Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Hollenskur gjafabúnaður tekinn í notkun í fiósinu í Gunnbjarnarholti í Gnúpverjahreppi Gefa kúnum heyið einu sinni í viku Bændurnir í Gunnbjarnarholti hafa tekið 1 notkun gjafabúnað í nýju fjósi sínu, þurfa nú aðeins að gefa kúnum heyið einu sinni í viku og sjálfvirkur búnaður sér um skömmtun fóðurbætisins. Helgi Bjarnason ræddi við þá og skoðaði aðstöðuna. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Berglind Bjarnadóttir og Arnar Bjarni Eiríksson framan við nýja gjafabunaðinn í fjósinu í Gunnbjarnarholti. ARNAR Bjarni Eiríksson og Berg- lind Bjarnadóttir hófu búrekstur í gamla fjósinu í Sandlækjarkoti í Gnúpverjahreppi fyrir tíu árum en unnu um leið að byggingu fjóss á nýbýlinu Gunnbjarnarholti. Þau fluttu gripina í elsta hluta nýja fjóssins þremur árum síðar. Fjósið var með hefðbundnum básum og mjaltabás. „Við höfum verið að fjölga og auka við kvótann og aðst- aðan var sprungin utan af starfsem- inni,“ segir Arnar Bjami. Þau byggðu við fjósið, tvöfólduðu það, og hafa nú tekið viðbótina í notkun. Jafnframt vinna þau að stækkun og breytingum á gömlrnn fjárhúsum og verða með kálfaeldið þar þannig að fjósið verður fullt af kúm. Byggt að erlendri fyrirmynd Nýja fjósið er lausagöngufjós með legubásum. Amar Bjarni segist hafa farið nokkrar ferðir til útlanda til að skoða fjós og byggingin hafi verið hönnuð í samráði við danskan ráðu- naut. Þótt fjósið sé byggt að er- lendri fyrirmynd hafí þurft að taka tillit til aðstæðna, meðal annars vegna þess að það er viðbygging við nokkurra ára gamalt fjós. Mikill vinnusparnaður er við fjós af þessari gerð, að sögn Amars og Berglindar. Þá segja þau ekki síður mikilvægt að kýrnar geti alltaf hreyft sig frjálst um húsið. Heilsu- far þeirra sé betra og auðveldara að fá fang í kýrnar. Þau segja að í sum- ar verði húsið opið allt sumarið og kýrnar geti farið inn í rigningu, leit- að sér skjóls og lagst á bás. í fjósinu er enn um sinn notast við þá átta mjaltavéla gryfju sem var í eldri hluta fjóssins. Mjaltabásinn er of lítill eftir stækkun fjóssins enda er það hannað með tilliti til þess að sett verði upp sjálfvirk mjaltaað- staða, svokallaður mjaltaþjónn. Am- ar Bjami segir að þessi tækni sé ennþá nokkuð dýr en það sé engin spurning að mjaltaþjónar henti vel fyrir stærri fjölskyldubú eins og þau hjónin í Gunnbjamarholti em að byggja upp. Mesta nýjungin í fjósinu í Gunnbjamarholti er hollenskur gjafabúnaður, Weelink, sá fyrsti hér á landi. Amar Bjami er sjálfur með umboð fyrir búnaðinn og segir að þannig fóðurgrind sé nú einnig kom- inn í fjós á Skíðbakka í Landeyjum. Gjafabúnaðurinn byggist á því að heyrúllunum er ekið inn á fóður- gang, allt að tíu rúllum í einu. Þar er plastið tekið utan af þeim og raf- drifnar fóðurgrindur færðar að þeim. Fóðurgrindurnar eru síðan færðar saman eftir því sem kýrnar éta utan af rúllunum, þannig að þær hafi alltaf greiðan aðgang að heyi. Með þessu móti þarf ekki að aka rúllum inn í fjósið nema einu sinni í viku. í fjósinu eru sjálfvirkir kjamfóð- urbásar sem tengdir eru beint við fóðurgeymi við fjósið. Fyrirmæli um fóðurbætisskammta og hvað kýrnar mega