Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 22

Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna ferjaði um 1.500 manns úr Þrengslunum Viðamesta björg- un síðari ára Morgunblaðið/Golli Það gekk ekki þrautalaust að koma bflunum í gang eftir að hríðinni slotaði. AÐGERÐINNI í fyrradag var að hluta til stjórnað frá aðgerðastjórnstöð björgunar- sveitanna í stórum trukki við Litlu kaffistof- una í Svínahrauni, en þar inni réði Víðir Reynisson, formaður svæðisstjórnar björg- unarsveitanna á höfuðborgarsvæðinu, ríkj- um. „Það eina sem kemst eitthvað nálægt þessu hvað varðar umfang eru snjóflóðin á Vestfjörðum," sagði Víðir. „Síðan hafa eldri menn einnig talað um fólksflutningana frá Vestmannaeyjum, sem komu í kjölfar eld- gossins árið 1973, í þessu samhengi." Víðir sagði að byrjað hefði verið að að- stoða menn upp úr klukkan fjögur í fyrra- dag. „Fyrst var lögð áhersla á að hreinsa Hell- isheiðina og umferðinni beint í gegnum Þrengslin, en síðan stoppaði allt þar,“ sagði Víðir. „Úm kvöldmatarleytið vorum við komnir með alla björgunarsveitabílana af höfuðborgarsvæðinu í gang og þá voru sveit- irnar fyrir austan einnig komnar með allt sitt í gang. Ég held að þegar allt er talið hafi á þriðja hundrað björgunarsveitarmanna verið við störf á svæðinu. Leitin að vélsleða- mönnunum kom upp um klukkan níu í gær- kvöld (fyrrakvöld) og skipulögð leit hófst upp úr miðnætti. Við ætluðum að fara með stóran hóp af snjóbílum í þá leit, en sökum þess hvað ástandið var orðið alvarlegt í Þrengsl- unum færðum við áhersluna svolítið þangað.“ Fólk ferjað með rútum „í Þrengslunum unnum við þetta þannig að við færðum fólk úr bílunum sínum og yfir í rútur og komum því þannig í bæinn. Við tókum fyrst fólkið sem var í dauðum bílum, það er rafmagns- og bensínlausum. Ég held að það sé ekki ofreiknað að segja að við höfum flutt um 1.500 manns í bæinn, bæði til Reykjavíkur og einnig austur fyrir. Það var endalaus straumur af rútum fram og til baka, en þær komust að afleggjaranum að Þrengslavegi. Á sjálfum veginum voru það snjóbflar sem ferjuðu fólkið yfir í björg- unarsveitarbíla, sem síðan keyrðu það að rútunum. Við vorum að ferja síðasta fólkið um klukkan hálfníu (í gærmorgun). Ég held að þetta sé eitt umfangsmesta verkefni sem við höfum tekið þátt í í langan tíma, en þetta var svolítið öðruvísi en það sem við höfum gert áður. Það er gífurleg skipulagsvinna sem liggur að baki svona að- gerð, því það þarf að samhæfa aðgerðir margra aðila, en ég held að það hafi bara gengið vel.“ Skreið út um glugga til að moka frá ptísti Morgunblaðið/Ómar Aðalbjörg Brynja Pétursdóttir, Soffi'a Jóhannsdóttur og Jóhann Bjarni Pét- ursson bíða rútunnar í Litlu kaffistofunni. Morgunblaðið/Ómar Feðgarnir Pétur Bjarnason og Jóhann Bjarni Pétursson voru fegnir að kom- ast af Þrengslaveginum og í skjól í Litlu kaffistofunni. „VIÐ vorum róleg í bflnum; vorum vel búin og með nesti. Krakkamir voru ró- leg og sváfu. Einna verst var þegar pústið fór að koma inn; við vorum orðin hálfsljó og rauðeygð en höfðum rifu á glugganum. Það var kominn skafl bfl- stjóramegin upp á miðja rúðu og upp á miðjar hurðir hinum megin. Við þurftum tvisvar að skríða út um glugga til að moka frá púst- inu.