Morgunblaðið - 03.12.1999, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
|
i
?
t
HORPU
TILBOÐ
Gæða innimálning
GLJÁSTIG
10
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verð á lítra frá *
292 kr.
* Miðað við 10 lítra dósir og ljósa liti
í verslununum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFBA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400.
MÁLIflHGARUERSLANIR
Telia Telenor stefnir út í heim
Falast eftir írsku
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
símafyrirtæki
„TILBOÐIÐ grefur í grundvallar-
atriðum undan horfum fyrirtækisins
og við munum berjast kröftuglega
gegn því,“ sagði Denis O’Brien,
framkvæmdastjóri og stærsti hlut-
hafi í írska símafyrirtækinu Esat
Telecom, þegar Ijóst var að Telia
Telenor væri að falast eftir kaupum á
Esat fyrir um 130 milljarða íslenskra
króna. Forráðamenn sænsk-norska
fyrirtækisins vildu ekki tala um að
kauptilraunin væri fjandsamleg, eins
og sagt var í fréttum, heldur væri
boðið gott. í írskum fjölmiðlum var
álitið að úr sölunni gæti orðið þar
sem aðrir fjárfestar tækju boðinu
vel.
Tilraun Telia Telenor er liður í við-
leitni til að auka veltu erlendra um-
svifa úr núverandi 20 prósentum í 50
prósent á næstu fimm árum. I
Financial Times í gær var sagt frá
viðleitni þessara tveggja fyrirtækja í
ríkiseign. Rifjað var upp að norska
stjómin hefði brugðið fæti fyrir kaup
erlendra fyrirtækja á norskum fyrir-
tækjum og bent á að héðan í frá yrðu
Norðmenn að bregðast öðruvísi við.
írski símamarkaðurinn
vænlegur
Esat einbeitir sér að þremur svið-
um. Á farsímasviðinu hefur það 45
prósenta markaðshlutdeild, á venju-
lega símamarkaðnum hefur það um
10 prósent og er stærsti netáskrifta-
aðilinn. Veltan í fyrra var um 3,5
milljarðar íslenskra króna, Esat rek-
ur eigið trefjanet og hjá því vinna 450
manns.
Tilboð Telia Telenor hljóðar sam-
tals upp á 13 milljarða sænskra
króna. Boð í hvert hlutabréf var 24
prósentum hærra en hlutabréfaverð-
ið á mánudaginn, daginn áður en
boðið kom fram, ellefu prósentum yf-
ir lokaboði á þriðjudaginn, þegar
boðið var sett fram og 64 prósentum
yfir meðalverði undanfarna 90 daga.
Þetta boð vill O’Brien þó ekki einu
sinni ræða, en hann á sjálfur 14 prós-
ent í Esat, svo nú freistar norræna
fyrirtækið að kaupa fyrirtækið samt
sem áður. Það þarf að ná 80 prósenta
hlut til að vera skuldbundið að kaupa
Stflhrein
og vönduð hreinlætistæki
Glæsileg hreínlætistæki Ifö Cera.
Innbyggt frárennsli auðveldar þrif.
Tvívirkur skolhnappur, hægt er
að velja um 3ja eða 6 lítra skol.
Ifö - Sænsk gæðavara
T€flGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 - Fax: 564 1089
aðra eigendur út, en þar gæti O’Br-
ien orðið óþægur ljár í þúfu. Aðrir
fjárfestar hafa tekið boðinu betur og
þvi gæti vel orðið úr yfirtökunni.
Bæði Telia og Telenor voru hvort í
sínu lagi komin inn á írska markað-
inn, en við samrunann varð að gera
breytingar á vegna samkeppnis-
ákvæða. Telia átti 14 prósent í öðru
írsku fyrirtæki, Eircom, og Telenor á
49,5 prósent í farsímafyrirtæki Esat.
Erfitt að stækka heima fyrir
Áhuginn á írska fyrirtækinu er
skiljanlegur, því bæði er írland í ná-
grenni Norðurlanda, símamarkaður-
inn vex hvergi eins hratt í Evrópu og
á írlandi og hlutfall ungs fólks er
hátt. Stærðin er líka heppileg fyrir
Telia Telenor, en ætlunin er að halda
þenslunni áfram. Áður hefur komið
fram að nýja fyrirtækið hyggist
verja 300 milljörðum sænskra króna
til fjárfestinga í öðrum fyrirtækjum,
en heildarfjárfestingar fyrirtækj-
anna tveggja í fyrra námu 25 mill-
jörðum.
Ástæðan fyrir að þensla erlendis
er vænleg er harðnandi samkeppni
heima íyrir, þar sem vaxtarmögu-
leikarnir eru takmarkaðir. Með
haftaafnámi heima fyrir er ljóst að
gömlu ríkissímafyrirtækin eiga eftir
að missa markaðshlutdeild heima
fyrir og samkeppnin snarharðna.
