Morgunblaðið - 02.12.1999, Page 36

Morgunblaðið - 02.12.1999, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Kínverjar koma til skjalanna Klassísk tónlist hefur löngum átt undir högg að sækja í Kína. Hefur beinlínis verið haldið frá fólkinu. Nú er hins vegar að verða breyting þar á, eins og fram kemur í samtali sem Orri Páll Ormarsson átti við kínverska hljómsveitarstjórann Zuohuang Chen sem verður gestur Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói í kvöld. Zuohuang Chen Morgunblaaið/Ásdís HIMINN og haf skilja að ísland og Kína. Gildir þá einu hvort horft er til landfræðilegrar legu, menningar þjóðanna eða fólksfjölda. Það vekur því athygli að Sinfón- íuhljómsveit Islands skuli sækja sér stjómanda þangað austur eftir, Zuohuang Chen, sem verður gestur hljómsveitarinnar á tónleikum henn- ar í kvöld. „Það er rétt, ég er staddur á fram- andi slóðum," segir Chen sem ekki hefur sótt okkur heim áður. ,Annars verður maður ekki svo mikið var við fámennið hér í borginni, ætli ég fyndi ekki betur fyrir þessu úti á landi. Síð- an er það svo að tónlistarmaður finn- ur alltaf eitthvað sem stendur hjarta hans nærri þegar hann hittir aðra tónlistarmenn, sama hvar það er í heiminum. Það dregur úr hinni fram- andi tilfinningu," bætir hann við og brosir breitt. Chen er fíngerður maður, kurteis og glaðlegur og talar ensku með þessum skemmtilega austurlenska hreim og hrynjandi. Við erum staddir í búningsher- bergi hans í iðrum Háskólabíós og ég geri mér í hugarlund að rýmra sé ugglaust um hann í helstu tónleika- húsum heims, þar sem hann er tíður gestur. Chen hlær að þessari athuga- semd og bendir á að hljómsveitar- stjórar þurfi svo sem enga sali til að smeygja sér í smókinginn. Fyrsti doktorinn Hann hóf píanónám í fæðingar- borg sinni, Sjanghæ, á unga aldri en útskrifaðist síðan sem hljómsveitar- stjóri frá tónlistarháskóla borgarinn- ar. Að lokinni útskrift innritaðist Chen til náms í Tanglewood Music Center og tónlistarháskóla Michig- an-ríkis í Bandaríkjunum og lauk MA-prófi þaðan. Þrem árum síðar varð hann fyrstur manna til að öðlast titil sem doktor í tónlistarfræðum frá Michigan-háskóla og varð þar með fyrstur þegna Alþýðulýðveldis Kína til að bera þann titil. Um tíma starf- aði Chen sem hljómsveitarstjóri í Kansas en tók síðan við stjórn Cent- ral Philharmonic-hljómsveitarinnar í Kína. Frá árinu 1990 hefur hann ver- ið listrænn stjórnandi og aðalstjóm- andi Wichita-hljómsveitarinnar, auk þess að koma fram sem gestastjórn- andi hljómsveita víða í Bandaríkjun- um, Asíu og Evrópu. Fyrir þremur árum var hann síðan skipaður list- rænn stjórnandi og hljómsveitar- stjóri hinnar nýstofnuðu kínversku þj óðarhlj ómsveitar í Beijing. Maðurinn situr með öðrum orðum ekki auðum höndum og þegar ég spyr hann hvar hann búi koma sem snöggvast á hann vöflur. „Bý og ekki bý. Eg er alltaf að heiman. Einhver stakk upp á því að ég fengi mér gervi- hnött, þannig gæti ég alltaf komið heim á kvöldin,“ segir hann svo hlæj- andi. „En svarið við spurningunni er Bandaríkin. Fjölskylda mín, kona og dóttir, búa þar. Því miður sé ég þær alltof sjaldan. En það er fómin sem hljómsveitarstjóri verðui- að færa. Stundum hefur konan mín þó tök á að ferðast með mér.