Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
George Bush bar sigur af John McCain í forkosningum repúblikana í Delaware
Forbes
hættir við
framboð
Washington. AP, The Washington Post.
Dan Quale, lyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna (t.v.), lýsti nýlega yf-
ir stuðningi við George W Bush (t.h.) á kosningafundi í Suður-Karólínu.
FORKOSNINGAR REPUBLIKANA
Kosið er um samtais 2.066 kjörfulltrúa frá öllum 50 fylkjum
Bandaríkjanna og ræðst fjöldi fulltrúa frá hverju fylki m.a.
Kbv afibúafjöldaogstyrkflokksinsþar.
Kjörfulltrúarnir koma saman á landsþingi repúblíkana í lok júlí
og útnefna forsetaframbjóðanda flokksins. Frambjóðandi þarf
a.m.k. 1.034 kjörfuiltrúa á bak við sig til að hljóta útnefningu.
mÉBM
I.Iv
Haldnar hafa verið forkosningar f þremur fylkjum, í lowa,
New Hampshire og Delaware. Bush hefur fengið 27 fulltrúa
kjörna, McCain 11 fulltrúa, Forbes 10 fulltrúa og Keyes 4.
5
‘1
GEORGE W. Bush, ríkisstjóri í Tex-
as, vann á þriðjudag sigur í forkosn-
ingum repúblikana til framboðs for-
seta Bandaríkjanna í Delaware-ríki.
Sigurinn er talinn mikilvægur fyrir
Bush eftir að hann beið ósigur fyrir
einum mótframbjóðenda sinna, John
McCain öldungadeildarþingmanni, í
New Hampshire-ríki í síðustu viku.
Ákvörðun milljónamæringsins
Steve Forbes í gær um að draga sig
út úr tilnefningarslagnum þýðir að
allt stefnir í einvígi milli Bush og
McCains um útnefningu semforseta-
frambjóðandi repúblikana. Næstu
forkosningar verða haldnar í Suður-
Karólínu, en úrslitin þar geta haft
mikið að segja um hvor tekst á við
frambjóðanda Demókrataflokksins í
forsetakosningunum 7. nóvember.
Forbes dregur sig í hlé
í Delaware hlaut Bush hlaut 51%
atkvæða, McCain 25%, Forbes 20%
og Alan Keyes, fyrrverandi sendi-
herra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, fékk 4%. Kosið var um 12
kjörfulltrúa í ríkinu og voru allir þeir
sem náðu kjöri stuðningsmenn
Bush. Delaware er eitt fámennasta
ríki Bandaríkjanna og vega úrslit
þar ekki þungt á landsvísu.
Stuðningsmenn Forbes sögðu úr-
slitin vonbrigði enda varð Forbes
efstur í ríkinu í forkosningum árið
1996 og hefur lagt umtalsvert fé í
kosningabaráttu þar nú. Hann til-
kynnti stuðningsmönnum sínum í
gær að hann hefði ákveðið að aflýsa
framboði sínu og boðaður hefur ver-
ið fréttamannafundur á fímmtudag
þar sem Forbes mun formlega til-
kynna ákvörðun sína. Fjölmiðlar
telja hann hafa varið um 60-70 mil-
Ijónum Bandaríkjadollara af eigin fé
í framboð sitt sl. fjögur ár. Upphæð-
in samsvarar 4-5 milljörðum ís-
lenskra króna.
Forbes reyndi að höfða til efna-
meiri og íhaldssamari kjósenda
flokksins. Stuðningsmenn hans
sögðu í gær að hann hefði ekki tekið
ákvörðun um að lýsa yfir stuðningi
við einhvem þeirra frambjóðenda
sem eftir eru í baráttunni um út-
nefningu. AP-fréttastofan telur
Bush einkum hagnast á brottfalli
Forbes þar sem þeir höfði til svipaðs
hóps kjósenda.
McCain undrandi og ánægður
McCain lýsti í gær ánægju með
árangur sinn í Delaware en þar
hlaut hann annað sætið þrátt fyrir
að hafa ekki rekið marlodssa kosn-
ingabaráttu í ríkinu. „Ég er mjög
undrandi og ánægður með að hafa
fengið þetta mikið fylgi í ríki sem ég
hef aldrei heimsótt," sagði hann.
Talið er að sigur McCains í New
Hampshire, þar sem hann hlaut 49%
atkvæða, hafi haft áhrif á hve margir
kjósendur greiddu honum atkvæði í
Delaware. Samkvæmt útgöngu-
könnun sem gerð var fyrir
AP-fréttastofuna mun um helming-
ur kjósenda McCains hafa ákveðið
að styðja hann eftir úrslitin í New
Hampshire.
