Morgunblaðið - 29.02.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 35
LISTIR
Jón Dan
Eftir Jóhann Hjálmarsson
SJÖTTI áratugurinn er um margt
merkilegur í íslenskum skáldskap,
ljóðum og sagnagerð. Ný ljóðskáld
komu fram og í sagnagerðinni urðu
hræringar, ekki síst í smásagnagerð.
Það vakti athygli að ungur skrifstofumað-
ur í Reykjavík, Jón Dan, hlaut 1. verðlaun í
smásagnasamkeppni Samvinnunnar og
Helgafells 1955 fyrir smásögurnar Jörð í
festum og Kaupverð gæfunnar.
Þetta var upphefð sem vakti athygli á
höfundinum, en hann hafði vel að merkja
áður unnið til verðlauna.
Þess vegna var það að menn opnuðu eftir
hann smásagnasafnið Þyt um nótt, 1956,
fyrstu bók höfundarins, með eftirvæntingu
og fáir hygg ég að hafi orðið fyrir vonbrigð-
um.
Einkunnarorð smásagnasafnsins sótti
Jón Dan til heimspekingsins Spinoza:
„Ánauð kalla ég vanmátt mannsins til að
stjórna tilfinningum sínum eða halda þeim í
skefjum. Því sá, sem er á valdi tilfinninga
sinna, er ekki sjálfum sér ráðandi..."
Það voru hin innri öfl og umhverfi sem
Jón Dan beindi sjónum sínum að, síður
samfélagið sem þó var í tísku í skáldskapn-
um. Hann er ekki raunsær í þeirri merk-
ingu að vera ádeilugjarn eins og Bjarni
Benediktsson frá Hofteigi benti á og sögur
hans engan veginn raunsæjar eins og Erl-
endur Jónsson kemst að orði: „ Ennfremur
eru sögur Jóns Dans næsta óháðar ári og
öld. Oft er vant að ráða af efni þeirra, hve-
nær þær eiga að gerast. Gamla og nýja tím-
anum er einatt ruglað saman.“
Eflaust hafa þesi einkenni skáldskapar
Jóns Dan háð mati á honum.
Dul sumra sagnanna í Þytur um nótt sem
líka má finna í skáldsögum hans helst í
hendur við ástríður og ofurvald tilfinninga
sem hann lagði rækt við. Að þessu leyti
stendur Jðn ekki einn en að mörgu leyti sér.
Fyrstu skáldsögur Jóns Dan, Sjávarföll
(1958) og Tvær bandingjasögur (1960)
fengu að gjalda þessa. Þó er samfélagið síð-
ur en svo fjarverandi í þessum bókum.
Sjávarföll er afar geðfelld saga og læsi-
leg, kannski það nýstárlegasta (einkum
fyrri hlutinn) sem eftir Jón Dan liggur.
I Tveim bandingjasögum eru átök sem
sýna að höfundurinn er óhræddur og hefur
boðskap að flytja þrátt fyrir allt. Þessar
tvær sögur, Nótt á blæng og Bréf að aust-
an, gefa til kynna aukinn félagslegan vilja
höfundarins, en sögurnar eru mótaðar af
gömlum tíma í sveitinni og ná varla með
sannfærandi hætti inn í nútímann þótt
vandi borgarlífsins sé kominn til skjalanna í
síðari sögunni.
Eftir langa þögn kemur svo skáldsagan
„Dul sumra sagnanna í Þytur
um nótt sem líka má finna
í skáldsögum hans helst
í hendur við ástríður og ofur-
vald tilfinninga sem hann
lagði rækt við. “
Atburðirnir á Stapa (1973), nokkuð gáska-
full saga þar sem þjóðsagnakenndur veru-
leiki tekur völdin og höfundur teflir á tæp-
asta vað. Sumum þótti of langt gengið, aðrir
nutu þessarar skemmtilegu sögu, stfls og
frásagnar sem Jón kunni svo góð tök á.
Atburðirnir á Stapa er ekki alveg laus við
það töfraraunsæi (Kýrin Dumba, portú-
gölsk prinsessa) sem síðar átti eftir að
verða áberandi í skáldsagnagerð. En aðal-
persónan, Stapajón, stendur föstum rótum.
1919 árið eftir spönsku veikina, kom út
1987. Jón sagði í viðtali að þessi saga tæki
við af Sælir eru einfaldir eftir Gunnar
Gunnarsson, en kvaðst ekki fara í nokkurn
samjöfnuð.
