Morgunblaðið - 29.02.2000, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yeðurstofan segir að veðrið á sunnudag hafi verið í samræmi við spána
Aðstæður í Þrengslunum
áttu ekki að koma á óvart
TALIÐ er að allt að
1.500 manns hafi setið
fastir í snjó og skafrenn-
ingi í Þrengslum er þeir
ætluðu vestur yfir Hell-
isheiði á sunnudag.
Björn Sævar Einars-
son, veðurfræðingur á
Veðurstofu íslands,
sagði í gær að þessar að-
stæður hefðu ekki átt að
koma á óvart og verið í
samræmi við þær spár,
sem gerðar voru á
sunnudagsmorgun. Hins
vegar væri aðdráttarafl
Heklugossins slíkt að
menn hefðu lagt í hann á
illa búnum bflum og því
hefði farið sem fór.
Björn benti á að Um-
ferðarráð hefði gagnrýnt
fréttamenn fyrir að
segja að ekkert væri að
veðri og stjórnendur
björgunaraðgerða hefðu
sagt að ástæðan fyrir
þessum vandræðum væri
ein: Hekla.
Nýfallinn snjó fer að
skafa við 10 m
vindhraða
„Klukkan 10.03 spáði
ég 10 til 15 metra
vindhraða á sekúndu á
Suðurlandi og Faxaflóa,
en 13 til 18 metrum á sekúndu síð-
ar um daginn," sagði Björn, sem
var á vakt um helgina. „Fólk áttar
sig kannski ekki á því að nýfallinn
snjó fer kannski að hreyfa strax
Björn. „Þó að sagt hafi
verið að gott veður væri
í Hreppunum hefði fólk
getað sagt sér að þegar
spáð er norðan stórhríð
á Norðurlandi og miðhá-
lendinu hvessir líka á
heiðum. Þegar illa búnir
bílar festast síðan í
Þrengslunum komast
bílar, sem ella hefðu
komist leiðar sinnar,
ekki áfram. Einn, sem
fór í gegnum Þrengslin
milli fjögur og fimm, rétt
áður en þau lokuðust,
sagði að þetta hefði bara
verið rólegheitaþæfing-
ur, en blint. Um leið og
einn bíll festist fer hins
vegar að skafa á hann og
skaflarnir myndast."
Hann sagði að þótt
fréttamenn segðu að
gott veður væri á einum
stað yrði fólk að gera sér
grein fyrir því að það
þyrfti að komast þangað
og í þessu tilfelli hefði
verið yfir fjöll að fara.
Að sögn Björns var
vindhraði í Þrengslunum
milli klukkan 18 á
sunnudag og fimm á
mánudagsmorgun rétt
um 20 metrar á sekúndu
eða í neðstu mörkum
þess að vera stormur (9 vindstig):
„Þetta var ekkert aftakaveður,
þótt vissulega sé ekkert grín að
sitja fastur í bfl við slíkar aðstæð-
ur.“
Þessar tvær gervihnattamyndir sýna hvernig lægðin Iagðist yfir landið á sunnudag. Fyrri
myndin er frá því klukkan 6.01 um morguninn. Hin myndin var tekin klukkan 7.20 um kvöldið.
við 10 metra vind á sekúndu og við
15 metra er kominn blindaskafr-
enningur ef það er lausamjöll fyr-
ir.“
Hann sagði að reyndar hefði
verið ágætis veður á Suðurlands-
undirlendi allan daginn og fram á
kvöld.
„Það var verið að hvetja fólk til
að fara og skoða þetta,“ sagði
Skipulagsstjóri
um úrskurð
ráðherra
Þurfum
að fara
yfír máls-
meðferð
STEFÁN Thors skipulagsstjóri
telur að skoða þurfi almennt
meðferð mála hjá Skipulags-
stofnun, vegna úrskurðar um-
hverfisráðherra um væntanlegt
álver í Reyðarfirði.
