Morgunblaðið - 02.12.1999, Síða 81

Morgunblaðið - 02.12.1999, Síða 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 81 I DAG BRIDS lJmK]ón (iuömiiiidiir l'áll Arnarson EDGAR Kaplan þótti skemmtilegur töfluskýr- andi og hafa ýmsar mein- fýsnar athugasemdir hans verið skráðar á blað. Hér er ein, sem hæfir vel spih dagsins: „Suður á sjö slagi í þremur gröndum. Einn af himnum ofan gerir átta, og með átta slagi er stutt í níu.“ Suður gefur; alhr á hættu. Norður A 654 ¥ 54 ♦ Á1082 * 7532 Suður AÁKD ¥ DG6 ♦ D93 + ÁK64 Vcslur Norður Austur Suður - - 2 grönd Pass 3 grönd Pass Pass Pass Vestur kemur út með hjartaþrist, fjórða hæsta, og austur tekur með ás og spil- ar níunni til baka. Vestur dúkkar og lætur tvistinn til að sýna fimmlit. Þér er óhætt að treysta því að hjartað liggur 5-3, svo það er vandséð hvernig eigi að breyta þessum sjö slögum í níu. Eða hvað? Sjáum til. Ef vestur er með skiptinguna 3-5-3-2 og tígulkóng þá er von. Sagn- hafi tekur svörtu slagina sína og sendir vestur svo inn á hjarta: Norður ♦ 654 ¥ 54 ♦ Á1082 ♦ 7532 Vcstur Austur A 1097 A G832 V K10832 ¥ Á97 ♦ K65 ♦ G74 + G9 * D108 Suður AÁKD ¥ DG6 ♦ D93 + ÁK64 Væntanlega tekur vestur öll hjörtun, en síðan verður hann að spila frá tígulkóngi. Þar kemur áttundi slagur- inn. Og í síðasta hjartað varð austur að henda tígli, svo það verður auðvelt að gleypa gosann ef hann er ekki þegar kominn í leitirn- ar. Níundi slagurinn er skammt undan. Auðvitað þai-f vestur ekki að taka alla hjartaslagina, en á því græðir hann ekkert, því sagnhafi fríar þá níunda slaginn á lauf. skÆk Um.vjón Margeir Pétnrsvon STAÐAN kom upp á þýska meistaramótinu sem fram fór í Altenkirchen í síðasta mánuði. U. Kersten (2.365) hafði hvitt og átti leik gegn D. Bischoff (2.190). 25. Hxh7! - Kxh7 26. Hf4 Kg8 27. Hh4 - Db4 28. c3 Da3 29. Bfl - Bg7 30. fxg7 - Kxg7 31. Df4 - f5 32. gxf6+ - Kf8 33. Dh6+ - Ke8 34. Dg7 og svartur gafst upp. Hvítur leikur og vinnur. Arnað heilla nAÁIÍA afmæii. í dag, 4 V/fimmtudaginn 2. des- ember, verður sjötugur Benedikt Eyfjörð Sigurðs- son flugvirki, Lækjarsmára 72, Kópavogi. í tilefni af því tekur hann á móti gestum laugardaginn 4. desember frá kl. 15-18 í félagsheimili fiugvirkja, Borgartúni 22, Reykjavík. Ljósmyndastofa Seltjarnarness. BRÚÐKAUP. Gefín voru saman 11. september í Laugarneskirkju af sr. Da- víð Baldurssyni Þórey Jónína Jónsdóttir og Bóas Bóasson. Heimili þeirra er í Reykjavík. Ljósmyndastofa Seltjarnarness. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 9. október í Seltjarn- arneskirkju af sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur Ár- ný S. Daníelsdóttir og Hörður Harðarson. Heimih þeirra er í Reykjavík. BRUÐKAUP. Gefin voru saman 25. júlí í Háteigs- kirkju af sr. Irisi Kristjáns- dóttur Kristín Halla Hann- esdóttir og Frosti Viðar Gunnarsson. Heimili þeirra er í Löngubrekku 15, Kópa- vogi. Barna- & fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. ágúst í Kópa- vogskirkju af sr. Sigfinni Þorleifssyni Elísa Guðlaug Jónsdóttir og Valtýr Þóris- son. Heimili þeirra er í Kópalind 10, Kópavogi. Barna & fjölskylduljósmyndir. BRÚÐKAUP. Gefin voru samjan 21. ágúst í Seltjarn- arneskirkju af sr. Solveigu Láru Guðmundsdóttur Þór- dís Magnúsdóttir og Indriði Ármannsson. Heimili þeirra er að Kársnesbraut 27, Kópavogi. LJOÐABROT KYSSTI MIG SOL Kyssti mig sól og sagði: Sérðu ekki, hvað ég skín? Gleymdu nú vetrargaddinum sára, gleymdu honum, ástin mín. Nú er ég átján ára. Þá dunaði haustsins harpa í hug mínum þungan slátt. Því spurði ég: Geturðu gleymt þessum rómi, sem glymur hér dag og nátt og býr yfir dauðadómi? Þá sviku mig rökin, og síðan syngur í huga mér hinn hjúfrandi blær og hin hrynjandi bára, hvar sem, hvar sem ég fer: Nú er hún átján ára. Guðmundur Böðvarsson. BOGMAÐUR Afrnælisbarn dagsins: Þú ert góðum gáfum gæddur og fær í flestan sjó. Þú ert metnað- argjarn og ferð þínar eigin leiðir. STJÖRJVUSPA eftir Franees llrake Hrútur (21. mars -19. apríl) Eyddu ekki orku þinni í óþarfa því þú hefur í mörgu að snúast í dag sem krefst óskiptrar at- hygli þinnar. Ekkert má koma þér úr jafnvægi. