Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Herdís Þorsteinsdóttir kveðst hafa sloppið vel úr lestarslysi í Þýskalandi þrátt fyrir talsverð meiðsli „Þetta voru hræði- leg sekúndubrot“ með meðvitund en dómgreindin er samt eitthvað eftirá. Síðan reyni ég að komast út og við hjálpuðumst að í myrkrinu en hin stelpan slasaðist eitthvað minna. Um leið og við vor- um komnar út og uppá vagninn var nóg af fólki til að hjálpa okkur.“ Lögð á börur og gefín lyf Farþegarnir voru flestir færðir á krá rétt við slysstaðinn og þar sagð- ist Herdís hafa verið lögð á börur og gefin lyf til að lina sársaukann en síðan var hún flutt á háskólasjúkra- húsið í Köln sem nefnt er Uniklinik. Sagði hún það hafa gengið hratt fyr- ir sig. Þar liggur hún á slysadeild og gerir ekki ráð fyrir að útskrifast fyrr en eftir tvær vikur. Átta manns létust í slysinu og um 100 slösuðust alvarlega og um 30 hlutu minni meiðsl. Ennþá eru 49 á sjúkrahúsi. „Þetta eru augnablik sem ekki er hægt að lýsa, kannski eins og þegar lestir eru að fara útaf í hasarbíó- myndum með Bruce Willis, en ég átta mig eiginlega ekki á því hvað er að gerast fyrr en í sjúkrabílnum. Mér fannst þó þegar ég var að skríða út úr lestinni að ég væri að bjarga lífi mínu en þetta voru mjög ónotanleg augnablik og það skilur sjálfsagt enginn nema sá sem lendir í þessu.“ Lögfræðingur kannar réttarstöðuna Herdís segir að fulltrúar frá Deutsche Bahn hafi heimsótt sig á sjúkrahúsið, bæði til að sýna henni stuðning og leita eftir upplýsingum. Hún kveðst hafa falið lögfræðingi formleg samskipti við fyrirtækið og segir hún rétt sinn sem og annarra farþega gagnvart járnbrautunum verða kannaðan. Hún kvaðst afar þakklát fyrir stuðning Ingimundar Sigfússonar, sendiherra í Berlín, en hann útvegaði henni lögfræðing og sömuleiðis þakkar hún stuðning fjöl- skyldunnar heima, foreldra sinna, Lilju Ingjaldsdóttur og Þorsteins Þorleifssonar. Nokkur gagnrýni hefur verið á þýsku jámbrautirnar vegna slysa og segir Herdís unnið að rannsóknum á orsökum slyssins. „Það er eitthvað ekki í lagi hjá fyrirtækinu, tæknimál eða annað, og slys síðustu tvö árin hafa rýrt mjög álit manna á því, en nú er farið að ræða þessi mál opin- skátt. En þeir hafa boðið okkur uppá aðstoð sálfræðinga og það er gott að geta farið yfir atburðinn og rætt hann því þótt ég sé ekki sködduð á sálinni eftir þetta þá er nauðsynlegt að tala um þessar myndir af atburð- inum sem koma stöðugt upp í hug- ann.“ Ekki aftur í Iest í bráð Herdís lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla íslands vorið 1991 en hélt síðan til Þýskalands í nám. Lauk hún prófi sem dómtúlkur í ensku, frönsku og þýsku 1997 og er sérsvið hennar tæknimál. Hún hefur kennt íslensku við Háskólann í Köln síðustu misserin, unnið nokkuð við þýðingar og kveðst einnig hafa starfað sem ílugfreyja hjá Condor til að drýgja tekjurnar, þar sem há- skólakennslan hafi ekki verið fullt starf. „Ég ætlaði einmitt að fljúga talsvert í þessum mánuði og var komin með áætlun, því ég hef frí frá háskólanum næstu tvo mánuði,“ segir Herdís og gerir ekki ráð fyrir að vera komin til starfa aftur fyrr en eftir nærri tvo mánuði. „En ég hef verið óskaplega heppin, hef greini- lega ekki átt að fara og hlýt að hafa haft einhvem verndarengil og spyr bara hver það getur verið. En ég stíg ekki upp í lest í bráð, ekki næsta hálfa árið að minnsta kosti.