Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ
48 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAJR 2000
GREINARGERÐ
Fúlegg stjórnarformanns
FH hf. og Ljósavíkur hf.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi greinargerð frá bæjar-
fulltrúum minnihlutaflokkanna
(Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks)
í bæjarstjóra Húsavíkur:
Mikið pappírsflóð skall yfir Húsa-
vík á dögunum. Var þar komið dreifi-
bréf frá Ljósavík hf. í Þorlákshöfn,
sem talið hefur verið til útgerðarfyr-
irtækja suður með sjó. Samkvæmt
dreifibréfinu, hneigist hugur þeirra
nú frekar til afskipta af sveitar-
stjómmálum norður á Húsavík.
Undir dreifibréfið rita stjórnarfor-
maður Fiskiðjusamlags Húsavíkur
hf. (FH), sem jafnframt er eigandi
Ljósavíkur hf., og svo meðeigandi
hans í Ljósavík hf., einnig stjómar-
maður í FH.
Þannig er mál með vexti að í sum-
arlok vildi Ljósavík hf. í Þorlákshöfn
ganga í eina sæng með FH. Ljósavík
hf. er fyrirtæki í eigu tveggja aðila
sem höfðu það að leiðarljósi sam-
kvæmt dreifibréfinu, sem einnig
birtist í tveimur dagblöðum, að „eiga
það stóran hlut (þ.e. í sameinuðu fyr-
' irtæki) að við (eigendur Ljósavíkur)
hefðum umtalsverð áhrif‘.
Ljósavík kemur að málinu
Hinn 7. september síðastliðinn,
kom bæjarstjórn Húsavíkur saman
til fundar á „Rauða torginu", fundar-
sal einum á Hótel Húsavík. Á dag-
skrá var m.a. fundargerð bæjarráðs
frá 25. ágúst 1999. Þar var lagt til, að
selja Ljósavík hf. 20% hlut í Fisk-
iðjusamlagi Húsavíkur hf. (FH), með
samrana í huga, en fyrir átti Húsa-
víkurkaupstaður 46% í félaginu. Sala
•áSbréfanna var samþykkt samhljóða
og fögnuðu bæjarfulltrúar minni-
hlutans því, að nú væri loksins séð
fyrir endann á pólitískum afskiftum
bæjarstjórnar af rekstri FH.
Við, í minnihluta bæjarstjómar,
höfðum einmitt ítrekað lýst því yfir
að rétt væri að eignarhluti bæjarins
yrði seldur hæsta verði.
Samþykki okkar byggðist á fram-
lögðum upplýsingum. Síðar kom í
ljós að, það sem lagt var fyrir bæjar-
stjórn, var ekki einu sinni hálfur
sannleikur.
Sagt var, að hið sameinaða félag
réði yfir 7500 þorskígildum, sem síð-
ar kom í Ijós að vora aðeins tæp 4000
þorskígildi
- Ekkert var lagt fram um mat á
íýrirtækjunum, hvað þá að greint
væri frá einkennilegu „samkomu-
lagi“ um það mat (sjá meðfylgjandi
„grann að samræmdu mati“, sem
virðist vera samið af hagfræðingi
Ljósvíkinga).
Á bæjarstjórnarfundinum var því
vísvitandi beitt blekkingum. Upplýs-
ingum, sem skiptu höfuðmáli, var
haldið leyndum. Bæjarstjóri og odd-
viti meirihlutans lugu bæjarfulltrúa
fulla. Markmið Ljósvíkinga um yfir-
töku lítils félags á stóra og stöndugu
fyrirtæki, virtust vera í höfn. I hinu
sérkennilega dreifibréfi þeirra Ljós-
víkinga, stendur orðrétt: „menn virt-
ust sammála bæjarstjórnarmeiri-
■»
hlutanum um að þetta væri langbesti
(!) kosturinn."
Hvernig var staðið að
mati félaganna?
Eigendur Ljósavíkur draga held-
ur enga dul á það, að löngu fyrir fund
bæjarstjómar eða 15. ágúst 1999,
hafi með leynd verið gengið frá því,
að við mat á félögunum, yrði rækjuk-
vóti Ljósavíkur meðhöndlaður með
afar sérkennilegum hætti. í dreifi-
bréfinu stendur orðrétt: „Fulltrúum
(!) Húsavíkurkaupstaðar þótti skil-
yrði okkar varðandi mat á rækju-
kvótanum afar sanngjamt og eðli-
legt.“!!!
Rétt er að taka fram að hvergi í
skjölum Húsavíkurkaupstaðar er
getið um umboð, til eins eða neins
„fulltrúa", til að ganga til viðræðna
um sölu hlutabréfa FH í eigu bæjar-
ins, hvað þá að semja um mat á FH
og eigum þess við samrana.
