Morgunblaðið - 10.02.2000, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Kjarval
Krítik, olía á Iéreft, 1946-1947. í allri mannkynssögunni hefur vinnan og óvægin rýni á hlutina verið undirstaða
mikilla afreksverka í list og mennt. „Fram til listarandans, ber þú óskir þínar, ef þú vinnur vel munt þú fá svar.
Annars verður þú að leita að réttum spumingum." (Kjarval.)
MYNDLIST
K j a r v a I s n t a A i r
MYNDIR ÚR
KJARVALSSAFNI
JÓHANNES SVEINSSON
KJARVAL
Opið alla daga frá 10-18.
Breytingar á upphengingu í
óákveðinni framtíð. Aðgangur 400
krónur f allt húsið.
KJARVAL í nýju ljósi mætti
nefna umskiptin sem hafa orðið við
breytingu lýarvalssalar, svo mjög
sem sum myndverka hans njóta sín
sem aldrei fyrr. Kemur strax fram í
stóra málverkinu, Krítik, sem við
blasir þá gengið er inn í salinn.
Þetta mikla málverk hefur hangið
uppi á mörgum stöðum í húsinu
sem annars staðar, m.a. neðanjarð-
ar hjá Rafveitunni. En aldrei hefur
mér fundist innihald þess og boð-
skapur komast fullkomlega til skila
og á stundum hefur hráleikinn í ná-
grenninu átt sinn þátt í því. Allt þar
til núna að málverkið hefur fengið
umhverfi og innsetningu við hæfi,
þannig að það opinberast skoð-
andanum í öllu sínu veldi, eins og
slær á borðið og segir, hér er ég ...
Frábært dæmi þess, að mynd-
verk þurfa andrúm, þurfa að geta
lifað og andað þar sem þau eru
staðsett, ella verða þau sem ókenni-
legir hlutir í annarlegu umverfi,
lífsneistinn tekinn frá þeim. Hér er
ofstöðlun lítið farsælli lausn en
kraðak, meður því að sumar mynd-
ir njóta sín vel í þrengslum, eins og
gerist á mannlífsvettvangi að ein-
stakir skera sig helst úr í fjölmenni.
Hér gilda sem áður hin óskráðu
lögmál innsæisins, hin beini skiln-
ingur án rökhugsunar, líkt og ger-
ist í litafræði, einnegin svo mörgu
sem að listum og skapandi atriðum
lýtur, þar eru lögmálin í og með
sértæk líkt og í sjálfri náttúrunni.
Þetta vissi Kjarval, sem jafnvel
málaði sig inn í umhverfi sitt eins
og Lífshlaupið er til vitnis um, fleiri
athafnir hans og háttalag.
Gott að lokið skuli að stokka upp
hlutunum í Kjarvalssal, bæta lýs-
inguna og koma fyrir nýjum og
stærri skilrúmum. Við það fá
myndverkin meiri nálgun og eins
og toga enn frekar í skoðandann.
Smíðisverkið í loftinu, sem var van-
hugsuð viðbót í lok upphaflegu
framkvæmdanna þó enn til staðar,
skrúfað enn fastar af lögvísum van-
vitum á listir, og þrátt fyrir eld-
hættu við ofhitun ef gamla lýsingin
var í hámarki. Hins vegar nær óm-
enguð og himnesk náttúrubirtan að
ofan ekki frekar en áður að skína
óhindrað á myndimar, né listaverk-
in að njóta lofthæðarinnar.
Hér er tilefni að víkja að fleiri
þáttum er varða Kjarvalsstaði, hins
vegar nóg svigrúm til að gera ein-
stökum verkum og hlutum skil sér-
staklega, eftir því sem þörf krefur,
því þessar þjóðargersemar skal
vakta og beina kastljósi að, ræktar-
semin aldrei ofnóg. Og þó er undar-
legt að naumast skuli fitjað upp á
neinu nýju á staðnum, að ekki sé
kynnt undir öfugsnúna söguskoðun
fyrir vanþekkingu eða eitthvað lak-
ara. Þannig gat að lesa í Lesbók 29.
janúar, að með þessari sýningu sé
langþráður draumur að rætast um
varanlegan samastað verka Kjar-
vals. Þarf ekki að fara nema þrjá
áratugi aftur í tímann til rannsókn-
ar á byggingarsögu Listaskálans á
Miklatúni, sem hefði eins getað
fengið nafnið Listaskálinn að
Klömbmm (eða við Sunnuhvol), til
að hið rétta komi í ljós. Uppruna-
lega var ráðist í byggingu hans
vegna niðurrifs Listamannaskálans
gamla við Kirkjustræti, við hlið Al-
þingishússins, en framkvæmdir
hófust ekki fyrr en samið hafði ver-
ið við borgaryfirvöld um byggingu
Kjarvalsálmu, jafnframt tengirými
á milli. Losaralega var gengið til
samninga af hálfu myndlistar-
manna, að ekki sé fastar að orði
kveðið, þannig að eðlilega fór svo
að þeir glutraðu öllu framkvæði úr
höndum sér, er ófögur saga sem
ekki skal rifjuð upp, en hana þekki
ég í aðalatriðum upp á mína tíu
fingur. Myndlistarmenn allt í einu
orðnir peð í framkvæmdunum, og i
framhaldinu var listamannaskála-
nafnið úr leik en, Kjarvalsstaðir,
litu dagsins ljós. Af öllu þessu má
ráða að stefnumörk borgarvalda
vora frá upphafi þau að búa verk-
um Kjarvals varanlegan samastað,
sem var í sjálfu sér frábær hug-
mynd^og til þess var Kjarvalsálma
reist. í henni og austurgangi hafa á
tímabilinu verið haldnar margar
misgóðar sýningar og ein stórgóð í
samanlagðri byggingunni í tilefni
aldarafmælis listamannsins 1985.
