Morgunblaðið - 02.12.1999, Síða 64

Morgunblaðið - 02.12.1999, Síða 64
64 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Ibúasamtök Grafarvogs ÞEGAR ég var beðinn að taka að mér formennsku í Ungmennafélag- inu Fjölni fyrr á þessu ári ákvað ég að hætta sem formaður íbúasamtakanna nú um áramótin. Við for- mennsku í samtökun- um tekur Hallgrímur N. Sigurðsson sem hef- ur verið varaformaður samtakanna frá því við vorum kosnir saman í stjórn þeirra haustið ’94. Ég vil þakka þeim sem hafa unnið með mér mikið starf í stjórn samtakanna á undan- förnum árum. Eins þeim fjölmörgu Graf- arvogsbúum sem hafa haft samband við mig Friðrik Hansen varðandi málefni Guðmundsson hverfisins gegnum árin með góðar ábendingar og athuga- semdir. Að lokum vil ég þakka þeim þúsundum Grafarvogsbúa sem hafa tekið þátt í starfi Ibúasamtakanna K ^jeð þátttöku sinni í fundum og öðr- úm uppákomum sem við höfum staðið fyiir á undangengnum árum. Samstaða í Grafarvogi Það hefur verið ánægjulegt að starfa fyrir þessi samtök í hverfi sem er í jafn örri uppbyggingu og verið hefur. Þau ár sem ég hef verið formaður samtakanna hafa að jafn- aði flust hingað um 100 manns á mánuði. Þessari hröðu uppbyggingu hefur þurft að mæta og ríki og Reykjavíkurborg hafa keppst við að -i^pfylla sínar lögboðnu skyldur. Þar hefur margt þurft að koma til og margt verið gert. Byggðir skólar og dagheimili, vegir og brýr. Við í íbúasamtökum Grafarvogs höfum reynt að leggja lið. Við höfum litið á það sem okkar hlutverk að reyna að benda yfirvöldum á þá þætti sem að okkar mati eru að dragast aftur úr og eru ekki í takt við hina hröðu uppbygginu. Við höf- um reynt að hafa það sem reglu að jomiG__ BURNHAM INTERNATIONAL VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI SÍMI SIO 1600 Jákvæöur höfuðstóll taka eingöngu upp mál sem einróma stuðningur er við. Ef skiptar skoð- anir eru í stjórn eða á fundum þá hafa íbúasamtökin ekki beitt sér í málinu. Við höfum átt kappnóg með að taka upp mál sem full samstaða er um, álykta um þau, kynna á opnum borg- arafundum og með greinarskrifum. Ég trúi að vegna þessa vinnulags hafi skapast almenn og breið sam- staða um þau mál sem samtökin hafa sett á oddinn. Má þar sem dæmi nefna kröfur um betrí samgöngur inn í hverfið. Þá höfum við einnig reynt að leggja öðrum samtökum og félögum lið. Við höfum reynt að vekja athygli á óskum sóknarnefnd- ar um nýtt kirkjusel á Borgarholt- Samtök Það er mikilvægt að við Grafarvogsbúar höldum samstöðu okkar á næstu árum, segir Friðrik Hansen Guðmundsson, og styðjum sem einn maður við bakið á þing- mönnum Reykjavíkur. inu. Óskum Fjölnis um betri aðstöðu til íþróttaiðkunar o.s.frv. Ibúasamtökin á Netinu A síðustu tveim árum hafa ýmsir óskað eftir upplýsingum um Ibúa- samtök Grafarvogs. Þessar fyrir- spurnir hafa m.a. komið frá bæjar- yfirvöldum á Akureyri og úr öðrum hverfum Reykjavíkur. Óskað er upplýsinga um lögin, hvernig við rekum samtökin o.s.frv. Það er með- al annars í framhaldi af þessum fyr- irspurnum að Ibúasamtök Grafar- vogs opnuðu fyrst íbúasamtaka landsins heimasíðu á Netinu