Morgunblaðið - 29.02.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.02.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 33 Lögreglumenn sýknaðir af ákæru um morð á blökkumanni í New York Magnar ásakanir um kyn- þáttafordóma í lögreglunni NewYork.AP, AFP. AP New York-búar mótmæla sýknudómi í máli fjögurra lögreglumanna sem voru sýknaðir af ákæru um morð á blökkumanni á föstudag. SÝKNUDOMUR í máli fjögurra hvítra lögreglumanna, sem urðu blökkumanninum Amadou Diallo að bana í New York fyiir ári, hefur kynt undir ásökunum um að kynþáttafor- dómar viðgangist meðal lögreglu- manna í Bandaríkjunum. Nokkrir kviðdómaranna, sem sýknuðu lög- reglumennina, fullyrtu hins vegar að sýknudómurinn tengdist á engan hátt kynþáttafordómum. Rúmlega 1.000 manns söfnuðust saman við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York á sunnudag til að mótmæla sýknudómnum og prest- urinn A1 Sharpton, sem stóð fyrir mótmælunum, sagði að markmiðið hefði verið að vekja athygli þjóða heims á málinu. „Fómarlambið hefði getað verið einn af sendiherrunum hjá Sameinuðu þjóðunum,“ bætti hann við. Nokkrir mótmælendanna héldu á skiltum með áletruninni: „Það er í lagi að skjóta. Ég er svartur þannig að það er réttlætanlegt." Hreyflng Sharptons rannsakar nú hvaða fyrirtæki hafa gefíð fé í samtök lögreglumanna sem studdu málsvöm hinna ákærðu fjárhagslega. Sharpton hyggst birta lista yfir fyrirtækin síðar í vikunni og mælast tfl þess að Banda- ríkjamenn hætti öllum viðskiptum við þau. Önnur hreyftng kvaðst ætla að höfða mál gegn New York-borg á þeirri forsendu að drápið á Diallo ætti rætur að rekja til slæmar þjálfunar og kynþáttafordóma lögreglumanna. Amadou Diallo, innflytjandi frá Gíneu, var skotinn til bana við and- dyri fjölbýlishúss síns í Bronx. Hann var óvopnaður en stakk hendinni í vasann og tók upp svartan hlut, sem lögreglumennimir héldu að væri byssa en reyndist vera veski. Þeir skutu 40 byssuskotum og nítján þeirra hæfðu Diallo. Að sögn sér- fræðinga, sem rannsökuðu lík hans, var fimm byssukúlum skotið á hann eftir að hann lést. Lögreglumennimir sögðu að Diallo hefði virst gmnsamlegur, reynt að komast undan og þeir hefðu talið sig þurfa að skjóta á hann í sjálfsvöm. Bandaríska dómsmálai'áðuneytið hyggst rannsaka mál lögreglumann- anna og hugsanlegt er að þeir verði leiddir fyrir alríkisdómstól komist Janet Reno dómsmálaráðherra að þeirri niðurstöðu að þeir hafi brotið gegn borgaralegum réttindum Diallos. Sagt til marks um „kynþáttaklofning“ Blökkumenn og hreyfingar, sem berjast fyrir réttindum minnihluta- hópa, hafa efnt tfl mótmæla í New York síðustu þrjá daga vegna sýknu- dómsins. Lögreglan sagði að 95 mót- mælendanna hefðu verið handteknir. James McCarthy, aðstoðarbiskup kaþólsku kirkjunnar í New York, sagði söfnuði sínum að mál Diallos gæfi tilefni til að hugleiða „tilhneig- ingu okkar tfl ofbeldis, ótta og ef til vfll kynþáttafordóma". Phillip Wogaman, prestur meþód- istakirkju í Washington, sagði að eng- inn ætti að bera brigður á niðurstöðu kvikdómsins en bætti við að eftirmál sýknudómsins sýndu að Bandaríkin væru ekki enn laus við „alvarlegan kynþáttaklofning“. Bfll Clinton Bandaríkjaforseti var við messu Wogamans en hefur ekki rætt sýknudóminn opinberlega. Eig- inkona hans, Hillary, sem hyggst bjóða