Morgunblaðið - 29.02.2000, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 47
UMRÆÐAN
Starfsmenntamál
sett á oddinn
í ÞEIM kjaravið-
ræðum sem nú eiga sér
stað á milli samtaka
verkafólks og samtaka
atvinnurekenda hefur
krafan um aukna
menntun til handa
verkafólki verið sett á
oddinn. Samtök verka-
fólks hafa sett fram
metnaðarfullar hug-
myndir hvernig megi
auka framboð og bæta
aðgengi verkafólks að
fræðslu sem atvinnulíf-
ið þarf á að halda
hverju sinni. Forsenda
þess að hægt sé að
byggja upp lærdóms-
samfélag þar sem allir hafí sömu
réttindi er aukið fjármagn til mennt-
unar verkafólks.
í núverandi kjarasamningum hafa
samninganefndir Verkamannasam-
bands Islands/Landssambands iðn-
verkafólks og Flóabandalagsins (Efl-
ing/HlííTVSFK) sett fram kröfur um
greiðslu starfsmenntagjalds og um
stofnun fræðslusjóða sem hafi það
hlutverk að efla og þróa starfsmennt-
un fyrir þá hópa launafólks sem
þurfa á henni að halda.
í aukinni alþjóðlegri samkeppni og
í heimi síbreytilegrai- tækni er mikil-
vægt að byggja upp lærdómsþjóðfé-
lag, þar sem litið er á menntun og
fræðslu launafólks sem ferli sem var-
ir alla starfsævina. A nýrri öld mun
fjárfesting í þekkingu hafa jafn mikil
áhrif á afkomu og samkeppnishæfni
fyrirtækja og fjárfesting þeirra í
tækjum og nýrri tækni.
Mannauður er mesta auðlind íyrir-
tækja og þjóða. Þau
íyrirtæki og þjóðir sem
munu standa sig best í
harðri samkeppni
framtíðarinnar eru þeir
sem hafa yfir að ráða
hæfasta og best mennt-
aða vinnuaflinu á öllum
stigum framleiðslu og
þjónustu.
Störf munu hverfa
og ný verða til
I dag er einnig mikið
rætt um upplýsinga-
samfélagið og þær öru
breytingar sem eru að
verða á eðli vinnunnar
vegna tækniframfara.
Menn gera ráð fyrir að mörg störf
sem eru unnin í dag verði ekki til eft-
ir 10-15 ár. Þau störf sem munu
Kjarasamningar
Aukin hagsæld, atvinna
og bætt lífsgæði hér á
landi 1 framtíðinni,
segir Kristján Braga-
son, munu byggjast
á því að við virkjum
mannauðinn.
hverfa eru einkum lægra launuð
störf, þar sem lítillar menntunar og
hæfni er krafist. Nýju störfin munu
hinsvegar krefjast mikillar þekking-
ar og skila aukinni framleiðni. Þessi
þróun getur leitt til misræmis, vegna
þess að verkafólk sem tapar störfum
vegna tækniframfara hefur ekki þá
menntun sem nýju störfin krefjast.
Þessi þróun getur leitt til þess að gjá-
in sem er á milli þeirra sem valda
tækninni og hinna sem ekki valda
henni getur orðið hyldjúp.
Á þessari staðreynd hafa stéttar-
félög verkafólks áttað sig. Hinsvegar
virðast fulltrúar fyrirtækja eingöngu
hafa áhuga á þessari staðreynd á
tyllidögum eða í umræðunni um
fræðslu fyrir þá sem hafa mesta
þekkingu fyrir. Þannig virðist skiln-
ingurinn á mikilvægi þekkingar vera
einskorðaður við langskólagengna
einstaklinga.
Menntun er ekki bara fyrir
lang-skólagengna
I rannsóknum sem hafa verið
framkvæmdar bæði hér á landi og í
öðrum löndum kemur skýrt fram að
þeir einstaklingar sem mesta mennt-
un hafa eru duglegastir við að sækja
sí- og endurmenntun. Undantekning
er einna helst á Norðurlöndunum
þar sem hefur verið unnið markvisst
starf af hálfú launafólks, fyrirtækja
og ríkisvalds við að gefa fólki með
litla menntun annað tækifæri. Á Is-
landi hafa einstaklingar með litla
menntun hinsvegar síður tekið þátt í
þessari þekkingaruppbyggingu.
Sama virðist því miður vera uppi á
teningnum þegar litið er á bömin
okkar. Rannsóknir sýna að böm
þeirra sem litla menntun hafa sækj-
ast síður eftir menntun en böm
menntafólks. Slíkt hæfir ekki vel-
ferðarþjóðfélagi.
Krislján
Bragason
í hagsmunabaráttu sinni síðustu
árin hafa fulltrúar verkafólks ítrekað
reynt að auka skilning allra aðila á
mikilvægi þess að menntun launa-
fólks sé ekki einkamál þeirra sem
hafa menntun. Á síðari ámm hefur
þessi skilningur sem betur fer farið
vaxandi, en orðum verða líka að
fylgja athafnir.
Forsenda bættra b'fskjara
Aukin hagsæld, atvinna og bætt
lífsgæði hér á landi í framtíðinni
munu byggjast á því að við virkjum
mannauðinn. Ekki bara hluta þjóðfé-
lagsins, heldur alla þegna þessarar
þjóðar. Það verður að nýta betur
þann auð sem býr í fólkinu sjálfu. Það
má ekki lengur líðast að stórir hópaa
ungs fólks þurfi að leita út á vinnu-
markaðinn án þess að hafa átt kost á
að mennta sig. Ekki má heldur leng-
ur líðast að verkafólk hafi ekki sömu
möguleika og aðrir til að sækja sér
frekari hæfni og menntun eftir að út í
atvinnulífið er komið. Krafa verka-
fólks er skýr: AUKIN MENNTUN.
Höfundur er vinnumurkaðsfræðmg-
ur Verkamannasambands íslands.
PÓST- OG FJARSKIPTAKIOFNUN
FRESTUR
FRAMLENGDUR
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ákveðið að
framlengja frest til að leggja inn umsóknir
um rekstrarleyfi fyrir starfrækslu Tetra far-
stöðvanets og þjónustu sbr. tilkynningu frá
3. febrúar 2000. Frestur til að leggja inn
umsóknir er nú til 13. mars 2000.
Kópavogi 25. febrúar 2000
Póst- og fjarskiptastofnun.
Skráðu þig á www.netsimi.is
ÓPÍBARI SÍMTÖL
TIL ÚTLAIHDA
land
Verð á mín.
Bandaríkin
18,60 kr.
Bretland
17,29 kr.
Danmörk
17,66 kr.
Japan
21,61 kr.
Mexíkó
33,77 kr.
Frakkland
19,28 kr.
Ástralía
21,98 kr.
Eistland
30,80 kr.
Kína
44,20 kr.
Pólland
27,38 kr.
Ath. Við þetta verð bætast innanlandsgjöld. Nánari upplýsingar um verðskrá er að finna á www.netsimi.is.
ÍÚM
Yúmé)
Hríngdu í síma 5751100
og skráðu símann þinn.
Opið allan sólarhringinn!
Eftir það velur þú 100
í stað 00 í hvert skipti sem þú
hríngir til útlanda og sparar
stórfé.
1100