nú í október. Hana er m.a. hægt að finna á Vefskinnu Morgunblaðsins með því að slá inn leitarorðin „Grafar- vogur“ eða „Ibúasamtök“. Ég hvet lesendur til að skoða þennan vef og kynna sér störf Ibúasamtakanna á undanförnum árum. Það er ekki síst Grafarvogsblað- inu að þakka að góð stemmning hef- ur myndast í hverfinu um þessi mál á undanförnum árum. Blaðið hefur oftar en ekki tekið greinar og álykt- anir Ibúasamtakanna og fylgt þeim eftir með fréttum og skrifum í leið- ara. Frá því Grafarvogsblaðið var stofnað af íbúasamtökum Grafar- vogs, Grafarvogssókn, Félagsmið- stöðinni Fjörgyn, Ungmennafélag- inu Fjölni og Skátafélaginu Vogabúum hefur blaðið verið málg- agn þessara félaga og samtaka. Það er mikilvægt að svo verði áfram. I sumar gerðist það að í blaðinu eru þessi félög ekki lengur skrifuð sem eigendur blaðsins. Þess í stað er einkahlutafélagið Skrautás ehf. titl- að sem útgefandi. Þau félög sem skráð hafa verið sem eigendur blaðsins hljóta að þurfa að skoða þetta mál, ekki síst ef þessu fylgir breytt ritstjórnarstefna. Stöndum áfram saman Framundan er mikið starf að minna á okkar mörgu hagsmuna- mál. Stærstu baráttumálin okkar eru heldur ekki nein smámál, gerð fyrsta áfanga Sundabrautar, þ.e. gerð brúar yfir Kleppsvíkina og að við fáum lóð Gufunesradíós, í hjarta Grafarvogs, undir íþróttir og útivist. Það er mikilvægt að við Grafarvogs- búar höldum samstöðu okkar á næstu árum og styðjum sem einn maður við bakið á þingmönnum Reykjavíkur og borgarfulltrúum í þeirri miklu vinnu sem þeir eiga framundan, eigi þessi mál að ná fram að ganga. Þá vill undirritaður fyrir hönd Ibúasamtaka Grafaivogs þakka þær miklu samgöngubætur sem hér hafa verið gerðar á árinu. Tvöföld Gullin- brú var tekin í notkun í sumar og nýbúið er að taka í notkun breikkað- an Vesturlandsveg milli Víkurvegar og Suðurlandsvegar. Þessum fram- kvæmdum var báðum flýtt verulega, miðað við fyrri áætlanir. Þetta ber að virða og þakka og ekki síst þátt þingmanna Reykjavíkur og borgar- fulltrúa í þessu máli, svo og þátt fyrrverandi og núverandi samgöng- uráðheiTa og borgarstjóra. Þá eru það margir Grafarvogsbúarnir sem þessa dagana hugsa hlýlega til verk- takans Háfells hf., sem opnaði breikkaðan Vesturlandsveg fyrir umferð, sjö mánuðum á undan áætl- un. Höfundur er forniaður Ibúasamtaka Grafarvogs. Lögbrot og laumuspil ER starfsemi FÍB- tryggingar stóð ekki undir væntingum, og alþjóðlegur vátryggj- andi hætti samstai-fi um þær, greip fram- kvæmdastjóri FIB, Runólíur Ólafsson, til þess ráðs að kenna ís- lenskum vátryggjend- um og samtökum þeirra um. I grein í Mbl. leiðrétti ég aug: ljósar rangfærslur. í ómálefnalegri svar- grein Runólfs í Mbl. 3. nóv. sl. drepur hann umræðunni á dreif. Auk venjubundins skætings í garð íslensku váti-yggingafélaganna og samtaka þeirra, sem ég nenni ekki að elta ólar við, heldur Runólfur sig við fyrri samsæriskenningar sínai’. Hinn alþjóðlegi vátryggjandi hætti m.a. vegna undirróðursstarfsemi á vegum íslensku félaganna! Þá segir Runólfur, að ólöglegir viðskiptahætt- ir íslenskra vátryggjenda og samtaka þein-a