fá mikið í hvert skipti em skráð í tölvu sem stýrir búnaðinum. Tölvan les síðan upplýsingar um hverja einstaka kú af hálsbandi um leið og hún fer í kjamfóðurbásinn og skammtar rétt. Kvótaverðið á mörkum hins mögulega Berglind og Arnar Bjami hófu búskap með 67 þúsund lítra kvóta og hafa smám saman verið að auka framleiðsluna. Þau eru með 190 þús- und lítra fullvirðisrétt. Þótt þau hafi bætt við 40 þúsund lítrum á síðasta ári tókst þeim að framleiða upp all- an kvótann í gamla fjósinu. Þau hjónin era með 78 bása í nýja fjós- inu og stefna að því að fullnýta þá fjárfestingu á næstu áram. Það þýð- ir að þau þurfa að auka kvótann upp í 350 til 380 þúsund lítra og era raunar að líta í kringum sig með það. Þau hafa hikað aðeins vegna þess hversu kvótinn er dýr, eða 185 krónur lítrinn sem Arnar Bjami tel- ur að sé að ystu mörkum hins mögu- lega. Hann segir að afurðastöðvam- ar eigi nokkra sök því þær keyri upp verðið með því að yfirbjóða hver aðra. Tæknivæðingin í nýja fjósinu ger- ir þeim hjónum kleift að vinna tvö að búinu yfir veturinn, þótt komnar verði 78 kýr. Þau þurfa þó aðstoð við vorverk og heyskap á sumrin. „Unnt er að minnka vinnuna með því að tæknivæða búskapinn. Við eram að- eins tvö við hirðingu kúnna enda er fjósið okkar vinnuléttara en mörg mun minni fjós,“ segir Berglind. Arnar Bjarni segir að framtíðin verði að skera úr um það hversu arðvænlegt sé að leggja í tugmillj- óna króna fjárfestingu með því að byggja nýtt fjós og kaupa kvóta. Hann treystir því að þetta gangi upp enda veruleg stærðarhag- kvæmni í kúabúskapnum. Hann við- urkennir þó að ekki hefði gengið að byggja allt frá granni nú, segir að þau hafi verið að byggja búið upp smám saman og fengið kvóta á góðu verði. Arnar Bjami er trésmiður og hefur sjálfur unnið mikið að bygg- ingunum, auk þess sem hann hefur unnið nokkra mánuði á ári sem trésmiður utan búsins. „Þetta hefst ekki nema með gríðarlegri vinnu og álagi á meðan við eram að byggja okkur upp,“ segir hann og bætir því við að ekki verði öllu lokið með fjós- inu og væntanlegri kálfaaðstöðu í fjárhúsunum. Eftir sé að byggja íbúðarhús á jörðinni en þau hafa komið sér ágætlega fyrir til bráða- birgða í gömlu húsi sem þau keyptu og settu upp á jörðinni. Hannað fyrir norskar kýr Fjósið í Gunnbjarnarholti er eins og önnur ný fjós hannað þannig að hægt væri að vera þar með erlendar kýr á legubásum. Básamir era um 20 sentímetram lengri en þörf er á fyrir íslenskar kýr. Þegar lengri kýmar koma er rör sem fest er þvert yfir básana og stjómar því hversu langt kýmar komast inn í þá fært framar með lítilli fyrirhöfn og þá passa erlendu kýmar á básana. Arnar Bjarni og Berglind era mjög áfram um að leyfi fáist til að flytja inn fósturvísa úr norska kúa- kyninu. Arnar er óánægður með umræðuna, segir að kúabændur hafi tapað ákveðnu áróðursstríði af því að þeir hafi ekki verið nógu duglegir að svara greinum í blöðunum. Þá getur hann þess að inn í umræðuna hafi blandast ýmis vitleysa, meðal annars um hollustu mjólkur. Því hefur verið haldið fram að minna sé af próteininu betakasein A1 í ís- lenskri kúamjólk en erlendri en þetta efni er talið geta valdið sykur- sýki í