Morgunblaðið - 03.12.1999, Síða 62
62 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AL&mrni___
BURNHAM INTERNATIONAL
VEROBRÉFAFYRIRTÆKI
SfMI 510 1600
UMRÆÐAN
Ijög sterk og'
ofnæmisfrí
, Gleraugnasalan,
.. . v/ Laugavegi 65.
Hænsnasiðfræði
ÞAÐ er eðli
hænsna, að verði ein-
staklingur fyrir áfalli,
svo að á honum sjái,
hlaupa til aðrar hæn-
ur í hópnum og
höggva sjúklinginn til
dauðs. Ekki veit ég á
því sönnur, en sagt
hefur mér verið að
amerískir kjúklinga-
bændur hafi nú fundið
leið til að bæta úr
þessum siðferðisbresti
hænsnanna og felst
hún í því að setja á
þau lituð gleraugu
þannig að þau greini
ekki blóðbletti á meðbræðrum sín-
um og ráðist þar af leiðandi ekki til
atlögu við þá sem sárir hafa orðið
af einhverjum ástæðum. Bændurn-
ir gera þetta að vísu ekki af um-
hyggju fyrir hinum sáru einstakl-
ingum, sem þeir ætla sér auðvitað
sjálfir að særa holundarsárum
þegar þar að kemur, en það veldur
þeim hins vegar tjóni þegar hænur
valda hver annarri ótímabærum
dauða.
Nú hefur það gerst að prófessor
við Háskóla Islands hefur verið
sýknaður í Hæstarétti af ákæru
um gróft og svívirðilegt ofbeldi
gegn dóttur sinni. Sýknan er yfir-
lýsing dómsins um að sakleysi
Baldur Pálsson
hans sé ekki útilokað.
Eftir stendur hins
vegar að sekt hans
hefur heldur ekki ver-
ið útilokuð. Á því leik-
ur vafi hvort sakirnar,
sem á hann voru
bornar, eru upplogn-
ar. Það eru reyndar
aðeins tveir einstakl-
ingar, maðurinn og
dóttir hans sem hafa
möguleika á að vita
hið sanna í málinu.
Þessi vafi er afleiðing
þess að sönnunar-
færsla í málum sem
þessum er erfið og
leiðir bæði til þess að torvelt hlýt-
ur að vera að sakfella og einnig til
þess að erfitt er að bera af sér slík-
ar sakir. Eftir sitja þessi feðgin
bæði með sárt ennið, ef svo má
segja, og þurfa að bera þann kross
til æviloka að hafa í augum sam-
borgara sinna hugsanlega valdið
annarri manneskju, nánum ætt-
ingja, hryllilegum búsifjum, nema
eitthvað það komi fram seinna,
sem verði til þess að botn fáist í
málið. Þetta er auðvitað skelfileg
niðurstaða og hörmuleg, en hins
vegar áreiðanlega óhjákvæmileg
eins málið var í pottinn búið.
Prófessor í siðfræði við Háskóla
íslands, Vilhjálmur Árnason, hefur
nú fundið það út að nauðsynlegt sé
að menn sem slíkum vafa eru und-
irorpnir, láti af trúnaðarstörfum í
almannaþágu. Hann tilfærir máli
sínu til stuðnings hið svonefnda
biskupsmál, en í því var samfélag-
inu sem kunnugt er breytt í gríð-
arstóran skólaleikvöll þar sem
framið var einelti af grimmilegasta
tagi. Má skilja á prófessornum að
Dómur
Það er greinilegt, segir
Baldur Pálsson, að sið-
ferðisskyldur prófes-
sora hverra við annan
eru ekki af sama toga og
lögmanna því að Vil-
hjálmur telur það aug-
ljóslega skyldu sína að
grafa undan kollega sín-
um og bola honum úr
embætti.
nauðsynlegt hafi verið að biskup
íslands léti af störfum eftir að
ásakanir komu fram á hendur hon-
um um kynferðislega áreitni.
Þarna er Vilhjálmur að setja fram
siðferðisreglu, sem nefna mætti
fjölmælisreglu, þ.e.a.s. það dugar
að bera mann ósannanlegum sök-
um til að bola honum úr embætti.
Við skulum nú hugsa okkur að
kona beri mann nokkurn sökum
um kynferðislega áreitni, maður-
inn sé ákærður, en síðan sýknaður
af ákærunni vegna þess að vafi léki
á því að hann hefði framið brotið
t.d. vegna þess að engin vitni voru
til frásagnar og engin önnur sönn-
unargögn lögð fram en framburður
mannsins og konunnar. Hugsum
okkur líka að kona þessi væri pró-
fessor við Háskóla íslands. Væri
þá rétt að koma fram með þá
ósannanlegu ásökun, að konan
hefði logið upp ákærunni og svipta
hana síðan embætti sínu? Ætti hún
þá að láta af embætti vegna þess
að hún hefur hugsanlega borið
mann röngum sökum og þar með
valdið trúnaðarbresti milli sín og
umbjóðenda sinna? Það sjá allir að
slíkt er fásinna og firra sem stenst
ekki.
Það er býsna hlálegt að þessi
sami prófessor, Vilhjálmur Árna-
son, áfellist síðan Jón Steinar
Gunnlaugsson lögmann fyrir það
eitt að bera hönd fyrir höfuð hin-
um ásakaða manni og telur að með
því sé hann að niðurlægja og gera
lítið úr þeim dómurum sem vildu
sakfella hann og þar með að bregð-
ast siðferðisskyldum gagnvart kol-
legum sínum, lögmönnum. Það er
hins vegar greinilegt að siðferðis-
skyldur prófessora hverra við ann-
an eru ekki af sama toga og lög-
manna því að Vilhjálmur telur það
augljóslega skyldu sína að grafa
undan kollega sínum og bola hon-
um úr embætti. Jón Steinar Gunn-
laugsson hefur sett fram rök-
studda gagnrýni á dóma und-
irréttar í málinu sem hér um ræðir
og telur þá fara í bága við mann-
réttindaákvæði stjórnarskrár og
mannréttindasáttmála Evrópu.
Eiríkur Tómasson, prófessor, hef-
ur einnig gagnrýnt Hæstarétt fyrir
að vera á skjön við mannréttinda-
sáttmálann. Hvorugur þeirra hefur
þó ýjað að því að bola dómurum í
undirrétti eða Hæstarétti frá emb-
ætti. Það gerir hins vegar Vil-
hjálmur gagnvart hinum sýknaða
kollega sínum.
Kannski það sé meiningin að
fara að kenna nýtt námskeið í sið-
fræði við Háskóla íslands. Skyldi
það eiga að heita „skipulagning
eineltis“? Eða bara „hænsnasið-
fræði“?
Höfundur er kerfísfræðingur.
Opið:
föstudag: 11-19.30
laugardag: 10-18.00
sunnudag: 13-17.00
Úlpa: 7.900
Rúllukragapeysa: 3.900
Leðurpils: 3.900
Jakki: 9.900
Kjóll: 7.900
■^carisnna
Laugavegi 41* Sími: 552 2270
ZARA
Sama lága verðið og á Spáni, Portúgal og Englandi,
meðan birgðir endast
Jakki: 5.900
Pils: 3.900
Toppur: 2.900