megi sín ekki gegn styrk FIB- trygginga. Mér er ókunnugt um ólög- mæta viðskiptahætti innlendu bif- reiðatryggingafélaganna. A hinn bóginn hafa samskipti FÍB við vá- tryggingataka verið með endemum. FÍB þjófstartar Ef vátryggingafélag hyggst starfa hér eða í öðru EES-ríki á sviði lög- boðinna ökutækjatrygginga eru gerðar ríkari kröfur í lögum en ella. Talið er nauðsynlegt að tryggja hags- muni neytenda sérstaklega, m.a. á þann veg, að vátryggingaverndin sé í samræmi við lög og að tjónsuppgjör- sleiðir séu skýrar. Það er svo í verka- hring stjórnvalda að fylgja þessum kröfum eftir. Ýmsum upplýsingum ber að koma til vátryggingafélaga- skrár Fjármálaeftirlitsins. Erlendur vátryggjandi skal upplýsa hver ann- ist uppgjör tjóna hér á landi. Senda þarf eftirlitinu vátryggingaskilmála til athugunar, og ganga þarf frá þátt- töku í greiðslu bóta, sem óvátryggð, óþekkt og erlend ökutæki valda hér á landi og vegna aksturs íslenski’a öku- tækja erlendis. Gerist það með aðild að ABÍ, sem er félag vátryggjenda stofnað í þessu skyni. Loks þai'f að ganga frá skráningu vátryggjandans í dómsmálaráðuneyti. Þetta eru í sjálfu sér einföld formskilyrði, en þó bráðnauðsynleg. Þegar IBEX-vátryggjandinn, samstai’fsaðili FIB, ákvað að draga sig út af íslenska markaðnum hélt FIB-trygging áfram að selja öku- tækjatryggingar, þó að þessi skilyrði hefðu ekki verið uppfyllt. Islensk stjórnvöld komust að því, að hér var pottur brotinn. Hófu þau að rannsaka málið, og munu hafa stöðvað starfsemi FÍB-trygg- Sigmar inga í einhverja daga. Ármannsson Allt var þetta mál orðið hið mestaklúður. í Mbl. fyrir skömmu var rætt við fram- kvæmdastjóra FÍB um ástæður þess, að stöðva varð sölu FÍB-trygginga. Þar gagnrýnir hann framkomu ABI í málinu. Gefur hann þannig til kynna, Tryggingar Upplýsingum hefur verið haldið frá neyt- endum, segir Sigmar Armannsson, eða þær verið villandi. að ABÍ hafi átt þátt í því, hversu óhöndulega tókst til hjá FIB-trygg- ingu. Þessi staðhæfing hans er auð- vitað úr lausu lofti gripin. Stjórn ABI, og raunar íslensk stjórnvöld, gerðu sitt ýtrasta til að greiða úr málinu, enda brýnt þar sem öryggi um fram- kvæmd vátryggingaskyldunnar var stefnt í tvísýnu. I samstai’fi við al- þjóðadeild Lloyds of London tókst að finna lausn. Hefur Lloyds séð sér: staka ástæðu til að þakka stjórn ABI bréflega fyrir skjóta og faglega af- greiðslu málsins. Hækkað í laumi Undarleg vinnubrögð málsvai’a FIB-tryggingar birtast einnig í fá- heyrðum samskiptum við sjálfa vátr- yggingatakana. I vor var skaðabóta- lögum breytt, og í kjölfar þess hækkuðu íslensk félög iðgjöld öku- tækjati-ygginga. Stjómvöld mátu, að iðgjöldin hefðu hækkað að meðaltali um 36%. Bifreiðatryggingafélögum A það að vera ævistarf að eiga fatlað barn? EG Skrifstofubúnaður ehf. Ármúia 20 sími 533 5900 fax 533 5901 I FRAMHALDI af nokkrum greinum um húsnæðismál fatlaðra, sem hafa birst nýlega í Mbl., legg ég orð í belg og gef lesendum svo- litla lýsingu á aðstæð- um sonar míns, hans Jóns Grétars. Ég veit að það eru fjölmargir á sama báti og hann. Jón er senn 24 ára. Hann var