Morgunblaðið - 29.02.2000, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Sala á Hitaveitu Þorlákshafnar -
snjall leikur til framtíðar
SALA á Hitaveitu
Þorlákshafnar til Orku-
veitu Reykjavíkur hef-
ur vakið talsverða at-
hygli. Ekki ráku
fjárhagsvandræði sveit-
arstjórn Ölfuss til söl-
unnar. Hitaveitan er
nánast skuldlaust fyrir-
tæki og staða sveitar-
"^fejóðs Ölfuss er með
miklum ágætum, þrátt
fyrir ýmsar fram-
kvæmdir á vegum sveit-
arfélagsins og gott
þjónustustig. Það sem
ræður þessari ákvörðun Jón Ilólm
er framtíðarsýn annars Stefánsson
vegar á byggðaþróun
innan sveitarfélagsins með tilliti til
nálægðar höfuðborgarsvæðisins og
hins vegar á þróun orkuvinnslu frá
háhitasvæðum innan sveitarfélagsins
og orkusölu í nýju og breyttu orku-
söluumhverfi.
Ölfuss er í næsta nágrenni höfuð-
borgarsvæðisins, og sú staðreynd
hlýtur að ráða miklu um framtíðar-
^yggðaþróun. Höfuðborgarsvæðið,
stærð þess og kraftur,
er oft tH umræðu á neik-
væðan hátt - sem
hættulegt fyrirbæri í ís-
lensku samfélagi.
Vissulega er þörf á öfl-
ugu mótvægi við höfuð-
borgarsvæðið á lands-
byggðinni. Það er
beinlínis þjóðamauð-
syn, að haldið verði uppi
öflugri og markvissri
byggðastefnu. Hins
vegar er það
skammsýni af þeim,
sem búa næst höfuð-
borgarsvæðinu, að berj-
ast á móti eðlilegri þró-
un þess af einhverri
misskilinni fortíðarhyggju. Það er í
mesta lagi hægt að hægja á þróuninni
með slíkum vinnubrögðum, og þá um
leið hugsanlega að valda sér skaða.
Næsta nágrenni höfuðborgarsvæðis-
ins skapar ótvírætt margvíslega
möguleika, sem nýta verður til fram-
sækinnar byggðaþróunar. í þessum
anda er viijayfirlýsing um samstarf
Ölfuss og Rey kj avíku r borgai' í nokkr-
Hitaveitusala
Möguleikar þess, að
gera Olfusið að mjög
eftirsóknarverðum stað
til búsetu og atvinnu-
rekstrar, segir Jón
Hólm Stefánsson, eru
miklir og spennandi.
um málaflokkum, sem undirrituð var
á síðasta ári. Fulltrúar þessara sveit-
arfélaga í hverjum málaflokki ræðast
við í fullum trúnaði og af áhuga, enda
hefur hvor nokkuð tO hins að sækja.
Orkuveita Reykjavíkur hefur
keypt talsvert stór lönd í Ölfusi, eink-
anlega á háhitasvæðum í fjalllendi, en
einnig á láglendi. Tilgangur þessara
landakaupa er fyrst og fremst að
tryggja eignarhald á háhitasvæðum
vegna nýtingar á jarðgufu til raforku-
framleiðslu. Orkuveita Reykjavíkur
er mjög öflugt fyrirtæki, sem hefur
alla burði til að takast á við stór verk-
efni í hitaveitumálum og raforku-
framleiðslu. Þá staðreynd verður fólk
að hafa í huga, einkanlega sveitar-
stjómarfólk, að forsenda stórra virkj-
unaráforma er sterkur bakhjarl,
hvort sem sá bakhjarl er Orkuveita
Reykjavíkur eða einhver annar. Það
er eðlilegt, að sveitarstjómarfólk og
aðrir, sem láta sig orkumál varða,
ræði samstarf sveitarfélaga í orku-
málum, en fjárhagsleg geta sveitarfé-
laga er almennt með þeim hætti, að
þau hafa ekki bolmagn til að ráðast í
stórar og dýrar virkjunarfram-
kvæmdir. Væntanleg samkeppni á
orkumarkaði og krafa notenda um
lágt orkuverð takmarkar einnig af-
komu skuldsettra orkufyrirtækja.
Þess vegna er, eins og áður sagði,
nauðsynlegt að hafa sterkan bakhjarl
í þessum málaflokki, sem samstarfs-
aðila eða sameignaraðila, með það
megin markmið í huga, að tryggja
nægjanlegt orkuframboð á sem hag-
stæðustuverði.
