Morgunblaðið - 10.02.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 33
Beinverkir
KVIKMYJVPIR
Laugarásbfó,
Sljörnubíó, Borgar-
bíð Akureyri
BEINASAFNARINN -THE
BONECOLLECTOR★★
Leikstjóri Phillip Noyce. Hand-
ritshöfundur Jeremy Jacone, bygg't,
á sögu Jeffreys Deaver. Kvik-
myndatökustjóri Dean Semler. Að-
alleikendur Denzel Washington,
Angelina Jolie, Michael Rooker,
Queen Latifa, Luis Guzman, Ed
O’Neill. Lengd 120 mín. Bandarísk.
Columbia/Universal 1999.
LÖGREGLUKONAN Amelia
Donaghy (Angelina Jolie), bregst
svo skynsamlega við er hún kemur
á morðvettvang, að Lincoln
Rhyme (Denzel Washington), snill-
ingur í uppljóstrun morðmála, fær
hana til að aðstoða sig við leitina
að drápsmanninum, Rhyme er
lamaður frá toppi til táar og
stjórnar rannsókninni úr rúminu á
hátæknivæddu heimili sínu. Ljóst
er að morðvargurinn ætlar sér
ekki að láta þar við sitja heldur
skilur eftir vísbendingar um næsta
ódæðisverk. Donaghy verður augu
og eyru Rhymes í leit sem liggur
gjarnan um myrka heima aflagðra
bygginga og neðanjarðarlesta-
ganga undir Manhattan. Lengst af
eru þau augnablikum of sein að
ráða í táknmál morðingjans, uns
Donaghy dettur niður á lausnina í
fornbókaverslun.
Hollywood hefur undarlega
gaman að fást við raðmorðingja þó
handritshöfunda borgarinnar
skorti oftast nokkuð upp á að geta
lokað málunum á frambærilega
skynsamlegan hátt. Jacone er fjær
því en B-myndastjarnan
Christopher Lambert í Resur-
rection á síðasta ári. Þó er að
þessu sinni mulið undir framleið-
andann. Leikstjórinn er kunnur,
en reyndar sviplítill fagmaður,
sem oftast kemst vel frá sínu.
Tónlistin gerir sitt gagn og kvik-
myndataka Semlers og lýsing,
einkar áhrifarík, sláandi fyrir aug-
að og skynsamleg. Hvort sem í
skúmaskotum neðanjarðar eða
beitir myndavélinni úr þyrlu að
borginni, þannig að hún lítur út
einsog skákborð örlaganna. Best
af öllu er þó leikurinn. Washington
er magnaður, jafnvel þó hann geti
tæpast hreyft litlaputta.
Senuþjófurinn er nánast óþekkt
leikkona, Angelina Jolie, sem virð-
ist hafa allt til að bera til að verða
stórstjarna í framtíðinni. Glæsileg,
gáfuð og tekst jafnvel upp, hvort
sem hún sýnir hörku eða mýkt.
Sannkölluð himnasending í barbí-
dúkkusamfélagið sem, með örfáum
undantekninum, er kvenstjörnu-
framboð iðnaðarins í dag. Hún á
ekki langt að sækja hæfileikana,
dóttir Jons Voight, eins besta leik-
ara samtímans.
Flest annað er vont og þaðan af
verra. Það sem mestu máli skiptir,
sjálf sagan, er götótt og með slík-
um ólíkindum að einstaka atriði
eru það ótrúverðug að slíkt sást
ekki einu sinni í fyrrnefndu B-
myndinni hans Lamberts. Nægir
að nefna fornbókasöluna þar sem
lausn gátunnar kemur siglandi
beint upp í fangið á Donaghy.
Endakaflar hafa heldur ekki sést
vemmilegri, jafnvel ekki í Conspir-
acy Theory. Ósvikinn Hollywood
happ-í-endinn-hvað-sem það-kost-
ar. Jafnvel síðustu samúð áhorf-
andans.
Sæbjörn Valdimarsson
UTANRÍKISÞJÓNUSTAN 60 ÁRA
Ritgerðarsamkeppni
íslenskra ungmenna 16-20 ára
(tilefni 60 ára afmælis utanrlkisþjónustunnar á (slandi, 10. aprfl 2000, efnir utanrlkisráðuneytið
til ritgerðarsamkeppni meðal Islenskra ungmenna á aldrinum 16-20 ára undir yfirskriftinni:
„Hlutverk fslands og hagsmunir f alþjóðasamfélaginu á nýrri öld.”
Lögð er áhersla á að þátttakendur fjalli um stöðu [slands á alþjóðavettvangi og framtlðarhagsmuni
I utanrlkismálum á sviði stjórnmála, öryggismála, viðskipta- og menningarmála.
