Morgunblaðið - 23.01.2000, Page 2
2 SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðskiptaráðherra um kaup bankastarfsmanna á óskráðum hlutabréfum
Hraða þarf því að setja
nýj ar verklagsreglur
VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, segir að verið sé að vinna að hug-
myndum um nýjar verklagsreglur, sem m.a.
varða kaup starfsmanna fjármálastofnana á óskr-
áðum hlutabréfum. Eins og fram kom í frétt
Morgunblaðsins í gær keyptu nokkrir starfsmenn
Búnaðarbankans óskráð hlutabréf í DeCODE,
þrátt fyrir að verklagsreglur bankans kveði á um
að slíkt sé óheimilt. Ekki var leitað samþykkis rík-
isins, sem er meirihlutaeigandi, en Stefán Pálsson
bankastjóri telur að verklagsreglur hafi ekki verið
brotnar, þar sem ríkið hafi áður samþykkt að
starfsmenn Búnaðarbankans keyptu óskráð bréf í
bankanum.
Viðskiptaráðherra vildi í samtali við Morgun-
blaðið ekki tjá sig um einstök mál eða fyrirtæki,
en sagði að þessi mál væru í ákveðnum farvegi
innan ráðuneytisins. „Við erum að skoða þessi mál
af mikilli alvöru. Ég kallaði til fundar við mig alla
þessa aðila á fjármagnsmarkaði og eftirlitsaðilana
líka og við settum málið í ákveðinn farveg. Ætlun-
in er að hraða þeirri vinnu mjög sem beinist sér-
staklega að þessum verklagsreglum. Pað ríkti
mikill einhugur á þessum fundi um að það væri
mikilvægt til að viðhalda trausti fyrirtækjanna að
þessir hlutir væru í lagi. Það voru allir á þeirri
skoðun. Ég er sannfærð um að okkur muni takast
að koma málinu í þann farveg að um það ríki sátt.“
Allar undanþágur eru varhugaverðar
Valgerður segir að nýjar reglur verði unnar í
samvinnu við Fjármálaeftirlitið og ekki sé úti-
lokað að breyta þurfi einhveijum þeim lögum er
þessi mál varða.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftir-
litsins, segir að tekið verði til skoðunar hvemig
staðið hefur verið að verki í þessu tilviki, en vildi
að öðru leyti ekki tjá sig um þetta sérstaka mál.
Hann segir að Fjármálaeftirlitið geri auðvitað
kröfur til að verklagsreglum sé fylgt og að undan-
þágur frá þeim séu mjög vandmeðfarnar. ,jUlar
undanþágur sem veittar eru og ekki eiga sér stoð í
reglunum eru að okkar mati varhugaverðar.“
Að sögn Páls gerir Fjármálaeftirlitið kröfu um
að fjármálastofnanir fylgi þessum reglum. Hins
vegar hafi menn litið þær mismunandi augum, og
því þurfi að breyta. „Það þarf að fylgja því full al-
vara að þessum reglum sé fylgt. Það þarf að skýra
þessar reglur og taka þær til endurskoðunar og
Fjármálaeftirlitið mun kalla mjög sterkt eftir
því.“
Serstakur vefur
með gögnum um
rekstrarleyfí
MORGUNBLAÐIÐ hefur sett upp
sérstakan vef á mbl.is í tilefni af
útgáfu rekstrarleyfis til gerðar og
starfrækslu gagnagrunns á heil-
brigðissviði og reglugerðar um
gagnagrunn á heilbrigðissviði.
Þar er að finna rekstrarleyfið,
sem Islenskri erfðagreiningu hefur
verið veitt, reglugerðina, sem ráð-
herra gaf út í gær vegna rekstrar-
leyfisins, og samning þann sem
ráðherra og fyrirtækið gerðu í til-
efni af útgáfu starfsleyfisins.
Einnig eru á vefnum fjölmörg
önnur gögn, viðaukar, þar sem
birtast ýmsar forsendur rekstrar-
leyfisins, samningsins og reglu-
gerðarinnar.
í viðaukunum er að finna um-
fjöllun um eftirfarandi efni:
► Almenna kröfulýsingu fyrir
sjúkraskrárkerfi gagnagrunnsins.