Síðar kom í ljós að rækjukvóti
Ljósavíkur var metinn á 700 krónur
kílóið við framlagða samranaáætlun.
Á sama tíma, var verð rækju á kvóta-
þingi 400 krónur hvert kíló. Engar
athugasemdir virðast „fulltrúar“
Húsavíkur heldur hafa gert við þá
staðreynd, að þorskkvóti FH var
lækkaður í þessu mati, um einn millj-
arð króna að verðgildi eða um 40%,
vegna einhverrar „varúðarreglu",
sem gildir almennt ekki í slíkum við-
skiptum.
Ljósavíkurmenn höfðu auðvitað
ekkert við þetta að athuga og fannst
greinilega eðlilegt, að þeir réðu
gangi mála og ráðskuðust með bæj-
arstjóra og oddvita meirihlutans,
eins og þeim þóknaðist. Fróðlegt var
einnig að sjá í dreifibréfi Ljósvíkinga
að þeir vora svo almennilegir að
leggja til hagfræðing til að reikna út
mat, og stilla upp fjárhagsmálum
samranans. Sendi hagfræðingurinn
jafnvel frá sér bréf í nafni kaupstað-
arins.
Bæjarstjóri hefur opinberlega
hrósað sér fyrir það að Húsavíkur-
kaupstaður hafi ekki borið neinn
kostnað af gerð samranamatsins.
Ljúflingarnir frá Ljósavík höfðu
snaran mann á sínum snæram, sem
gerði þetta fyrir þá. Oddvitinn og
bæjarstjóri töldu enga ástæðu til að
kalla til sín sérfræðinga, þótt hér
væri um að ræða margumtalað fjör-
egg Húsavíkur.
Þau verðmæti sem hér var verið
að sýsla með nema fimm milljörðum
króna, sem er tíföld velta bæjarsjóðs
Húsavíkur.
Undarlegar „viðræður“!
Eins smekklegt og það nú er, stóð
hluti bæjarstjórnarmeirihlutans, á
sama tíma í viðræðum við Þormóð
ramma hf.og Samherja hf. Var
reyndar búið að undirrita viljayfir-
lýsingu, við síðargreinda félagið, um
aðkomu þess að FH og samninga við
Húsavíkurkaupstað. Sú viljayfirlýs-
ing var dregin til baka, samkvæmt
fréttum síðar, vegna þess að bæjar-
stjóm Húsavíkur hefði verið andvíg
samvinnu við Samherja! Þetta mál
var aldrei lagt fyrir fundi bæjarráðs
eða bæjarstjómar. Bæjarfulltrúum
var því alls ekki ljóst hvað var í gangi
á þessum tíma. Þeir vora ekki upp-
lýstir um það.
Eigendur Ljósavíkur og höfundar
dreifibréfsins lýsa því yfir, að frá
upphafi hafi allir „aðstandendur"
þessara viðræðna verið sammála um
„að Húsavíkurkaupstaður ætti að
minnka veralega hlut sinn í félag-
inu“. Þetta er athyglisvert og raunar
í hróplegu ósamræmi við yfirlýsta
stefnu núverandi bæjarstjórnar-
meirihluta.
Hvað gekk Ljósvíkingum til?
Ljósavík er rækjuveiðifyrirtæki
með lítinn kvóta og erfiðan rekstur.
Helstu eignir era tvö skip og rækju-
verksmiðja á Siglufirði. Skipakost-
urinn er ekki nýr. Raðsmíðaskip og
togari. Fyrirtækið er í eigu tveggja
fjölskyldna. Að eigin sögn vora eig-
endurnir að leita leiða til að koma
fyrirtækinu á hlutabréfamarkað.
Leiðin að hlutabréfamarkaðinum
átti að liggja gegnum yfirtöku á FH.
Yfirtöku sem var einungis möguleg-
með aðstoð frá afskaplega sam-
vinnuþýðum bæjarstjórnarmeiri-
hluta á Húsavík.
Með því að ná meirihluta í samein-
uðu íyrirtæki var markmiðum Ljós-
víkinga náð: „að eiga það stóran hlut
( þ.e. í sameinuðu íyrirtæki) að við
hefðum umtalsverð áhrif ‘ (dreifibréf
Ljósavíkur). En vegna veikleika og
smæðar Ljósavíkur hf. gátu þeir
ekki náð meirihluta í sameinuðu fyr-
irtæki, nema að mat á fyrirtækjun-
um væri þeim afar hagstætt. Það
mat reyndist vera leynisamningur
bæjarstjóra við stjómarformann
Ljósavíkur. Þetta dularfulla mat
kom ekki fram í dagsljósið fyrr en
15. desember 1999. Hafði plagginu
verið haldið leyndu í fjóra mánuði og
hefði aldrei komið fram, nema vegna
þess að bæjarstjóri var krafinn skrif-
lega, um öll gögn í málinu.
