Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 10.02.2000, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ 34 FIMMTUDAGUR 10. FEB RÚAR 2000 Matur og matgerð Berjatertur á þorra Skammdegið hefur verið erfitt hér á Garðaholtinu, segir Kristín Gestsdóttir. Þó ekki vegna myrkurs heldur vegna allt að þriggja metra snjóskafla á veginum upp að húsinu. ÉGGEKKhérútá holtið eftir snjó- tröðum sem mok- aðar voru gegnum ,jökulinn“ á hlað- inu hjá mér. Grasið var grænt, blóð- bergsblöðin voru líka græn og nokk- ur fagurgræn fifla- blöð teygðu sig á móti mér. Ég bragðaði þessi grænu grös, blóð- bergið var bragð- laust, fíflablöðin römm, en krydd- jurtirnar mínar, steinseljan og sítr- ónumelissan höfðu ekki tapað bragð- inu, þótt þær hefðu legið tæpa tvo mánuði undir snjónum. Hvaða hljóð var þetta? Ég leit í kringum mig eins og ég ætti von á lóukvaki. Það var nokkuð mikil bjartsýni, en krummi lét heyra í sér og röddin var ekki eins rám og venjulega. Mikið hefur borið á kolsvörtum hrafninum, þegar hann oft á dag hefur flogið hér yfir snjóhvítt holtið og líklega ekki alltaf haft mikið að éta. Fjaran hér fyrir neðan hefur þó líklega bjarg- að honum. Ég vippaði mér upp í bílinn og keyrði í næsta stórmark- að og keypti frosin hindber og jarðarber og bauð gestum í kaffi. Sólin gægist fram gegnum skýin, dag er farið að lengja og það stytt- ist í vorið. Rúqbraudsterta meo hindberium _________3 eggjarauður_________ __________175 g sykur__________ 125 g rifið óseytt rúgbrauð (ekkert annaS brauð) _______2 msk. kartöflumjöl_____ __________1 msk. kakó__________ __________1 tsk. lyftiduft_____ __________3 eggjahvítur________ 1 pundskrukka hindberjasulta ___________1 dl eplasafi_______ ________1 V2 blað matarlím_____ V2 pk frosin jarðarber frá Ardo _________1 msk. flórsykur______ Hitið bakarofn í 200°C, blást- ursofn í 180°C. Hrærið eggjarauður létt með sykri. Rífið rúgbrauðið, setjið kartöflumjöl, kakó og lyftiduft saman við það. Setjið út í eggja- hræruna. Þeytið eggjahvítumar og blandið varlega saman við. Smyrjið springform, um 20 sm í þvermál, setjið deigið í mótið og bakið í 20 mínútur. Takið úr ofnin- um og hvolfið forminu með kök- unni á bökunargrind. Látið standa þannig í 10 mínútur, en losið þá úr mótinu. Kælið. Tvíkljúfið kökuna, smytjið þykkt lag af hindberjasultu á milli botnanna. Smyijið einnig þunnu lagi af sultu á efsta botninn. Leggið matarlímið í kalt vatn í 3 mínútur. Hitið eplasafann, vindið matarlímið úr vatninu og bræðið í honum. Dýfið frosnum hindberjum í hlaupið og raðið þétt ofan á kök- una. Setjið flórsykur á sigti og stráið yfir. Meðlæti: Þeyttur rjómi. Athugið: Óseytt rúgbrauð er helst hægt að fá í bakaríum. Ann- ars konar rúgrauð undir ýmsum nöfnum ætti ekki að nota svo sem Búmanns-, Ráðskonu-, Bæjara- brauð og ótal fleiri nöfn. Jardarberja/ rjómaterta ____________ásaa_____________ __________150 g sykur________ __________100 g hveiti_______ ______100 g möndluflögur_____ 1 pk Royal kaldur sítrónu- ________skyndibóðingur_______ 4 dl nýmjólk, minna en gefið er ________upp á pakkanum_______ V2 dl sherry (má sleppa) I lítil dós kurlaður ananas 2A pundskrukka iarðarberiasulta _________2 '/2 peli rjómi____ 1 dl epladjús + 1 '/2 blað matarlím V2 pk ( u.