Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 31
ERLENT
Ráðherrar Austurríkis eiga erfítt á ESB-fundum
Lagalegar varnarað-
gerðir hugsanlegar
KARL-HEINZ Grasser, fjármála-
ráðherra Austurríkis, þurfti að láta
sér lynda táknræn mótmæli starfs-
bræðra sinna frá hinum Evrópu-
sambandslöndunum fjórtán á fundi
ráðherranna í Brussel í gær. En
hann varaði einnig við því að væru
réttindi Austurríkis sem ESB-aðild-
arlands brotin áskildu stjómvöld í
Vín sér rétt til að grípa til lagalegra
vamaraðgerða.
Þetta var í fyrsta sinn sem hinn
31 árs gamli Grasser, sem er með-
limur í austurríska Frelsisflokkn-
um, mætti á ESB-ráðherrafund, en
leiðtogar hinna ESB-landanna 14
bragðust við þátttöku Frelsisflokks-
ins í nýrri ríkisstjóm Austurríkis
með því að lýsa því yfir að þau
myndu skera á tvíhliða pólitísk
tengsl við Austurríki. Þó segja for-
mælendur þessara aðgerða að þær
eigi ekki að hafa áhrif á þátttöku
austurrískra fulltrúa í hinu formlega
fjölþjóðlega samstarfi ESB. Sumir
ráðherramir tóku ekki í hönd Gras-
sers og sumir þeirra tóku þýðingar-
heyrnartólin af sér þegar hann tal-
aði. Enginn fór þó af fundinum.
Samtímis fjármálaráðherrafund-
inum í Brussel hittust varnarmála-
ráðherrar ESB í Sintra í Portúgal,
og þar lýsti belgíski ráðherrann
Andre Flahaut því yfir að Belgíu-
stjóm hygðist skera á allt varnar-
málasamstarf við Austurríki. Vam-
armálaráðherra Austurríkis,
Herbert Seheibner, er í Frelsis-
flokknum. Og Louis Michel, utanrík-
isráðherra Belgíu, bætti um betur í
viðtali við belgíska vikublaðið
Joumal du Mai'di sem kemur út í
dag, þriðjudag, og lýsti því fullum
fetum yfir að hann vildi fella austur-
rísku ríkisstjórnina. Belgískir og
franskir ráðamenn hafa gengið
lengst í að krefjast aðgerða gegn
Austurríki.
Grasser lýsti yfir einlægum vilja
sínum til að eiga uppbyggilegt sam-
starf í ráðherraráðinu en varaði við
því að gengju hin aðildarríkin lengra
í aðgerðum sínum kynni það að kalla
á mótaðgerðir af hálfu Austurríkis-
stjórnar. „Þeir sem tala um umburð-
arlyndi ættu sjálfir fyrst að sýna
umburðarlyndi," sagði hann.
Benita Ferrero-Waldner, utanrík-
isráðherra úr Þjóðarflokknum, tók
fram í viðtali við austurrísku ORF-
sjónvarpsstöðina á sunnudag, að
stjómin útilokaði ekki að grípa til
viðeigandi lagalegra aðgerða. Sér-
fræðingar væru nú að kanna hvort
réttindi Austurríkis sem aðildarríkis
ESB hefðu verið brotin. Schussel
kanzlari hafði einnig gefið svipað til
kynna í viðtali við þýzka fréttatím-
aritið Focus. Ferrero-Waldner benti
á, að óánægju gætti í nokkram
ESB-landanna 14 með framgönguna
gegn Austurríki. Svissneskur sérf-
ræðingur í Evrópurétti, Waldemar
Hummer, hefur í grein í Neue
Ziircher Zeitung fært rök fyrir því
að með aðgerðum sínum hefðu
ESB-ríkin 14 brotið á réttindum
Austurríkis. Stjórnvöld í Vín gætu
því kært aðgerðirnar til Evrópu-
dómstólsins í Lúxemborg.
afeuðinni' Hvia
m i smmm
eéa aðmr iqtpfysmgar um sþmkfjiústfrt
Hre:r múi’ptmnur fmr aóeim én ksgkramu
Hagkaup Skeifunni Sími 5$3 5125
Nýkaup Kringlunni Sími 553 5125