Morgunblaðið - 29.02.2000, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 65 ^
FRÉTTIR
BRIDS
Umsjón Guðmundur l'áll
Arnarsun
UM síðustu helgi fór fram
alþjóðleg bridshátíð í
Scheveningen í Hollandi,
P orbo-Krommenie-keppn-
in, þar sem bæði er keppt í
opnum flokki og svo sérstak-
lega um svokallaðan „þjóð-
arbikar", en það er nokkurs
konar viðhafnarkeppni fjög-
urra þjóða. Hollendingar
eru gestgjafar og þar með
sjálfkrafa þátttakendur í
keppninni um þjóðarbikar-
inn, en í þetta sinn voru hin-
ar sveitirnar frá Bandaríkj-
unum, Ítalíu og Kína. Hér er
spil úr leik Hollendinga og
Kínverja:
Norður
* -
¥ AG103
♦ Q962
* AK1085
Suður
A K642
»42
♦ ÁK1073
*D9
Á öðru borðinu varð Ital-
inn Ferraro sagnhafl i sex
tíglum. AV höfðu ekkert
blandað sér í sagnir nema
hvað austur doblaði fyi-ir-
stöðusögn norðurs í hjarta.
Og útspilið var hjartanía.
Ferraro drap með ás og spil-
aði tígli á ásinn og þá kom
drottningin undir úr vestr-
inu. Hvernig myndi les-
andinn halda áfram?
Ferraro spilaði hjarta á
gosa blinds og drottningu
austurs. Austur spilaði
trompi og vestur henti spaða
í þann slag. Nú tók Ferraro
síðasta trompið og sneri sér
að laufinu:
Norður
* -
» AG103
♦ (J962
* AK1085
Vestur Austur
A D1098753 A AG
¥ 97 ¥ KD865
♦ D ♦ 854
* 743 * G62
Suður
A K642
¥ 42
♦ AK1073
*D9
Slemman virðist auðunnin
úr því laufið kemur 3-3, en
Ferraro sá ekki allar hendur
og svínaði fyrir gosann í
vestur. Sem er skiljanlegt:
Austur hafði þegar sýnt átta
rauð spil, en vestur aðeins
þrjú. En af hverju meldaði
vestur aldrei spaða? Jú,
Ferraro hafði opnað á
spaða, sem er hinn ítalski
stíll með 4-5 í hálit og láglit.
Annars hefði verið nó-
kvæmara hjá Ferraro að
taka strax þrisvar tromp og
spila svo laufinu ofanfrá. Ef
vestur reynist eiga gosann
fjórða er lauf stungið og
hjarta spilað á gosa. Þá fæst
tólfti slagurinn ef austur á
spaðaásinn til hliðar við
hjartahjón, sem hann hefur
þegar sýnt.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fieira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
óbyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einning er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
ÁRA afmæli. í dag,
þriðjudaginn 29.
febrúar, verður áttræður
Klemenz Jónsson, leikari
og leikstjóri, Eiðismýri 30,
Seltjarnarnesi. Eiginkona
hans er Guðrún Guðmunds-
dóttir. Þau eru að heiman í
dag.
ÁRA afmæli. Á
morgun, miðviku-
daginn 1. mars, verður sex-
tugur Guðni Steinar Gúst-
afsson, Iöggiltur endur-
skoðandi, Arnartanga 36,
Mosfellsbæ. Guðni og eigin-
kona hans, Guðrún Snæ-
björnsdóttir, taka á móti
gestum i Akogessalnum,
Sóitúni 3, á afmælisdaginn
kl. 17-20.
Með morgunkaffinu
SKÁK
UmsjÓB Helgi Áss
Grétarsson
MEISTARAMÓT Hellis
stendur nú yfir og er með-
fylgjandi staða frá því móti.
Hvítt hefur Sigur-
björn Bjömsson
(2305) en svart hef-
ur Jóhann H.
Ragnarsson (1950).
30.Hxc6! H2g3+
30...Hxf2+ 31.Kx£2
De3+ 32.Kfl Dfö+
33.Kel er einnig
tapað á svart.
31. Rxg3 Hxg3+
32. fxg3 De3+
33. Kg4! Kóngur-
inn fer nú á
skemmtilegt flakk
að herbúðum and-
stæðingsins. Hið
rólega 33.Kg2 hefði einnig
leitt til sigurs. 33...Dxg3+
34. Kh5 Dh3+ 34...Be8+
35. Kh6 Dh4+ 36.Kg7 De7+
37.Kg8 og hvitur vinnur.
35.Kg6 Be8+ 36.Kg7 Dg4+
37.Kh8 Ðg5 38.Hb8 og
svartur er mát.
LJOÐABROT
HEILRÆÐI
Þegar hugann harmur sker
og hverfur sálar dugur,
borða og drekka bezt þá er;
batnar við það hugur.
Eins og þegar á söltum sjó
sjósótt kvelur rekka,
ekkert ráð er annað þá,
en að eta og drekka.
Sveinbjörn Egilsson.
