Morgunblaðið - 10.02.2000, Page 70
70 FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
TDPP ED
Vinsældalisti þar sem
þú hefur áhrif!
4 á uppieið 4 á niðurleið
stendur í stað .V nýtt á lista
Vikan 10.02. -17.02.
t. Dolphins Cry
Live
2. Hann
Véðís H. Árnad
Other side
Red Hot Chili Peppers
Okkar nótt
Sálin hans Jóns míns
5. Bad Touch
Bloodhound Gang
6. Crushed
Limp Bizkit
7. Sex Bomb
Tom Jones
4 8. Falling Away From Me
Korn
«► 9. Starálfur
Sigur Rós
10. I Learned from the best
Whitney Houston
4 11. Sexx Laws
Beck
4 12. The Great Beyond
R.E.M
4 13. BreakOut
Foo Fighters
4 14. Born to make you happy
Britney Spears
«► 15. Vínrauðvín
Ensími
4 16. What a girl wants
Christina Aguilera
4 17. Whatlam
Tin Tin Out & Emma B.
4 18. Mixed Biznez
Beck
4 19. Maria Maria
Santana
20. So long
Everlast
Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is.
® mbl.is
FÓLK í FRÉTTUM
50. alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Berlin
Reuters
Gestur á Berlínarhátíðínni sést hér ganga fram hjá einu auglýsingaskilti hátíðarinnar við Potsdamer-Platz.
Berlinale
fagnar hálfrar
aldar afmæli
Kvikmyndahátíðin 1 Berlín hófst með heimsfrum-
sýningu nýjustu myndar Wim Wenders, „The
Million Dollar Hotel“. Rósa Erlingsddttir kynnti
sér dagskrá hátíðarinnar sem nú er haldin í nýjum,
glæsilegum húsakynnum á Potsdamer-Platz.
í FYRSTA skipti er Berlinale-há-
tíðin, sem löngum hefur verið há-
punktur lista- og menningarlífs
Berlínar, haldin í gömlu miðborg-
inni á Potsdamer-Platz. Nú, árið
2000, heldur hátíðin upp á hálfrar
aldar afmæli sitt, rúmum tíu árum
eftir fall múrsins, í nýjum, glæsileg-
um kvikmyndahúsum á Potsdamer-
Platz. Hátíðin í ár ber þannig
áþreifanleg merki um þær pólitísku
og menningarlegu breytingar sem
orðið hafa á síðastliðnum áratug og
sýna jafnframt þróun Berlínar sem
heimsborgar. Ný borg, önnur borg
er að rísa á sundurtættri jörð hins
gamla, sögufræga torgs. Berlinale-
hátíðin er fyrsti menningarlegi
stórviðburðurinn í póstmódernísk-
um höllum nýju borgarinnar og á
hún eflaust eftir að festa sig þar í
sessi sem máttarstólpi menningar-
lífs þessa ævintýralands. Draumur
aðstandenda hátíðarinnar til
margra ára um að eignast sitt eigið
húsnæði, rétt eins og aðrar alþjóð-
legar hátíðir, er nú loks orðinn að
veruleika. Berlinale-Palats tekur á
móti gestum hátíðarinnar og býður
þeim upp á tíu daga kvikmynda-
veislu á heimsmælikvarða. Enn
setja byggingakranar og -grunnar
sterkan svip á leið gesta frá neðan-
jarðarlestinni að húsakynnum kvik-
myndahátíðarinnar við Marlene-
Dietrich-Platz sem enn sem komið
er minna helst á furðuverk í ævin-
týralandi.
Óhætt er að segja að hátíðin í ár
muni endurspegla þrjú meginsvið
kvikmyndaframleiðslu í heiminum í
dag; Evrópu, Suðaustur-Asíu og
Bandaríkin. Meira en helmingur
myndanna sem keppa til verðlauna
kemur að þessu sinni frá Evrópu
eða Suðaustur-Asíu, eða er undir
leikstjórn leikstjóra frá þessum
heimshornum. Flestar myndanna
verða heimsfrumsýndar núna í
Berlín og spanna verk óþekktra
leikstjóra sem og ný verk gamal-
kunnra meistara. Hátíðin stendur
yfir til 20. febrúar og tekur til sýn-
ingar á þriðja hundrað kvikmynda
frá öllum heimshornum. Tuttugu og
ein mynd frá tíu löndum er tilnefnd í
samkeppnisflokki og eiga þær
möguleika á að hreppa aðalverðlaun
hátíðarinnar, Gullna Björninn. I
samkeppnisflokki verða að auki
sýndar fimm bandarískar kvik-
myndir, sem keppa þó ekki til verð-
launa.
