Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Fenger opnar
netverslun
H. Fenger ehf. hefur opnað verslun á
Netinu, veffangið er www.fenger.is.
Kvenfatnaður af öllum gerðum í
stærðum 34-60 er þar til sýnis og sölu
og á næstu vikum verða þar einnig
sérdeildir með sjálfsvamarbúnað og
gjafavörur.
Viðskiptavinum er gefinn kostur á
að panta og greiða fyrir vöruna á Net-
inu og/eða hafa samband við sölu-
menn í síma.
Ef viðskiptavinurinn hefur hug á að
fá að máta flík þá eru sölumenn ætíð
við símann og auðvelt að koma því við.
Þegar komið er inn á heimasíðu
www.fenger.is þá svífa inn á skjáinn
mismunandi valmöguieikar.
Ef smellt er t.d. á dragtir þá kemur
upp síða með myndum af drögtum
ásamt upplýsingum um merki, gerð,
stærðir, liti, efni, verð o.s.frv.
Alltaf eru einhverjar flíkur á út-
sölu. H. Fenger ehf. rekur www.feng-
er.is, sem er með aðsetur í Reykjavík.
Verðkönnun NS og verkalýðsfálaganna á Akureyri, Dalvík og Húsavík
Morgunblaðið/Þorkell
í könnun NS og verkalýðsfélaganna vekur athygli að verðmunur er hjá
sömu verslunum sem reknar eru fyrir norðan og sunnan.
Nettó með
lægsta verðið
Hlutfallslegur verðmunur
milli verslana á Norðurlandi
27. janúar
VERSLANIR
LÆGRAVERÐ HÆRRAVERÐ
Nettó, Akureyri -11,2%
Hagkaup, Akureyri
Úrval, Hrisalundi, Akureyri
Úrval, Húsavík
Hraðkaup, Kaupangi, Akureyri
Strax, Dalvík
Strax, Byggðavegi
Strax, Húsavík
Meðalverð úr öllum
verslunum, er sett
sem 0%
□ +2,2%
+4,6%
H +5>1%
+5,6%
Verðbreytingar í verslunum á Akureyri
19. nóvember til 27. janúar
VERSLANIR
LÆGRAVERÐ HÆRRAVERÐ
KEA, Nettó
Hraðkaup
Hagkaup
-0,9%
-0,7%
+1,5%
E-vítamín
er öflug vörn fyrír
frumur líkamans
Éh
náttúrulegal
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Verð í Nettó á Akureyri hefur
lækkað um 0,9% frá því könnun var
gerð þar í nóvember sl. og þar er
vöruverð lægst ef miðað er við þá
staði þar sem verðkönnun var
framkvæmd fyrir norðan, á Akur-
eyri, Dalvík og Húsavík. Þetta
kemur fram í könnun sem Neyt-
endasamtökin gerðu í samvinnu við
verkalýðsfélögin á Akureyri, Dal-
vík og Húsavík 24. janúar sl.
Verðbreytingar voru athugaðar í
Nettó, Hagkaupi og Hraðkaupi.
Hafði verð lækkað hjá Hraðkaupi
um 0,7% en verð í Hagkaupi hækk-
aði um 1,5% milli kannana.
Verð ekki það saman fyrir
norðan og sunnan
Að sögn Úlfhildar Rögnvalds-
dóttur starfsmanns Neytendasam-
takanna á Akureyri vekur athygli
að munur er á verði hjá sömu versl-
unum sem reknar eru fyrir norðan
og sunnan. „Könnunin var borin
saman við könnunina sem fram-
kvæmd var á höfuðborgarsvæðinu
sama dag og er 1,4% munur á verði
í Nettó á Akureyri og í Reykjavík.
Þá er 1,5% munur á verði í Hag-
kaupi í Reykjavík og á Akureyri.
Strax á Dalvík er með 1,5% lægra
verð en verslunin með sama nafni í
./HLTEIDO
I am your slcin's strength.
Rely on me.
www.shiseido.com
Heimskynning
á nýrri byltingarkenndri
kremlínu frá
J~H\SE\DO
í dag fimmtudag og
föstudag frá kl. 13.00.
/Hl/T-ic
TlwSfcim
am The Skincare.