Skipulagsstjóri úrskurðaði í
desember að Eignarhaldsfélag-
inu Hrauni ehf. bæri að láta
gera frekara mat á ákveðnum
þáttum fyrirhugaðra fram-
kvæmda við 480 þúsund tonna
álver í Reyðarfirði. Eignar-
haldsfélagið áfrýjaði úrskurðin-
um til umhverfisráðherra, vildi
að veitt yrði heimild fyrir fyrsta
áfanga álversins. Úmhverfis-
ráðherra ákvað fyrir helgi að úr-
skurður skipulags-stjóra skyldi
felldur úr gildi og málsmeðferð-
in öll ómerkt þannig að nýtt um-
hverfismat yrði að fara fram um
120 þúsund tonna álver.
„Við hefðum auðvitað vfljað
að ráðherra hefði staðfest úr-
skurð Skipulagsstofnunar. En
það var ekki gert. Þá kemur
okkur á óvart sú niðurstaða
ráðuneytisins að óheimilt sé að
fallast á hluta framkvæmda en
úrskurða aðra í frekara mat
enda eru til fordæmi fyrir því,“
sagði Stefán Thors skipulags-
stjóri þegar álits hans var leitað
á úrskurðinum. Telur hann að af
þessu tilefni þurfi að fara al-
mennt yfir málsmeðferð hjá
skipulagsyfirvöldum.
íslandsflug leigir Flugfélagi Islands tvær flugvélar sem félagið hefur notað í innanlandsflugi
Samkeppni í áætl-
unarflugi lokið
Morgunbiaðið/Sverrir
Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri Islandsfiugs, og Gunnar Þor-
valdsson, sljórnarformaður, kynntu að Islandsflug hættir samkeppni
við Flugfélag íslands í áætlunarflugi innanlands 1. apríl nk.
ÍSLANDSFLUG hefur leigt Flug-
félagi Islands báðar ATR-flugvélar
félagsins frá og með 1. aprfl og mun
hætta áætlunarflugi á þeim flug-
leiðum innanlands þar sem sam-
keppni hefur verið við Flugfélag Is-
lands. Það er á flugleiðunum milli
Reykjavíkur, Akureyrar, Egilsstaða
og Vestmannaeyja. Við það verður
engin samkeppni í áætlunarflugi
innanlands.
Vegna samningsins við Flugfélag
Islands mun íslandsflug segja upp
32 starfsmönnum af 160 eða 20% af
starfmönnum félagsins. Flugfélag
íslands mun nota aðra vélina í
fraktflug milli íslands og Bretlands.
Hin vélin verður nýtt í flug til
Grænlands, Færeyja og í innan-
landsflug. Að sögn Ómars Bene-
diktssonar, framkvæmdastjóra Is-
landsflugs, verða vélarnar leigðar á
markaðsverði, sem er um 60-70
þúsund Bandaríkjadalir eða 4-5
milljónir króna á mánuði, og mun
Flugfélag íslands taka yfir þá
samninga sem íslandsflug hefur
gert á þessum flugleiðum. Um
blautleigu er að ræða sem þýðir að
vélarnar eru leigðar með áhöfn og
íslandsflug ber ábyrgð á rekstri og
viðhaldi vélanna.
Áfram flogið til minni
áfangastaða innanlands
Að sögn Gunnars Þorvaldssonar,
stjórnarformanns íslandsflugs, geta
einhverjir af þeim starfsmönnum
sem verður sagt upp fengið vinnu
hjá Flugfélagi Islands.
Ómar segir að íslandsflug muni
áfram fljúga á minni áfangastaði,
þe. Vesturbyggð, Sauðárkrók,
Siglufjörð og Gjögur auk þess sem
félagið mun áfram sinna leiguflugi
innanlands og verða tvær af þrem-
ur Domier-vélum félagsins notaðar
í þau verkefni. Viðræður eru á loka-
stigi um leigu á þriðju vélinni.
Að sögn Ómars hefur félagið
meira en tífaldað veltu sína á níu
árum og á síðasta ári nam velta ís-
landsflugs rúmum tveimur milljörð-
um og var hagnaður af rekstrinum.
