Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
GREINARGERÐ
hlutafélagalögum og lögum um end-
urskoðendur og auk þess byggðar á
stjómsýslulögum.
Athugasemdirnar eru eftirfar-
andi:
1. Annar matsmanna er skrifar
undir skýrslu matsmanna um sam-
runaáætlunina, Björn St. Haralds-
son, löggiltur endurskoðandi (starfs-
maður PricewaterhouseCoopers
ehf.) er endurskoðandi Fiskiðjusam-
lags Húsavíkur hf. og jafnframt end-
urskoðandi eins stærsta hluthafans
(26%), Húsavíkurkaupstaðar. Þetta
samræmist ekki lögum um mats-
menn.
2. Árshlutareikningur Ljósavíkur
vegna 01.01.1999-31.08.1999 er
óendurskoðaður samkvæmt áritun
endurskoðanda þess félags.
Árshlutareikningur þessi er sagð-
ur lagður til grundvallar samruna-
áætluninni og er fylgiskjal með
henni.
3. Björn St. Haraldsson, endur-
skoðandi FH hf. og Húsavíkur-
kaupstaðar, er hluthafi í FH hf. og
uppfyllir því ekki reglur laga um
endurskoðendur.
4. Einn hluthafi í FH hf. (Sam-
vinnufélag sjómanna og ?) er án
kennitölu og er slíkt óheimilt sam-
kvæmt lögum.
5. Hvergi kemur fram útreikning-
ur á mati félaganna heldur aðeins al-
mennt orðuð lýsing á matsaðferðum.
Ég fer fram á að Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur hf. verði gert að lagfæra
ofangreind atriði og draga fram-
komna samrunaáætlun til baka áður
en til hluthafafundar kemur, en hann
er áætlaður 19. janúar.
Sigurjón Benediktsson hluthafi
1. Bréf með athugasemdum sent
hlutafélagaskrá vegna samrunaferlis
FH og Ljósavíkur hf.
Ljósavík hf.
Til hvers eru leikreglur þjóðfé-
lagsins?
I títtnefndu dreifibréfi eigenda
Ljósavíkur kemur skýrt fram, að
þeim finnst að sér vegið, með því að
réttkjörnir bæjarfulltrúar séu að
skipta sér af málum. Séu að þvælast
fyrir miklum og góðum viðskipta-
áformum. Það er nú einu sinni þann-
ig að kjömir bæjarfulltrúar hafa
bæði skyldur og réttindi. Laga-
rammi sveitarstjóma gerir ekki ráð
fyrir að fyrirtæki eins og Ljósavík
hf., eða hluthafar slíkra fyrirtækja,
geti ráðið ákvörðunum bæjar-
stjóma. Sveitarstjómarmenn geta
ekki heldur farið með eigur sveitar-
félagsins, eins og þeim sýnist, nema
hafa til þess umboð, og afl til að
koma þeim málum fram í bæjar-
stjórn. Hvort sem Ljósvíkingum lík-
ar betur eða verr, er þetta svo, og
ekki i þeirra verkahring að breyta
þar um.
Ljósvíkingar tóku þátt í þeim ljóta
leik, að halda upplýsingum leyndum
og beita blekkingum gagnvart bæj-
arfulltrúum og öðmm hluthöfum.
Ljósvíkingar telja, í dreifibréfi sínu,
að það sé sjálfsagt mál og eðlilegt að
„fá“ bæjarfulltrúa til að sinna ekki
lögboðnum störfum sinum í sveitar-
stjóm, vegna þess eins að skoðanir
bæjarfulltrúans féllu ekki að skoðun-
um eigenda Ljósavíkur hf.
Það sem Ljósvíkingar kalla svo
smekklega „hótun um að leggja fram
stjómsýslukæru“ er aðeins lögbund-
inn réttur sérhvers manns að leita
réttar síns. Ekki er annað að sjá í
dreifibréfinu, en Ljósvíkingar hyggi
á lögsókn gegn endurskoðanda FH
til að leita réttar síns. Það er þeirra
mál.
Aldrei meirihluti fyrir
samruna við Ljósavík!
Líklega eram við komin að ástæð-
um þess, að þetta mál verður aðeins
sagnfræði héðan í frá. Leiðinleg
minning um leiðinleg viðbrögð við
mótlæti, af hálfu manna sem héldu
að þeir gætu orðið litlir Samherjar í
fyllingu tímans.
Mergurinn málsins er að einn bæj-
arfulltúa meirihlutans studdi ekki
þetta samranaferli. Samrani FH við
Ljósavík hefði því aldrei verið sam-
þykktur í bæjarstjóm og því felldur
á hluthafafundi. Meirihluti bæjar-
stjómar, fimm bæjarfulltrúar af níu,
var andvígur samrunanum. Við, í
minnihluta bæjarstjómar, ráðum því
ekki óstudd hvort mál komast í
gegnum bæjarstjóm eða ekki.
„Vinirnir" fjórir í meirihlutanum
gátu einfaldlega ekki sannfært bæj-
arstjóm um ágæti samrana FH og
Ljósavíkur. Slakleg vinnubrögð frá
upphafi samranaferilsins, vora aug-
Ijós. Grandvöllur samranans var
brostinn. Bæjarstjóri og oddvitinn
Brúðhjón
Allm boróbúnaður ■ GIæsi 1 eg gjafavara • Briíöhjónalistar
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
r
v
Fjárfestar athugið!
Öll almenn verðbréfaviðskipti með
skráð og óskráð verðbréf.