Sagan gerist á Vatnsleysuströnd og er
byggð á reynslu Jóns á Brunnastöðum.
Söguhetjan er Valgerður sem tekur að sér
að sjá um barnmargt heimili. Eins og höf-
undurinn hefur bent á er það þó ástin sem
ræður ferðinni, aðallega leynt en líka ljóst.
Þetta er sjálfsævisöguleg bók, en í íleiri
bókum sínum lýsir Jón umhverfi bernsk-
unnar og sækir þangað efni.
Jón Dan skrifaði um tilfinningar og var
örlátur á þær í verkum sínum. Engu síður
var hannn hljóðlátur maður, kannski einum
um of í verkunum.
Mér virðist honum hafa best tekist hin
vandmeðfarna list smásögunnar og nefni þá
sögur eins og verðlaunasögurnar fyrr-
nefndu ásamt Blautu engjunum í Brokey,
Ánamöðkum og Leiksoppum.
Jón Dan var líka ljóðskáld eins og hin at-
hyglisverða ljóðabók, Berfætt orð (1967), er
m.a. til vitnis um. Einnig samdi hann leikrit
og sögur handa börnum.
„Því skal ég hógvær þreyja
og una því, að ég er duft“
LEIKLIST
Neskirkja
JOB
Leikhópur án nafns. Leikgerð:
Sveinn Einarsson og Arnar Jóns-
son. Leikstjóri: Sveinn Einarsson.
Leikari: Amar Jónsson. Leikbrúð-
ur: Helga Steffensen. Tónlist: Ás-
kell Másson. Orgelleikari: Douglas
A. Brotchie. Lýsing: Lárus Björns-
son. Hljóðmaður: Þórður Aðal-
steinsson. Þýðing á ljóðtexta: Helgi
Hálfdanarson. Flytjendur tónlistar
á geisladiskum: Áskell Másson og
Camilla Söderberg.
Sunnudagur 27. febniar
ÓFÁIR listamenn - myndlistar-
menn, skáld, tónlistarmenn og
heimspekingar - hafa í gegnum
aldirnar lagt út af og glímt við efni
Jobsbókar, eins og Kristinn Ólason
bendir á í vandaðri leikskrá þeirr-
ar sýningar sem hér um ræðir:
Dante, Goethe, Milton, Bashevis-
Singer, Blake, Hándel, Brahms,
Hobbes, Kant, Hegel, Bloch og
Kierkegaard, svo nokkrir séu
nefndir. Þessa upptalningu mætti
tengja íslensku samhengi með því
að bæta við nafni Ólafs Gunnars-
sonar sem vinnur markvisst út frá
efni Jobsbókar í nýjustu skáldsögu
sinni, Vetrarferðinni, sem kom út
síðastliðið haust.
Margir valinkunnir íslenskir og
erlendir listamenn koma að upp-
færslunni á texta Jobsbókar sem
frumsýnd var í Neskirkju síðastlið-
ið sunnudagskvöld. Sveinn Einars-
son og Arnar Jónsson, sem jafn-
framt er eini flytjandi textans, hafa
unnið saman leikgerðina sem (ef ég
hef skilið það rétt) byggist annars
vegar á texta Biblíunnar (í útgáfu
Hins íslenska Biblíufélags) en hins
vegar á þýðingum Helga Hálfdan-
arsonar á enskri útgáfu á ræðu-
köflum bókarinnar sem eru að
mestu leyti í bundnu máli. Áskell
Másson tónskáid hefur síðan „tón-
skreytt" verkið (ef svo má að orði
komast) á áhrifaríkan máta. Frá
sjónarhóli leikmanns fellur tónlist
Áskels afar vel að textanum, bygg-
ing hennar helst í
hendur við verkið;
er lágmælt í byrjun
en fer vaxandi með
auknum þunga text-
ans og nær hápunkti þeg-
ar Guð birtist Job og
talar til hans úr
stormviðrinu.