„En hagnaðurinn hefði orðið mun
meiri ef við hefðum ekki verið í inn-
anlandsflugi sem vegur einungis
um 25% af rekstri félagsins. Þetta
gefur okkur tækifæri til þess að
breyta áherslum ennfrekar en við
erum ekki að minnka við okkur í
flugrekstri heldur að breyta áhersl-
um.“
Flugfargjöld ekki
hækkuð á næstunni
Jón Karl Helgason, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags íslands,
segir að samningurinn muni ekki
hafa áhrif á flugfargjöld til
skemmri tíma litið enda ríki mun
meiri samkeppni við bfla heldur en
milli flugfélaga á innanlandsmark-
aði.
Tap hefur verið á rekstri Flugfé-
lags íslands og segir Jón Karl að
Flugfélagið telji að nú muni skapast
möguleiki á að hagræða í rekstri fé-
lagsins með stærri einingum. „Með-
al annars með betri sætanýtingu og
að við getum nýtt betur þau fram-
leiðslutæki sem við höfum. Það þarf
ekki að bæta við mörgum starfs-
mönnum hjá okkur og mun hag-
kvæmari einingar koma út úr þessu
án þess að verðið þurfi beint að
hækka.“
Aðspurður segir Jón Karl að um
einhverjar breytingar verði á ferða-
tíðni á þessa þrjá áfangastaði.
„Ferðatíðnin mun eflaust breytast
að einhverju leyti en það verður
væntanlega betri dreifing á ferðun-
um. Þetta hefur verið þannig að
báðir aðilar hafa verið að fljúga á
svipuðum tíma þannig að þjónusta
við farþega hefur ekkert endilega
verið betri þrátt fyrir að báðir aðil-
ar hafa verið að fljúga," segir Jón
Karl.
Hann segir að félagið hafi ekki
haft neitt samband við samkeppnis-
yfirvöld vegna leigunnar þar sem
ekki er um kaup né yfirtöku að
ræða. „Við vorum að leita að vélum
til fraktflutninga og þannig byrjaði
þetta allt saman.“
Fleiri en eitt verkefni í burð-
arliðnum hjá íslandsflugi
íslandsflug er með þrjár Boeing
737-flugvélar í rekstri.
Að sögn Gunnars eru Boeing-
vélamar allar fullnýttar og eru uppi
hugmyndir um að bæta við fleiri
vélum þar sem fleiri en eitt verk-
efni er í burðarliðnum en of
snemmt sé að greina frá því. Segir
hann að öll verkefni félagsins hafi
skilað ágætri afkomu nema innan-
landsflugið.
Aðspurður segist hann ekki telja
að Samkeppnisstofnun muni finna
að leigunni til Flugfélags íslands og
að samkeppni falli niður í íslensku
áætlunarflugi. „Því er ekki að leyna
að þessar leikreglur sem voru sett-
ar upp varðandi samkeppni á inn-
anlandsmarkaði hafa valdið okkur
talsverðum vonbrigðum. Þegar við
fórum út í þetta 1. júlí 1997 bjugg-
umst við við öðru og samkvæmt því
sem við höfðum kynnt okkur er-
lendis en það hefur nánast ekki
gengið eftir. Þetta hefur þó skilað
lægri fargjöldum sem hefur leitt af
sér að í dag ferðast um 400 þúsund
manns í flugi sem er aukning um
100 þúsund farþega á ári þrátt fyrir
betri vegasamgöngur."
Aðspurður segist Gunnar ekki
gera ráð fyrir að flugfargjöld hækki
á innlendum markaði í kjölfar
samnings félaganna. „Samkeppnin
hefur verið mjög heiftúðug og sæta-
nýting hjá báðum félögum mjög lít-
il. Nú þegar einn aðili er á stærstu
leiðunum hefur hann möguleika á
að hagræða og setja sætaframboð í
samræmi við eftirspurn þannig að
mér finnst það sjálfum að þetta eigi
ekki að leiða til hækkunar. En eins
og við þekkjum úr öðrum geirum er
það alltaf vafasamt og hættulegt að
vera einn,“segir Gunnar.
Alls eru um 10 hluthafar í
íslandsflugi og eru Gunnar Þor-
valdsson og Ómar Benediktsson
stærstir með 25-30% hlut saman.
Höldur á Akureyri á 20% , Eignar-
haldsfélagið Alþýðubankinn á 10%,
Sjóvá-Almennar 5% og Olís 5%.