► Greinargerð vegna flutnings
upplýsinga í gagnagrunn á heil-
brigðissviði.
► Helstu form- og efnisatriði
samninga rekstrarleyfishafa og
heilbrigðisstofnana og sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfsmanna.
► Stöðulýsingu á heilbrigðis-
upplýsingum.
► Skilmála um fjárhagslegan
aðskilnað starfrækslu gagna-
grunnsins frá annarri starfrækslu
leyfishafa.
► Skrá yfir heilbrigðisstéttir.
► Almenna öryggisskilmála
tölvunefndar.
■ ► Hluta af tækni-, öryggis- og
skipulagsskilmálum tölvunefndar.
Morgunblaðið hefur undir höndum
þrjá kafla af átta. í hinum fimm
köflunum eru ákvæði um stjórnun-
arlegt öryggi og fleira og birtir
Tölvunefnd þá ekki af öryggis-
ástæðum.
Að auki er að finna á vefnum allt
það efni, sem áður hefur birst á
mbl.is um gagnagrunn á heilbrigð-
issviði.
Morgunblaðið/RAX
Hugað að netum
LÍFIÐ gengur sinn vanagang við
höfnina og sjómenn önnum kafnir
sem fyrr. Enda fiska þeir lítið sem
ekki rða. Huga þarf að netum fyrir
næsta róður og koma öllu fyrir á
sfnum stað, líkt og maðurinn á
myndinni var önnum kafinn við á
bakkanum í Reykjavíkurhöfn.
*
Kári Stefánsson segir gjaldtöku fyrsta auðlindaskattinn á Islandi
Gerð grunnsins liefjist
innan nokkurra mánaða
KÁRI Stefánsson, forstjóri ís-
lenskrar erfðagreiningar, segist
vonast til að samningar við heil-
brigðisstéttir um flutning upplýs-
inga í gagnagrunn á heilbrigðis-
sviði komist á það stig innan
nokkurra mánaða að hægt verði að
hefja vinnu við gagnagrunninn.
Fyrir rekstrarleyfi gagnagrunns-
ins til 12 ára greiðir Islensk erfða-
greining 70-140 m. kr. á ári. Kári
var spurður hvort hann teldi gjald-
tökuna eðlilegt hlutfall þeirra verð-
mæta, sem grunnurinn muni skapa.
Hann benti á að fyrirtækið væri
ekki orðið gróðavænlegt ennþá og
óljóst væri hvort svo yrði enda
fengist það við áhættusaman rekst-
ur. „Þetta er að vissu leyti auð-
lindaskattur og er í fyrsta skipti
sem slíkt er lagt á atvinnustarf-
semi hér,“ sagði Kári. „Það gerist á
sama tíma og aðrar þjóðir eru að
minnka skatta á hátækniiðnað
vegna þess að það er sú atvinnu-
grein sem verið er að byggja upp.
Þannig að þessi greiðsla er ekki
beinlínis í anda þeirra hugmynda
sem aðrar þjóðir hafa um það
hvernig þær hlúa að og hlaða undir
hátæknifyrirtæki," sagði hann og
vísaði þar m.a. til íra, Þjóðverja og
fleiri Evrópuþjóða.
Slagar hátt í tekjuskatt sjáv-
arútvegs sl. 15 ár
Kári sagði gjaldtökuna heldur
ekki í anda þeirrar afstöðu sem
innlend stjórnvöld hefðu tekið þeg-
ar kæmi að auðlindaskatti til sjáv-
arútvegs og annarra atvinnugreina.
„Að vissu leyti skil ég þetta vegna
þess að hér er um að ræða sérleyfi
til langs tíma, en það ber samt að
skoða þetta í þessu ljósi.“
Hann sagði greiðslurnar tölu-
verðar kvaðir á Islenskri erfða-
greiningu, eins og fyrirtækið væri
núna. „Þetta gætu orðið 1.680 m.
kr. á 12 árum og ef þú berð það
saman við þann tekjuskatt sem
sjávarútvegurinn hefur greitt á síð-
astliðnum 15 árum þá hugsa ég að
þetta slagi nú hátt í það,“ sagði
Kári. Hins vegar sagðist hann
vona, trúa og treysta að fyrirtækið
myndi vaxa á þann hátt að gjald-
takan verði því „allt að því létt
byrði að bera“ og greiðslan hverf-
andi hluti af því fé sem Islensk
erfðagreining flytji inn í íslenskt
samfélag. Þannig eigi það að vera
þvi fyrirtæki eigi ekki bara að skila
til samfélagsins í gegnum skatta og
gjöld, „heldur í gegnum það að
verða kraftmikil, veita atvinnu og
flytja auð á þann veg inn i okkar
samfélag," sagði Kári.
