Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Fyrsta heimsmeistaramótið í snjókrossi haldið í miðbæ Ólafsfjarðar í maí
Gert ráð fyr-
ir að um 7000
gestir komi
HEIMSMEISTARAMÓT í snjó-
krossi verður haldið í Ólafsfirði dag-
ana 6. -7. maí næstkomandi og er
þetta í fyrsta sinn sem slíkt mót er
haldið. Aætlanir gera ráð fyrir að
um 7.000 manns komi í Ólafsfjörð af
þessu tilefni og hefur allt gistirými í
Eyjafirði verið bókað vegna keppn-
innar. Allir fremstu vélsleðaöku-
menn heims, frá Bandaríkjunum,
Kanada, Skandinavíu sem og bestu
ökumenn Islands taka þátt í mótinu,
samtals um 60 manns.
Keppnishaldarar eru World
Snowmobile Association, WSA,
Kappaksturklúbbur Akureyrar,
Vélsleðaklúbbur Ólafsfjarðar og
ferðaskrifstofan Sportferðir. Gunn-
ar Hákonarson hefur verið ráðinn
starfsmaður mótsins. „Undirbún-
ingur er í fullum gangi, enda þarf að
mörgu að hyggja,“ sagði Gunnar, en
þessa dagana er verið að leita að ein-
hverjum til að kosta mótið, bæði hér
heima og í útlöndum.
Gunnar sagði mótið í raun ein-
stakt þar sem ökumenn sitt hvoru
megin Atlantshafsins hafi aldrei
reynt með sér áður í sérstakri
keppni. „Menn hafa verið að keppa
annars vegar í Evrópu og hins vegar
í Ameríku en það hefur ekki áður
verið formlegt mót þar sem bestu
vélsleðaökumenn þessara heimsálfa
keppa sín í milli. Þannig að á þessu
móti verður krýndur fyrsti heims-
meistarinn í snjókrossi," sagði
Gunnar.
Mikill áhugi á
vélsleðasporti
Ólafsfjörður varð fyrir valinu sem
keppnisstaður eftir heimsókn full-
trúa WSA til íslands síðasta haust
og það sem einkum réð staðarvalinu
er að í Ólafsfirði er snjór langt fram
efttir vori, mikill áhugi er á vélsleða-
sporti í bænum og keppnisbrautin
sjálf verður í hjarta bæjarins og
skapar þannig einstæða stemmn-
ingu.
Gunnar sagði mikinn áhuga á
þessu móti og segir það muni vekja
athygli víða um heima. Erlendir
keppendur verða um 40 talsins og
fylgir þeim að minnsta kosti jafn-
margir aðstoðarmenn. Alls taka 16-
20 íslendingar þátt í heimsmeistara-
mótinu, þannig að keppendur geta
orðið um 60 talsins. Þá er von á
Morgunblaðið/Guðmundur Þór.
Vélsleðamaður í loftköstum í miðbæ Ólafsfjarðar s.l. vor þegar íslandsmót í íþróttagreininni fór þar fram. Nú
er íjóst að áhugamenn um greinina fá að sjá alla fremstu vélsleðakappa heims reyna með sér þarna í vor.
fjölda erlendra gesta, bæði áhorf-
enda og fjölmiðlafólks, en m.a. verð-
ur gerður sjónvarpsþáttur um ferð
keppenda frá Bandaríkjunum og
þátttöku þeirra í mótinu. Hann
verður sýndur á sjónvarpsstöðinni
ESPN, sem sýnir frá öllum mótum
WSA í Bandaríkjunum en fleiri
sjónvarpsstöðvar hafa einnig boðað
komu sína. Þá sagði Gunnar að
áhugi almennings væri mikill og
þegar hefðu borist fjölmargar bók-
anir frá áhugamönnum í útlöndum.
Að auki má gera ráð fyrir að íslenskt
áhugafólk um vélsleðaakstur leggi
leið sína í Ólafsfjörð þessa daga.
„Við gerum ráð fyrir að um 7.000
manns verði í Ólafsfirði keppnisdag-
ana, en auðvitað er ómögulegt að
segja nákvæmlega fyrir um það á
þessari stundu," sagði Gunnar.
Allt gistirými í Eyjafirði er bókað
þessa daga, en Gunnar sagði að
keppendur og þeir sem með þeim
starfa yrðu í Ólafsfirði, á hóteli,
sumarhúsum og heimilum, en aðrir
yrðu annars staðar í Eyjafirði.
Samkomulag milli KEA og mjólkurframleiðenda hefur verið undirritað
Nýtt hlutafélag
um mjólkurvinnslu
stofnað í sumar
SAMKOMULAG um stofnun félags
um mjólkurvinnslu var undirritað í
húsakynnum Mjólkursamlags KEA
í gær, en fulltrúar Kaupfélags Ey-
firðinga og samninganefndar
mjólkurframleiðenda í Eyjafirði og
Suður-Þingeyjarsýslu undirrituðu
samkomulagið.