STJÖRNUSPÁ
eftir Fruuces Drake
FISKAR
Afmælisbam dagsins:Þú
heldur þér vel og hlýtur að-
dáun annarra fyrír þraut-
seigju þína, en þú gefst aldei
upp fyrr en ífulla hnefana.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það gerist ekkert nema þú
berir þig eftir hlutunum.
Drífðu þig af stað og þá kem-
ur fljótt í ljós að ævintýrin
bíða þín handan hornsins.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Farðu þér hægt gagnvart
fólki, sem þykist vita allt og
geta allt. Það er oft þannig að
þeir sem eru mestir í orði eru
minnstir á borði.
Tvíburar t
(21. maí - 20. júní) An
Það er eitthvert mál, sem
veldur þér þungum áhyggj-
um. Gefðu þér tíma til þess að
kanna allar hliðar þess; öðru
vísi færðu ekki sannleikann
fram.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Þú þarft að hugsa betur um
sjálfan þig. Það gerir það
enginn fyrir þig svo það er
ekki á annan að treysta.
Hlustaðu á líkama þinn.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Það er stór kostur í fari þínu
hversu auðvelt þér sækist að
leysa hin erfiðustu mál. Þú
mátt eiga von á öfund ann-
arra, en láttu hana lönd og
leið.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) iPfL
Svo kann að fara að einkamál
og vinnan rekist á. Þá ríður á
að halda haus, forgangsraða
rétt og leysa málin hvert af
öðru, en ekki öli í einu.
vög m
(23. sept. - 22. október) A A
Reyndu að hægja aðeins á
þér. Það er ekki gott að fara
langt fram úr sjálfum sér.
Það býður mistökum heim og
þá þarf að leiðrétta þau með
ærinni fyrirhöfn.
Sþorðdreki ™
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu ekki berast fyrir
straumnum eins og stjóm-
laust rekald. Hugsaðu þitt,
framkvæmdu þinn viija og
láttu aðra ekki ráðskast með
tíma þinn.
Bogmaður _.
(22. nóv. - 21. des.) IfcO
Þú getur gefið samferða-
mönnum þínum svo mikið, ef
þú bara veizt, hvar þín tak-
mörk liggja. Réttu fram vin-
arhönd, en reyndu ekki að
stjórna öðrum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) áiiP
Það getur verið til bóta að
nálgast verkefni úr nýrri átt,
þegar gömlu aðferðimar eru
hættar að duga. Vertu hvergi
smeykur við nýjungar.
Vatnsberi .
(20. jan. -18. febr.)
Það sitja allir um þig og vilja
hafa áhrif á ráðagerðir þínar.
Ekki deila við þá. Leyfðu
þeim að fjasa. Svo ferð þú
bara þínu fram.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú þarft að vera vel á varð-
bergi, því augnabliks mistök
geta haft afdrifaríkar afleið-
ingar. Það borgar sig alltaf að
hafa augun opin.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Námskeið í skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fimmtudag-
inn 2. mars. Kennsludagar verða 2.,
6. og 7. mars frá kl. 19-23. Þátttaka
er heimil öllum 15 ára og eldri.
Námskeiðið telst vera 16 kennslu-
stundir og er haldið í Ármúla 34, 3.
hæð.
Meðal þess sem kennt verður er —-
blástursmeðferðin, endurlífgun með ”
hjatahnoði, hjálp við bruna, bein-
brotum og blæðingum úr sárum.
Einnig verður fjallað um heimaslys
þ.m.t. slys á börnum og forvarnir al-
mennt. Að námskeiðinu loknu fá
nemendur skírteini sem hægt er að
fá metið í ýmsum skólum.
Vorvörurnar streyma inn
Verðdæmi:
Jakki kr. 7.900
Buxur kr. 3.400
Jakkar
Pils
Buxur
Bolir
frá kr. 4.900
frá kr. 2.900
frá kr. 1.690
frá kr. 1.500
Kvartbuxur kr. 2.500
Alltaf sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Professionals
Andlitskrem og
förðunarlína
r
Giunn- 09 tanka- ökuské.i
Námskeið um ffutninga
námskeiö
Dugguvogur 2
Sími 568 3841
dagana 1.
mars hjá
Okuskóla íslands
Fagmennska í fyrirrúmi
MEIRA JAFNVÆGI
MEÐ SJALFSDALEIÐSLU
Námskeið/einkatímar sími 694 5494
N> námskeið hefjast 8. og 21. mars
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafiivægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum.
Hringdu núna
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur,
Er heima best?
Flcst slys gera boð á undan sér
Hafðu augun opin, finndu slysagildrurnar heima
hjá þér og komdu þeim fyrir kattarnef!
□ Lausar mottur
□ Hál gólf
□ Snúrur, dreglar og þröskuldar
□ Lyf og hreinsiefni
□ Þungir hlutir sem standa tæpt
□ Eggjárn á glámbekk
□ llla stillt eða biluð
blöndunartæki
□ Léleg eða röng lýsing
□ Rafhlöðulaus reyksynjari
Flest slys verða innan veggja heimilisins. Þar getur þú fækkað
slysunum. Gríptu í taumana áður en það verður of seint.
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu
www.landlaeknir.is