Fyrir liggur, að Orkuveita Reykja-
víkur hyggur á raforkuframleiðslu á
háhitasvæðum í Ölfusi innan fárra
missera. Aukaafurð frá slíkri raforku-
framleiðslu er heitt vatn, sem ódýrast
er að losna við inn á hitaveitukerfi tO
atvinnurekstrar eða húshitunar. Af
þessum ástæðum kaupir Orkuveitan
Hitaveitu Þorlákshafnar. Þessu
munu fylgja aukin umsvif, til að skapa
aukinn markað fyrir heitavatnssölu.
Vega þar þyngst fyrirtæki, sem nota
mikla gufu eða heitt vatn til fram-
leiðslu sinnar. Reykjavíkurborg hefur
þegar stuðlað að ýmsu í þeim efnum,
enda er landrými nægjanlegt í Ölfusi.
Góð hafnaraðstaða er einnig forsenda
stærri umsvifa en nú eru, og er verið
að hanna verulega stækkun hafnar-
innar. Samvinna Reykjavíkurborgar
og Ölfuss um starfsemi stórrai- haf-
skipahafnar í Þorlákshöfn er raun-
hæfur og áhugaverður kostur. Það
var samhljóða og rökrétt mat sveitar-
stjómar Ölfuss að selja Hitaveitu
Þorlákshafnar, með þær staðreyndir
á borðinu, að salan skapaði aukin um-
svif í atvinnuuppbyggingu og búsetu,
tryggingu fyrir nægu framboði af
heitu vatni á sama gjaldi og á höfúð-
borgarsvæðinu og fyrirheit um aukna
samvinnu í raforkumálum með það að
markmiði, að raforkuverð verði hið
sama í Ölfusi og á höfuðborgarsvæð-
inu. Um söluverð á Hitaveitu Þor-
lákshafnar má eflaust deila, en mjög
ítarlegt mat fór fram á verðmæti hita-
veitunnar af hálfu sveitarstjórnarinn-
ar, og er óhætt að fullyrða, að sölu-
verðið er hagstætt. Rétt er að taka
fram, að rangt er, sem fram hefur
komið í fjölmiðlum, að seld hafi verið
hitaveituréttindi 12 jarða í Ölfusi.
Einungis voru seld einkaréttindi til
virlqana á heitu vatni á landi, sem er í
eigu sveitarfélagsins, en ekki einka-
aðila.
Að lokum má geta þess, að um-
rædd sala gerir fjárhagslega stöðu
sveitarsjóðs Ölfuss afar sterka.
Möguleikar þess, að gera Ölfusið að
mjög eftirsóknarverðum stað til bú-
setu og atvinnurekstrar, eru miklir og
spennandi.
Höfundur er bæjarstjórnarmaður
sjálfstæðismanna í Ölfusi.
Stj órnar skrárbrot
fj ármálaráðher ra
MEÐ dómi frá 5.
febrúar 1998 komst
Hæstiréttur Islands að
þeírri niðurstöðu að
ákvörðun fjármálaráð-
herra um að synja föður
sem var ríkisstarfsmað-
ur um greiðslu launa í
fæðingarorlofi væri
brot á jafnræðisreglu
stjómarskráiTnnar. Síð-
an eru liðin tvö ár. Enn
heldur þó fjármálaráð-
herra uppteknum hætti
að synja feðrum í þjón-
ustu ríkisins um þennan
rétt. Syrvjunina byggir
ráðherrann á því að
gildissvið reglugerðar
nr. 410/1989 um fæðingarorlof ríkis-
starfsmanna takmarkist við konur.
En það var einmitt sú mismunun sem
Hæstiréttur taldi í dómi sínum frá
1998 að færi í bága við jafnræðisreglu
stjómarskrárinnar og 3. og 4. gr. laga
nr. 28/1991 um jafna stöðu karla og
kvenna. Með hverri nýrri ákvörðun
um synjun launagreiðslna til feðra í
fæðingarorlofi í þjónustu ríkisins ger-
ist ráðherrann því sekur um stjómar-
skrárbrot. Og ekki bara brot á jafn-
ræðisreglunni heldur er framferði
ráðherrans líka í andstöðu við gmnd-
vallarreglu stjómskipunar Islands
um þrígreiningu ríkisvaldsins.