©AVerðbrófamiðlunin
Ahiiafhf
Löggilt óháð fyrirtæki í verð
Verðbréf
Löggilt óháð fyrirtæki í verðbréfaþjónustu
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Suðurlandsbraut 46 • Sími: 568 10 20
J
VERTU ÞÍÐUR
VID BÍLINN!
- öryggi í umferð!
Hjá Olís færðu alla þá þjónustu sem snýr að öryggi bílsins í umferðinni.
www.olis.ls
höfðu verið afhjúpaðir fyrir blekk-
ingar og ósannindi. Fjórir fylgjend-
ur samranans í bæjarstjórn áttu því
ekkert með að „lofa“ og „ábyrgjast"
framgang málsins.
Hafi það verið „sjúklegur pólitísk-
ur metnaður" sem kom í veg fyrir
þetta samranaslys, þá eram við
ánægð með þann metnað.
En það var ekki svo.
Það var einfaldlega aldrei meiri-
hluti fyrir málinu í bæjarstjóm.
Um þurfalinga
og annað fólk
Eitthvað hefur það farið fyrir
brjóstið á Ljósvíkingum, að minnst
var á „þurfalinga frá Þorlákshöfn" í
einni blaðagrein um málið.
Rétt er okkur og skylt að biðja
Þorlákshafnarbúa afsökunar og er
það gert hér með. Við eigum ekkert
sökótt við íbúa austan Fjalls né
neina aðra. Eigendur Ljósavíkur
þurfa heldur ekki að taka þetta til
sín, þeir búa í fjárheldum og sterk-
byggðum húsum og era sko alls ekki
neinir þurfalingar. Rétt búnir að
hirða 52 milljóna arð úr fyrirtækinu
Ljósavík hf.
Hafi önnur atriði, sem telja mætti
ómálefnaleg og meiðandi, hrotið af
vöram okkar í umræðum um málið,
væra þau betur ósögð.
„Ljóst er að staða FH er talsvert
lakari eftir þessar hremmingar en
áður en þreifingar okkar hófust.
Raunar er ekki fjarri lagi að segja að
fyrirtækið sé í rúst og að fáir raun-
hæfir kostir séu í sjónmáli."
(Guðmundur Baldursson, stjóm-
arformaður FH og Ljósavíkur, Unn-
þór Halldórsson, stjómarmaður í
FH og Ljósavík, Morgunblaðið 5.
febrúar 2000.)
Bæjarfulltrúar minnihlutans í
bæjarstjórn Húsavíkur sætta sig
ekki við þessi ummæli stjómarfor-
manns FH.
Vel kann að vera að staða FH sé
lakari eftir „þreifingar" Ljósvíkinga
og aðkomu þeirra að stjórn FH. En
fullyrðing stjórnarformanns al-
menningshlutafélagsins Fiskiðju-
samlags Húsavíkur hf„ að fyrirtækið
sé í rúst, er annaðhvort frekleg
móðgun við aðra hluthafa og starfs-
menn fyrirtækisins eða hótun til
hluthafa og starfsfólks sem rétt er að
taka mark á og bregðast við hið snar-
asta. Best væri að losa stjómarfor-
manninn undan því oki að meta hvað
séu „raunhæfir" kostir í stöðunni.
Raunhæfir kostir, annarra hluthafa
en Ljósavíkur, era margir.
Rétt er að benda á að gengi hluta-
bréfa FH hf. hefur snarhækkað eftir
að samranaferlinu við Ljósavík var
slitið. Segir það raunar allt sem
segja þarf.
Að lokum
Það er ekkert við það að athuga að
menn séu ekki sammála i stjórnmál-
um. Er raunar hornsteinn sjálf-
stæðrar hugsunar. Að sæta smekk-
leysu stjórnarformanns Fiskiðju-
samlags Húsavíkur og aðaleiganda
Ljósavíkur hf„ vegna þess eins að
hann er ósáttur við að þurfa að hlíta
lögum og reglum, er dálítið annað.
Það er fremur óskemmtilegt að út-
gerðarfyrirtæki með 800 milljóna
króna veltu og 180 milljóna króaig
tap, sé svo upptekið af húsvískum
stjómmálum, að fyrirtækið sendi
dreifibréf á öll heimili á Húsavík og
til fjölmiðla, til þess eins að skamma
bæjarfulltrúa. Dreifibréf stjórnar-
formanns FH skaðar auk þess það
fyrirtæki sem honum hefur verið
trúað fyrir að stjórna.
Eigendur Ljósavíkur verða að
þola það, að þegar farið er í sam-
ranaferli eins og t.d. við FH, þá
leggja allir aðilar reikninga sína og
frammistöðu í fyrirtækjarekstri
undir. Ef gjörðir manna þola ekki
dagsins Ijós, þá eiga þeir ekki að fást
við slíka hluti, heldur halda sig til
hlés. Athugun leiddi í ljós að Ljósa-
vík hf. var ekki eins traust og sterkt
og tindátar þeirra hér á Húsavík
héldu fram. Boðað skiptihlutfall var
ósanngjamt. Samraninn hefði orðið
á kostnað hluthafa FH, þar á meðal
bæjarfélagsins. Það skiptir ekki öllu
máli héðan í frá.
Ef eigendur Ljósavíkur era án-
ægðir með sitt félag, er það aðalat-
riði fyrir þá. Við, í minnihluta bæjar-
stjómar, eram sátt með lyktir mála
og eram ánægð með FH án Ljósa-
víkur. Það er líka aðalatriði.
Þessum kafla er lokið.
Húsavík 7. febráar 2000
Aðalsteinn Skarphóðinsson
Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir
Anna Sigrún Mikaelsdóttir
Siguijón Benediktsson.
Alltaf með Mogganum á fimmtudogum