“ Til Islands er Chen kominn fyrir tilstilli gamals skólabróður frá Michigan, Ricos Saccani, aðalhljóm- sveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Islands. „Við Rico vomm saman í hljómsveitarstjóranámi. Hann er frá- bær tónlistarmaður, fullur ástríðu. Síðan höfum við raunar haft fá tæki- færi til að hittast en frétt reglulega hvor af öðram - ég sé Rico alltaf ann- að slagið í sjónvarpinu. Þegarhann bauð mér svo að koma til íslands hugsaði ég mig ekki um tvisvar. Ég hef komið til um fjöratíu landa í starfi mínu en aldrei áður til íslands. Þetta tækifæri gat ég því ekki látið mér úr greipum ganga.“ Chen kveðst ekki hafa vitað mikið um Island. „í hreinskilni sagt vissi ég ekki margt. Þó hafði ég heyrt að landið væri ákaflega fallegt, náttúran stórbrotin, loftið hreint og vatnið tært. Þá skilst mér að Islendingar verði allra manna elstir og hlutfall menntafólks sé mjög hátt. Nú veit ég líka af eigin raun að Islendingar era afar elskulegt fólk.“ Þetta er ekki svo lítið. Chen bjóst aftur á móti ekki við að finna hér svona góða sinfóníuhljóm- sveit. „Hljómsveitin kom mér þægi- lega á óvart. Hún er frábær. Alveg er það dæmalaust að svona fámenn þjóð skuli eiga jafn góða sinfóníuhljóm- sveit. Skýringin liggur auðvitað í gíf- urlegum tónlistaráhuga þjóðarinnar. Mér er sagt að allir tónlistarskólar séu fullir út úr dyram. Þetta er stór- kostlegt. Og fyrir mína parta get ég sagt að ekkert gleður mig meira en einlægur áhugi á tónlist." Chen upplýsir raunar að hann hafi ekki alveg fallið í stafi enda var landi hans, Lan Shui, sem stjómað hefur hljómsveitinni, búinn að „vai’a hann við“. „Lan Shui fór fögram orðum um hljómsveitina og ég gat sagt mér að hann hefði lög að mæla, hann er gam- all skólabróðir minn frá Sjanghæ. Þetta era eintómir skólabræður mín- ir. Þama sést hvað heimur klassískr- ar tónlistar er lítill þegar allt kemur til alls.“ Langt er um liðið síðan Chen bjó í Kína en eftir að hann tók við þjóðar- hljómsveitinni leggur hann leið sína mun oftar þangað en áður. „Það er alltaf gott að koma heim og mér var heiður sýndur með þessari stöðuveit- ingu. Það er mikil ábyrgð að vera list- rænn stjórnandi þjóðarhljómsveit- ar.“ Breyting til batnaðar Kínversk menning stendur á göml- um merg en samt er það svo að klass- ísk tónlist á sér ekki langa hefð í land- inu. Ekki frekar en á íslandi. „Fyrir tíu til fimmtán ánim lá klassísk tónl- ist í láginni í Kína enda héldu yfirvöld henni löngum frá alþýðunni eins og svo mörgu sem skilgreint var sem „utanaðkomandi menning“. A þess- um áratug hefur aftur á móti orðið mikil breyting til batnaðar. Kínverjar era að vakna til vitundar um gildi klassískrar tónlistar og börn sækja nú í auknum mæli í tónlistarnám, ekki bara í Beijing og Shanghæ, held- ur líka í minni borgum landsins. Þessi vaxandi áhugi æskunnar kemur glöggt fram á tónleikum en þegar ég sný mér að áheyrendum eftir tón- leika þar austui’ frá sé ég sífellt fleiri ’ ung andlit. Það gleður mig. Ég veit ekki hvernig það er hér á landi en í Bandaríkjunum sér maður aðallega gráar hærur.“ Vegur sinfónískrar tónlistai’ mun ekki síst hafa vaxið og segir Chen þjóðarhljómsveitina í raun svar við þeirri þróun. „Um leið og giíðarleg umskipti hafa orðið á sviði efnahags- mála undanfarinn áratug hefur menningu og listum vaxið fiskur um hrygg. Stofnun hljómsveitarinnar er því ekkert annað en viðleitni yfir- valda til að seðja þorsta fólksins. Auðvitað þarf að gera enn betur en mikilvægt skref hefur verið stigið. Því ber að fagna.