Morgunblaðið - 10.02.2000, Blaðsíða 76
ÚÚwf&rsMEp
^^vmimssmsvjam■
OLiyER
KOMiN ÚT
ÁSÖLUMYNDBANDI
fltotgtttiM&Mfr
Trausti
íslenska,
Siðan 1972
Leitið tilboða!
murvorui
ii steinp
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Bankaráð Búnaðarbanka Islands
Átelur brot bankans
' á verklagsreglum
BANKARÁÐ Búnaðarbanka ís-
lands hf. átelur þau brot á verklags-
reglum sem orðið hafa innan bank-
ans og leggur ríka áherslu á það við
bankastjórn að þau endurtaki sig
ekki. Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu sem ráðið sendi frá sér í
gær. Fjármálaeftirlitið gerði sem
kunnugt er athugasemd um fram-
kvæmd reglnanna innan bankans í
lok janúar.
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
- áííarbankans, segist ekki geta gert
athugasemd við þessa fréttatilkynn-
ingu bankaráðsins. „í sjálfu sér er
ekkert nema gott um hana að segja.
Eins og komið hefur fram munum
við fylgjast mjög grannt með því að
eftir verklagsreglunum sé farið.
Þessi tilkynning felur ekki í sér
neina breytingu á reglum bankans.
Um leið og athugasemdin barst 25.
janúar breyttum við verklagsreglum
innan bankans og framfylgjum þeim
stranglega,“ segir Stefán.
Stefán segir að væntanlega komi
nýjar reglur innan tíðar frá Fjár-
málaeftirlitinu, en þangað til verði að
búa við reglumar eins og þær séu
núna.
Óskað eftir skýrslu frá banka-
stjórn og endurskoðanda
í fréttatilkynningu bankaráðsins
kemur fram að það hafi óskað eftir
skýrslu um framkvæmd verklags-
reglna um verðbréfaviðskipti frá
bankastjórn annars vegar og hins
vegar hafi innri endurskoðanda
bankans verið falið að gefa skriflega
skýrslu um sama efni mánaðarlega.
Honum hafi líka verið falið að athuga
ítarlega öll verðbréfaviðskipti þeiira
starfsmanna bankans sem verklags-
reglurnar taki til frá 16. október
1997, þegar reglumar voru settar.
Bankaráðið vill þó vekja sérstak-
lega athygli á þeirri niðurstöðu innri
endurskoðanda bankans að ekld sé
hægt að benda á að um hagsmuna-
árekstra hafi verið að ræða, né hafi
viðskiptavinir hlotið tjón af.
■ Gerir sér/10
Morgunblaðið/Gkilli
Jdn Vídalín biskup er nú á geymslusvæði á Njarðargötu.
Jón Vídalín í geymslu
ÞRJÁR styttur sem tilheyra Dóm-
kirkjunni í Reykjavík hafa verið í
geymslu meðan á breytingum á
kirkjunni og Kirkjutorgi stendur.
Jón Vídalín biskup, meitlaður í
stein af Ríkharði Jónssyni, hefur
mátt hfma á geymslusvæði borgar-
innar á Njarðargötu innan um
strætisvagnabekki og aðra verald-
lega hluti hversdagsleikans. Hann
er þó í góðu kompanii með styttu
af séra Bjarna Jónssyni
vígslubiskupi, sem Sigurjón Ólafs-
son gerði. Stytta af séra Hallgrími
Péturssyni er hins vegar í viðgerð
en gera má ráð fyrir að stytturnar
verði komnar upp á ný á sinn
gamla stað f sumar.
Fraktvél Flug-
leiða í Goose Bay
Lenti
vegna
boða frá
reyk-
skynjara
BOEING 757 fraktflutninga-
vél Flugleiða varð að snúa af
leið til New York í gær og
lenda í Goose Bay á Ný-
fundnalandi í Kanada eftir að
reykskynjari gaf frá sér við-
. vörun.
Að sögn Einars Sigurðsson-
ar, framkvæmdastjóra hjá
Flugleiðum, voru flugvirkjar
sendir til Kanada í gær að fara
yfir vélina og kanna hvort
búnaðurinn hefði bilað eða
hvort eitthvað í farmi vélar-
innai' hefði valdið því að
skynjarinn sendi frá sér við-
vörun. „Þessir skynjarar hafa
áður farið í gang vegna frjó-
korna frá blómum í farmi,“
sagði Einar.
Hann sagði að félagið teldi
mikilvægt að gæta fyllsta ör-
yggis og láta flugvirkja leita
orsaka þess að skynjarinn fór í
/ ygang en vonast væri til að vél-
' in gæti haldið áfram til New
York strax á morgun.
Tveir flugmenn eru í áhöfn
vélarinnar.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
Kókbíll fauk út af veginum við Tungudal skammt frá ísafirði.
Bálhvasst víða
á Vestfjörðum
BÁLHVASST var víða í austnorð-
austanáttinni á Vestfjörðum í gær-
morgun og fram undir hádegi er
veður fór að ganga niður.
í umdæmi lögreglunnar á ísafirði
fuku þrjár bifreiðir út af, þar af tvær
flutningabifreiðir og ein fólksbifreið.
Ekki urðu slys á fólki en ökutækin
munu eitthvað hafa laskast. Gos-
flutningabifreið fauk út af veginum
við Tungudal skammt frá Isafirði og
á Hafrafellshálsi fuku flutningabif-
reið og fólksbifreið út af veginum.
Vindhraðinn nærri
150 km á klst.