“ Svona segir Pétur Bjamason, fjölskyldufaðir í Reykjavík, frá vistinni í fjölskyldubflnum uppi Þrengslum, þar sem fjöl- skyldan beið frá um klukk- an fimm á sunnudag til klukkan tvö aðfaranótt mánudags. Þau hjónin, Pétur og Sof- fía Jóhannsdóttir, fóm með Jóhann Bjama, 5 ára, og Aðalbjörgu Brynju, níu mánaða, að skoða Heklug- osið á sunnudaginn. „Við fómm í fínu veðri austur að Heklu, eins og fleiri, og keyrðum upp Þjórsárdal- inn og niður Landsveitina og sáum í fjallið en ekki eld- gosið sjálft. En það var gaman að fara þama og við fengum ágætis veður á leið- inni í bæinn og þegar við komum í Hveragerði var heiðin lokuð og okkur var vísað á Þrengslin. Við renndum þangað og fljót- lega eftir að við komum á afleggjarann sáum við að það var ýmislegt að. Hesta- kerra var farin á hliðina á miðjum veginum, vörabíll var stopp og þama var bíll með brotinn kassa. Við vor- um í röðinni og vorum ró- leg,“ sagði Pétur. Hann segir að fyrst hafi röðin myndast á annarri akreininni en svo hafi óþolinmóðir bflstjórar reynt að fara yfir á hina akreinina en ekkert komist og þannig stíflað allan veg- inn, þannig að hvorki björgunar- sveitir né aðrir hafi komist um. Hann segir að púst frá bílunum fyr- ir framan hafi farið að koma inn á miðstöðina og eins hafi skafið fyrir púströrið á bílnum hans. Tvisvar skreið hann út um glugga til að moka frá rörinu en gafst fljótlega upp á að hreinsa hrím af rúðum. Pétur, sem er félagi í björgunar- sveitinni Ingólfi, segist hafa komið boðum til félaga sinna sem vom á ferð milli bflanna um að vara fólk við að fylgjast með púströmnum. Væsti ekki um fólkið „Þetta tók allt tíma; við vomm þama frá um hálffimm til klukkan hálftvö um nóttina, þá komu þeir á siyóbíl og fóm með okkur í Litlu kaffistofuna þar sem við biðum eftir rútu í svona hálftíma." Hann segir að ekki hafi væst um bömin sín í bflnum. „Þeim leið mjög vel og sváfu í bflnum en vöktu á leið- inni niður úr. Jóhanni Bjarna fannst þetta mjög spennandi og sagði: „Ég er björgunarmaður," en Aðalbjörg var með galopin augun og skoðaði allt af mikilli athygli." A.m.k. 1.500 flutt- ir úr Þrengslum UM 200 manns unnu í björgunar- sveitum frá klukkan fimm á sunnu- dag til klukkan níu í gærmorgun við að flytja að minnsta kosti 1.500 manns úr bílum, sem sátu fastir í Þrengslum, til byggða. Meira en 400 bflar sátu fastir í Þrengslunum. Þetta var einhver víðtækasta björg- unaraðgerð sem hér hefur farið fram síðan í Vestmannaeyjagosinu árið 1973. Þorsteinn Þorkelsson, í lands- stjóm björgunarsveita, sagði að fyrsta tilkynning um vandræði við umferð í Þrengslum hefði borist landsstjóm um klukkan fimm. Þetta hefðu verið óljósar upplýsingar frá björgunarsveitum í Þorlákshöfn um bfla í vandræðum og með beiðni um aðstoð. „Þá fór boltinn að rúlla,“ seg- ir Þorsteinn. „Síðan bámst upplýs- ingar um fleiri og fleiri en það var lé- legt skyggni og vont veður og erfitt að sjá til. Það tókst ekki að ná utan um umfang málsins