sig fram í New York í kosning- um tfl öldungadeildarinnar í nóvem- ber, baðst afsökunar á því að hafa tal- að um drápið á Diallo sem „morð“ en sagði að gera þyrfti ráðstafanir tfl að bæta samskipti lögreglunnar við blökkumenn. Mótmælendumir í New York hafa einkum beint spjótum sínum að Ru- dolph Giuliani borgarstjóra, repúblik- ana sem sækist einnig eftir öðru sæta New York í öldungadeildinni. Giuliani tók ummæli Hfllary óstinnt upp og sagði að hann hefði lagt mikla áherslu á að fjölga blökkumönnum í lögreglu borgarinnar og þegar varið tfl þess 10 milljónum dala, andvirði 720 mflljóna króna. Um 67% lögreglumanna New York-borgar eru hvít þótt hvítir íbúar borgarinnar séu aðeins 43%. „Ákæruvaldið færði ekki sönnur á sakargiftirnar“ Kviðdómurinn var skipaður fjórum blökkukonum, hvítri konu og sjö hvít- um karlmönnum. Formaður kvið- dómsins, blökkukonan Arlene Taylor, sagði að sýknudómurinn tengdist á engan hátt kynþáttafordómum. Helen Harder, eina hvíta konan í kviðdómnum, tók í sama streng og sagði að hann hefði ekki getað komist að annarri niðurstöðu. „Staðreynd- imar voru mjög skýrar. Kjami máls- ins er að ákæruvaldið færði ekki sönnur á sakargiftirnar,“ sagði hún. Þrír aðrir kviðdómarar sögðust sannfærðir um að lögreglumennimir hefðu talið sig í lífshættu. „Þeir hafa rétt tfl að verja sig,“ sagði einn þeirra. Ritt strax forsíðuefni Kaupmannahöfn. Morgunhladið. ÞAÐ VAR ekki liðinn sólar- hringur frá því að Ritt Bjerre- gaard, fyrrum fulltrúi Dana í framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins, ESB, var skipuð matvælaráðherra þar til hún var komin á forsíður danskra blaða. Það þótti fréttnæmt að hún hefði 1,8 milljónir danskra króna í árslaun, tæpar tuttugu milljónir íslenskra ki'óna, sem era drjúgum hærri tekjur en flokksbróðir hennar Poul Ny- rap Rasmussen forsætisráð- herra hefur. Einnig vakti það athygli að hún hóf strax að gefa yfirlýsingar, sem fremur bentu til að hún áliti sig vera orðna forsætisráðherra fremur en óbreyttan ráðhema. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem launamál jafnaðarmanna- ráðherrans verða fréttamatur. Ástæðan fyrir háum launum hennar nú, sem era hærri en forsætisráðherralaunin, er sú að hún hefur eftirlaun frá fram- kvæmdastjóminni í Brassel, sem hún er þegar farin að fá af, þótt hún hafi ekki náð eftir- launaaldri. Vill EMU-atkvæða- greiðslu hið fyrsta Yfírlýsing Ritt um álit hennar á dagsetningu þjóðaratkvæða- greiðslu um aðild Dana að Efna- hags- og myntsambandinu, EMU, vakti þó öllu meiri póli- tíska athygli. Skiptar skoðanir hafa verið um hvenær halda ætti þjóðaratkvæðagreiðslu, ýmist rætt um komandi haust eða snemma næsta vor. Ritt, sem er ákafur talsmaður danskrar EMU-aðildar, lýsti því strax yfir að hún áliti að at- kvæðagreiðslan ætti að fara fram hið fyrsta, helst strax í haust. Ef til þess kemur þarf flokkur hennar að efna til auka- þings um EMU nú á næstunni. Flokksstjórnin kysi það gjarn- an, en álitið er að óbreyttir flokksmenn litu slíka skyndiá- kvörðun homauga, þannig að aukaþingið er ákaft deiluefni í flokknum þessa dagana. Albright næsti forseti Tékklands? Washington. AFP. TÍMARITIÐ Time hefur eftir heim- ildarmönnum sínum að Madeleine Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, íhugi nú að gefa kost á sér í embætti