Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 58
58 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ábending frá
Jafnréttisnefnd
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ábending frá Jafnréttis-
nefnd Háskóla Islands:
„Jafnréttisnefnd Háskóla íslands
óskar vinsamlegast eftir því að eftir-
Námskeið
ílíkams-
beitingu
NÁMSKEIÐ í Feldenkrais-aðferð
fer fram í sal FÍH, Rauðagerði 27,
108 Reykjavík. Leiðbeinandi er
Sibyl Urbancic.
Námskeið I verður laugardaginn
12. og sunnudaginn 13. febrúar kl.
10-11.30 og 12.30-14 báða dagana.
Það er opið öllum en fremur miðað
við þá sem lítið hafa kynnst Feld-
enkrais-aðferðinni.
Námskeið II verður laugardag-
inn 26. og sunnudaginn 27. febrúar
kl. 10-11.30 og 12.30-14 báða dag-
ana. Það er einnig opið öllum, þótt
það sé fremur hugsað sem fram-
hald af fyrri námskeiðum hjá Sibyl
Urbancic, þar með talið námskeið
I.
Feldenkrais-aðferðin er
kennsluaðferð sem notar kerfi
líkamshreyfinga til að bæta með-
vitund um stöðu og beitingu líkam-
ans.
Námskeiðsgjald er 4.000 kr.
farandi ábending verði birt í Morg-
unblaðinu sem fyrst: Veðjað á karla í
vísindum! Ábending frá jafnréttis-
nefnd Háskóla íslands vegna grein-
ar sem birtist í Morgunblaðinu
sunnudaginn 6. febrúar undir yfir-
skriftinni: „Veðjað á vísindin".
I grein þessari eru viðtöl við tólf
prófessora og þrjá dósenta í lækna-
deild Háskóla íslands um aðstæður
og horfur í læknisfræðirannsóknum
á Islandi.
Það hefur vakið athygli okkar og
margra annarra að eingöngu var taL
að við karlprófessora og dósenta. í
læknadeild eru einnig kvenprófess-
orar og dósentar, margar þeirra
mjög virkar og hafa náð miklum ár-
angri í rannsóknum.
Jafnréttisnefnd Háskóla Islands
bendir á mikilvægi þess að jafna hlut
kynjanna í fjölmiðlum og skorar á
Morgunblaðið að móta virka stefnu
þess efnis.“
Athugas. ritstj.
Morgunblaðið valdi viðmælendur
með tilliti til þess að þeir væru próf-
essorar í læknadeild, eða gegndu
svipuðum störfum og þá með tengsl
við sjúkrahús þegar rætt var um
hvernig standa ætti að fjármögnun
sjúkrahúsanna. Farið var eftir
heimasíðu læknadeildar um starfs-
fólk deildarinnar, þar er enginn
kvenprófessor nú þegar Margrét
Guðnadóttir er að hætta. Lækna-
deild benti á heimasíðuna og eftir því
var farið.
Ritstj.
Goethe-Zentrum
sýnir kvikmyndina
„Winterschlafer“
GOETHE-Zentrum á Lindargötu 46
sýnir þýsku kvikmyndina „Winter-
schláfer“ fimmtudaginn 10. febrúar
kl. 20.30. Leikstjóri er Tom Tykwer
sem öðlaðist alþjóðafrægð fyrir
myndina „Hlauptu, Lola, hlauptu"
er sýnd var hérlendis sl. haust og
hlaut mjög góðar viðtökur gagnrýn-
enda.
„Winterschláfer“, sem unnið hef-
ur til margvíslegra verðlauna innan
og utan Þýskalands, gerist í Ölpun-
um að vetrarlagi og segir frá storma-
sömum samböndum tveggja ungra
para. í bakgrunni myndarinnar er
umferðarslys þar sem aðalpersón-
umar eiga hlut að máli. Faðir stúlku,
sem deyr í slysinu, vill leita hefnda.
Myndin er með enskum texta og
aðgangur er ókeypis.
FASTEIGNA rf
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 570 4500, FAX 570 4505
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/
Kambasel
Mjög vandað 180 fm raðhús á tveimur hæðum með innb. bílskúr.
Húsið sem er með vönduðum innréttingum og gólfefnum skiptist í
gesta-w.c., hol, eldhús, saml. stofur, 3 herbergi auk forstherb., nýl.
flísal. baðherb. og þvottaherb. Mögul. á 60 fm í risi. Áhv. byggsj. 2,1
millj.