Paradís kvikmyndaunnenda
Sannur kvikmyndaunnandi
myndi þó halda því fram að sjálfa
paradís hátíðarinnar væri að finna í
hinum flokkum hátíðarinnar, þ.e.
Panorama og Forum. í Panorama-
flokknum er leitast við að gefa yfir-
sýn yfir alþjóðlega kvikmyndafram-
leiðslu síðastliðins árs með tilliti til
áhrifa á þróun evrópsks kvikmynda-
iðnaðar, og er sérstök áhersla lögð á
að velja myndir sem fást við samfé-
lagsleg málefni nútímans, sbr. veit-
ingu sérstakra verðlauna fyrir
bestu kvikmynd ársins sem á einn
eða annan máta tengist lífi samkyn-
hneigðra. Við lok hátíðarinnar eru
einnig veitt önnur verðlaun í Panor-
ama, meðal annars fyrir bestu heim-
ildarmyndina, stórmerkilegur
flokkur sem síðastliðin ár hefur að
mestu kynnt til sögunnar leikstjóra
og fréttamenn sem hætta lífi sínu
við að færa okkur heimildir um stríð
og hörmungar þess.
Markmið Forum-flokksins (For-
um des Jungen Films) er annars
vegar að kynna myndir ungra leik-
stjóra frá öllum heimshornum og
hins vegar að leiða athygli áhorf-
enda að listrænu sem og samfélags-
legu gildi kvikmyndaframleiðslu.
Forum-flokkurinn hefur verið róm-
aður fyrir pólitíska hugmyndafræði
sem byggir á mannhyggju. Handan
pólitískrar hugsmunabaráttu er
leitast við að gefa óháðum kvik-
myndum, jafnvel þeim sem mega
þola ritskoðun í heimalandi sínu,
möguleika á alþjóðavettvangi. Sem
dæmi má nefna kvikmyndir frá As-
íu, jafnvel N-Kóreu, en eins hafa
AP
Merki Kvikmyndahátíðarinnar í
Berlín er Berlínarbjörninn.
ungir austur-evrópskir, tyrkneskir
sem og leikstjórar frá fyrrum Júgó-
slavíu hlotið heimsathygli með
gagnrýnni umfjöllun um stjórnmál
og menningu heimkynna sinna í
Forum-flokknum.
Verður Berlinale samkeppnis-
hæf á Potsdamer-Platz?
Undirbúningur afmælishátíðar-
innar hefur staðið yfir í þrjú ár.
Forseti hátíðarinnar til tuttugu ára,
Von Moritz de Hadeln, segir að
ákvörðunin um fiutning Berlinale
hafi fyrst og fremst verið pólitísk,
en eins og er fæst enginn stjórn-
málamaður til að taka ábyrgð á
þeirri ávörðun. Peter Randunski,
sem fer með menningarmál í borg-
arstjórn Berlínar, segir æðri mátt-
arvöld hafa stýrt ákvarðanatökunni,
flutningurinn hafi í raun legið ljóst
fyrir þegar teknar voru fyrstu skófl-
ustungumar að höllum Sony og
Mercedes á Potsdamer-Platz. Borg-
aryfirvöld og ríkisstjórn hafa haldið
að sér höndum með fjárveitingar til
Berlinale síðastliðin ár.
Fyrrnefnd stórfyrirtæki eiga því
greiðan aðgang að fjármögnun
kvikmyndahátíðarinnar sem ætti að
teljast góð fjárfesting við upphaf
fyrirtækjareksturs í borginni.
Á tímum alþjóðavæðingar breyt-
ast hlutirnir hratt og ljóst er að
margur kvikmyndaunnandinn mun
sakna litlu, gömlu kvikmyndahús-
anna í kringum Zoologischer Gart-
en í miðborg Vestur-Berlínar. Hins
vegar er ekki annað að merkja en að
almenningur og fagfólk sem nú fylk-
ir liði að höllunum á Potsdamer-
Platz fagni breytingunum, stemmn-
ingin ber merki um mikla tilhlökkun
til þess sem koma skal. Ný Berlín
rís úr rústum sögunnar á svo undra-
verðan hátt að athygli heims-
pressunnar beinist aftur að henni og
talað er um annað þýskt undur á
þessari öld. Ný Berlinale-hátíð
verður einnig til og á sinn hátt mun
hún bera af öðrum kvikmyndaveisl-
um.