Á ísafirði fór vindur í 20 metra á
sekúndu um hádegið í gær en á
sjálfvirkri veðurathugunarstöð á
Þverfjalli fór vindur í 40,8 m/sek.
eða sem svarar 148 km á klst. klukk-
an 10 og hélst vindstyrkurinn nær
óbreyttur næstu klukkustundina
uns hann minnkaði niður í 36 metra
á sekúndu um hádegið eða sem svar-
ar 12 vindstigum og 130 km á klst. I
dag er gert ráð fyrir suðvestan 8-13
m/sek. á Vestfjörðum.
Rafræn eignaskráning verðbréfa
Tafír hafa kostað
hundruð milljóna
VONIR eru bundnar við að rafræn
eignarskráning verðbréfa hefjist á
næstu mánuðum, en miklar tafir hafa
orðið á framkvæmd hennar. Ætla má
að tafir þær sem orðið hafa á raf-
rænni eignarskráningu verðbréfa
hafi kostað hundruð milljóna króna.
Er þetta í samræmi við niðurstöðu
hagkvæmnisathugunar, sem fram
fór árið 1995, á starfsemi verðbréfa-
miðstöðvar á íslandi.
Samkvæmt athugun sem var unn-
in af verkefnisstjórn skipaðri af við-
skiptaráðherra var árlegur kostnað-
ur vegna umsýslu með verðbréf
metinn nema 215-226 milljónum
króna. Þótti því hagkvæmt að koma á
fót verðbréfamiðstöð þar sem rekstr-
arkostnaður hennar yrði væntanlega
einungis um 20% af árlegum kostn-
aði vegna umsýslu með verðbréf.
Verðbréfaþing hefur verið ósátt
við hversu lengi hefur dregist að
koma skráningarstarfseminni af
stað, að sögn Stefáns Halldórssonar,
framkvæmdastjóra þess.
„Okkur hefur þótt þetta taka ótrú-
lega langan tíma. Við höfum óhjá-
kvæmilega fundið fyrir því að þetta
hefur seinkað framþróun markaðar-
ins. Verðbréfaviðskipti eru enn ekki
eins skilvirk hérlendis og í þeim
löndum þar sem bréf eru eignar-
skráð rafrænt," segir Stefán.
■ Seinkun/12C
Heimsmeistara-
mót í Ólafsfirði
BÚIST er við um 7.000 gest-
um á heimsmeistaramót í
snjókrossi, sem haldið verður
í Olafsfirði dagana 6.-7. maí
næstkomandi. Allt gistirými í
Eyjafirði hefur verið bókað á
þessum tíma.
Gunnar Hákonarson, starfs-
maður mótsins, segir að mótið
sé einstakt, þar sem ökumenn
beggja vegna Atlantshafsins
hafi aldrei reynt með sér áður
í sérstakri keppni. Hann segir
að mótið muni vekja athygli
víða um heim.
■ Búist við/16
Styttist í að fínnist bdlu
efni gegn eyrnabólgu
:> j; 'í WmB
r\ MMk. -MI
oc
kemur út á sunnudaginn
2
3
in
RANNSÓKN íslensks rannsóknar-
hóps á bóluefni gegn pneumókokk-
um sýnir fram á að bóluefnið vekur
mótefnamyndun hjá börnum. ís-
lenska rannsóknin er liður í alþjóð-
legri rannsókn. Pneumókokkar geta
valdið heilahimnubólgu, blóðsýk-
ingu, eyrnabólgu og lungnabólgu.
Leikskólabörn hér á landi hafa tekið
þátt í rannsókninni. Með rannsókn á
blóði barnanna var sýnt fram á að
bóluefnið leiddi til myndunar virkra
mótefna. Nefkoksræktanir, sem
gerðar voru fram til tveggja og hálfs
árs aldurs, sýndu að bömin sem voru
bólusett báru síður á slímhúð þær
bakteríur, sem bólusett var gegn, en
óbólusett böm.
í íslenska rannsóknarhópnum em
Katrín Davíðsdóttir, Sveinn Kjart-
ansson, Þórólfur Guðnason, Karl G.
Kristinsson, Ingileif Jónsdóttir og
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir.
Karl Kristinsson sýklafræðingur
segir að verið sé að prófa ný bóluefni
gegn pneumókokkum sem era al-
gengasta orsök eyrnabólgu. Hér á
landi hefur rannsóknin einkum
beinst að bólfestu bakteríunnar í
nefkoki og að ónæmisvekjandi eigin-
leikum bóluefnisins í blóðinu. „Við
höfum hins vegar ekki fai'ið út í það
hér á íslandi að athuga áhrif bólu-
efnisins á sjúkdóma en það hefur
verið gert bæði í Finnlandi og
Bandaríkjunum. Þar hefur komið í
Ijós mikið gagn að því á heilahimnu-
bólgu og blóðsýkingar en einnig
gagnsemi við lungnabólgu og eyrna-
bólgu,“ segir Karl.
Islenski hluti rannsóknarinnar
hefur verið í gangi í nokkur ár. Mest
hefur verið skoðað hvaða gerðir
bóluefnis vekja upp bestu mótefnin.
Markmiðið er að finna hvaða bólu-
efni virkar best til að fækka sýking-
um, þ.e. heilahimnubólgu, lungna-
bólgu, blóðsýkingum og eyrna-
bólgum. Karl segir að það styttist í
það að bóluefnið verði skráð og þeg-
ar búið er að skrá það kemur til
kasta heilbrigðisyfirvalda að
ákvarða um hvort hagkvæmt sé að
taka upp bólusetningar.