Veghús - frábærl útsýni
Nýkomin í sölu góð 101 fm 4ra herb. íb. á 10. hæð í lyftuhúsi. 3
rúmgóð herb. og þvottahús í íbúð. Stórkostlegt útsýni. Stæði í bílskýli.
Verð 12,5 millj.
Fossvogur
Góð 91 fm 3ja herb. íb. á 1. hæð. Stofa og 2 góð herbergi. Parket á
gólfum. Sérlóð. Hús nýtekið í gegn að utan. Áhv. lífsj. 2,7 millj.
Hamrahlíð
Vel skipulögð 3ja herb. endaíb. í góðu fjölbýli á besta stað í Hlíðunum.
2 svefnherb: og góð stofa. Verð 8,9 millj.
Miðborgin
Fín 2ja - 3ja herb. vel innréttuð íbúð í nýlegu húsi miðsvæðis í
Reykjavík. Stórar svalir. Stutt í allt. Áhv. byggsj. 3,7 millj.
Digranesheiði - Kóp.
Nýkomin í sölu góð 60 fm 2ja - 3ja herb. íb. á jarðhæð með sérinng. í
þrfbýli. Nýlegt gler. Falleg ræktuð lóð. Laus strax. Verð 6,9 millj.
#
Danshópurinn Kristall sem vann á síðasta ári.
Keppt í frjálsum
dönsum
REYKJAVÍKURKEPPNI í frjálsum
dönsum fyrir unglinga 13-17 ára
fer fram í Tónabæ föstudaginn 11.
febrúar og hefst það kl. 20.
Kynnir er Björgvin Franz Gísla-
son.
Islandsmeistarakeppnin verður í
Tónabæ 18. febrúar nk.
Yfírlýsing
frá Reykja-
garði hf.
AÐ gefnu tilefni vill Reykjagarður
hf. koma því á framfæri að á þessu ári
hefur rekki greinst camphylobacter í
kjúklingum við sýnatöku í eldhúsum
fyrirtækisins.
í könnun sem að stóðu heilbrigðis-
eftirlitin á höfuðborgarsvæðinu kom
fram í fréttatilkynningu 4. febrúar að
camphylobacter hafi fundist í 38%
sýna hjá Reykjagarði hf., þ.e.a.s. í
fimm sýnum af þrettán, sem tekin
voru í verslunum dagana 17. til 25.
janúar sl.
Þau fimm sýni sem reyndust
menguð voru öll úr sama sláturhópi
þann 18. janúar. Önnur sýni úr slát-
urhópnum frá 13., 14., 17. og 20. jan-
úar, samtals átta sýni, reyndust öll
ómenguð. Af fimm sláturhópum
reyndist einn mengaður, þ.e.a.s. 20%.
Við skoðun á sláturdagbók kemur í
ljós að 18. janúar biðu slátrunar í
sama rými 1300 varphænur og kjúkl-
ingar sem voru ómengaðir í eldishúsi
samkv. vottorði. Nú eru leiddar
sterkar líkur að því að kjúklingamir
hafi mengast af camphylobacter af
varphænunum.
Stjóm Reykjagarðs hf. hefur því
ákveðið að frá og með 8. febrúar
verði hætt slátmn allra annarra al-
ifugla en kjúklinga. Frá og með sama
degi verður aðeins slátrað kjúkling-
um sem em ómengaðir samkv. heil-
brigðisvottorði.
Breyting á samræmdu
lokaprófi í íslensku í 10.
bekk grunnskóla
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur ákveðið nokkrar breytingar á
samræmdu lokaprófi í íslensku í 10.
bekk gmnnskóla. Ávörðun þessi er í
samræmi við tillögur vinnuhóps um
uppbyggingu samræmds lokaprófs í
íslensku í gmnnskóla. Veigamesta
breytingin er sú að hætt verður að
prófa á samræmdu prófi úr lesnum
bókmenntum eins og tíðkast hefur
um árabil. Þess í stað er skólum gert
að velja bókmenntatexta sem þeir
meta á skólaprófum.
Menntamálaráðherra hefur þegar
ákveðið að samræmd lokapróf í 10.
bekk gmnnskóla verði valfrjáls fyrir
nemendur vorið 2001 í þeim fjómm
námsgreinum sem nú er prófað í.
Breytingar á íslenskuprófinu koma
þegar til framkvæmda vorið 2001 um
leið og prófin verða valfrjáls.
Eftirfarandi em megintillögur
vinnuhópsins um uppbyggingu sam-
ræmds lokaprófs í íslensku í 10. bekk.