þ.b. 250 g) frosin jarð- ________arber frá Ardo_______ Ristið möndluflögurnar á þurri pönnu. Hitið bakarofn í 200°C, blást- ursofn í 180°C. Hrærið egg og sykur vel sam- an, sigtið hveiti út í. Hellið í smurt springform um 22 sm í þvermál. Bakið í 20 mínútur. Hvolfið for- minu á grind og kælið þannig í 10 mínútur, en losið þá úr forminu og kælið alveg. Kljúfið botninn. Síið ananaskurlið. Blandið því saman við jarðarberjasultuna og smyrjið á neðri botninn. Þeytið ijómann. Búið til búðinginn, setjið 1 dl af þeyttum ijóma út í hann og sherry ef þið notið það. Setjið ofan á sultuna og leggið efri botninn of- aná. Leggið matarlímið í kalt vatn í 3 mínútur. Hitið eplasafann, vindið matarlimið úr vatninu og bræðið í honum. Dýfið frosnum jarðarbeij- um í matarlímssafann og raðið of- an á kökuna. Smyijið ijóma í kringum tertuna og þrýstið möndluflögum í hann. ÍDAG Islensk erfða- greining og kettir ÉG fékk bréf frá Kára Stef- ánssyni hjá Islenskri erfða- greiningu, þar sem hann m.a. hvetur þá, sem sagt hafa sig úr gagnagrunnin- um, til að endurskoða hug sinn. Búið er að fjalla mikið um þetta mál og er ég löngu orðin leið á þessum umræð- um og vil fá að vera í friði. Mér fmnst það líka óskap- lega leiðinlegt að geta ekki sagt mína nánustu sem eru látnir úr þessum grunni. Vegna þeirrar umræðu, sem átt hefur sér stað um að miklar kvartanir hafi borist vegna ónæðis af köttum, finnst mér að það ætti að taka niður nafn, kennitölu og heimilisfang þeirra sem kvarta og kanna síðan hvort þessar kvartan- ir eiga við rök að styðjast. Sigrún. Ömurleg bíómenning ÉG hef mikið gaman af því að horfa á góðar kvikmynd- ir og nýt þeirra þest í kvik- myndahúsum. Kvikmynda- hús borgarinnar eru hins- vegar orðin mjög slæmur kostur. Miðaverð er ásættanlegt, nema á íslenskar myndir þar sem ég hef þegar niður- greitt þær með sköttum mínum sem kvikmynda- sjóður notar til að styrkja íslenska kvikmyndagerðar- menn, en þegar inn er kom- ið í yfirleitt glæsileg húsa- kynni liggur leið flestra í sjoppuna, sem eru stærstu mistök bíógesta því þar láta þeir okra svo um munar á sér. Dæmi: Poppkom mið- stærð kr. 200 (ódýrasta hráefni sem til er), lakkrís- poki kr. 180 (kostar í sjoppu kr. 100), Opal-pakki kr. 90-100 (kostar í sjoppu kr. 60), h'til gosdós í sjálf- sala kr. 150 (kostar í sjoppu kr. 90). Veit ég og fyrir víst að innkaupaverðið er lægra hjá kvikmyndahúsunum en sjoppunum. Nú liggur leiðin í salinn og eftir bið í mannhrúgu fyrir utan og slagsmál að komast inn í sahnn tekur við manni klístrað gólf og VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags viðbjóðslegt drasl út um allan sal. Ég veit vel að starfsfólk bíóanna hreinsar mestallt draslið á milli sýn- inga og ekki er bara við það að sakast, heldur líka bíó- gesti, fyrr má nú aldeihs vera. Þegar maður er loksins sestur eftir að hafa forðast að stíga á hálfétinn frost- pinna og hálft gosglas sem einhver hefur misst, og bíð- ur eftir að myndin byrji, ljósin slokkna og gamanið hefst, heldur fólk áfram að tínast inn í salinn og ég þarf að standa upp fyrir tveimur sem þurfa endilega að setj- ast fyrir innan mig. Fólkið fyrir framan mig þarf líka að standa upp fyrir slóðum sem koma of seint. Það ætti að hætta að selja inn 5 mín- útum fyrir sýningu og loka salnum þegar sýning hefst, ekki tæki langan tíma að kenna slóðunum að koma á réttum tíma og hætta að trufla hina. Jæja, myndin er á