Morgunblaðið - 02.12.1999, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 02.12.1999, Qupperneq 62
62 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 1f----------------------------- MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Uppbygging og rekst- lir leikskóla í Kópavogi ÍBÚUM Kópavogs hefur fjölgað gífurlega undan farin ár og eru nú komnir yfír 23 þús- und. Samhliða svo mik- illi fjölgun íbúa hefur verið nauðsynlegt að byggja upp þjónustu, s.s. grunnskóla og leik- skóla. Með fjölgun grunnskóla og leik- skóla hafa rekstrar- gjöld sveitarfélagsins aukist samstiga til þessara málaflokka. Bæjarstjórn Kópavogs telur eitt brýnasta verkefni sitt að veita íbúum bæjarins sem besta þjónustu. Því er nauðsynlegt að bygging þjónustustofnana sé í takt við fjölgun íbúanna og jafnframt þarf að hlúa vel að og efla þjónustu í eldri hverfum bæjarins. Meirihlutinn í Kópavogi hefur sett fram það markmið að öll börn tveggja ára og eldri eigi kost á því að dvelja á leikskóla a.m.k. hluta úr degi árið 2002. Til að ná þessu markmiði 'er nauðsynlegt að byggja fleiri leik- Skólar Nauðsyn er, segir Sig- urrós Þorgrímsdóttir, Sigurrós Þorgrímsdóttir Rekstur leikskóla Með fjölgun leik- skóla hefur rekstrar- kostnaður þeirra sem hlutfall af heildarút- gjöldum bæjarsjóðs Kópavogs óhjákvæmi- lega verið að aukast. Árið 1996 voru rekstr- argjöld íyrir leikskóla um 280 milljónir en árið 1999 var þessi útgjalda- liður kominn upp í um 535 milljónir, þar af greiddi bæjarsjóður 380 milljónir en hlutur foreldra var 165 mill- jónir. Brúttó rekstrar- kostnaður á hvert leikskólarými var 512 þús. kr. árið 1998, en er kominn upp í ca 545 þús. kr. á þessu ári. Heildarrekstrarkostnaður leikskóla hefur aukist á þessu ári um 15% en hæsti rekstarútgjaldaliðurinn er launakostnaður en auk þess hefur annar kostnaður eins og t.d matar- kostnaður, tölvukostnaður, leikefni og námsgögn jafnframt verið að hækka. Foreldrar greiða ekkert í stofn- kostnaði eða gjaldfærðri fjárfestingu fyrir leikskóla heldur taka þeir ein- göngu þátt í rekstri þeirra. Allur stofnkostnaður fyrir leikskóla, þ.e. eignfærð og gjaldfærð fjárfesting, er greiddur úr sameiginlegum sjóði sveitarfélagsins. Árið 1997 var hlutfall foreldra 40% og bæjarsjóðs um 60% en síðan þá hefur bilið verið að breikka. Árið 1998 var hlutfall foreldra af rekstar- kostnaði leikskóla 35% en Kópavogs- bæjar 65% en nú í ár er hlutur for- eldra 31% og bæjarins 69%. Flest sveitarfélög hafa reynt að hafa hlut sveitarfélagsins 60% í rekstri leikskóla og hlut foreldra 40% en í öðrum sveitarfélögum skiptist rekstrarkostnaður þeirra til helminga, þ.e. sveitarfélagið greiðir 50% af rekstrarkostnaði og foreldrar 50%. Eins og flestum er kunnugt hafa nágrannasveitarfélög Kópavogs undanfarið verið að samþykkja hækkun leikskólagjalda. Leikskólar- áð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum nú nýlega að hækka leikskóla- gjöld í borginni um 13% og Seltjarn- arnes ákvað að hækka þau um 20%. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum þann 23. nóvember s.l. að hækka grunntímagjald úr 2100 kr. í 2300 kr. sem er rétt rúmlega 9,5% hækkun. Jafnframt var sam- þykkt að hækka gjald fyrir hádegis- verð úr 2500 kr. í 2800 kr. á mánuði eins og það hefur verið í Reykjavík undanfarið ár og taka þessar hækk- anir gildi frá og með 1. janúar 2000. Eftir að gjaldskrárbreyting tekur gildi verður hlutur Kópavogsbæjar í rekstri leikskólanna 65% en foreldr- ar 35%. Meginástæðan fyrir því að ekki er farið út í meiri hækkun leik- skólagjalda er fyrst og fremst sú að bæjaryfu-völd töldu ekki rétt að leggja hærri álögur á foreldra heldur láta bæjarsjóð bera áfram megin þungann af þeim hækkunum sem orðið hafa af rekstri leikskólanna. Tveggja ára börn í dag hefur öllum börnum í Kópa- vogi, þriggja ára og eldri, verið boðin leikskólavist í Kópavogi en þó hefur ekki verið unnt í öllum tilfellum að útvega þeim vistun á þeim tíma sem foreldrar óska eftir. Um 200 börn, tveggja ára og eldri, bíða því eftir að komast í leikskóla á þeim tíma sem hentar foreldrum. Þó að leikskólar séu ekki skyldunám er nauðsynlegt að sem flest böm tveggja ára og eldri eigi kost á því að vera í leikskóla hluta úr degi en e.t.v. verður erfitt að fullnægja ýtrustu kröfu foreldra um dvalartíma. Þegar búið verður að opna Núp, nýjan leikskóla í vestur- bænum sem tekur til starfa á næsta ári, stækka eldri skóla og taka nýjan leikskóla í notkun í Salahverfi er ósk- andi að sem flest tveggja ára börn eða eldri fái vistun á þeim tíma sem hentar þeim og foreldrum þeirra best. Höfundur er formaður leikskólanefndar Kópavogs. að tveggja ára börn eigi kost á leikskóladvöl. skóla í bænum. Á síðasta ári, árið 1998, tóku tveir nýir leikskólar, Arn- arsmári og Dalur, til starfa. Nýr leik- skóli, sem hlotið hefur nafnið Núpur, tekur til starfa nú í desember. Þegar er hafinn undirbúningur að hönnun á nýjum leikskóla sem verður við Kópavogsbraut og stefnt er að því að sá skóli taki til starfa um mitt næsta ár. Jafnframt er verið að kanna möguleika og hagkvæmni á því að stækka eldri leikskóla bæjarins. Næsta haust er einnig fyrirhugað að hefja undirbúning að hönnun og byggingu nýs leikskóla í Sölum sem yrði tekinn í notkun árið 2001. Kópavogsbær greiðir ákveðið gjald með börnum í einkareknum leikskólum og á síðasta ári voru greiddir leikskólastyrkir vegna 57 barna í einkareknum leikskólum. í bænum starfa nú tveir einkareknir leikskólar en annar þessara leik- skóla, Undraland, hefur nú sótt um lóð hjá Kópavogsbæ vegna fyrirhug- aðrar stækkunar skólans. Fyi-irhug- að er að þriðji einkarekni leikskólinn taki til starfa eftir áramótin 2000. Dansinn við „Sód<5ma“-súlima MAÐURINN telur sig standa framar skepnum jarðar. Hann byggir það á því að hann hafi mesta greind, hann afli sér menntunar, þrói styrka sjálfsstjóm, setji sér almennar og góðar siðareglur, beri virð- ingu fyrir samborgur- um, rétti minnimáttar hjálparhönd, virði eigna- og sjálfsákvörð- unarrétt fólks, virði skoðanafrelsi, beiti ekki ofbeldi eða þving- unum og fjölskyldu- og vinatengsl séu í hávegum höfð o.m.fl. Með öðrum orðum fólk skal vera traust, gott og heiðarlegt. Mörgum fatast þó á leið mannlegrar reisnar en margir reyna þá úr að bæta. Margur verður af aurum api En margir eru til í að misbjóða umhverfi sínu og fara illa með fólk ef þeir geta hagnast á því. Þar kemur sterklega inn í myndina vímuefna- neysla, klám, vændi og ofbeldi. Inn- an þessa ramma er auðvelt að nýta fátækt og fáfræði til að ná tökum á börnum og ungu fólki og narra það með gylliboðum til starfa í umhverfi þar sem það missir réttindi og sjálf- ræði og á ekki afturkvæmt. Til þess Páll V. Daníelsson að geta lifað verður þetta fólk nánast að gera það sem því er sagt hversu niðurlægj- andi sem það er. Þeir sem stjóma á þessum starfvettvangi hafa það eitt í huga að þéna fé og þegar þetta starfs- fólk skilar ekki lengur arði þá losa þeir sig við það og fá ný fórnar- lömb. Klámiðnaðurinn. Fíkniefnaneyslan hefur þegar