Þegar úrslitin í Delaware voru
ljós sagði Bush að augljóst væri að
boðskapur hans hefði höfðað til kjós-
enda í ríkinu. „Það er mér mikilvægt
að sýna fram á að ég sé ekki aðeins
fær um að standast ágjöf heldur geti
ég einnig snúið vöm í sókn.“
Mjög hefur grynnkað á því góða
milli Bush og McCains síðustu daga
en vel virtist fara á með þeim í upp-
hafi kosningabaráttunnar. Hafa
frambjóðendurnir sakað hvor annan
um að hafa í frammi neikvæðan
kosningaáróður og að vera ekki
treystandi til að axla þá ábyrgð sem
embætti forseta krefur. í auglýsing-
um sem birtar hafa verið undanfarið
í fjölmiðlum vestra hafa stuðnings-
menn Bush sakað McCain um óheil-
indi. Ein af áherslum McCains í
kosningabaráttunni hefur verið að
nauðsynlegt sé að setja reglur um
fjárframlög í kosningasjóði fram-
bjóðenda. í nýrri sjónvarpsauglýs-
ingu frá Bush er ráðist á McCain
fyrir að ástunda ekki sjálfur það sem
hann boðar öðrum og sagt að hann
þiggi fé af hagsmunahópum í kosn-
ingasjóð sinn.
McCain hefur svarað þessum
áburði með því að segja að greinilegt
sé að Bush sé farinn að örvænta og
að hann snúi út úr sannleikanum
„eins og Clinton [núverandi forseti
Bandaríkjanna].“ Hann sagði í gær
að honum fyndist breytt framkoma
Bush í sinn garð vera athyglisverð.
„Skyndilega hef ég breyst í Mr.
Hyde... Við vorum vinir, en nú er ég
hræsnari," sagði McCain.
Kosningastjóri McCains, Rick
Davis, skrifaði í gær bréf til eins
helsta kosningaráðgjafa Bush þar
sem hann lagði til að báðir aðilar
kæmu sér saman um að láta af birt-
ingu auglýsinga með óhróðri um
andstæðinginn. Stuðningsmenn
Bush höfnuðu þessari málaleitan.
„Þetta er allt leikaraskapur," sagði
Bush, „að segja eitt og gera annað.“
Jafnt í Suður-
Karólínu
Skoðanakannanir síðustu daga
benda til þess að mjótt verði á mun-
unum milli McCains og Bush í Suð-
ur-Karólínu. í nýrri könnun sem
dagblaðið Washington Post hefur
látið gera í samvinnu við APC-sjón-
varpsstöðina kemur fram að aðeins
munar nokkrum prósentustigum á
frambjóðendunum. Af úrtaki 751
stuðningsmanns repúblikana í rík-
inu sögðust 47% styðja McCain en
45% Bush. Ef aðeins eru teknir þeir
sem líklegir þóttu til að greiða at-
kvæði, sem eru nokkru færri en úr-
takið segir til um, mældist fylgi
Bush vera 48% en fylgi McCains
43%.
Washington Post bendir á að
McCain njóti nú góðs af því að stuðn-
ingsmenn hans hafi tekið Netið í
sína þjónustu. Með því að gera fólki
kleift að leggja fé í kosningasjóð
McCains á heimasíðu hans hafi tek-
ist að afla um 2,2 milljóna Banda-
ríkjadollara síðan forkosningunum í
New Hampshire lauk. Áður hafi
óvæntur árangur frambjóðenda í
forkosningum verið lengi að skila
sér í auknum framlögum til þeirra
og það hafi komið í veg fyrir að þeir
gætu fylgt sigri eftir í öðrum ríkjum,
segir í frétt blaðsins í gær.
Hár hvellur heyrðist áður en vél Alaska Airlines hrapaði
Talið er að hluti af þot-
unni hafí brotnað af
Port Hueneme, Washington. AP, AFP, Washington Post.
BANDARÍSKI sjóherinn leitar nú að hluta eða
hlutum af farþegaþotu Alaska Airlines sem talið
er að hafi brotnað af henni um það leyti sem
hrap hennar hófst, að sögn Samgönguöryggis-
ráðs Bandaríkjanna (NTSB), sem rannsakar
flugslysið undan strönd Kalifomíu 31. janúar.
Jim Hall formaður NTSB skýrði frá því í gær
að leitarmenn sjóhersins hefðu fundið stóra fest-
ingu, sem átti að halda hlutum hæðarstýris-
kambs þotunnar saman. Festingin var skemmd
en ekki er enn vitað hvort skemmdirnar urðu áð-
ur en hún skall í sjóinn. Áður hafði Hall skýrt frá
að einn eða fleiri hlutir hefðu komið fram á rat-
sjám þegar þotan hrapaði og talið væri að þeir
hefðu fallið í sjóinn um 6,4 km frá flaki þotunnar.
Rannsókn á hljóðrita þotunnar hefur leitt í ljós
að flugmennirnir heyrðu háan hvell aftast í þot-
unni skömmu eftir að þeir misstu stjórn á henni
og Hill sagði þær upplýsingar renna stoðum
undir þá tilgátu að eitthvað hefði brotnað af þot-
unni um það leyti sem hún hrapaði.