enda og leiðin hggur út, en það gengur óskaplega hægt, því starfsfólkið hefur aðeins opnað annan hurðarvæng- inn af tveimur í dyrunum og mannfjöldinn þarf að skáskjóta sér út og þeir sem reykja snarstansa þeg- ar út er komið og kveikja sér í rettu og stöðva allt á meðan. Hvað ætli myndi gerast ef það kviknaði nú í bíóinu og allir þyrftu að komast út ísnatri? Ég legg til, að kvik- myndahúsagestir taki með sér nesti, þangað til varn- ingur í bíósjoppunni er orð- in samkeppnisfær við sjoppurnar og að tekið verði upp á því aftur að selja í númeruð sæti (sér- staklega á frumsýningar). Að lækkað verði miðaverð í hhðarsalina. Að hætt verði að hleypa inn þegar sýning er að hefjast og að öryggis- reglum verði fylgt og út- gönguleiðir opnaðaralveg (rílarnir teknir upp). Ég vil taka fram að ég er ánægður með hversu fljótt kvik- myndir koma til landsins og hversu gott hljóðkerfi er í kvikmyndahúsunum. Kvikmyndahúsagestur. Spilafíkn ÉG heyrði í Sigrúnu Árna- dóttur, framkvæmdastjóra Rauða Kross íslands, í fjölmiðlum í fyrra og mig langar að spyrja, hvað með- ferð spilafíidls kostar og vinnutap hans. Ég tel að bingó, hlutaveltur og happ- drætti geti líka valdið fíkn. Ég er einn af þeim sem tap- að hafa stórfé í spilaköss- um. Spilafíkill. Götugrillið og kínversk leikfími NANNA hafði samband við Velvakanda og langaði að vita hvað hefði orðið um veitingastaðinn Götugrillið í Borgarkringlunni. Er þess sárt saknað því henni fannst það alveg frábær staður. Einnig langar hana að vita hvort einhvers staðar sé kennd kínversk leikfimi, einhvers konar Tae bo á hægferð. Þakkir til Ríkissj ónvarpsins MARGRÉT hafði samband við Velvakanda og vildi þakka Ríkissjónvarpinu fyrir fuglaþættina eftir David Attenborough og þættina um mannshkam- ann. Hún sagðist glöð borga afnotagjöldin sín, þegar hún fengi dagskrá sem þessa. Hver er á myndinni? ÞESSI mynd var tekin á dansleik í Vínarborg 3. des- ember sl. í ferð á vegum Úrvals-Útsýnar. Sá sem tók myndina vill gjarnan að stúlkurnar fái að eiga hana. Eru þær vinsamlega beðn- ar að hafa samband við Agnar í síma 553-3936. Ósmekkleg auglýsing ÉG vil koma því á framfæri að mér finnast sjónvarps- auglýsingarnar frá IKÉA með eindæmum ósmekk- legar. Er ég þá að tala um rassaauglýsingarnar. Finnst mér þetta fyrir neð- an allt velsæmi. Guðrún. Tapad/fundid Lyklakippa fannst LYKLAKIPPA fannst á gangbraut neðst við Urðar- braut í Kópavogi. Upplýs- ingar í síma 554-2140. Svart seðlaveski týndist SVART seðlaveski týndist laugardaginn 5. febrúar sl. annaðhvort í Kolaportinu eða á bílaplaninu á móti. I veskinu voru skilríki. Skil- vís finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hringja í Sól- eyju í síma 568-9587. Hnésíð svört kápa týndist HNÉSÍÐ svört kápa týnd- ist á Broadway á balli hjá Menntaskólanum við Hamrahhð 27. janúar sl. I erminni voru vettlingar, sjal og peysa. Finnandi vinsamlegast hringi í Sig- rúnu í síma 555-4185. Svört leðurstígvél tekin í misgripum SVÖRT, há og glansandi leðurstígvél voru tekin í misgripum í Skautahöllinni sl. sunnudag milli kl. 3 og4. Foreldrar, og aðrir, sem hafa orðið varir við stígvél- in, eru vinsamlega beðnir að hafa samband í síma 587-9861 eða 699-1022. Loðinn bakpoki týndist LÍTILL loðinn bakpoki varð eftir í hvítum bíl í Hafnarfirði sl. laugardags- morgun. Finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 