Enn er í fersku minni, þegar bæj-
arstjóri afhenti afrit af þessu maka-
lausa mati, og sagði um leið að „hann
hefði nú ekkert þurft að láta þessi
plögg af hendi“!! Hvað bæjarstjóri,
embættismaður bæjarstjómar,
hugsaði þá stundina, er best að hann
hafi fyrir sig.
Það er ljóst af gögnum málsins og
ekki síst af viðbrögðum Ljósvíkinga,
að miklir hagsmunir vora í húfi.
Samkvæmt mati Verðbréfastofunn-
ar hf. voru eignir FH vanmetnar um
1000 milljónir og eignir Ljósavíkur
ofmetnar um tæpar 300 milljónir
króna í leynilegu samkomulagi Ljós-
víkinga og bæjarstjóra-oddvita tví-
eykisins. Ljósvíkingar vora að koma
á „yfírtöku aldarinnar".
Það glóði á gullið. Lottóvinning,
þar sem aðeins tveir aðilar, eigendur
Ljósavíkur, ákváðu vinningstölurn-
ar, átti aðeins eftir að innbyrða form-
lega.
Efasemdir vakna
Leið nú að aðalfundi FH. Daginn
fyrir þann fund, eða 26. nóvember
1999, var lögð fram formleg sam-
ranaáætlun stjórna FH og Ljósavík-
ur. Þá var ýmsa farið að grana að hér
væri ekki allt með felldu. Þegar hafði
komið í ljós að kvóti Ljósavíkur var
2500 þorskígildum minni en fullyrt
hafði verið.Við lestur á reikningum
Ljósavíkur kom einnig eftirfarandi
fram:
• Ljósavík hf. var rekið með miklu
tapi, 99 milljónum 1998 (22% af
veltu) og 109 milljónum til 1. septem-
ber 1999 (28% af veltu). Þetta voru
ný tíðindi.
• Félagið var mjög skuldsett, skuld-
aði 1,5 milljarða af 800 milljón króna
veltu. Félagið hafði verið kynnt sem
fjárhagslega sterkt.
•Síðasti árshlutareikningur, sem allt
samranaferlið var miðað við, var
óendurskoðaður.
• Eigendur Ljósavíkur höfðu greitt
sjálfum sér 52 milljónir í arð eftir að
samranahugmyndir vora kynntar í
bæjarstjórn 7. september 1999.
• Oseljanleg viðskiptavild var skráð
sem 50 milljóna króna eign í reikn-
ingum félagsins.
• Skuld við hluthafa upp á 20 millj-
ónir og sérkennileg skuldabréfaeign
upp á 186 milljónir voru ekki skýrðar
nánar í reikningum.
Mistökin koma í ljós
Á aðalfundi FH gerðust síðan þau
fáheyrðu tíðindi, að fulltrúi Húsavík-
urkaupstaðar (oddviti meirihlutans)
stóð fyrir því, að þrír fulltrúar í
stjóm FH kæmu frá Ljósavík, einn
kæmi frá Olíufélaginu og einn frá
Húsavíkurkaupstað (bæjarstjóri).
Var nú flestum ljóst að vinnubrögð
bæjarstjórans og vankunnátta odd-
vitans hafði leitt hluthafa FH í
ógöngur.
Sömu einstaklingar sátu nú í
stjórnum FH og Ljósavíkur og áttu
að gæta hagsmuna hluthafa beggja
félaganna við samranann!
Þeir, sem áttu að gæta hagsmuna
hluthafa FH í samranaferlinu við
Ljósavík hf., vora eigendur og stjórn
Ljósavíkur hf.!
Eigendur Ljósavíkur vora þar
með studdir til að gæta hagsmuna
Húsavíkurkaupstaðar í stjórn FH!
Augljóst var að blekkingar bæjar-
stjóra og oddvita meirihlutans höfðu
ekki aðeins villt okkur sýn, heldur
voru nú fjórir bæjarfulltrúar meiri-
hlutans fastir í feni lyga, blekkinga
og pólitískra þvingana. Einn bæjar-
fulltrúi meirihlutans hafði kynnt sér
gögn málsins og var nú opinberlega
orðinn málinu andsnúinn.
Mat
í tuttugu síðna dreifibréfi Ljósvík-
inga er sífellt klifað á því að alltof
langt mál sé að fara út í að ræða að-
ferðir og útreikning á mati félaganna
við samrana. Þetta er þó aðalatriði
málsins, en ekki hvort bæjarfull-
trúar á Húsavík era starfi sínu vaxn-
ir eða ekki, að áliti stjórnarformanns
FH. Ljósvíkingum liggur hjarta nær
að finna að starfi kjörinna fulltrúa í
sveitarstjóm, fremur en að ræða
kjarna málsins.
