Morgunblaðið - 03.12.1999, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Minnihlutinn í Hveragerði gagnrýnir sölu á rafveitu bæjarins
Islands-
Málið illa undirbúið
ÁRNI Magnússon, Framsóknar-
flokki og Knútur Bruun, Sjálfstæðis-
flokki, mótmæltu á bæjarstjómar-
fundi í fyri’adag sölu
Hveragerðisbæjar á di’eifíkerfi raf-
veitunnar til Rarik. Bæjarfull-
trúarnir segir hagstæðari tilboð hafa
borist og er það skoðun Ái’na að illa
hafi verið að málum staðið. Knútur
hefur kært fundinn til félagsmála-
ráðherra.
Árni segir að meirihluti bæjar-
stjórnar hafi gengið til viðræðna við
Rarik umfram það sem var gert við
aðra. Góð tilboð hafi borist frá Sel-
fossveitum og Orkuveitu Reykjavík-
ur, sem hann hafi kynnt fundinum.
Engu síður hafi verið gengið til
samninga við Rarik án þess að kanna
til hlítar hvað í tilboðunum fælist.
Fundurinn kærður
Rétt hefði verið að fresta málinu
og láta óvilhallan aðila yfirfara kosti
og galla tilboðanna. „Pað er gengið
til samninga við þann eina aðila sem
ætlar sér að hækka orkuverðið,"
segir Árni og kveður málið snúast
um hvort orkuverði verði haldið
óbreyttu, það lækkað, eða bæjar-
búar látnir taka þátt í kaupum Rarik
með hækkun raforkuverðs. Knútur
Bruun segir önnur tilboð hafa verið
hagstæðari en tilboð Rarik. „Mér
finnst vinnubrögðin í kringum þetta
forkastanleg og er þeirrar skoðunar
að það hafi verið búið að semja við
Rarik fyrir alllöngu," segir Knútur.
Tilboð hafi borist sem skiluðu neyt-
endum um 15-20% lægra raforku-
verði, auk þess að skila verulegum
fjárupphæðum í bæjarsjóð.
Knútur kærði fundinn til félags-
málaráðherra, en hann segist ekki
telja lagaskilyrði fyrir því að ákveðið
var að hafa fundinn lokaðan. Megin-
reglan sé sú að fundir bæjarstjórnar
séu opnir og að sínu mati hafi ekki
verið ástæða til að hafa fundinn lok-
aðan.
Það er álit Knúts að þegar Sunn-
lensk orka var stofnuð fyrir um ári
hafi þegar verið búið að ganga frá að
kæmi sala rafveitunnar til, gengi
Rarik fyrir. „Það eru tvímælalaust
tengsl þarna á milli,“ segir Knútur.
En Rarik er einn eigenda Sunn-
lenskrar orku sem hyggur á virkj-
anaframkvæmdir í nágrenni Hvera-
gerðis.
Hreinn
Loftsson
stjórnar-
formaður
Baug’s
HREINN Loftsson hri., formaðui’
framkvæmdanefndar um einkavæð-
ingu, tekur við stjómarformennsku í
Baugi hf. af Óskari Magnússyni hri.
sem lætur af stöi-fum hjá félaginu í
árslok. Formlega verður gengið frá
kosningu nýs stjómarformanns á
næsta stjómarfundi félagsins, sem
haldinn verður þriðjudaginn 7. des-
ember nk. Hreinn hefúr setið í stjóm
Baugs frá stofnun félagsins.
I samtali við Morgunblaðið segir
Hreinn það hafa legið beinast við að
stjómarmaður tæki við formennsku í
stjóm félagsins. „Þó að ég verði ekki í
fullu starfi sem stjómarformaður eins
og forveri minn hefur verið, þá mun
ég ásamt forstjóra og aðstoðarfor-
stjóra fyrirtældsins mynda fram-
kvæmdastjóm sem mun hittast viku-
lega. Það verður skýr verkaskipting á
milli okkar. Ég mun áfram sinna
störfum mínum sem lögmaður og for-
maður íramkvæmdanefndar um
einkavæðingu og stjómarformennska
í Baugi stangast ekki á neinn hátt á
við þau störf mín,“ segir Hreinn.