868-0931. Dýrahald Tveir kettlingar fást gefíns VIÐ erum tveir gullfalleg- ir, skemmtilegir og góðir ketthngar og okkur vantar góð heimili. Við erum mjög þrifnir og kassavanir. Ef þið hafið áhuga, hringið í síma 561-0336. Víkverji skrifar... VÍKVERJI var undrandi að heyra af því að sum af stærstu svínabúum landsins hefðu komist upp með það í mörg ár að dæla svína- skít í sjóinn við strendur Reykjavík- ur. Fyrir um tveimur árum fjallaði Morgunblaðið nokkuð um stöðu þessara mála í Bandaríkjunum, en í sumum fylkjum landsins er úrgang- ur frá svína- og alifluglabúum gríðar- lega stórt og vaxandi vandamál. Blaðið leitaði þá til formanns Svína- ræktarfélagsins og bað hann um upplýsingar um hvemig staðið væri að þessum málum hér á landi. Af svörum hans að dæma var ekki hægt að skilja annað en að þessi mál væm í mjög góðu standi hér á landi og að svínabændur hefðu lagt metnað sinn í að hafa þessi mál í lagi. Víkverji varð því afar undrandi þegar það var upplýst í fjölmiðlum að svínabúið sem formaður Svínaræktarfélagsins á stóran hlut í hefur um árabil dælt hundmðum tonna af svínaskít í sjó- inn við Reykjavík. Þar með er upp- lýst að þessi mál hafa ekki verið og em ekki í góðu lagi. Viðbrögð for- manns Svínaræktarfélagsins við þessum upplýsingum bentu enn- fremur til þess að hann gerði sér ekki nægilega vel grein fyrir alvarleika málsins því að hann reyndi að beina athyglinni frá svínaskítnum með því að gagnrýna sveitarfélögin fyrír hvernig þau stæðu að frárennslis- málum sínum. I þessu máli fer best á því að hver hugsi um sig. Ef það er rétt hjá formanni Svínaræktarfél- agsins að svínabændur hafi metnað til að hafa þessi mál í lagi er best að þeir sýni þann metnað í verki. Neyt- endur og íbúar í nágrenni við svína- búin sætta sig ekki við neitt annað. XXX Víkverji hefur mikinn áhuga á bandarískum stjórnmálum og fylgist spenntur með forkosningum flokkanna sem nú era að hefjast. Lengi vel leit út fyrir að lítil spenna yrði í kosningunum. Flest benti til að A1 Gore varaforseti myndi auðveld- lega tryggja sér sigur í forkosning- um Demókrataflokksins og George W. Bush, ríkisstjóri í Texas, myndi sigra næsta auðveldlega keppinauta sína í Repúblikanaflokknum. Úrslit kosninganna í New Hampshire hleypa hins vegar aukinni spennu í kosningamar. John McCain, öld- ungadeildarþingmaður frá Arizona, vann sannfærandi sigur á Bush og þingmaðurinn og körfuboltahetjan Bill Bradley veitti Gore harða keppni. Víkverji getur ekki annað en hrif- ist af þrautseigju McCain, sem skyndilega er talinn eiga raunhæfa möguleika á að verða útnefndur frambjóðandi repúblikana. Hann hefur barist áfram þrátt fýrir að vera með miklu minna fjármagn í kosn- ingasjóðum en Bush og er þar að auki með flestalla forystumenn í flokknum á móti sér, en þeir styðja flestir Bush. McCain var á sínum tíma flugmað- ur í Víetnamstríðinu og var í rúm fimm ár í haldi í Hanoi. Flugvél hans var skotin niður og hann bjargaðist á ótrúlegan hátt, stórslasaðm-. I fanga- vistinni mátti hann þola pyntingar sem reyndu mikið á hann andlega sem líkamlega. Hann er því sönn hetja í augum Bandaríkjamanna. Sjáfur gerir McCain lítið úr hetju- skap sínum og segir: „Það krefst ekki mikilla hæfileika að vera skot- inn niður.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.