En í raun réttu er það nær 30 ára
vanræksla og trassaskapur um var-
anlegan samastað sem nú er að
verða að veraleika, en hins vegar er
raunsær draumur um nýjan Lista-
mannaskála, sem rekinn væri af
myndlistarmönnum og í líkingu við
hinn gamla á Kirkjustræti, löngu
fyrir bí. Þeir sem muna hinn forna
skála, vita að hann var mesta lyfti-
stöng íslenzkrar myndlistar allan
tímann meðan hann var og hét, en
eitthvert spennufall hafði orðið á
fórnfýsinni og metnaðinum að baki
byggingarinnar er svo var komið,
útkjálkapólitík, nánasarsemi og
sérhyggja tekið völdin.
Eðlilega koma upp tímabundnar
aðstæður sem kalla á að allt rými
byggingarinnar sé lagt undir
ákveðna listræna framnínga, en þó
á að vera hægt að koma því svo fyr-
ir að alltaf verði á einhvem hátt
hægt að nálgast verk málarans. Þó
ber að forðast að gróma helgi stað-
arins með kosningum og veislu-
höldum eins og gert hefur verið og
ekki á sér hliðstæðu nema fyrir
austan tjald, sem var, og í mjög
vanþróuðum ríkjum. Merkilegt hve
vel þessi 30 ár, ríma við 30 ára bið
Kjarvals eftir efndum ríkisins um
að reisa honum hús og vinnustofu
sem loks var tilbúið er hann var
kominn að fótum fram. Kjarval
hafnaði því af mjög skiljanlegum
ástæðum, og vel að merkja með
þeirri frómu ósk um leið, að það
nýttist myndlistarmönnum í fullu
fjöri, en sú ósk var að engu virt
nema rétt í upphafi.
Við þessi ánægjulegu og heil-
brigðu hvörf að Kjarvalsstöðum,
kom það nokkuð á mig að sjá stórt
ljósrit af hluta Lífshlaupsins þekja
norðurvegg austurgangsins, ein-
mitt og öðru fremur vegna þess, að
borgin hafnaði því á sínum tíma að
kaupa framverkið þá henni bauðst
það, afþakkaði að fá sýnishorn af
umhverfí meistarans í hans eigið
hús. Nú geta menn borið frumverk-
ið sem sýnt er í kjallara Listasafns
Kópavogs ásamt ýmsum hlutum úr
vinnustofunni að Austurstræti,
saman við ljósritið. Upplifað hinn
stóra mun, að vera með framverkið
í beinu sjónmáli og andrúmið í
kring, svo og ljósrit, en þó raunabót
að ekki skyldi sett marmaragólf
fyrir framan það. Skynja þá vænt-
anlega mikilvægi þess að varðveita
sem mest af andrúminu í kringum
listamenn svo örsjaldan sem tæki-
færi gefst til þess, í stað þess að má
það út, valta yfir það með fínheitum
og rasspúðaskipulagi. Er mér and-
rúmið á vinnustofunni í fersku
minni, því Kjarval átti það til að
taka mig herfangi á Austurstræti
og sýna mér herlegheitin innan
dyra um leið og hann áritaði og gaf
mér bækur sínar, Grjót, Meira
grjót og Enn grjót. Eru það ljúfar
og stórbrotnar minningar.
Verður spennandi að fylgjast
með athafnaseminni í húsinu eftir
breytingarnar, til að mynda sveigj-
anleika skilrúmanna, aðdáendur
Kjarvals sem aðrir skulu eindregið
hvattir að fjölmenna á staðinn og
upplifa verk listamannsins, stór og
smá, í nýju ljósi.
Bragi Ásgeirsson
M-2000
Fiinmtudagur 10. febrúar
títvarp 2000 - títvarpshátíð
í Háskólabíói. Athyglisvert út-
varpsefni hvaðanæva verður
flutt í sal og textanum varpað
upp á bíótjald.
Umsjón hafa Jón Karl
Helgason, Jón Hallur Stefáns-
son og Þorsteinn J. Vilhjálms-
son.
Við gluggann eftir Piers
Plowright, Bretlandi.
Ég er bara Króati í prófíl
eftir Richard Dinker, Svíþjóð-
.Sérstakur gestur: Piers Plow-
right.
Aida. Stærsta framtak Sin-
fóníunnar á þessu starfsári er
sviðsetning á meistai-averki
Verdis, óperunni Aidu í Laug-
ardalshöll. Meðal einsöngvara
era Kristján Jóhannsson, Lar-
issa Diadkova og Guðjón
Óskarsson.
Með hljómsveitinni koma
fram Kór Islensku óperannar
og dansarar úr Listdansskóla
Islands. Sýningin á fimmtudag
hefst kl. 19:00 og á laugardag
kl. 16. Vefslóð www.sinfonis.is
Tölvuþjálfun
Windows • Word
Internet • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur
kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu
og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
Fjárfestu í framtíðinni!
1! Tölvuskóli íslands
BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 5671466
Okkar árlega lagerútsala hofst í dciCJ
Opið til klukkan
í kvöld
endast
flokks vörur að ræða
Dstlegu verði
Í*SSg]
þsj'j ltj.j©.jút*ate
GOLFEFNABUÐIN
■ traust undlrstaða fjölskyldunnar
BORGARTÚN 33 - 105 REYKJAVlK - SÍMI 561 7800 - FAX 571 7802
LAUFÁSGATA 9 - 600 AKUREYRI - SlMI 461 4910 - FAX 461 4911