Áður hafði Washington Post haft eftir heimild-
armönnum, sem tengjast rannsókninni, að lík-
lega væri hér um að ræða lítinn væng eða hluta
af stélinu.
Sjálfstýringin óvenjulengi úr sambandi
Rannsóknin hefur einkum beinst að þeim
möguleika að orsök slyssins tengist hæðarstýris-
kambi, hreyfanlegu vængildi í stéli þotunnar
sem hjálpar flugmönnum að halda henni stöðugri
og hækka eða lækka flugið. Hall skýrði ennfrem-
ur frá því að flugmennirnir hefðu tekið sjálfstýr-
ingu þotunnar úr sambandi skömmu eftir flugtak
frá Puerto Vallarta í Mexíkó og stýrt henni sjálf-
ir í klukkustund og 53 mínútur, en flugið stóð í
tvær klukkustundir og 43 mínútur. Að sögn
Washington Post er óvenjulegt að sjálfstýringin
sé ekki notuð í svo langan tíma eftir klifurlok og
blaðið telur hugsanlegt að flugmennirnir hafi
verið að reyna að leysa vandamálið í hæðarstýr-
iskambinum.
Hrapaði 5.400 m á mínútu
Nýjustu upplýsingar Halls benda til þess að
þotan hafi verið í 31.000 feta (9.300 m) hæð um
14 mínútum fyrir hrapið þegar hæðarstýris-
kamburinn færðist í þá stöðu, sem beinir þotunni
beint niður, á sex sekúndum. Kamburinn hafi
verið fastur í þeirri stöðu þar til þotan hrapaði.
Flugmennirnir geta stillt stýriskambinn sjálfir
með því að nota öflugan rafmótor en sjálfstýr-
ingin getur stillt hann sjálfkrafa með öðrum
mótor.
Þegar stýriskamburinn festist fór þotan í
óvenjumikla dýfu og lækkaði flugið um 7.000 fet
(2.100 m) á einni mínútu. Flugmönnunum tókst
að ná stjórn á þotunni með því að stilla hæðar-
stýrið, hreyfanlegan stýrisflöt sem festur er á
stýriskambinn. Þotan lækkaði síðan flugið eðli-
lega næstu níu mínúturnar og notaði aðeins 50%
af hámarksstýrigetu hæðarstýrisins.
Talið er að flugmennirnir hafi þá prófað flapa
og raufunga á aðalvængjum þotunnar til að auka
lyftikraft þotunnar á hægari ferð, en þeir eru
alltaf notaðir í lendingu. Þeir drógu síðan flap-
ana og raufungana inn aftur 30 sekúndum síðar
án þess að hafa misst stjórn á þotunni.
„Þá tók allt að gerast mjög hratt,“ sagði Hall.
Flugmennirnir færðu flapana og raufungana út
aftur til að undirbúa nauðlendingu og fjórum
sekúndum síðar tók nef þotunnar að snúast nið-
ur og halli varð um 70 gráður. Hár hvellur
heyrðist, þotan snerist á hvolf og hrapaði að lok-
um 17.900 fet (5.400 m) á einni mínútu.
88 manns voru í þotunni og talið er að allir hafi
dáið samstundis. „Höggið var svo kröftugt að
ólíklegt er að nokkur hafi haldið meðvitund eða
þjáðst eftir að þotan skall í sjóinn," sagði Ron
O’Halloran læknir, sem tekur þátt í rannsókn-
inni.
Þótt ratsjárupplýsingar bendi til þess að einn
eða fleiri hlutar þotunnar hafí brotnað af henni
er ekki vitað hvort það hafi verið orsök eða af-
leiðing hrapsins. Tveir hlutar hæðarstýris-
kambsins hafa fundist í flaki þotunnar en ekki er
vitað hvort hann sé þar allur.
Konum
verði
hleypt í
glímu
hringinn
Tokýd. AFP.
FYRSTA konan sem kjörin
hefur verið fylkisstjóri í Japan
hefur nú farið þess á leit við
sumo-glímumenn að alda-
gömlu banni, sem kveður á um
að engar konur megi stíga í
glímuhringinn, verði aflétt.
Fusae Ota hefur komið hinu
hefðum hlaðna súmóglímu-
sambandi í klípu. Konum hefur
alltaf verið bannaður aðgangur
að hringnum, en hefð er fyrir
að fylkisstjóri Osaka afhendi
sigurvegara fylkiskeppninnar
verðlaunin í hringnum. Þetta
er hins vegar í fyrsta skipti
sem fylkisstjóri Osaka er kona.
Svipaðri beiðni var synjað
1990, þegar kona sem gegndi
stöðu ráðherra vildi afhenda
bikar forsætisráðherraem-
bættisins í glímuhringnum.
Ota sagðist þó vona að margt
hefði breyst sl. tíu ár. Ákvörð-
un sambands súmóglímu-
manna liggur enn ekki fyrir,
en þeir hafa látið hafa eftir sér
að þeir vilji virða gamlar hefð-
ir.