Þrígreining ríkisvaldsins
Eins og áður segir byggist stjóm-
skipun Islands á kenningunni um
þrígreiningu ríksvaldsins og skipt-
ingu þess í löggjafarvald, fram-
kvæmdavald og dómsvald. Kenningin
á rætur sínar að rekja til Montesqu-
ieu, en hann taldi sérstaka hættu á því
að réttindi borgaranna væm fyrir
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
borð borin ef allt ríkis-
vald væri á einni hendi.
Með skiptingu ríkis-
valdsins milli þriggja
sjálfstæðra valdhafa er
því reynt að koma í veg
fyrir að nokkur þeirra
verði svo sterkur að
hann geti svipt borgar-
ana grundvallarréttind-
um að eigin geðþótta.
Með því að láta eins og
dómur Hæstaréttar frá
5. febrúar 1998, um fæð-
ingarorlof feðra í þjón-
ustu ríkisins, hafi aldrei
fallið vegur fjármála-
ráðherra því harkalega
að þessari gmndvallar-
reglu íslenskrar stjómskipunar.
Jafnræðisregla stjórnarskrár
I stjórnarskránni er líka að finna
sérstakan mannréttindakafla, en þar
segir að reglur um grundvallarrétt-
indi borgaranna verði ekki frá þeim
tekin nema að uppfylltum mjög
ströngum skilyrðum. Jafnræðisregl-
an er ein af þessum reglum, en skv.
henni eiga allir að vera jafnir fyrir
lögum og þar segir m.a. að karlar og
konur skuli njóta jafns réttar í hví-
vetna. Það var með vísan til þessarar
reglu sem Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að reglugerð nr.
410/1989, sem veitti konum einum
rétt til greiðslu launa í fæðingarorlofi,
væri andstæð jafnræðisreglu stjóm-
arskrárinnar. Eftir að sá dómur féll
hafa a.m.k. tvær synjanir fjármála-
ráðherra á greiðslum launa til feðra í
fæðingarorlofi verið kærðar til áfrýj-
unamefndar jafnréttismála og í bæði
skiptin hefur hún komist að þeirri nið-
urstöðu að um brot á jafnræðisreglu
Hæstaréttardómur
Eigi að síður þrjóskast
fjármálaráðherra við,
segir Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, og brýtur
vitandi vits gegn grund-
vallarmannréttindum.
Námsaðstoð
í stærðfræði, eðlis- og efnafræði
fyrir grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla.
Athugið að smá aðstoð getur skipt sköpum í
námi. Vanir kennarar.
www.tolst.com
Tölvu- og stæröfræðiþjónustan ehf., Brautarholti 4, sími 551 5593.
stjómarskrárinnar væri að ræða og
vísað til dóms Hæstaréttar frá 1998
málinu til stuðnings.
Fæðingarorlof feðra
Það er viðurkennd staðreynd að
fjarvistir kvenna frá vinnu vegna
meðgöngu, bamsburðar og umönn-
unar bams eftir fæðingu stuðla að því
að viðhalda lakari stöðu kvenna en
karla á vinnumarkaði. Fæðingarorlof
feðra þjónar þannig meðal annars
þeim tilgangi að jafna fjarvistir
mæðra og feðra frá vinnu vegna
bamsfæðinga. Af því leiðir að fæðing-
arorlof feðra er mikilvægt jafnréttis-
mál og er báðum kynjum sem og sam-
félaginu öllu til hagsbóta. Það er því
þýðingarmikið spor til að auka jafn-
rétti kynjanna að feður taki í ríkari
mæli fæðingarorlof en verið hefur.
Það er sjálfsagt og eðlilegt að ríkis-
stjómin fylgi á undan með góðu for-
dæmi í þessum efnum. Eigi að síður
þijóskast fjármálaráðherra við og
brýtur vitandi vits gegn grundvallar-
mannréttindum borgaranna og
stjómskipun íslands með ákvörðun-
um sínum.
Mannréttindi fótum troðin
Geir H. Haarde, fjármálaráðherra,
virðist bera álíka mikla virðingu fyrir
gmndvallarmannréttindum og
stjómskipan lýðræðisríkis og ráða-
menn í gömlu Sovétríkjunum gerðu á
sínum tíma og það er dapurlegt til
þess að vita að hér uppi á Islandi árið
2000 skuli jafn réttur karla og kvenna
til fæðingarorlofs vera fótum troðin af
æðstu ráðamönnum þjóðarinnar.
Höfundur er laganemi og varaþing-
maður Samfylkingarinnar.