Laugavegi 80, sími 561 1330
Reykjavík, sem er með hæsta
verðið af fjórum Strax-verslunum í
könnuninni.“
Meinað að gera
verðkönnun
Úlfhildur segir að verð hafi verið
kannað hjá átta verslunum, fimm á
Akureyri, einni á Dalvík og tveim-
ur á Húsavík. Þá bendir hún á að
hjá versluninni Búrfelli á Húsavík
hafi ekki fengist leyfi til að fram-
kvæma verðkönnun.
Hún segir að um beinan verð-
samanburð sé að ræða og ekki sé
lagt mat á þjónustustig, sem er
mismunandi.
*Sr Da|vík ,»Húsavík
©Akureyrii.
0 Reykjavík../
/
Verðmunur milli verslana
í Reykjavík og á Norðuriandi
27. janúar
+89,6% +91,0%
+96,3% +97,8%
+105,5% +106,1 % +106,8% +107,0%
>.
£
3
X
<
£
ð
2
o
cc
£
>
(U
oc
I
i
£
>
Q
>
£
3
X
<
£
>
s
>3
x
NETTÓ
HAGKAUP
STRAX
Spurt og svarað um skattamál
Er kostnaður við tómstundanám
barna eins og pianónám, mynd-
listarnám og íþróttir frádráttar-
bært til skatts?
Svar: „Heimild til lækkunar fer
eftir aldri barnsins. Það er engin
heimild til frádráttar eða til að veita
ívilnun vegna náms barna sem eru
yngri en 16 ára.
Sé bamið orðið 16 ára er heimilt
að veita ívilnun vegna menntunar-
kostnaðar. Hér er fýrst og fremst
átt við böm á aldrinum 16-21 árs
sem stunda nám í framhaldsskólum.
Nám í tónlistar- eða myndlistaskóla
getur fallið þar undir. Hins vegar er
ekki heimilt að veita ívilnun vegna
kostnaðar sem hlýst af því að bömin
taka þátt í íþróttum.
Við ákvörðun á lækkun er tekið
mið af tekjum barnsins. Hámarks-
ívilnun í framtali 2000 er kr. 158.668.
Frá þeirri fjárhæð dregst 1/3 af
tekjum bamsins á árinu 1999. Mis-
munur er lækkun á tekjuskatts-
stofni sem skiptist á milli framfær-
enda barnsins."
Hvað telst eðlilegt að verktakar
sem vinna skrifstofuvinnu heima
reikni sér háan kostnað vegna hús-
næðiskostnaðar?
Svar: „Almennt verður að telja að
rekstur íbúðarhúsnæðis hljóti að
teljast persónulegur kostnaður sem
ekki geti komið til frádráttar rekstr-
artekjum þótt verktaki að einhverju
leyti noti aðstöðu þar vegna verk-
takastarfseminnar, enda sé litið svo
á að það hafi ekki sérstakan kostn-
aðarauka í för með sér.
Ef aftur á móti er nauðsynlegt að
leggja í sérstakan kostnað vegna
rekstraraðstöðu á heimili, og sá
kostnaður er eingöngu tilkominn
vegna starfseminnar getur sá kostn-
aður verið frádráttarbær. Þá er
gengið út frá því að ekki sé jafn-
framt um persónuleg not af þeim
hluta húsnæðisins að ræða.“
Hvað má llða langur tími frá
kaupum hlutabréfa þangað til selja
má þau á ný án þess að skerða
skattaafsláttinn?
Svar: „Þeir sem keypt hafa hluta-
bréf 1998 og síðar og hafa notið frá-
dráttar vegna þeirra kaupa þurfa að
eiga hlutabréfin yfir fimm áramót.
Kostnaður
við íþróttir
barna ekki frá-
dráttarbær
Þeir sem keyptu hlutabréf 1997
og fyrr og nutu frádráttar vegna
þeirra þurfa þó ekki að eiga hluta-
bréfin lengur en í full þrjú ár eins og
áskilið var samkvæmt eldri lögum.
Séu bréfin seld innan framan-
greindra tímamarka og ekki keypt
önnur hlutabréf á sama ári eigi síðar
en 30 dögum eftir söluna, færist
nýttur frádráttur til tekna á söluári
hlutabréfanna."