Fjandsamleg yfirtaka
og fjandsamleg ríkisstjórn
í Financial Times í gær er bent á
að fjandsamleg yfirtaka yfir evrópsk
landamæri sé algjör undantekning.
Sú staðreynd að í hlut eigi norrænt
fyrirtæki, þar sem annar aðaleig-
andinn hafi þegar verið andstæður
eriendum kaupum geri málið sérlega
snúið.
Blaðið spyr hvernig norska stjórn-
in verji nú að nýja fyrirtækið leggist í
víking, eftir að hún hafi fyrir
skömmu spillt kaupum MeritaN-
ordbanken á norskum banka og
kaupum Elf Acquitaine á Saga-olíu-
félaginu. Þó sænski eigandinn hafi
ekki verið svo þjóðernislega sinnað-
ur hafi hann þó samþykkt norskar
kröfur um að nýja fyrirtækið verði í
meirihlutaeign ríkjanna næstu sext-
án árin.
Að mati blaðsins er þó ekki ástæða
til að fetta fingur út í viðleitni Telia
Telenor, heldur verði að gjalda í
sömu mynt. „Næst þegar erlendur
kaupandi knýr dyra í Noregi á hann
skilið að fá góður móttökur. Annars
mun Óslo verða ákærð fyrir hræsni.“
Tormod Hermansen nýr Móses?
I Svenska Dagbladet r gær er sagt
að Tormod Hennansen sé áhyggju-
fullur yfir hve illa hafi verið skrifað
um nýja fyrirtækið. Þetta kemur
fram í bréfi hans til 250 yfirmanna
nýja fyrirtækisins, þar sem hann set-
ur auk þess fram tíu boðorð um
stjórnun.
Bréfið hefur verið haft nokkuð í
flimtingum í norskum fjölmiðlum.
Síðasta boðorðið er um að yfirmaður
eigi að stjóma eins og hann sjálfur
vilji láta stjóma sér, en norskir
fjölmiðlar geta sér þess þó til að
Hermansen stjórni fremur eftir lög-
málinu um auga fyrir auga og tönn
fyrir tönn.
I fyrirlestri í Ósló nýlega hafi
Hermansen nefnilega ekki getað
stillt sig um að segja að Svíar ættu
erfitt með að horfa upp á Norðmann
stjóma sænsku stórfyrirtæki í Sví-
þjóð. Það hafi líka verið Svíum að
kenna hve langan tíma það tók að
koma fyrirtækjunum saman. Eftir
erfiða fæðingu hafi ýmsir misst
kjarkinn og á því verði að taka.
Fjallað um Brunna hf. og ísþykkni
1 Financial Times
Fersk aðferð
fyrir togara-
sjómenn
TÖLUVERÐ umfjöllun er um
fyrirtaekið Bmnna hf. í Financial
Times 26. nóvember, undir fyrir-
sögninni „Fersk aðferð fyrir tog-
arasjómenn". Þar er fjallað um
aðferð fyrirtækisins, sem það
hefur einkaleyfi á, til að búa til
„Liquid Ice“, eða ísþykkni. Is-
þykkni er fljótandi ís, en hægt er
að framleiða á innan við fimm
mínútum á stórum fiskiskipum
og er dælt í lestarnar til að kæla
aflann til löndunar.
Þessi aðferð þykir hafa ótví-
ræða yfirburði yfir hefðbundnar
aðferðir, en venjulegur ís á það til
að skemma útlit fiskjarins. Einn-
ig þykir ísþykknið kæla aflann
betur og þá fylgir því sá kostur
að hægt er að dæla því og þannig
er ísmokstur nánast úr sögunni.
I frétt Financial Times segir að
mikil spurn sé nú eftir ísþykkni-
tækjum fyrirtækisins. Nokkur ís-
lensk skip sem verið sé að smíða í
Kína verði með slík tæki og eitt
tæki hafi nýlega verið sent til E1
Salvador, til notkunar í rækju-
togara. Þá sé aðferðin notuð í
Bandarískum rækjutogurum og
brátt muni hún verða tekin upp í
Kanada við humar-, rækju- og
krabbaveiðar.
I fréttinni er einnig sagt frá því
að tveir íslenskir togarar, Bylgja
VE-75 og Dala-Rafn VE-508,
hafi verið að landa afla sem kæld-
ur hafi verið með ísþykkni í
Grimsby og Hull. Hæsta verð
hafi fengist fyiTi' aflann, þótt
hann hafi verið sex til sjö daga
gamall.
r- PASTAPOTTAR ■
Pasta- og gufusuðupottur kr. 7.900.
7 Itr. 18/10 stál
Pastavél kr. 4.500.
PIPAR0GSALT
Klapparstíg 44 ♦ Sími 562 3614 \
Fást i byggingavöruverslunum um lantl allt