volta rafspennu sem getur valdiS alvarlegum skaSa ef hun kemst í snertingu viS fólk. Allar rafmagnsvörur okkar eru prófaSar til aS standast ströngustu alþjóSlegu öryggisstaSla. Þessi galli kom fram þrátt fyrir miklar prófanir. IKEA hefur þar af leiSandi ákveSiS aS setja enn hærri kröfur viS prófanir á slökkvurum og innstungum. ViS biSjumst velvirSingar á þeim óþægindum sem þetta kann aS hafa valdiS. ígor Sergejev, varnarmálaráð- herra Rússlands, viðurkenndi í gær, að Tsjetsjenar væra að reyna að ná frumkvæðinu í stríðinu í sín- ar hendur en sagði, að þeim myndi ekki takast það. Ummæli Sergejevs benda til, að Tsjetsjenar séu að sækja í sig veðr- ið og svo virðist sem Rússum hafi lítið orðið ágengt við bæinn Uras- Martan en talið er, að þar séu allt að 3.500 tsjetsjneskir hermenn til varnar. Liggur um bæinn eina leið- in, sem enn er opin til höfuðborgar- innar, Grosní. Haft er þó eftir Tsjetsjenum sjálfum, að um 80% bæjarins séu nú rústir einar. Býður „vernd Allah“ Aslan Maskhadov, forseti Tsjet- sjníu, hvatti í fyrradag rússneska hermenn til að hlaupast undan merkjum og ganga til liðs við Tsjet- sjena og sagði, að þeir myndu þá „njóta verndar Allah“. Sagði hann, að allt að fimm rússneskir hermenn kæmu yfir til Tsjetsjena daglega en engar aðrar fréttir eru um það. Hubert Vedrine, utanríkisráð- herra Frakklands, og Joschka Fi- scher, utanríkisráðherra Þýska- lands, lýstu hneykslan sinni á blóðbaðinu í Tsjetsjníu í fyrradag og skoruðu á Rússa að standa við þau loforð, sem þeir gáfu í Istanbul snemma í nóvember, að leyfa eftir- litsmönnum frá ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, að kynna sér ástandið í landinu. Knut Vol- lebæk, yiirmaður ÖSE, var í Moskvu á mánudag en óvíst þykir, að hann fái að fara til Tsjetsjníu. Er sömu sögu að segja um nefnd frá Sameinuðu þjóðunum, sem ætl- aði að kynna sér aðbúnað flótta- fólksins í Íngúsetíu, að hún er enn í Genf og veit ekki hvenær hún fær leyfi Rússa. Þetta færðu umbúðalaust hjá okkur! Frostlög • Rúðuvökva • Smurolíu Olísstöðvarnar við Gullinbrú, Mjódd, Álfhelma og Sæbraut veita umbúðalausa þjónustu. Þú sparar umbúðir og iækkar kostnaðinn hjá þér í ieiðinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.