Morgunblaðið - 10.02.2000, Side 6

Morgunblaðið - 10.02.2000, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís Börnin gegna mikilvægu hlutverki í styrktaræfingum. Hér halda mömmurnar börnum sín- um beint fyrir framan sig, á meðan þær stíga fram og beygja hnén. Á meðan mæðurnar gera upphitunaræfingar undir taktfastri tónlist eru bömin í bamastól- um meðfram veggjum og súlum. Sum fá þó að vera í fanginu á mömmu á meðan. ! Fara þrisvar í viku með litlu börnin sín í leikfími Lóð eru óþörf í mömmuleikfimi MÖMMURNAR hlaupa inn í salinn og raða bömum sínum meðfram speglum og veggjum. Kveikt er á taktfastri þoifimitónlist og kcnnar- inn, Sóla, rekur þær af stað. Mömm- umar stíga sporin og litiu krflin sitja í bamastólum súium og fylgjast undrandi með því sem fyrir augu ber. Þau horfa gapandi á allar þess- ar spriklandi konur og öll hin litlu bömin og sum þeirra hreyfa meira að segja hendur og höfuð í takt við tónlistina. Mömmurnar stökkva öðm hvom frá, fá sér sopa úr vatnsbrúsunum sem þær geyma við hliðina á bama- stólunum og athuga í leiðinni hvort ekki sé í lagi með bömin. Þolæfing- araar verða smám saman erfiðari og mömmum er bannað að svindla með því að hætta í miðju kafi og þykjast þurfa að huga að bömunum. Að lokinni upphitun segir Sóla: „Jæja stelpur, náið nú í bömin, ef þau em ekki SÓfandi!" og mæðurnar rjúka til og ná í litlu bömin sín. Komið er að styrktaræfingum og þar gegna bömin afar mikilvægu hlutverki, en lóð em óþörf í rnömmuleikfiminni. Byijað er á æf- ingum fyrir rass- og lærvöðva og þá halda mæðurnar bömunum beint fyrir framan sig, stíga til skiptis fram með hægri og vinstri fæti og beygja hnén í hvert sinn. Bömin síga mismikið í en Sóla telur kjarkinn í mömmurnar og bannar þeim að gef- ast upp, jafnframt sem hún brýnir fyrir þeim mikilvægi réttrar líkams- stöðu. Næst em æfingar fyrir hand- leggfi og er bömunum þá lyft upp í Ioft, „upp, niður, upp, niður og mun- ið að vera alveg beinar í baki!“ kall- ar Sóla og er greinilegt að bömun- um finnst þetta mjög skemmtileg æfing því þau hlæja og skríkja allan tímann á fluginu. Fleiri æfingar era gerðar með aðstoð bamanna, þar á meðal armbeygjur þar sem bömin liggja a dýnum og mömmurnar beygja sig yfir þau, til skiptis til hægri og vinstri. Bömunum finnst þetta líka afar skemmtileg æfing og er svipurinn á mömmu greinilega fyndinn þegar hún beygir sig svona yfir þau og hlær um leið. Bömin sifja svo ýmist á maganum á mömmu eða hanga í hnjánum á henni á með- an hún gerir magaæfingar og æfing- ar fyrir grindarbotnsvöðva en Sóla segir slíkar æfingar mjög mikilvæg- ar eftir meðgöngu og fæðingu. Sóla hefur kennt leikfimi í mörg ár en byjjaði með mömmuieikfimina í Baðhúsinu fyrir um einu og hálfu ári sfðan, þegar hún var sjálf nýbúin að eignast dóttur. Þegar dóttir hennar var tveggja mánaða gömul langaði Sólu til að byija að kenna aftur og datt þá í hug að taka hana með sér í tíma og bjóða öðmm kon- um sem vom nýbúnar að eignast böm að koma einnig með böm sín. Til að byrja með kom til hennar hóp- ur tæplega tíu kvenna, en fljótlega spurðust tímamir út og nú koma rúmlega þijátíu konur þrisvar í viku. Bömin era flest á aldrinum tveggja til tólf mánaða en nokkur eldri systkini era einnig með í hópn- um. Flestar mömmumar era í fæð- ingarorlofi og segja leikfimitúna þessa algjöra himnasendingu. Á meðan bömin séu svona lítil og enn- þá á bijósti vilji þær hafa þau hjá sér og því sé þetta tilvalin lausn, því leikfimitímarair geri þeim svo gott, bæði andlega og líkamlega. Þær segja bæði skemmtilegt að komast út og hitta aðrar konur sem séu nýbúnar að eignast böm, auk þess sem hreyfingin sé bráðhressandi og tala sumar einnig um að bijóstagjöf- in gangi betur eftir að þær fóra að hreyfa sig. Mömmurnar benda þó á að það sé nær hálfsdagsvinna að koma með bömin í leikfimina. Auk eigin leik- fimifata og alls annars tilheyrandi, fylgi bömunum heil ósköp af far- angri sem þurfi að pakka saman og flytja á milli staða. Einnig segja þær mikilvægt að búið sé að gefa börn- unum vel áður en túnamir byija, en stundum þurfi þær þó að taka sér smá hlé frá æfingunum til að gefa þeim sopa svo þær geti lokið við tún- ann. Að sjálfsögðu er einnig mikill hamagangur í búningsklefanum eft- ir tímana, þegar bömunum er raðað út um allt gólf á meðan mömmumar fara í sturtu og klæða sig. Samt era þær fyllilega sammála um að allt þetta umstang sé svo sannarlega þess virði. Bömin era mörg mjög lítil, yngstu krflin eru aðeins tveggja mánaða Um þijátíu konur koma þrisvar í viku í mömmuleikfimi í Baðhúsinu. (

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.