Morgunblaðið - 03.12.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999 37
LISTIR
Berserkja-
söngur
TOJVLIST
Salurinn
SÖNGTÓNLEIKAR
Sönglög eftir Emil Thoroddsen.
Þorgeir J. Andrésson tenér, Sig-
urður Skagíjörð Steingrímsson
barýton; Jónas Ingimundarson,
píanó. Miðvikudaginn 1. desem-
berkl. 20:30.
FULLVELDISDEGI var
fagnað með flutningi sönglaga eft-
ir Emil Thoroddsen fyrir fullum
Sal sl. miðvikudagskvöld, og var
vel til fundið að enda með al-
mennri þátttöku í einhverjum fal-
legasta og sönghæfasta ættjarð-
arsöng Islendinga, Hver á sér
fegra föðurland, verðlaunalagi
Emils í tilefni af lýðveldisstofnun-
inni 1944. Mælir margt með því að
gera það að opinberum þjóðsöng.
Mönnum kann að vísu að þykja
ljóð Huldu of tengt heimsstyrjald-
artímanum til að geta þjónað sem
algildur þjóðsöngtexti, en hvað
mætti þá ekki segja um þjóð-
söngva eins og þann franska, sem
enn í dag hvetur þegnana til að
skipa herfylki og reisa götuvigi?
Þeir söngbræður Þorgeir J.
Andrésson og Sigurður Skagfjörð
Steingrímsson hófu dagskrá með
því að syngja saman einraddað tvö
lög, Islands Hrafnistumenn og
Sjómenn Islands, af viðeigandi
þrótti. Síðan skiptu þeir lögum
Emils bróðurlega á milli sín. Af 8
lögum úr Pilti og stúlku söng Þor-
geir í fögrum dal, Smalastúlkuna,
Gengið er nú og hið glæsta Til
skýsins, og sýndi víða skemmti-
lega túlkun, kannski einna bezt í
Smalastúlkunni. Sigurður gat
slegið á létta strengi í Matgoggs-
vísum og bætti kostulegum
kvæðamennskutöktum í Víkur-
brag, en tókst hvað fallegast upp í
Vöggusöngnum frábæra, þó að
eftirtektarverð beiting hans á
sléttum söng tækist þar ekki að
fullu; e.t.v. vegna ónógs stuðnings.
Saman sungu félagarnir síðan
Búðarvísumar meinhæðnu með
tilþrifum, þó að línan „og lengi var
Gunna í loftsölum há“ stæði í þeim
af nökkvi. Aldrei þessu vant brá
þar fyrir smá stirðleika hjá slag-
hörpuleikurum í millispili, and-
stætt merlandi brilljans hans í Sá-
uð þið hana systur mína eftir hlé.
Sigurður hóf seinni hluta á blíð-
um nótum með hinu breitt flæð-
andi Um nótt, sem bauð upp á
slétta tóna líkt og Sofðu nú Sig-
rún, en líkt og fyrr var sem hann
næði ekki alveg fullu valdi á þeim.
Sléttsöngur er sterkt og raunar
ómissandi litaafbrigði í ljóðasöng
en vandmeðfarinn, enda sjald-
heyrður meðal íslenzkra söngv-
ara, sem virðast upp til hópa ein-
blína á óperatískan höfuð-
tónasöng. Wiegenlied við ljóð
Wolfs var fallegt en vantaði meiri
glans í röddina. Betur tókst til í
Komdu, komdu kiðlingur; hinni
frumlegu, eilítið „Leiermann"-
leitu barnagælu Emils, sem Sig-
urður söng með tilfinningu. Hið
drykkjusöngslega Syndaflóðið,
þar sem vottar fyrir vestur-
heimskri söngleikjahljómavindu,
var tekið með viðeigandi krafti og
sprelli. Sigurður hefur góða sviðs-
nærveru og sérlega hljómmikla
rödd, sem þó virðist þurfa að kom-
ast í aðeins betra form til að njóta
sín að fullu.
Þorgeir J. Andrésson þeytti
boldangshetjutenór sinn, sem að
vísu skín ekki jafnskært á öllu
sviðinu, í Kveðju, þar sem hann
átti nokkrar glæsilegar
„tromp“nótur. Þetta vh'ðist ekki
sízt háð styrk, því að í Mitt er ríkið
datt öll íylling út neðan við mf. Sá-
uð þið hana systur mína, sem
nokkuð hefur staðið í skugga
samnefndrar perlu Páls Isólfsson-
ar, var hins vegar sunginn með
glæsibrag í frísklegri túlkun, og
hin stutta Vísa Guðmundar
Scheving var tekin með sannköll-
uðum trompi.
Þeir félagar sungu saman að
lokum unisono fílhraustan Ber-
serkjabrag Emils í þýðingu
Magnúsar Asgeirssonar (úr
hverju var ekki getið), svo undir
tók. Ó fögur er vor fósturjörð - því
miður eini tvíraddaði dúett
kvöldsins - kom sem aukalag þar
á eftir í álíka hressilegum flutn-
ingi þeirra félaga. Þar sem víðast
hvar annars staðar var breiður og
syngjandi undirleikur Jónasar
Ingimundarsonar á slaghörpu
hinn traustasti, og var öllu
bersýnilega vel tekið.
Ríkarður 0. Pálsson
AP
Gestir koma sér fyrir í endurbættum húsakynnum Konunglegu bresku óperunnar í Covent. Garden í Lundúnum
í fyrrakvöld.
Konunglega breska
óperan opnuð á ný
KONUNGLEGA breska óperan var
tekin í notkun eftir umfangsmiklar
endurbætur í fyrrakvöld. Húsið
hefur verið lokað í rúm tvö ár og
hljóðar reikningurinn fyrir endur-
bótunum upp á um 25 milljarða
króna.
Fyrirmennið var fyrirferðarmik-
ið við þetta tækifæri með Elísabetu
II Englandsdrottningu í broddi
fylkingar. Klæddist hennar hátign
gylltum og kremuðum kvöldkjól og
skóm og veski í stíl sem ætlað var
að endurspegla innviði hússins.
I föruneyti drottningar voru
meðal annarra eiginmaður hennar,
Filippus, hin tæplega tíræða móðir
hennar, Elísabet I, og systirin Mar-
grét, sem er verndari Konunglega
dansflokksins.
Af öðrum gestum má nefna Tony
Blair forsætisráðherra og eigin-
konu hans Cherie og Margréti Tha-
tcher, fyrrverandi forsætis-
ráðherra.
Boðið var upp á valda kafla úr
óperum og ballettum sem brotnir
voru upp með gömlum fréttamynd-
um úr húsinu, þar sem meðal ann-
ars mátti sjá þær systur Elísabetu
og Margréti sem litlar prinsessur
ásamt móður sinni. Meðal lista-
manna sem fram komu var spænski
tenórsöngvarinn Placido Domingo.
Elísabet II Englandsdrottning ræðir við spænska tenórsöngvarann
Placido Domingo sem söng við opnun hússins.