Morgunblaðið - 03.12.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999 33
ERLENT
Aukin löggæsla í Seattle, 500 hafa verið handteknir
Þróunarríki vilja ekki við-
ræður um rétt launamanna
Lögreglumenn ganga um miðborg Seattle í fyrradag, á öðrum degi ráð-
herrafundar WTO í borginni.
Ferjuslysið í Noregi
Áhöfninni tókst
ekki að losa björg-
unarbátana
Seattle. AP, AFP.
RÁÐHERRAR og fulltrúar á ráð-
stefnu Heimsviðskiptastofnunarinn-
ar, WTO, í Seattle í Bandaríkjunum
reyndu í gær að snúa sér að verkefn-
inu sjálfu, væntanlegum viðskipta-
viðræðum, en sumir þeirra hafa ver-
ið í eins konar herkví inni á
hótelherbergjum vegna óeirða í
borginni.
Paul Schell, borgarstjóri í Seattle,
setti á útgöngubann í fyrrinótt, aðra
nóttina í röð, og í gær hafði lögreglan
handtekið nærri 500 manns, fólk,
sem hafði kynnt hugsjónir sínar og
andstöðu við WTO með því að brjóta
rúður, skemma og ræna verslanir og
bíla og kveikja í ruslatunnum. Var
allt með kyrrum kjörum framan af
degi í gær enda hafði lögreglan feng-
ið fyrirskipanir um að grípa strax í
taumana ef út af bæri.
Vilja ekki ræða um rétt launa-
manna og barnaþrælkun
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hvatti í gær aðildarríkin til að
taka réttindi launamanna og um-
hverfismál inn í viðskiptaviðræðurn-
ar en fékk heldur litlar undirtektir
hjá fulltrúum þróunam'kjanna.
Sagði Supachai Panitchpakdi, við-
skiptaráðherra Taflands, að héldi
Clinton til streitu kröfunni um rétt-
indi launamanna myndi það hugsan-
lega koma í veg fyrir nýjar viðskipta-
viðræður.
Deilan um réttindi launamanna er
eitt af erfiðustu ágreiningsmálunum
innan Heimsviðskiptastofnunarinn-
ar en vestræn ríki krefjast þess, að
vestrænar viðmiðanir verði teknai’
upp í þróunarríkjunum. Barna-
þrælkun, lág laun og skeytingarleysi
um aðbúnað jafngildi undirboðum,
sem ræni atvinnunni frá öðrum, til
dæmis launafólki á Vesturlöndum.
Svar þróunarríkjanna er einfaldlega
það, að þau hafi ekki efni á neinum
úrbótum.
ILO, Alþjóðavinnumálastofnunin,
var einnig með fund í Seattle í gær
og þar ætlaði Clinton að undirrita
samning um bann við barnaþrælkun.
Átti Bandaríkjastjórn mikinn þátt í
tilurð þessa samnings enda vonast
Clinton til, að hann geti dregið úr
ótta bandarískra verkalýðsleiðtoga
við samninga um aukið viðskipta-
frelsi.
ESB ræðir líftækni
Nokkuð hefur miðað í öðrum mál-
um og Charlene Barshefsky, við-
skiptafulltrúi Bandaríkjanna, kvaðst
vera bjartsýn á, að í dag næðist sam-
komulag um að draga nokkuð úr við-
skiptahöftum. Þá hefur Evrópusam-
bandið, ESB, fallist á skipan
vinnunefndar um líftæknimál en á
það hafa Bandaríkjamenn, sem vilja
selja ófúsum Evrópumönnum erfða-
breytt matvæli, lagt mikla áherslu.
STAÐFEST hefur verið að þrír af
fjórum gúmbjörgunarbátum far-
þegaferjunnar Sleipnis, sem fórst við
Vestur-Noreg fyrh’ viku, sukku með
ferjunni, að því er fram kemur hjá
norska netmiðlinum Nettavisen.
Sleppibúnaður sem hefði átt að sjá til
þess að bátarnir losnuðu frá ferjunni
og blésu upp í hafinu, virkaði ekki.
Neðansjávarmyndir af flaki ferjunn-
ar sýna þetta.
Áhöfn ferjunnar mun hafa gert ít-
rekaðar tilraunir til að skjóta út
björgunarbátunum en án árangurs.
Talið er að það sé skýringin á því
hvers vegna beðið var með að biðja
farþega um að fara frá borði. Að síð-
ustu neyddust allir 66 sem um borð
voru til að stökkva í hafið og var ekki
unnt að bjarga 16 þeirra.
Farþegar sem komust af hafa lýst
því að mjög erfitt hafi verið að kom-
ast um borð í þann eina björgunarbát
sem tókst að skjóta frá borði. Hver
hinna fjögurra björgunarbáta sem á
ferjunni voru gat rúmað 140 manns.
Sams konar sleppibúnaður í 100
ferjum
Tveir björgunarbátar voru á
hvorri hlið ferjunnar. Sjálfvirkur
búnaður átti að sjá til þess að þeir
losnuðu sjálfkrafa frá ferjunni við
það að hún sykki og aðeins hefði átt
að taka tíu mínútur fyrir þá að verða
tilbúnir, uppblásnir í hafinu. Áhöfn
ferjunnar hafði prófað búnaðinn
bæði í Noregi og Ástralíu, þar sem
ferjan var smíðuð.
Samkvæmt fréttum Nettavisen
má finna sams konar sleppibúnað og
var um borð í ferjunni Sleipni á um
100 svipuðum ferjum. Anders Lien,
framkvæmdastjóri HSD skipafé-
lagsins sem gerði út Sleipni, segir í
samtali við netmiðilinn að þrýstings-
ventill sem sér um að skjóta hverjum
báti út sé af staðlaðri gerð og fram-
leiddur í Svíþjóð. Lien segir að hann
viti ekki til þess að búnaður af þess-
ari tegund hafi brugðist áður.
Athygli beinist
að kössunum
Björgunarbátarnir um borð í
Sleipni voru geymdir í sérstökum
lokuðum kössum. Samkvæmt Nett-
avisen hafa verið uppi vangaveltur
um að ef til vill hafi dyr á kössunum
ekki opnast sem skyldi en ekki hefur
enn tekist að upplýsa hvort svo hafi
verið. Anders Lien segir í samtali við
netmiðilinn að slíka kassa sé einung-
is að finna á Sleipni og systurferj-
unni Draupni og ekki á öðrum far-
þegafeijum. Ferjan Draupnir hefur
verið kyiTsett í höfn í Leirvik meðan
framkvæmdar verða prófanir á
sleppibúnaði björgunarbáta hennar.
Hugsanlegt er að fjarstýrðir kaf-
bátar búnir myndavélum muni geta
aflað gleggri upplýsinga um orsakir
þess að björgunarbátamir komust
ekki á flot.
OXFORD STREET
Kjólar
í miklu úrvali
kr. 3.790-
Opið:
mán.-fim. 10-18
föstudaga 10-19
laugardaga 10-18
sunnudaga 13-17
OXFORD STREET
simi
Faxafeni 8
Sunnuhlíð sími: 456 5650
Tískuvöruverslun
Ný verslun
með kvenfatnað
í Hafnarfirði og á ísafirði
Ljónið, Skeiði 1 400 ísafirði sími:456 5650
Fjarðargata 11 220 Hafnarfirði sími:555 6111