Hann kvaðst telja sjálfsagt, eðli-
legt og skynsamlegt að láta ís-
lenska erfðagreiningu standa
straum af öllum kostnaði hins opin-
bera af undirbúningi rekstrarleyf-
isins og eftirliti með starfseminni.
„Þetta er sértækt fyrirtæki og eft-
irlitið er sértækt," sagði Kári.
Hann kvaðst búast við að þessi
kostnaður skipti tugum milljóna
króna á ári.
Ekki meiriháttar áhrif
Spurður um áhrif veitingar
rekstrarleyfisins á verðmæti og
væntanlega skráningu móðurfé-
lagsins DeCODE genetics á banda-
ríska hlutabréfamarkaðinn NAS-
DAQ sagði Kári að vegna kvaða á
stjórnendur fyrirtækja sem tækju
þátt í því ferli sem er aðdragandi
skráningar, gæti hann ekki svarað
slíkum spurningum að öðru leyti en
því að hann teldi að leyfisveitingin
hefði ekki meiriháttar áhrif á ferli
skráningar fyrirtækisins á NAS-
DAQ. Ferlið haldi áfram og því
ljúki í fyllingu tímans.
►l-64
Gagnagrunnurá
heilbrigðissviði
►Rekstrarsamningur íslenskrar
erfðagreiningar og
heilbrigðisráðuneyti. /10-16
Vinnukönnun vekur
spurningar
► Niðurstöður könnunar um
vinnu bama og unglinga á
Norðurlöndum hefur vakið
athygli. /22
Erfitt að gera upp á
milli kennslu og
rannsókna
►Ragnheiður Bragadóttir er
fyrst kvenna til að gegna
prófessorstarfi við lögfræðideild
H.í. /28
í fjarvinnslu um allt
land
► í Viðskiptum/Atvinnuh'fi á
sunnudegi er rætt við Pál
Kolbeinsson og Gunnar Þór
Gestsson í Elementi hf. á
Sauðárkróki. /30
►1-32
Hákarlinn nær
örugglega dauður...
►Nokkrir Islendingar verka
hákarl en Stefán Guðjónsson á
Eskifirði er einn fárra sem enn
veiðirhann. /1&16-17
Sunnudagsbarn - vinur
kvenna og dýra
►Heimsókn til Karls Kortssonar
fyrrverandi dýralæknis á Hellu og
Antje konu hans. /6
Heimsyfirráð eða
dauði
►Baráta gegn erfðabreyttum
matvælum hefur sett mjög mark
sitt á bandarískt þjóðlíf á
undanfömum mánuðum. /14
FERÐALÖG
► l-4
Hindúasamfélag í landi
islams
►Eyjan Bah' undan ströndum
Jövu er fjölsóttur
ferðamannastaður. /2
Snætt á leið til Jakobs
►Af veitingahúsinu Casa Ojeda í
Burgos á Spáni. /4
D BÍLAR
► l-4
Nýr Volkswagen Polo
►Þykir lipur og hljóðlátur. /2
Reynsluakstur
►Aflmeiri og laglegri Renault
Scénic. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-24
Vildarkort Visa og
Flugleiða
► Nýr samningur undirritaður
milli fyrirtækjanna. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir l/R/4/8/bak ídag 50
Leiðari 32 Brids 50
Helgispjall 32 Stjörnuspá 50
Reykjavíkurbréf 32 Skák 50
Skoðun 34 Fólk í fréttum 54
Viðhorf 38 Utv/sjónv. 52,62
Minningar 38 Dagbók/veður 63
Myndasögur 48 Mannl.str. 20b
Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 30b
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6