börnum. Arnar Bjarni segir að þetta sé ósönnuð tilgáta. Vitað sé að hluti íslenska kúastofnsins sé já- kvæður fyrir þessu efni. Hins vegar verði erfðaefni norsku kúnna sem flutt verður til landsins sérstaklega valið þannig að kýr af þessum norska stofni verði neikvæðar fyrir betakasein A1 og með innflutningn- um væri því verið að kynbæta gegn þessu efni. Hann segir því að það sé því furðulegur málflutningur að andstæðingar innflutnings fóstur- vísa úr norskum kúm í tilraunaskyni skuli nota þessi rök. Berglind getur þess að allt mjólkurduft sem ung- bömum sé gefið hér á landi sé inn- flutt, úr sömu kúm og menn vilji ekki að fluttar verði til landsins. Amar Bjami segir að þótt ákveð- in andstaða hafi verið meðal bænda gegn innflutningi nýs kúakyns hafi ávallt legið fyrir aðalfundarsam- þykkt Landssambands kúabænda fyrir innflutningi. Þá getur hann þess að þeir efasemdarmenn í bændastétt sem hafi farið i kynnis- ferðir til nágrannalandanna hafi komið heim sannfærðir um ágæti tilraunarinnar. Kostir norsku kúnna, sem að sjálfsögðu verða islenskar þegar þær fæðast hér á landi, era að mati Arnars Bjarna þeir að þær eru af- urðameiri og jafnari en þær ís- lensku. Þannig myndu 78 kýr af norsku kyni i fjósinu í Gunnbjamar- holti geta skilað 500 til 600 þúsund lítram mjólkur á ári, í stað 350 til 380 þúsund lítra. Til að framleiða þetta mjólkurmagn þyrfti sömu vinnu, jafnvel minni, og enga fjár- festingu í byggingum. Kvótann þarf auðvitað að kaupa. „Við eram að fá yfir okkur aukinn innflutning mjólkurvara og það er lífsnauðsynlegt fyrir okkur að búa við svipaðar aðstæður og bændur í nágrannalöndunum ef við eigum að geta staðist þeim snúning. Það gengur ekki að stöðva framþróun í einni grein landbúnaðarins sem er í bullandi samkeppni við aðrar, bæði innanlands og utan. Skynsamir menn geta ekki sett sig upp á móti þessari tilraun," segir Arnar Bjarni Eiríksson. Morgunblaðið/Þórhallur Þorsteinsson Lítill snjór á hálendinu Egilsstöðum - Lítill snjór er á há- lendinu og að sögn kunnugra er þar minnsti snjór til margra ára. Mynd- in eru úr Kverkárnesi og Hnútulóni og sýnir Snæfell í baksýn en þar var upphaf hlaupsins í Kreppu á sl. sumri. Það var stærsta hlaup sem mælst hefur en flóðtoppur þess var um 1.400 rúmmetrar. Tölvunámskeið hja Kvenfélagasambandi S-Þingeyinga Laxamýn - Tölvukennsla er orðin fastur liður í starfsemi Kvenfél- agasambands Suður-Þingeyinga, en á síðasta ári gaf Landssíminn sambandinu nokkrar tölvur að gjöf sem hafa komið að góðum notum við kennsluna. Tölvur þær sem um ræðir eiga að vera liður í því að auka þekk- ingu kvenna á félagssvæðinu í tölv- unotkun, en margar sveitakonur sjá um bókhald á búum sínum auk þess sem mikil nauðsyn er á að hafa haldgóða þekkingu á þeim margmiðlunarmöguleikum sem tölvurnar gefa fólki í daglegu lífi. Námskeið þessi fara fram í gamla kvennaskólahúsinu á Laug- um í Reykjadal og hafa verið vel sótt enda hafa konur mjög fagnað þessari nýju starfsemi Kvenfélaga- sambands Suður-Þingeyinga. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Gréta Ásgeirsdóttir kennari leiðbeinir við tölvukennslu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.