“ Og þessi þróun er bein orsök þess að Chen ver nú meiri tíma eystra en áður. „Ekkert getur glatt mig meira en það sem er að gerast í Kína um þessar mundir og ég h't á það sem skyldu mína að miðla af þekkingu minni og reynslu til unga fólksins sem bíður í ofvæni eftir því að taka við keflinu." Að áliti Chens eiga Kínverjar sama rétt og aðrir þegnar heims á að njóta tónlistararfleifðarinnar - og bæta við hana. „Mér er sönn ánægja að segja frá því að Kínverjar era þegar byi’j- aðir að leggja sitt af mörkum. Það fór ekkert á milli mála í tónleikaferð sem ég fór í með þjóðarhljómsveitina til Austurríkis, Þýskalands og Bret- lands á síðasta ári. Hljómsveitin vakti mikla lukku og var umsvifalaust boð- ið aftur. Og við spiluðum ekki aðeins kínverska tónlist, heldur líka Beetho- ven, Síbelíus og fleiri vestræn tón- skáld. Þá fórum við í tónleikaferð til Japans í haust og ég varð alveg bit á viðtökunum. Þær vora mjög hlýjar." Við þetta má bæta að kínverska þjóðarhljómsveitin hefur tekið upp fimm geislaplötur með innlendu og erlendu efni og hafa þær, að sögn Chens, allar selst vel. íslendingai’ og Kínverjar era kannski ekki svo ólíkar þjóðir eftir allt saman? N otuðum hverj a mínútu Morgunblaðið/Ásdís Helga Bryndís Magnúsdóttir Anna Guðný Guðmundsdóttir EINLEIKARAR á tónleikunum í kvöld verða Anna Guðný Guðmund- sdóttir og Helga Bryndís Magnús- dóttir. Munu þær leika Konsert fyrir tvö píanó eftir Francis Poulenc. Hef- ur verkið einu sinni áður verið flutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís- lands, 1972, en þá voru Halldór Har- aldsson og Rögnvaldur Sigurjónsson í lykilhlutverkum. Verkið, sem er í hópi vinsælustu verka tónskáldsins, var samið árið 1932. Anna Guðný hefur nokkrum sinn- um komið fram sem einleikari með hljómsveitinni, en hún starfar þar jafnframt sem lausráðinn píanóleik- ari, en Helga Bryndís þreytir frum- raun sína. Stöllurnar hafa ekki f annan tfma starfað saman en bera lof hvor á aðra. Undirbúningur hafi gengið vel. „Þetta hefur verið mjög skemmti- legt,“ segir Anna Guðný. „Við byij- uðum að æfa saman norður í Svarf- aðardal, þar sem Helga Bryndís er búsett, í sumar. Ég fór norður með fjölskylduna og karlamir fóru með krakkana 1 sund og elduðu meðan við æfðum - þetta var mjög gaman,“ bætir hún við og bros færist yfir andlitið. Helga Bryndfs býr svo vel að vera með tvö hljóðfæri, flygil og pfanó, í húsinu en sá galli var á gjöf Njarðar að þau voru hvort á sinni hæðinni. Stöllumar dóu hins vegar ekki ráða- lausar, heldur fengu til liðs við sig bændur í sveitinni sem áttu ekki í vandræðum með að flytja pfanóið milli hæða. „Það er þarna enn,“ seg- ir húsráðandinn, „bíður bara eftir næsta prógrammi.“ Reyndi á skipulagsgáfuna Þar sem listamennirnir búa hvor í sfnum landsfjórðungi hefur undir- búningur íyrir tónleikana reynt á útsjónarsemi og skipulagsgáfu þeirra. Segja þeir þetta hafa smollið saman með góðum vilja. „Eg hef verið í leyfi frá kennslu í vetur og því getað skroppið suður einn og einn dag,“ segir Helga Bryn- dís og Anna Guðný bætir við að þær hafi notað hveija mínútu sem verið hefur í boði. „Ekki hefur veitt af, þetta er svo viðkvæmt, samspil tveggja píanóa.