Hið nýja félag verður stofnað
fyrir lok júní í sumar með samein-
ingu þriggja einkahlutafélaga, þ.e.
tveggja félaga í eigu KEA, annars
vegar MSKEA ehf. sem annast
mjólkurvinnslu á Akureyri og hins
vegar MSKÞ ehf. sem annast
mjólkurvinnslu á Húsavík. Þriðja
félagið er Granir ehf. sem er í eigu
bænda. Granir munu gera við-
skiptasamninga við mjólkurfram-
leiðendur um að leggja inn mjólk
hjá hinu nýja félagi.
Sterkast að samþykkja
samningsdrögin
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
formaður stjórnar KEA, kvaðst
ánægður með að málið væri svo
langt komið, það hefði verið erfitt
og í raun eitt það flóknasta sem
hann hefði tekið þátt í. „En það var
full samstaða bæði hjá okkur og
framleiðendum að ná þessu máli í
höfn og það hefur nú tekist,“ sagði
hann.
Sigurgeir Hreinsson, fulltrúi
mjólkurframleiðenda í samninga-
nefnd, sagði það sterkast fyrir
framleiðendur nú að samþykkja
samningsdrögin, en þau verða
kynnt bændum á næstunni og þá
munu þau verða kynnt á deildar-
fundum KEA innan tíðar. „Mjólk-
urvinnsla á þessu svæði er best
tryggð með þessu móti,“ sagði Sig-
urgeir, en hann bjóst við að lang-
flestir bændur myndu samþykkja
samningsdrögin þótt vissulega
væru menn misánægðir með þau.
Hann sagði það ekki liggja fyrir
nú hvers virði eignarhluturinn
væri. Reksturinn á næstu árum
myndi í raun skapa það verðmæti
sem bændur þyrftu að greiða fyrir
stærri hlut í félaginu. Eiríkur S.
Jóhannsson kaupfélagsstjóri sagði
afstætt að tala um verðmæti félags-
ins nú, framtíðin myndi skera úr
um hvers virði félagið yrði.
Erlingur Teitsson, fulltrúi suður-
þingeyskra mjólkurframleiðenda,
sagði samkomulagið ákveðinn
áfanga í að tryggja hagsmuni þing-
eyskra bænda. Menn fengju þó
aldrei allar sínar óskir uppfylltar,
en Suður-Þingeyingar mættu, líkt
og Eyfirðingar, þokkalega vel við
una.
Tilgangurinn að tryggja
rekstur mjólkurvinnslu
Megintilgangur með stofnun hins
nýja félags er að tryggja rekstur
mjólkurvinnslu í breyttu rekstrar-
umhverfi, en jafnframt er KEA að
uppfylla forsendur í samningi um
kaup á Mjólkursamlagi KÞ, þar
sem segir að KEA muni gera ráð-
stafanir til að gefa mjólkurfram-
leiðendum á samlagssvæði þess
kost á eignaraðild í sameinuðu
mjólkurfélagi á Norðurlandi. Loks
er með þessu samkomulagi leitast
við að skapa sátt um eignaraðild
bænda að mjólkurvinnslunni.
KEA mun eiga 66% hlutafjár í
hinu nýja félagi en framleiðendur
með eign sinni að Grönum 34%.
Morgunblaðið/Kristján
Þingeyskir og eyfirskir bændur gæða sér á ostum í gær í tilefni undirrit-
unar á samkomulagi um stofnun nýs hlutafélags um mjólkurvinnslu á
Norðurlandi. Frá vinstri: Kristín Linda Jónsdóttir í Miðhvammi, Erling-
ur Teitsson á Brún, Ásvaldur Þormóðsson á Stóru-Tjörnum, Sigurgeir
Hreinsson á Hríshóli og Stefán Magnússon í Fagraskógi.
Skiptahlutföllin byggjast á því að
Granir skili fyrir lok ágústmánaðar
næstkomandi skuldbindandi við-
skiptasamningum við bændur fyrir
innlögn á mjólk til næstu 5 ára sem
nemur 99% af samanlögðu greiðslu-
marki á samlagssvæðunum. Fram-
leiðendur eru 244 alls í báðum sýsl-
um.
Á þeim hlutum sem KEA á í hinu
sameinaða félagi hvílir kvöð um
kauprétt til handa framleiðendum.
Kauprétturinn felur það í sér að
framleiðendur hafa heimild til þess
að kaupa hluta eða allt hlutafé KEA
Bókaðu í sítna $70 3030 03 4(0 7000
Fax 570 3001 • websalessairiceland.is •www.flujfelaj.is
...fljújðufrekar
FLUGFELAG ISLANDS
hvenær sem er á meðan kauprétt-
urinn er í gildi.
Vilja flytja meira út
Hið nýja félag mun athuga mögu-
leika á því að auka tengsl við útlönd
og kanna frekar markað fyrir
mjólkurafurðir erlendis. Félagið er
eitt þriggja mjólkursamlaga í land-
inu sem má flytja út vörur tu
Evrópusambandslanda og það hef-
ur einnig ISO-9001 gæðavottun. Að
undanförnu hefur fyrirtækið flutt
út skyr til Danmerkur með góðum
árangri.