Hreinn er sjálfstætt starfandi lög-
maður og einn af eigendum Lög-
manna Höfðabakka. Áður gegndi
hann störfum aðstoðarmanns ráð-
herra í viðskipta-, utanríkis- og sam-
gönguráðuneytum og var aðstoðar-
maður forsætisráðherra árin
1991-1992. Hreinn hefur verið for-
maður framkvæmdanefndar um
einkavæðingu frá árinu 1992 og einn-
ig gegnt fjölda annarra trúnaðar-
starfa. Hann hefur setið í stjórnum
fyrirtækja, þ.á m. Vífilfells, Þórs-
brunns, Sólar-Víkings, Hvíta hússins
og ísvás.
Halldór Ásgrímsson og Jón Marvin Jónsson
ræðast við í boðinu.
Fjölmennt var í boðinu í Norræna safninu en um 75
manns mættu þangað.
Hitti
/
Islendinga
í Seattle
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra hitti ís-
lendinga búsetta í Seattle í boði sem haldið var í
norræna safninu í Seattle.
Sjötíu og fimm manns mættu á samkomuna en
auk Halldórs sóttu hana þeir Sigurgeir Þorgeirs-
son og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, ráðuneytis-
stjóri í utanríkisráðuneytinu, sem nú sitja fund
Heimsviðskiptastofnunarinnar. Áttu þeir í nokkr-
um erfiðleikum með að komast á staðinn vegna
fjölmennra mótmæla í borginni en það hafðist þó
að lokum.
Það var Jón Marvin Jónsson, ræðismaður Is-
lands í Seattle, sem sá um skipulagningu boðsins
en veitingar voru í höndum Valdimars Bjarnason-
ar er rekur veitingastaðinn Valdísi í Ballard við
Seattle.
1 THE COMPLETE CHRISTMAS BOOK
1.895
_______________|kr.
Chocolate Ecstasy
Sannkölluð jólahandbók fjölskyldunnar,
sneisafull af jólaföndri, heimatilbúnum
gjöfum og mataruppskriftum.
Meira en 500 Litmyndir.
Country
Erlendar bækur
daglega
Eyinundsson
Austurstræti 511 1130 • Kringlunni 533 1130 • Hafnarfirði 555 0045
Islensk kvik-
myndahátíð í
New York
ÍSLENSKA kvikmyndahátíðin í
New York hefst í dag, þriðjudag, á
upphafi landafundahátíðar í Banda-
i-fkjunum. Hátíðin hefst með sýn-
ingu kvikmyndar Guðnýjar Hall-
dórsdóttur Ungfrúin góða og húsið.
Á hátíðinni verða sýndar íslenskar
kvikmyndir frá síðustu árum: Dans-
inn eftir Ágúst Guðmundsson, Popp
í Reykjavík, eftir Ágúst Jakobsson,
Sporlaust og Tár úr steini eftir
Hilmar Oddsson og Stikkfrí eftir
Ara Kristinsson. Þá verða sýndar
fjórar af kvikmyndum Friðriks Þórs
Friðrikssonar: Börn náttúrunnar,
Bíódagar, Rokk í Reykjavík og Cold
Fever. Islenskir kvikmyndaleik-
stjórar munu taka þátt í hátíðinni.
Forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, verður viðstaddur opn-
unina og mun eiga viðræður við for-
ystufólk í bandarískum kvikmynda-
iðnaði og fjölmiðlafyrirtækjum um
það með hvaða hætti ísþensk bók-
menntaarfleifð, einkum íslendinga
sögur, og einnig íslenskar samtíma-
bókmenntir, gætu orðið undirstaða
kvikmynda, sjónvarpsþátta og
fræðsluefnis vestanhafs.