“ Herdís Þorsteinsdóttir var á leið til vinnu sinnar með lest frá Köln til Frankfurt þegar hún fór útaf sporinu. Atta manns létust og um 130 slösuðust, margir alvarlega. Hún bar sig vel þrátt fyrir meiðsli en kvaðst ekki ætla að stíga aftur upp í lest á næstunni. Morgunblaðið/Einar Falur í lausu lofti LEIKNI á skiðum og leikni á snjó- brettum fer ekki endilega saman. Margur reyndur skíðagarpurinn hefur komist að því þegar ætlunin hefur verið að þjóta niður brekk- urnar á bretti. Brettin krefjast sérstakrar lagni og æfingar og geta náð miklum hraða. Þeir sem hafa náð tökum á íþróttinni, eins og þetta unga fólk í Breiðholtinu, fara hins vegar létt með að stökkva hæð sína í loft upp, snúa sér í hringi og sýna hverslags aðr- ar kúnstir. Tvær bflveltur á höfuðborgarsvæðinu TALSVERÐUR erill var hjá lögreglu í stærstu umdæmunum á höfuðborg- arsvæðinu í gær, vegna óhappa í um- ferðinni. Meiriháttar slys urðu þó ekki á fólld að sögn þeirra lögreglu- varðstjóra sem talað var við. Um tugur árekstra hafði orðið í umdæmi Reykjavíkuriögreglunnar seinni part dags, þar af ein bílvelta í Ártúnsbrekkunni þar sem ökumaður missti stjóm á bifreið sinni með íyrr- greindum afleiðingum. Hrina umferð- aróhappa kom í umdæmi Kópavogs- lögreglunnar á milli klukkan 16.30 og 17 í gær, þar af ein bílvelta á Reykja- nesbrautinni á móts við Dalveg. Þá urðu tveir árekstrar á Hafnarfjarðar- veginum nálægt Kópavogslæknum og enn einn á Reykjanesbrautinni. Talið er að akstursskilyrði hafi versnað skyndilega með þeim afleiðingum að hvert óhappið rak annað. Hafnaríj arðarlögreglan sinnti þá 2-3 minniháttar árekstrum í sínu um- dæmi en að öðru leyti gekk umferð vel fyrir sig að sögn varðstjóra. „ÞETTA voru hræði- leg sekúndubrot sem gleymast ekki og ég óska engum að lenda í slíku,“ sagði Herdís Þorsteinsdóttir, einn farþega í lestinni sem fór út af sporinu skammt frá Köln á laugardagskvöld, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hún liggur á háskóla- sjúkrahúsinu í Köln og býst við að útskrif- ast eftir um það bil tvær vikur, en hún kveðst ekki búast við að snúa til vinnu á ný fyrr en eftir sex til átta vikur. Herdís skarst á höfði og marðist illa en hún bar sig vel í gær og bað fyrir kveðjur heim. „Eg hef það sæmilegt en það tekur sinn tíma að láta sér batna og safna kröftum, læra aftur að hreyfa sig, fara í sturtu og þess háttar. Eg er marin og þess vegna þrengir að rifbeinunum og þá er erfitt að snúa sér, anda djúpt og hlæja eða gráta en það gengur þó betur með hverjum deginum sem líður,“ segir Herdís. „Ég kastaðist fram og aftur í lest- arklefanum og allur skrokkurinn er í bláum og frekar ljótum mar- blettum en ég er heppin að vera ekki brotin. Sár á höfðinu var saumað með 13 eða 14 sporum og þess vegna þurfti að raka talsvert af hárinu en ekki allt sem betur fer.“ Lestin D-203 frá þýsku jámbrautunum Deutsche Bahn var á leið frá Amsterdam í Hollandi til Basel í Sviss en Herdís kom um borð í Köln á laugardags- kvöld og ætlaði til Frankfurt þar sem hún átti að mæta til vinnu sinnar hjá þýska leiguflug- félaginu Condor. „Flugið var áætlað klukkan 5 á sunnudagsmorgun og ég tók því síðustu lest frá Köln og hafði verið um 10 mínútur á ferðinni þeg- ar ósköpin dundu yfir. Maður sest bara inn í lestina eins og vant er og heldur að allt sé í lagi en svo gerist þetta. Það kemur þetta mikla högg, rafmagnið dettur út, lestin fer út af sporinu og vagninn fer á hliðina. Við vorum tvær í klefanum og köstuð- umst fram og til baka en erum samt Herdís Þorsteinsdóttir Heimilislína Búnaöarbankans - ræktaöu garðinn þinn Gullreikningur