Við, í minnihluta bæjarstjórnar,
lögðum til að sérfræðimat yrði lagt á
fyrirtækin áður en til ákvörðunar um
samranann kæmi.
Af einhverjum ástæðum mátti það
alls ekki.
Ekki var það nú traustvekjandi.
í dreifibréfi Ljósavíkur er tekið
fram að einn bæjarfulltrúi meirihlut-
ans hafi viljað slíkt mat, en þá var
hann „fenginn“ til að mæta ekki á
bæjarstjórnarfund eins og frægt er
orðið. Allar tillögur um hlutlaust mat
vora því felldar í bæjarstjórn. Við
réðum því Verðbréfastofuna hf., til
að meta fyrirtækin, með tilliti til
samrana. Niðurstaða þess mats er,
að hluthafar í FH ættu að eignast
75% í sameinuðu félagi, en hluthafar
Ljósavíkur 25%. í framlagðri samr-
unaáætlun stjórna félaganna, var
reiknað með 62,5% í sameinuðu fyr-
irtæki í hönd hluthafa FH en 37,5%
til hluthafa Ljósavíkur, og munaði
um minna.
Allar upplýsingar sem nú lágu fyr-
ir hnigu að því að mistök hefðu verið
gerð í samranaferlinu. Mistök, sem
varð að leiðrétta. Ljósvíkingar mátu
það svo, að meirihlutinn hefði enn
einhver tök á málinu, og héldu því
sínu striki. Á þessum tíma barst
stjórnarformanni FH (jafnframt að-
aleiganda Ljósavíkur hf.) bréf eins
bæjarfulltrúa, þar sem farið var
fram á, að sjá útreikning á mati fé-
laganna og óskað skýringa á fleiri at-
riðum samranaáætlunarinnar.
Þessu bréfi var svarað með út-
úrsnúningi 15. desember 1999, en þá
mátti stjórnarformanni FH, aðaleig-
anda Ljósavíkur, vera ljóst, að
maðkarnir vora farnir á stjá í mys-
unni þeirra félaga og vora menn
farnir að hræðast ormaiðuna.
Þáttur
endurskoðanda
Þætti endurskoðanda FH, sem
jafnframt er endurskoðandi Húsa-
víkurkaupstaðar, er gerð ítarleg skil
í dreifibréfi eigenda Ljósavíkur. Það
er ekki ljóst á þessari stundu, hvaða
þátt endurskoðandinn átti í gerð
mats vegna samrunans. Endurskoð-
andi félagsins kemst þó að því, á end-
anum, að skiptihlutfallið sé ekki
sanngjarnt og mælir á móti sam-
rana, byggðum á framlögðum hug-
myndum. Ekki líkar stjórnarfor-
manni Ljósavíkur og FH,
aðaleiganda Ljósavíkur, að endur-
skoðandinn komi fram með álit á
samrananum og segir orðrétt: ,ýlf
hverju gekk hann (þ.e. endurskoð-
andinn) gegn vilja umbjóðanda síns,
stjórnar FH“!!???
Þessi setning lýsir þvflíkri vank-
unnáttu á eðli og starfssviði endur-
skoðanda og matsmanna, að undran
sætir. Vakna upp spurningar hvort
endurskoðendur Ljósavíkur,
Deloitte og Touche hf., vinni sam-
kvæmt þessum skilningi eigenda
Ljósavíkur hf. á starfi endurskoð-
enda. Endurskoðendur vinna þá að-
eins samkvæmt „vilja“ umbjóðanda
síns, og „vilji eigenda“ ræður þar för,
fremur en góðar reikningsskilavenj-
ur og lagareglur um endurskoðun.
Óendurskoðaður árshlutareikning-
ur, sem lagður var til grandvallar
samrunaáætluninni, segir sína sögu.
Endurskoðandi FH er, að ósekju,
gerður að blóraböggli í þessu máli og
síðan kvarta eigendur Ljósavíkur yf-
ir því að „siðferðisbrotnir", „metnað-
arsjúkir" „glappaskotastjórnmála-
menn“ á Húsavík hafi „klagað"
endurskoðandann. Bréfið til hlutafé-
lagaskrár fylgir hér með til skýring-
ar:
Húsavík 6. janúar 2000
Hlutafélagaskrá
Reykjavík
Ég undirritaður hluthafi í Fisk-
iðjusamlagi Húsavíkur hf., legg hér
með fram athugasemdir við fram-
komna samrunaáætlun Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur hf. og Ljósavíkur hf.
dagsetta 26. nóvember 1999. Hlut-
hafafundur sem tekur ákvörðun um
samranann hjá FH hf. hefur ekki
verið boðaður en er áætlaður 19. jan-
úar 2000.
Athugasemdirnar era byggðar á
Betur af stað farið en heima setið
ÚTSÖLUNNILÝKUR13. FEB.
- líka sunnudaga
habitat Heima er best.