forseta Tékklands eftir að síðara kjörtímabili Bills Clintons Bandaríkjaforseta lýkur á næsta ári. James Rubin, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði hins vegar að Albright hefði ekki í hyggju að sækjast eftir forsetaembættinu í ættlandi sínu. „Tékkneskir embættismenn hafa stungið upp á þessu öðra hverju,“ sagði Rubin á sunnudag. „Hún hefur alltaf neitað því og hefur aðeins hug á að starfa fyrir Bandaríkin. Henni þykir það auðvitað mikill heiður að háttsettir tékkneskir embættismenn skuli íhuga þann möguleika að hún verði forseti í ættlandi sínu. Hún hefur aldrei íhugað það alvarlega." I nýjasta hefti Time, sem kom út í gær, er haft eftir ónafngreindum heimildarmönnum að Albright hafi skýrt „mflligöngumönnum" frá því að hún hafi hug á að gefa kost á sér í embættið en vilji ekki ræða það fyrr en hún láti af störfum sem utanríkis- ráðherra í janúar á næsta ári. Vaclav Havel, forseti Tékklands, er sagður hlynntur því að Albright taki við embættinu þegar kjörtíma- bili hans lýkur árið 2003. Að sögn breska útvarpsins BBC fékk hann þá hugmynd fyrir einu og hálfu ári þegar hann var á heimleið eftir opin- bera heimsókn til Bandaríkjanna. „Mér datt þetta í hug í flugvélinni á leiðinni heim þannig að ég fékk ekki tækifæri til að inna hana eftir því,“ hafði BBC eftir forsetanum. Michael Zantovsky, fyrrverandi sendiherra Tékklands í Bandaríkj- unum, sagði hins vegar á sunnudag að hann hefði hitt Havel í vikunni sem leið og þeir hefðu m.a. rætt þann möguleika að Albright gæfi kost á sér í embættið. „Ég hef aldrei farið leynt með að ég tel að Made- leine Albright geti einhvern tíma þegar fram líða stundir gegnt mikil- vægu hlutverki í tékkneskum stjóm- málum,“ sagði Zantovsky. Fer í heimsókn til Tékklands Ráðgert er að Albright fari í þriggja daga heimsókn til Tékklands í næstu viku til að vera viðstödd há- tíðahöld í tilefni þess að 150 ár verða þá liðin frá fæðingu tékknesku þjóð- hetjunnar Tomas Masaryks, sem varð fyrsti forseti Tékkóslóvakíu ár- ið 1918. Faðir Albright var tékkneskur stjórnarerindreki og flúði með fjöl- skyldu sinni til London þegar Þjóð- verjar hertóku heimaland þeirra í byrjun síðari heimsstyrjaldarinnar. Fjölskyldan sneri þangað aftur en fluttist til Denver í Bandaríkjunum árið 1948 eftir að kommúnistar kom- ust til valda í Tékkóslóvakíu. Samkvæmt stjórnarskrá Banda- ríkjanna geta þeir, sem fæddir era erlendis, ekki gegnt bandaríska for- setaembættinu en ekkert virðist vera því til fyrirstöðu að bandarísk- ur ríkisborgari verði þjóðhöfðingi annars lands. Valdas Adamkus var til að mynda embættismaður í Bandaríkjunum áður en hann varð forseti Litháens. Stríðið í Kosovo gæti sett strik í reikninginn Albright naut mikilla vinsælda í byrjun síðasta árs þegar skoðana- könnun tékknesks dagblaðs benti til þess að hún væri álitin meðal merk- ustu Tékka sem nú era uppi. Vinsældir hennar kunna þó að hafa minnkað vegna hernaðarað- gerða Atlantshafsbandalagsins í Kosovo, sem hafa verið kallaðar „stríð Madeleine“ í Tékklandi. Við- horfskannanir bentu til þess að 75% Tékka væra andvíg hernaðinum. HITACHI SKpirokkur • Spindillæsing • 600w, 115mm • Lipur og léttur • Fyrir iðnaðar- manninn 4.995 kr. HÚSASMIDJAN Sími 525 3000 • www.husa.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.