með hærri innlánsvöxtum • Lægri vextir á yfirdrætti Heimilisbanki á Netinu • VISA farkort • Fjármögnunarleiðir Greiðsluþjónusta • Ávöxtunarleiðir ® BÚNAÐARBANKINN Traustur banki HEIMILISLÍNAN Hlutfall ólöglegs hug- búnaðar hefur lækkað UM 65-70% af þeim hugbúnaði í tölv- um sem er í notkun hér á landi er not- aður án tilskilinna leyfa. Hlutfall ólöglegs hugbúnaðar hefur minnkað nokkuð frá síðasta ári, en er engu að síður það hæsta í Vestur-Evrópu og líkist helst því sem gerist í Afríku og Austur-Evrópu. Þetta kom fram í máli Norvalds M. Heidel, fulltrúa BSA, alþjóðasamtaka hugbúnaðar- framleiðenda, á fundi með söluaðilum tölvuhugbúnaðar í gær. Tilefni fund- arins var að kynna söluaðilum hug- búnaðar áherslur BSA, en í dag sendu samtökin 3.500 stjómendum íslenskra fyrirtækja bréf þar sem spurt er hvort ólöglegur hugbúnaður sé í notkun í fyrirtækjum þeirra. Áætlað var að hlutfall ólöglegs hugbúnaðar hér á landi árið 1997 væri 81%. í fyrra var hlutfallið 82%, en á síðasta ári fór hlutfallið niður í 62%. „Ég tel að þessi breyting skýr- ist helst af átaki ríkisstofnana í þess- um málum. Yfirmenn þeirra hafa tek- ið sig á og nú viljum við að forráðamenn einkafyrirtækja geri slíkt hið sama,“ sagði Heidel, sem einnig er yfirmaður eftirlits Micros- oft á Norðurlöndum með ólöglegum hugbúnaði. Ábyrgð framkvæmdastjóra I bréfinu, sem Hróbjartur Jónat- ansson, hrl., ritar fyrir hönd BSA, er bent á að framkvæmdastjórar fyrir- tækja beri ábyrgð á að hugbúnaður í fyrirtækjum þeirra sé löglegur. Ábyrg fyrirtæki gangi úr skugga um að bifreiða, tölva og annars búnaðar sem er í notkun hjá fyrirtækinu hafi verið aflað með lögmætum hætti og að tilskilin leyfi séu til staðar og hið sama eigi að gilda um hugbúnað. „Hefur þú hugleitt hvaða afleiðing- ar það hefði ef ekki væri greitt fyrir 65% af þeirri vöru og þjónustu sem þú selur? Þetta er sá vandi sem hug- búnaðarrétthafar standa fyrir á Is- landi,“ segir einnig í bréfinu. Þar er jafnframt bent á að þjófnaður á hug- búnaði geri það að verkum að fjöldi áhugaverðra starfa tapist, hann hægi á þróun og slíkt bitni beinlínis á fyrir- tækjum og einstaklingum. Þetta eigi sérstaklega við á litlum markaðs- og málsvæðum eins og íslandi. „Tap framleiðenda vegna ólöglegs hugbúnaðar nemur hundruðum millj- óna á hverju ári. Við viljum benda á þetta með jákvæðum hætti í fyrstu, en munum jafnframt fylgja þessu eft- ir af fullum þunga,“ segir Heidel. Innan tveggja til þriggja mánaða verður íslenskt Windows-stýrikerfi sett á markað og Heidel segir að í Ijósi þess framtaks vænti menn þess að hlutfall ólöglegs hugbúnaðar minnki enn frekar. Hann nefnir að í Svíþjóð fái þeir sem bendi á notendur ólöglegs hugbúnaðar 10% þeirrar sektar sem fylgi í kjölfarið. Þá leið sé hægt að fara hér á landi, en engin ákvörðun hafi þó verið tekin um slíkt. Fjölmargar ábendingar BSA auglýstu fyrir skemmstu eftir ábendingum um fyrirtæki, stofnanir eða einstaklinga sem nýttu ólöglegan eða stolinn hugbúnað. Að sögn Heid- els bárust fjölmargar ábendingar eft- ir að auglýsingamar birtust, flestar þó nafnlausar og erfitt hefði verið fyr- ir lögmenn samtakanna hér á landi að byggja á þeim. Fjórtán málum hefði þó verið fylgt eftir. Þar af hefðu samningar um skaðabætur náðst í tveimur tilfellum, samtals að upphæð 500.000 kr„ í einu tilfelli hefði aðili verið dæmdur í tveggja mánaða fang- elsi og þrjú mál væru enn til rann- sóknar hjá lögreglu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.