1. Samræmt próf í íslensku skal
taka mið af markmiðum aðalnám-
skrár gmnnskóla frá 1999 eftir því
sem framast er unnt.
2. Ekki verður prófað úr lesnum
bókmenntum á samræmdu lokaprófi
í íslensku. Þess í stað verður lestur og
lesskilningur prófaður með fjöl-
breyttum verkefnum sem byggjast á
margs konar efniviði, m.a. stuttum
ólesnum bókmenntatextum.
3. Samræmda prófið á einkum að
byggjast á viðfangsefnum út frá
margvíslegum textum og megin-
áhersla verður á að meta almenna
þekkingu og fæmi nemenda í ýmsum
þáttum íslensku og að þeir beiti
kunnáttu sinni í málfræði og staf-
setningu.
4. Ákveðinn sveigjanleiki verður í
uppbyggingu samræmda prófsins
milli ára.
5. Samræmda prófið á að byggjast
á fjölbreyttum tegundum spuminga,
t.d. fjölvalsspumingum, rétt/rangt
spumingum, ritunarverkefnum og
verkefnum sem reyna á málnotkun.
6. Hjálpargögn verða ekki leyfð í
samræmda prófinu en aukin áhersla
lögð á verkefni sem byggjast á notk-
un ýmissa gagna, t.d. orðabóka og
verkefni þar sem reynir á hæfni til að
túlka upplýsingar af ýmsu tagi.
Vakin er athygli á því að hægt er
að nálgast lokaskýrslu vinnuhóps um
uppbyggingu samræmds lokaprófs í
íslensku í grunnskóla á heimasíðu
ráðuneytisins, www.mm.stjr.is.
---------------
Hádegisdjass
á Café Bleu í
febrúar
Opinn fundur
um vöruþróun
OPINN fræðslufundur um vöm-
þróun verður haldinn föstudaginn
11. febrúar kl. 13 í Þróunarsetri
Vestfjarða, Árnagötu 2, ísafirði.
Fundinum verður sjónvarpað á
bókasafninu á Hólmavík og í
grunnskólanum á Patreksfirði.
Nýsköpunarsjóður og Iðntækni-
stofnun eiga í samvinnu um Vöm-
þróunarverkefni þar sem fyrir-
tækjum er veitt aðstoð við að þróa
samkeppnishæfa vöru á innan-
landsmarkað eða til útflutnings.
Á ísafirði em þrjú ný vöruþró-
unarverkefni að fara af stað. Verk-
efnin eru á sviði hugbúnaðar,
mjólkuriðnaðar og fullvinnslu fisk-
afurða.
Nýsköpunarsjóður og Iðntækni-
stofnun standa í samstarfi við At-
vinnuþróunarfélag Vestfjarða að
fræðslufundi. Þar verður m.a. farið
yfir umsóknarferil og framkvæmd
vömþróunarverkefna ásamt um-
ræðu um áhættulán sem fjármögn-
unarkost á vöraþróunarverkefn-
um.
Fundurinn er opinn fyrir alla þá
sem áhuga hafa á vöruþróun.
------^-4-*------
Fyrirlestur um
franska bfla
FYRIRLESTUR um franska bíla
verður haldinn fimmtudagskvöld kl.
20 í Alliance Frangaise, Austurstræti
3. Umsjón hefur Omar Ragnarsson.
Renault- og Peugeot-bílai- verða
til sýnis á Ingólfstorgi.
í HÁDEGINU á föstudögum mun
Ami Isleifs spila djass fyrir gesti
Café Bleu á píanó hússins
Café Bleu, kaffihús og „Brasserie í
Kringlunni er opið frá sunnudögum
til miðvikudaga til 21. Fimmtudaga,
föstudaga og laugardaga er grillið
opið til 23.
------*-++--------
Leiðrétt
Ranglega getið
um höfund
í FRÉTT í Mbl. sl. þriðjudag birt-
ist frétt um bátinn Skúla Hjartarson.
Þar var getið um höfund að vísu sem
fylgdi bátnum við sjósetningu og var
höfundurinn sagður heita Jón
Jóhannsson. Þetta er ekki rétt held-
ur orti Jón G. Jónsson vísurnar. Beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
Ranglega nefnd
SAGT var frá opnun bankaþjón-
ustu fyrir heyrnarlausa og undir
myndatexta var Andrea Þ. Rafnar
ranglega nefnd. Beðist er velvirðing-
ar á þeim mistökum.