Forsetinn flytur ávarp í hádegis-
verði Íslensk-ameríska verslunar-
ráðsins í dag. Á þeim fundi mun
Kári Stefánsson forstjóri flytja er-
indi um Islenska erfðagreiningu.
póstur
hækkar
gjaldskrá
1. janúar
ÍSLANDSPÓSTUR hækkar um
næstu áramót gjaldskrá fyrir póst-
þjónustu innanlands. Auk hækkunar
á innanlandsgjaldskrá fyrir almenn-
an bréfapóst hækkar verð ýmissa
sérflokka póstþjónustu s.s. blöð og
tímarit, fjölpóstur, ábyrgðarbréf og
bögglar til útlanda.
Hækkun sem samsvarar um 6,5%
tekjuauka fyrir Islandspóst á kom-
andi ári er í flestum þyngdarflokkum
á bilinu 4-8%. Við hækkunina hækk-
ar verð fyrir 20 g bréf innanlands um
5 krónur, í 40 krónur.
í fréttatilkynningu segir: „Gjald-
skrá fyrir almenn bréf innanlands
var síðast hækkuð í júní árið 1996.
Síðan þá hefur orðið um 9,3% raun-
lækkun á þessum flokki póstþjón-
ustu miðað við þróun neysluvísitölu.
Þá hafa samningsbundin laun starfs-
manna íslandspósts hækkað um 21%
frá því að síðustu kjarasamningar
voru undirritaðir í júlí 1997. Árlegur
launakostnaður íslandspósts er um
2,2 milljarðar króna, um 60% heild-
arútgjalda fyrirtækisins.
Þrátt fyrir þessa hækkun verða
póstburðargjöld innanland áfram
lægri á Islandi en í flestum ná-
grannalöndum okkar. Verð á 20 g
bréfi innanlands er til dæmis 40 kr. í
Danmörku, 43 kr. í Svíþjóð, 44 kr. í
Finnlandi en 37 krónur í Noregi.“
Hækkunin tekur ekki gildi fyrr en
1. janúar nk. og hefur þar með engin
áhrif á nærri 4 milljónir jólakorta
sem landsmenn koma til með að
senda á næstu vikum.
Vann 40 milljónir
í Víkingalóttói
Fór til
fímm barna
móður
VINNINGSHAFINN, sem
vann 40 milljónir í Víkinga-
lóttói, gaf sig fram á skrifstofu
íslenskrar getspár í gæmorg-
un með vinningsmiðann góða
sem var 10 raða sjálfvalsmiði
sem kostaði 250 krónur og
keyptur var í söluturninum
Miðvangi í Hafnarfirði. Vinn-
ingsupphæðin er 39.077.763
krónur og verður hún greidd
út í einu lagi eftir þrjár vikur
eða þann 22. desember nk.
Það var einstæð 5 barna
móðir og amma í Hafnarfirði
sem datt í lukkupottinn. I
fréttatilkynningu frá íslenskri
getspá segir að óhætt sé að
segja að vinningurinn hafi far-
ið á besta stað þar sem vinn-
ingshafinn hafi ekki aðeins
verið frá vinnu vegna veikinda
að undanförnu heldur hafi tvö
af börnum hennar átt við lang-
varandi veikindi að stríða.
„Það má því segja að vinning-
urinn hafi farið þar sem hans
er þörf og full ástæða til þess
að samgleðjast þessum heppna
Hafnfirðingi. Vinningshafinn
sem hingað til hefur ekki haft
mikið fé á milli handanna sér
nú fram á bjartari daga í þeim
efnum og þarf því ekki að
kvíða elliáranna. Vinningshaf-
inn óskar nafnleyndar og ætl-
ar að halda vinningnum leynd-
um fyrir börnum sínum þar til
22. desember þegar hann
verður greiddur út.“
Þess má geta að fyrsti vinn-
ingur er 6-faldur í Laugar-
dagslottóinu og hann stefnir í
20 milljónir.