svo óheppinn að fæðast mikið fatlaður. Nokkrum árum fyrir fæðingu hans höfðu menn komist að þeirrí niðurstöðu, að þroska- heft fólk skyldi ekki lengur flytjast inn á sólarhrings- stofnanir, þar sem slík úrræði væru síst til þess fallin að auka þroska þeima og lífsgæði. Þetta kallaðist „normalisering" og hefur sennilega átt mestan þátt í að bæta líf þroska- heftra. í þessu fólst m.a. að þroska- heft börn ættu rétt á að alast upp hjá fjölskyldu sinni eins og önnur börn. Þar með var umönnun og uppeldi Guðlaug Sveinbjarnardóttir fatlaðra barna velt af fullum þunga á fjöl- skyldur þeirra. Því miður varð fram- kvæmdin hér á landi á þann veg að lítil hjálp- arúrræði komu á móti til að gera fólki fært að sinna þessu verkefni án þess að færa miklar fómir. Það vita allir, sem eiga lítil börn, hve mikil vinna og binding felst í uppeldi þeiiTa. Sama gildir að sjálfsögðu um þau fötluðu, nema hvað vinnan er miklu meiri og dregur yfirleitt ekki úr henni svo lengi sem hinn fatlaði býr í foreldrahúsum. Foreldrar fara ekkert eða gera nema tryggja fyrst gæslu þess fatlaða. Eftir því, sem hann eldist, fækkar þeim úrræðum sem foreldrar hafa. Systkin flytja burt og stofna eigin fjölskyldu og af- ar og ömmur falla frá eða verða of gömul til að hlaupa undir bagga. í lögum um málefni fatlaðra segir, Fatlaðir í dag, 12 árum seinna, stöndum við í sömu sporum, segir Guðlaug Sveinbjarnar- dóttir, nema nú er Jón orðinn fullorðinn maður og þjónustan sem stendur til boða hefur fremur dregist saman en hitt. að fatlaðir skuli eiga kost á búsetu í samræmi við þarfir þeirra og óskir eftir því, sem við á. Þar sem við for- eldrar Jóns Grétars vildum tryggja framtíð hans meðan við værum í fullu fjöri og gætum stutt hann sem best, lögðum við, þegar hann var 12 ára, inn umsókn til Svæðisskrifstofu Reykjavíkur um heimili fyrir hann. Við tókum fram, að við óskuðum eft- ir, að hann fengi að flytja að heiman á næstu 5-10 árum. Við töldum að með þessum góða fyrirvara gætum við best tryggt að hann eignaðist heimili sem hentaði þörfum hans og óskum. Engin svör hafa verið veitt og engin fyrirheit gefin. í dag, 12 ár- um seinna, stöndum við í sömu spor- um, nema nú er Jón orðinn fullorðinn maður og þjónustan sem stendur til boða hefur fremur dregist saman en hitt. Verndaður vinnustaður, þar sem hann er á daginn, hefur sent heim tilkynningu um að vegna manneklu verði þeir sem þar dvelja að vera heima til skiptis. Skamm- tímavistin í Víðihlíð hefur einnig orð- ið að draga úr vistun hvers einstakl- ings vegna þess að fleiri þurfa að komast að en til þessa. Það er aðeins ein skammtímavist fyrir þroskahefta 12 ára og eldri í Reykjavík. Þar geta 8 dvalið samtímis. Éullorðinsfræðsla fatlaðra hefur orðið að draga úr kennslu og fækka stöðugildum vegna fjárskorts. Því miður eru þetta staðreyndir. Það er því ótrúleg veruleikafirring, sem lesa má úr yfírlýsingu félags- málaráðherra í Mbl. 22. október en þar segir hann: „Málefnum fatlaðra hefur verið veittur algjör for- gangur." Höfumlur er móðir fatlaðs pilts.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.