í fyrstu og það var ekki fyrr en um eittleytið um nóttina að það kom í ljós hve gífur- legt vandamál þarna var á ferðinni." Þorsteinn segir að fyrstu aðgerðir hafi falist í því að skanna alla bfla, tala við fólk og flytja þá fyrst í burtu sem vora veikir eða veikir fyrir. Þannig var kona langt gengin með barn flutt í burtu og fólk sem átti við veikindi að stríða. Síðan var farið skipulega að tæma bfla og umfangið aukið eins og hægt er en tækjaskort- ur setti starfinu ákveðin takmörk, m.a. vegna þess að hluti tækjanna var bundinn við leit að vélsleða- mönnum á Hengilssvæðinu og Mos- fellsheiði. „I Þrengslunum vomm við með sex snjóbfla og jeppa, sem erfitt var að koma að,“ sagði Þorsteinn. „Þeir sem sóttu fólk að austan fluttu það í Þorlákshöfn en þeir sem sóttu að vestan selfluttu fólk að Þrengsla- vegamótum þaðan sem bflar óku fólki að Litlu kaffistofuni. Þar vora rútur sem fluttu fólk til Reykjavíkur. Milli klukkan þrjú og fjögur um nótt- ina var komið á ákveðið vinnuferli." Allar björgunarsveitir frá Hellu í austri og um gjörvallt höfuðborgar- svæðið tóku þátt í aðgerðunum, alls 150-200 manns með 20 bíla og níu snjóbíla. „Leitaraðgerðin, sem var í gangi um leið tók smákraft úr okkar afli; við vomm með tvo snjóbfla í þeirri leit,“ sagði Þorsteinn. „Við lentum líka í vandræðum með einn og einn snjóbfl, sem datt út um tíma vegna bilana." Þorsteinn segir að a.m.k. 1.500 manns hafi verið fluttir ofan úr Þrengslum til byggða. Þetta sé var- lega áætlað en ekki hafi verið farið að skrá fólk nákvæmlega fyrr en um klukkan 2 í fyrrinótt. Þetta er einhver umfangsmesta björgunaraðgerð sem farið hefur fram hér á landi og Þorsteinn segir að menn hafi alls ekki áttað sig á um- fanginu í fyrstu. Hann segir að oft sé talað um að björgunarsveitirnar eigi mikið af „græjum“ en í fyrrinótt hafi berlega komið í ljós að ekki var nóg til og menn vom á þönum út og suður að reyna að nálgast tæki sem mættu koma að gagni. Hundruð nætur-. gesta í Hveragerði Hveragerði. Morgunbiaðið. ALMANNAVARNANEFND Hveragerðisbæjar var ekki kölluð út þrátt fyrir ástandið í bæjarfélaginu. Hundmð veðurtepptra aðkomu- manna fengu gistingu á hótelum, gistiheimilum og einkaheimilum í Hveragerði í fyrrinótt. Guðmundur Baldursson er tækni- fræðingur Hveragerðisbæjar. Hann sagði að bæjarfélagið væri óvenju vel í stakk búið til að taka á móti svona mörgum ferðalöngum en í bænum era margir staðir sem eiga létt með að taka á móti mörgum gestum, svo sem Hótel Örk og þó nokkur gistiheimili. Heilsustofnun NLFÍ hýsti hátt í tvö hundruð ferða- langa og síðan var fjöldi fólks á einkaheimilum. Að sögn Guðmundar var starfsfólk gmnnskólans beðið um að vera í við- bragðsstöðu ef á þvíhúsnæði þyrfti að halda til að hýsa fólk en síðan kom í ljós að ferðalangarnir komu sér flestir í hús með öðmm hætti þannig að það kom aldrei til að opna þyrfti gmnnskólann. Eftir að Hellisheiðin var opnuð, skömmu fyrir hádegi, fóra nætur- gestirnir svo vestur yfir heiðina og má segja að bærinn hafi tæmst á ný á fáeinum mínútum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.