“ Hljómsveitin fól píanóleikunmum að velja konsert og segja þeir nokkra hafa komið til álita. Að vel athuguðu máli kom hins vegar í ljós að þær vom „skotnastar" í Poulenc. Hann á Ifka hundrað ára afmæli á þessu ári. Anna Guðný hefur mest glímt við klassfska konserta í gegnum árin og segir því spennandi að takast á við Poulenc sem skrifaði vitaskuld í allt öðmm stíl. Helga Bryndís hefur aftur á móti fengist mikið við Poulenc að undan- fömu, einkum á þessu ári, og segist því vera í „rétta skapinu“. Stöllurnar em á einu máli um að Poulenc hafi mikla sérstöðu sem tónskáld. „Hann er auðþekkjanleg- ur. Þó hann bregði fyrir sig ýmsum stílum, sé ágætis „eftirherma", skín sterkur karakterinn alltaf í gegn. Hann notar sitt krydd,“ segir Helga Bryndís. Það er ekki heiglum hent að koma tveimur flyglum fyrir á sviðinu í Há- skólabfói. Annar er í eigu hljóm- sveitarinnar sjálfrar en hinn er fenginn að láni hjá Tónlistarskóla Garðabæjar. Anna Guðný upplýsir að þær komi til með að vcrða heldur Iengra frá hvor annarri á sviðinu en búist var við en þær hafa ráð með það. „Við erum búnar að þróa með okkur táknmál. Nú reynir á það,“ segja þær og glotta. Það er skammt stórra högga á milli hjá stöllunum. Þær snúa sér nú af fullum þunga að næsta konsert. „Ég kem til með að leika Annan píanókonsert Brahms með Sinfón- fuhljómsveit Norðurlands í vor. Eig- inlega má segja að þetta sé konsert- veturinn mikli,“ segir Helga Bryndís og Anna Guðný bætir við að hún sé byijuð að skoða nótur að Píanókon- sert eftir Atla Heimi Sveinsson sem ráðgert er að hún flytji á tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur á Listahátfð í júní á næsta ári. Leifur og Músorgskíj Tónleikarnir í kvöld hefjast á Haustspili eftir Leif Þórarinsson. Verkið var samið í Verona á Italfu og í Reykjavík sumarið 1983 og til- einkað minningu vinar tónskáldsins, Valdimars Pálssonar. Leifur sagði um verkið: „Þetta er „minningarverk", þar sem heyra má ósjálfráðar ívitnanir í hitt og þetta, þó staðurinn úr „Le sacre“ liggi í augum uppi. Að öðru leyti er þetta eins og fyrsti þáttur sinfónfu, nema hvað niðurlagið er líklega of afger- andi til að örva til áframhalds." Leifur Þórarinsson lést í fyrra. Tónleikunum lýkur á hinu róm- aða verki Modest Músorgskijs, Myndir á sýningu. Skömmu eftir lát rússneska listmálarans Victors Hartmanns árið 1873 efndu vinir hans og aðdáendur til sýningar á vatnslitamyndum hans og teikning- um í St. Pétursborg. Músorgskfj, sem var mikill persónulegur vinur Hartmanns, ákvað að semja svítu fyrir pfanó, til minningar um vin sinn, byggða á myndefni tíu mál- verka á sýningunni. Píanósvítan var ekki gefin út fyrr en eftir lát Músorgskijs. Tæpum fimmtfu árum síðar klæddi Maurice Ravel svítu þessa í hljómsveitarbúning. Verkið var sfðan frumflutt á tónlcikum í Pa- rfs 1923 við gífurlega hrifningu. Allt frá þeirri stundu hefur þessi út- setning verið vinsælt viðfangsefni hljómsveita, eða eins og segir í bók eftir prófessor Edward Downes er verkið „sýningarverk fyrir virtúósa- hljómsveitarstjóra og fyrir virtúósa- hljómsveit".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.