Fjárfest var í erlendum hluta-
bréfasjóði til 10 ára. Með timanum
á sjóðurinn að verða eign afkom-
enda. Borgar sig að hafa sjóðinn á
nafni einstaklings eða gera hann
að einkahlutafélagi, þ.e. skattalega
séð?
Svar: „Ef um er að ræða einstakl-
ing sem ekki hefur með höndum at-
vinnurekstur gerir hann grein fyrir
þessari eign og arði af henni á sínu
skattframtali. Gangi eignin til erf-
ingja að honum látnum, eða sem fyr-
irframgreiddur arfur, þá greiða erf-
ingjarnir erfðafjárskatt af andvirði
eignarinnar. Sé eignin færð til ann-
arra án þess að um arf sé að ræða er
eignin skattlögð hjá þeim sem gjöf.
Það að stofna einkahlutafélag í
þeim eina tilgangi að koma í veg fyr-
ir eðlilega skattlagningu er vandséð
að geti gengið og hafa þegar fallið
dómar í þá veru.“
Ef sjóður fyrir bágstadda er
stofnaður, verður hann skattlagð-
ur?
Svar: „Félög, sjóðir eða stofnanir
sem ekki reka atvinnu og eingöngu
eru rekin í hugsjónatilgangi eru
undanþegin því að greiða tekjuskatt
og eignarskatt, enda verji þau öllum
hagnaði sínum einungis til almenn-
ingsheilla og hafi það að einasta
markmiði samkvæmt samþykktum
sínum. Hagnaði telst þvi aðeins var-
ið til almenningsheilla að hann
gagnist ótilteknum fjölda manna.
Þessum aðilum ber þó að greiða
10% skatt af fjármagnstekjum. Með
fjármagnstekjum er hér átt við sölu-
hagnað hlutabréfa, arð og vaxtatekj-
ur. Með vaxtatekjum er átt við vexti,
verðbætur, afföll og gengishagnað."
Roskin hjón eiga eignir sfnar
skuldlausar, einbýlishús, sumarhús
og fleira og eru með þó nokkuð af
Qármunum sem þau ráðstafa í
hlutabréfakaup. Með hvaða ráðum
geta þau lækkað eignarskatta ?
Svar: „Hlutabréfaeign er eignar-
skattsfrjáls að því marki sem hún er
umfram skuldir, þó að hámarki kr.
1.291.611 hjá einhleypingi og kr.
2.583.222 hjá hjónum. Sé hlutabréfa-
eign umfram þetta hámark þá kem-
ur til álagningar eignarskatts á um-
framfjárhæðina. Þá er rétt að geta
þess að hlutabréf eru talin fram á
nafnverði en ekki á markaðsvirði og
getur það haft sín áhrif á eignar-
skattsálagninguna.
Bankainnstæður eru eignar-
skattsfrjálsar að því marki sem þær
eru umfram skuldir.
Verðbréf útgefin af ríkissjóði og
hlutdeildarskírteini verðbréfasjóða
sem eingöngu eru myndaðir af verð-
bréfum sem gefin eru út af ríkissjóði
eru eignarskattsfrjáls upp að kr.
2.000.000 hjá einstaklingi og kr.
4.000.000 hjá hjónum. Það sem þar
er umfram er eignarskattsfrjálst að
því marki sem það er umfram skuld-
ir.
Þar sem í þessu dæmi eru hjónin
skuldlaus þá kæmu hvorki banka-
innstæðurnar né ríkisverðbréfin til
eignarskattsálagningar. “
Er viðhald húseigna frádráttar-
bært til skatts?
Svar: „Viðhald fasteigna er ekki
frádráttarbært á framtali einstakl-
inga.“
• Á næstum vikum geta lesend-
ur komið með fyrirspurnir varð-
andi skattskýrslugerð, en frestur
til að skila skattframtali er 28.
febrúar næstkomandi. Spurning-
um lesenda verður svarað hér d
neytendasíðu ogþað erHrefna
Einarsdóttir starfsmaður hjá
ríkisskattstjóra sem svarar fyrir-
spurnum lesenda.