Lengd ritgerða miðast við 4-6 vélritaðar blaðslður I stærðinni A-4.
Skilafrestur er til 17. mars 2000.
Ferðaverðlaun verða veitt fyrir fjórar bestu ritgerðirnar. Verðlaunin taka öll mið af verkefnum
og starfsemi utanrlkisþjónustunnar erlendis:
A. . Heimsókn á heimssýninguna EXPO 2000 i Hannover og f nýtt íslenskt sendiráð í Berlín.
B. Heimsókn í sendiráð Islands í Brussel og fastanefnd Islands hjá Atlantshafsbandalaginu.
C. Heimsókn i fastanefnd Islands hjá Sameinuðu þjóðunum og Norrænu menningarmiðstöðina
i New York.
D. Heimsókn til aðalræðisskrifstofu Islands í Winnipeg i Kanada og þátttaka i fjölbreyttri
dagskrá Islendingadagsins 5.-7. ágúst.
Ritgerðirnarskulu berast utanrlkisráðuneytinu, Rauðarárstlg 25, 150 Reykjavík, I umslögum
merktum „Ritgerðarsamkeppni-2000", eigi slðar en 17. mars 2000.
Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu upplýsinga-menningarmála og ræðistengsla I
utanrlkisráðuneytinu.
Ýmsar gagnlegar heimildir um (slensk utanríkismál, starfsemi utanrlkisráðuneytisins og
sendiskrifstofa erlendis er að finna á heimasfðu utanrlkisráðuneytisins.
UTANRlKISRÁÐUNEYTIÐ
RAUÐARÁRSTlG 25 150 REYKJAVlK
SlMI 560 9900 FAX 562 3152
www.mfa.is
Gefa
Eistum
smokka
LEIKRITIÐ Himnaríki eftir
Árna Ibsen hefur slegið í
gegn í Eistlandi hjá borgar-
leikhúsinu í Párnu sem er ein
af stærri borgum landsins
rétt vestan við Tallinn.
Leikritið var frumsýnt um
miðjan desember og voru fyr-
irhugaðar 15 sýningar en að-
sókn fór framúr björtustu
vonum og eftir áramótin var
sýningin flutt í stærra leikhús
í borginni og nýr kostunarað-
ili tók hana upp á arma sína.
Er það stærsti smokkafram-
leiðandi landsins sem notar
tækifærið til að auglýsa fram-
leiðslu sína með því að gefa
einn smokk með hverjum að-
göngumiða.
Að sögn Árna Ibsen höf-
undar verksins hefur Himna-
ríki verið sýnt víða á Norður-
löndum undanfarin misseri og
ávallt fengið góðar viðtökur.
„Mér skilst að ánægjan í
Párnu sé ekki síst vegna þess
að unga fólkið flykkist á sýn-
inguna en það hefur látið sig
vanta í leikhúsið að sögn
heimamanna."
Dómar um sýninguna hafa
verið mjög lofsamlegir í eistn-
eskum dagblöðum. í Post-
timees, stærsta dagblaði
landsins, komst gagnrýnand-
inn svo að orði:
„Himnaríki er „kassa-
stykki" en jafnframt fárán-
lega geðklofinn gamanleikur.
Alla höfunda dreymir um að
skrifa leikrit sem grípur svo
sterkt inn í nútímann.“
Síðasta sýn-
ingarhelgi
NÚ fer í hönd síðasta sýningarhelgi
sýningar Guðnýjar Magnúsdóttur,
Skál, skúlptúr, vasi, í Listasafni ASÍ.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 14-18. Aðgangs-
eyrir er 300 kr.
Hvernig kemur þú heilu
körfuboltaliði inn i Suzuki WagonR+?
ATH: Ekki er ráðlegt að leika körfubolta á meðan á akstri stendur
Wagon R+
Fjölnotabíllinn
TEGUND: VERÐ:
WAG0NR+ 1.099.000 KR.
WAG0N R+ 4x4 1.299.000 KR.
Fjölhæfni er or&iö sem lýsir eiginleikum WagonR+ best.
4X4 drifiS sér til þess a& smó hindranir standa ekki í vegi
fyrir honum en ef hann hins vegar vill stansa, sjó ABS-
hemlarnir til þess a& hann gerir þaS fljótt og örugglega.
WagonR+ er alvöru fjölnotabíll sem hittir í mark!
$ SliZUKI
'' --
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson,
Grænukinn 20, simi 555 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grxnagarði, simi 456 30 95.
Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bllasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, slmi 482 37 00.