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú hefur ástæðu til að fagna því þér hefur tekist að halda útgjöldum innan þess ramma sem þú settir þér. Nú máttu verðlauna sjálfan þig svolítið. Tvíburar (21. maí - 20. júní) A Þér hefur ekki tekist nægilega vel að halda utan um hlutina að undanfomu og skalt nú lofa þér því að breyting muni verða þar á hið snarasta. Krabbi (21. júní-22. júlí) Þú mátt búast við að einhverj- ar deiiur rísi upp miiii sam- starfsfólks á vinnustað svo það kemur í þinn hlut að lægja öld- umar og semja frið. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Láttu sjálfan þig ganga fyrir þessa dagana því ekki veitir af að rækta líkama og sál. Þá muntu verða í betra formi til að stunda félagslífið. Meyja (23. ágúst - 22. september) (Su. Þú ert að því kominn að gefast upp og skyldi engan undra. Haltu þetta samt út því þú munt uppskera laun erfiðisins þíns fyrr en seinna. v<* m (23. sept. - 22. október) & Gakktu úr skugga um að þér hafi ekki yfirsést neitt í því verki sem þú ert að skila af þér því þá geturðu með góðri sam- visku tekið að þér ný verk. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) "WC Eftir miklar umræður og vangaveltur hafa nú málin leystst svo þér er ekkert að vanbúnaði að boða menn til fundar til að skrifa undir samninga. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. desember) ftD Nú ertu tilbúinn til að þess að bæta við menntun þína og læra nýja hluti. Vertu ákveðinn og taktu málin föstum tökum al- veg frá upphafi. Steingeit (22. des. -19. janúar) 4mf Þrek þitt og þrautseigja vekur athygli því þeir em margir sem njóta góðs af því. Taktu til þín það hól sem þú færð því þú átt það skilið. Vatnsberi f . (20. janúar -18. febrúar) KSítt) Þú þarft að setja þér takmörk þessa dagana því þú ert engan veginn í formi til þess að vera allt í öllu bæði heima fyrir og í starfi. Fiskar mt (19. febrúar - 20. mars) >•** Vertu óragur við að leita að- stoðar. Það versta sem gæti gerst er að þér yrði neitað en það eru sannarlega margir sem vilja ólmir styðja þig. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vfsindaleera staðrevnda. FRETTIR Anægð með árangur lögreglunnar EFTIRFARANDI ályktun var- samþykkt á stjórnarfundi Vímu- lausrar æsku í Foreldrahúsinu 1. desember sl.: „Vímulaus æska og Foreldahóp- urinn lýsa ánægju sinni með fram- úrskarandi árangur lögreglunnar í baráttunni gegn vímuefnasölum að undanförnu. Samtökin hvetja almenning til að standa þétt við bakið á lögreglunni í starfi hennar og veita henni alla þá hjálp sem unnt er. Aðeins með sameiginlegu átaki mun takast að bægja frá þeinri vá sem vímuefna- vandinn er. Til að ná árangri þarf bæði að berjast gegn framboði og eftirspurn eftir vímuefnum. Lög- reglan hefur sýnt og sannað hvers hún er megnug við að draga úr framboðinu og það er hlutverk Vímulausrar æsku og Forelda- hópsins ásamt öllum öðrum sem vinna að forvörnum að byggja upp samfélag þar sem ekki er eftir- spurn eftir vímuefnum. 9 LINURNAR Kuldaskór, öklaskór og spariskór í miklu úrvali / Stínafína - CHASSE Laugavegi 47, sími 551 7345 Mikið úrval af fallegum fatnaði tfíLL Skólavörðustíg 4a Sími 551 3069 Jól ‘99 Sjón er sögu ríkari Öðruvísi blómabúð blómaverkstæði fNNAscfc Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090 Aubade • •• Fyrir allar dýrmætu stundirnar 2000 CU- K9Ít. . . undirfataverslun, 1. hæö Kringlunni, sími 553 7355.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.