Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 31
LISTIR
Eitt verka Aðalheiðar.
N iflungahringur-
inn á myndbandi
í Norræna húsinu
RICHARD Wagner-félagið sýnir
nú á fimmta starfsári sínu upp-
færslu Metropolitan-óperunnar í
New York á Niflungahringnum af
myndbandi í Norræna húsinu.
Laugardaginn 12. febrúar kl. 12
verður Sigurður Fáfnisbani sýnd-
ur, en óperan er sú þriðja í röðinni
af Hringóperunum fjórum.
Sýningamar eru í samvinnu við
Félag íslenskra fræða. Árni
Bjömsson hefur umsjón með sýn-
ingunum og gerir grein fýrir ís-
lenskum bakgmnni Niflunga-
hringsins og notkun Richards
Wagner á íslensku heimildunum.
Rannsóknir Árna á
þessu viðfangsefni
koma út á prenti í út-
gáfu Máls og menn-
ingar nú í vor. Er
þetta einstakt tæki-
færi fyrir f slendinga
til að kynnast Nifl-
ungahringnum út
frá þessum sjónar-
hóli, segir í tilkynn-
ingu.
Uppsetning Metr-
opolitan-óperunnar
er tiltölulega hefð-
bundin, og verður
þéssi sama upp-
færsla á fjölunum þar
ytra nú síðla vetrar og
Richard Wagner
mun þá
Kristinn Sigmundsson fara með heimill.
hlutverk Hundings í
Valkyrjunum. Leik-
stjóri er Otto Schenk,
leikmyndahönnuður
Gúnther Schneider-
Siemssen og hljómsveit-
arstjóri James Levine.
Hlutverk Sigurðar
Fáfnisbana er sungið af
Siegfried Jemsalem. í
öðmm stórum hlutverk-
um em Hildegard
Behrens, James Morris
og Heinz Zednik.
Sýnt verður á stóra
veggtjaldinu í sal Nor-
ræna hússins. Enskur
skjátexti.
Aðgangur er ókeypis og öllum
Aðalheiður
Eysteins-
dóttir sýnir
á Mokka
AÐALHEIÐUR S. Eysteinsdóttir
er gestur Mokka frá því á morg-
un, 11. febrúar, til 11. mars næst-
komandi.
Aðalheiður lauk námi frá
Myndlistarskólanum á Akureyri
1993 og er með vinnustofu í
Listagilinu á Akureyri þar sem
hún hefur starfrækt Ljósmynda-
kompuna undanfarin ár.
Tólfta einkasýning
listakonunnar
Nýverið var henni úthlutað
starfslaunum frá Akureyrarbæ til
6 mánaða.
Sýningin á Mokka er 12. einka-
sýning Aðalheiðar en hún hefur
einnig tekið þátt 1 samsýningum
hér heima og erlendis
Opnunardaginn, 11. febrúar,
mun Aðalheiður taka á móti gest-
um á Mokka kl. 20.
Hraungerðis-
prestakall
Menning-
ardagskrá
vegna
1000 ára
kristni
SÉRSTÖK menningardagskrá
verður í Þjórsárveri nk. sunnu-
dagskvöld kl. 21 og er hún til-
einkuð 1000 ára kristni í land-
inu á vegum sókna Hraun-
gerðisprestakalls í Flóa.
Kirkjukórar Hraungerðis-,
Laugardæla- og Villingaholts-
sókna, undir stjóm Sigfúsar Ól-
afssonar, og kirkjukórar Eyr-
arbakkaprestakalls, undir
stjórn Hauks Gíslasonar, munu
flytja tónlistardagskrá. Próf-
astur Árnesprófastsdæmis, sr.
Úlfar Guðmundsson, flytur
ávarp og prófessor Ólafur Hall-
dórsson heldur fyrirlestur um
kristniboðsþættina í Ólafs sögu
Tryggvasonar. Þá verður sung-
ið með börnunum sem til sam-
komunnar mæta. Undir lok
samkomunnar munu kórarnir
flytja saman tvö tónverk, en
samkomunni lýkur með fjölda-
söng að gömlum og góðum ís-
lenskum sið. Menningardag-
skránni stjórnar sr. Kristinn Á.
Friðfinnsson, sóknarprestur
Hraungerðisprestakalls.
Menningardagskráin er
framlag til hátíðahalda í tilefni
1000 ára kristni í landinu. Að-
gangur er ókeypis.
i i ■ V
l .
*
” ■•"■■ V.-
V
...ss,:
l.flokks
Amerískt Blómkál
199.'*
iomhvftlauksgeirum í
lambaleggina og krvddið mpA
» og pipar. KartöfKÆnar
i|pS3£
ogtkiðOM" á Aar
Borið fram með blómkáli
salati og brauði.
NÓATÚN
NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • HÓLAGARÐI • HAMRAB0RG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP.
• ÞVERH0LTI 6, M0S. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68
HEIMASÍÐA NÓATÚNS WWW.noatUn.ÍS