Ai'nar Jóns-
son er eini
flytjandi textans, auk þess
að túlka Job er hann
sögumaður og leikur hina
þrjá vini Jobs: Elífas,
Bildad og Sófar, sem hver
um sig reynir að finna
réttlætingu fyrir því að Guð
leggur slíkar þjáningar á Job og fá
hann til að viðurkenna að hann hafi
til þeirra unnið. Hluti textans er
fluttur af bandi (með rödd Arnars)
og hljómar þá sem „innra tal“ eða
hugleiðingar Jobs. Þá er að lokum
að telja nokkrar skemmtilegar
leikbrúður, sem Helga Steffensen
hefur gert, og sögumaður notar í
frásögn sinni. Hér er því ekki um
„venjulegan" einleik að ræða, held-
ur er sköpuð fjölbreytni með tón-
list, rödd af bandi og brúðum sem
hvert um sig gegnir hlutverkum
nokkurs konar mótleikara Arnars í
sýningunni.
Arnar Jónsson er þekktur fyrir
sína litríku, styrku og þéttu rödd
og hér naut hún sín til fullnustu og
(með rafrænni aðstoð) hljómaði
hún vel um alla kirkjuna í öllum
sínum blæbrigðum, allt frá örvænt-
ingarfullu hvísli til ákafrar undrun-
ar og reiði Jobs yfir örlögum sín-
um. Arnar leysti hlutverk sitt af
öryggi og listrænu innsæi og leikur
hans höfðaði sterkt til jafnt sjónar,
heyrnar og tilfinninga áhorfand-
ans, enda er hér um að ræða texta
sem hlýtur að höfða til allra manna
í sannleika sínum og tímaleysi.
Því það er vissulega textinn
sjálfur sem er aðall þessarar sýn-
ingar, texti sem er ótrúlega „nú-
tímalegur" kominn til okkar í
gegnum árþúsundirnar. í
Jobsbók er hinn mann-
lega þjáning í brenni-
depli, þjáning og sorgir
sem lagðar eru á hina rétt-
látu jafnt sem ranglátu, þján-
ingin sem maðurinn reynir í
örvæntingu
sinni að
glíma við og
skilja í van-
mætti sínum og smæð gagnvart
hinu mikla gangvirki Guðs (eða til-
verunnar). Þessi texti er ekki að-
eins hafsjór af speki og hugleiðing-
um sem tjá mannlegan ótta, efa og
þjáningu, hann er einnig listavel
saman settur í öllu tilliti, hvort
sem litið er til byggingarinnar í
heild eða til einstakra setninga.
Helgi Hálfdanarson hefur þýtt
stóran hluta hins bundna máls og
er handbragð hans auðþekkt í ljóð-
rænni fegurð og sterkri hrynjandi
málsins.
Hér er á ferðinni áhrifamikil
leiksýning þar sem magnaður texti
helst í hendur við vandaðan flutn-
ing allra þeirra listamanna sem
taka þátt; auk Arnars Jónssonar,
eru það tónskáldið Áskell Másson,
sem leikur á málmgjöll ýmiss kon-
ar, og Douglas A. Brotchie orgel-
leikari. Sveinn Einarsson hefur of-
ið þessa sýningu saman af miklu
öryggi og stýrt öllum þráðum
hennar af þekktu listfengi. Fengur
er einnig að leikskránni sem hefur
að geyma stuttar en vandaðar
greinar um heimspeki Jobsbókar,
byggingu hennar og innihald, auk
greinar um tengsl efnisins við sál-
gæslustarfið.
Soffía Auður Birgisdóttir
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
Orator, félag laganema
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Aðstandendur sýningarinnar í Neskirkju.
Stökktu til
Kanarí
19. mars
Irá kr. 34.855
Nú seljum við síðustu sætin til Kanarí í mars, en eyjamar eru
langvinsælasti vetraráfangastaður okkar og þúsundir fslendinga ferðast
þangað á hverjum vetri til að njóta eins besta veðurfars heimsins og stytta
veturinn hér heima.
Nú bjóðast síðustu sætin í mars til Kanarí á hreint frábærum kjömm. Þú
bókar núna og tryggir þér sæti, og 5 dögum fyrir brottför látum við þig
vita hvar þú gistir.
19. mars
Verð frá kr. 34.855
19. mars, vika, m.v. hjón mcð 2 böm.
Aukavika frá 7.700.
Verð kr. 44.990
M.v. 2 í íbúð, 1 vika
Verð frá kr. 64.990
2 í íbúð/smáhýsi, 3 vikur.
Hvenær er laust?
12. mars - uppselt
19. mars - 24 sæti
26. mars - 34 sæti
9. apríi - laust
16. apríl - 23 sæti
Austurstræti 17, 2. hæð, sími
595 1000. www.heimsferdir.is