fest rætur hér á landi svo að grundvöllur hefur verið lagður fyrir margþætta spillingu. Fíkniefnan- eyslan er ein og hin sama, enda þótt löggjafinn hafi skipt henni í löglega og ólöglega fíkniefnaneyslu. Miklu fleiri munu falla í valinn vegna þeirr- ar löglegu. Þannig hefur vegvísir „Sódómá'-leiðarinnar verið settur upp. Þar finnst þefur af peningum. Þá verður að höndla. Og til að draga fólk að sífjölgandi vínhúsum þarf sterkari auglýsingar. Þá er komið að klámiðnaðinum. Stúlkur eru látnar snúast í kringum súlur og sýna alls konar limaburð og fækka fötum. Augu áhorfenda standa á stilkum og mjöðurinn rennur í og úr glösum þeirra í stríðum straumum og pyngj- Klám Viljum við, spyr Páll V. Daníelsson, innleiða klámiðnaðinn í íslenzkt samfélag? ur eigendanna tútna út. Allt eftir áætlun. Boðin er „einkaþjónusta" á bak við ef aukið fé er látið af hendi rakna. Slæm reynsla Haft er eftir „Súlustúlku" að þær fái í starfinu svo mikla skömm af reynslu sinni á karlmönnum, að þær geti ekki lifað eðlilegu lífi. Flestar þeirra endi í fíkniefnaneyslu og vændi. Það er ekki uppörvandi fyrir sæmilega siðað fólk að horfa á stúlk- urnar afklæðast við súlurnar, enda sjálfsagt fæstum þeirra geðfellt. En hugsið ykkur mannskapinn sem á horfir. Hvernig lítur út hans innri maður þar sem hann hangir á sinni ósýnilegu súlu, afklæddur allri sið- væðingu, stjórnlaus vegna drykkju og græðgi, með augnaráð sem vill sjá og fá meira og meira. Það er sönn og ömurleg hryllingsmynd. Hvað gera stjórnvöld? Nokkuð hefur reynt á sveitar- stjórnir í þessum efnum. Þar eru furðuleg viðbrögð. Ein spyrnir þó við fótum. Hinar virðast ekki hafa manndóm, kjark eða vilja til að taka á málinu. Það þurfi reglur frá ríkis- valdinu. Þetta er dæmigert um stjórnunarlegt getuleysi. Að þvælast undan í svona málum og þora ekki að taka ákvörðun er ekkert annað en bjóða ósómann velkominn en að geta þó sagt, ég mælti ekki með þessu, bendið ekki á mig. En venjulega er það aðgerðarleysið og lydduskapur- inn sem hefur hreiðrað un sig á röngum stöðum sem innleiðir þá hluti sem til óþurftar eru. Þegar hann er fyrir hendi geta nytsamir sakleysingjar orðið verndarar margs konar spillingar. Hvað viljum við? Viljum við innleiða klámiðnaðinn í íslenskt samfélag? Því fylgir að Is- lands dætur fari að dansa í kringum „Sódóma“-súluna. Munum við nokkru sinni geta lagst svo lágt að sætta okkur við slíkt? Þeir sem hika við að taka á þessu máli, vildu þeir sjá fjölskyldufólk sitt í starfseminni? Eða telja þeir þetta allt í lagi af því stúlkurnar eru erlendar? Þá er nú mannkærleikueinn lítill og ekki þarf stóran stokk fyrir mannréttindahug- sjónina. Og svo á það að vera lífssp- ursmál að góma eitthvað af klámp- eningunum fyrir ríkissjóðinn. Það þarf engar skattareglur gagnvart stúlkunum, það þarf að stöðva ósóm- ann og láta stjórnendurna borga. Höfundur er viðskiptafræðingur. Hokkískautar: Reimaðir Stærðir 37-46 fa, Verð aðeins WT;'.. kr. 9.338 Hokkískautar: Smelltir Stærðir 36-46 Verð aðeins iít kr. 5.990 Listskautar:Vinil Hvítir: 28-44. Svartir: 33-46 Stærðir 28-36 ■ ?. kr. 4.201. ' Stærðir 37-46 kr. 4.689 Smelluskautar: Stærðir 29-41 k « Verð aðeins »-•% kr. 4.989 Listskautar: Leður Hvítir: Stærðir 31-41 Verð aðeins kr. 6.247. Svartir: Stærðir 36-45 m. kr. 6.474 Nýjung: Skautar undir HYPNO jr línuskautaskó / ___kr. 4.823 Barnaskautar (Smelluskautar) Stærðir 29-36 Verð aðeins /SÍÍ,,,. kr. 3.989 Skeifunni 11, sími 588 9890
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.