Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Valgerður Sverrisdóttir spurð um launakjör stjórnenda FBA Hefði ekki sjálf skrifað upp á svo há laun Morgunblaðið/Ásdís Valgerður Sverrisdóttir, viðskipta- og iðnaðarráðherra, svaraði fyrir- spurn Jóhönnu Sigurðardóttur um kjör stjórnenda FBA á Alþingi í gær. VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, sagði á Al- þingi í gær að ekki væri að undra að há laun stjómenda Fjárfestingar- banka atvinnulífsins á síðasta ári hefðu valdið undrun og reiði í þjóðfé- laginu. Ef málið hefði komið til henn- ar kasta þá hefði hún ekki sjálf getað skrifað upp á svo há laun. Ríkis- stjórnin hefði hins vegar ekki komið að ákvörðunum þar að lútandi. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað- ur Samfylkingar, hafði borið fram fyrirspurn til ráðherra um kjör stjómenda FBA, sem hún sagði svo há að mönnum ofbyði. Vildi hún m.a. vita hvaða ákvarðanir hefðu verið teknar um laun og kjör stjómenda FBA á meðan bankinn var í meiri- hlutaeign ríkisins og hvort ráðherra eða fulltrúar hans í stjórn bankans hefðu átt einhvern þátt í ákvörðunum um afkomutengdan kaupauka til starfsmanna. Þá spurði Jóhanna hvaða ákvarðanir hefðu verið teknar um arðgreiðslur meðan bankinn var í meirihlutaeign ríkisins og loks hver skoðun ráðherra væri á launakjörum stjórnenda bankans og fyrirkomulagi á afkomu tengd- um kaupauka. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, sagði m.a. í svari sínu að það hefði frá upphafi verið einn af lykilþátt- unum í stefnu- mótun FBA að tekið yrði upp ár- angurstengt launakerfi. Samið hefði verið við starfsfólk og stjómendur FBA á grundvelli slíks kerfis snemma árs 1999. Þegar kerfið hefði verið tekið í notkun hefðu flestir starfsmannanna samið um nokkra lækkun grunnlauna um leið og þeir sömdu um að laun sín yrðu tengd bætingu á rekstrarárangri bankans. „Utreiknaður bónus ársins 1999 nam alls 191,3 milljónum króna og voru 22,6 milljónir króna greiddar út 1. september sl. 76,6 milljónir vom greiddar út hinn 1. mars sl. og nemur heildarútgreiddur bónus fyrir árið því 99,2 m.kr., eða 52% af heildará- unnum bónus. 92,1 m.kr., eða 48% af áunnum bónus geymast og verða greiddai' út síðar allt eftir því hvort árangur þessa árs batnar frá síðasta ári eða ekki. Þannig er kerfið hannað til að ýta undir varanlega árangurs- myndun en ekki skammtímabata." Ennfremur sagði Valgerður að laun stjómar FBA hefði numið 4 m.kr. á árinu 1998 og laun fjögurra manna framkvæmdastjómar 37 m. kr. í fyrra hefðu laun stjómar numið 4,5 m. kr. og laun framkvæmda- stjómar50,5m. kr. Ráðherra átti ekki beinan þátt „Ráðherra hefur ekki átt beinan þátt í ákvörðun um afkomutengdan kaupauka starfsmanna FBA. Það var stjóm bankans sem tók endanlega ákvörðun um að taka upp afkasta- hvetjandi launakerfi," sagði Valgerð- ur. Hún rifjaði upp að þetta hefði ver- ið ákveðið á fundi stjórnarinnar 22. desember 1998 en á þeim tíma hefði stjóm bankans verið skipuð fulltrá- um kjömum á aðalfundi þann 24. mars 1998 er iðnaðarráðherra og sjávarátvegsráðherra fóm í samein- ingu með hlut rík- issjóðs í FBA. Kom hins vegar fram í máli ráð- herrans að ekki hefði verið greiddur út arður af starfsemi bank- ans fyrir 1997 en að ákveðið á aðal- fundi í mars 1998 að greiða 8% arð til hluthafa vegna rekstrarársins 1998. „Þannig greiddi FBA 544 m.kr. í arð til hluthafa sinna, þar af vom 277 m.kr. greiddar til rík- issjóðs sem þá var stærsti hluthafinn með 51% eignarhlut." Fjömgar umræður spunnust um þetta mál eftir ræðu ráðherra. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, sagði skipstjóra á aflahæstu frystiskipum fiskveiðiflotans suma hafa hærri laun en hér væra til um- ræðu. „Stjórnendur og aðrir starfs- menn FBA hafa náð fram hagnaði fyrir fyrirtækið sem nemur að verð- mæti eins til tveggja frystitogara á einu ári,“ sagði Pétur. „Með góðri stjórnun, dugnaði og snilli hefur þessi árangur náðst umfram væntingar. Eðlilegt er að stjómendur og starfs- menn njóti þessa árangurs en ekki bara hluthafar.“ Hann bætti við að það gagnaðist hvorki öryrkjum né lágtekjufólki að FBA væri illa rekinn. Þvert á móti gagnaðist það hinum lægst launuðu því starfsmenn FBA skiluðu miklum tekjum til ríkissjóðs í formi skatta. Kristján Pálsson sagði flokksbróð- ir sinn, Pétur H. Blöndal, seilast ansi langt þegar hann jafnaði launum skipstjóra við laun stjómenda FBA. Sjómenn hættu lífi sínu og limum við að ná fiski úr sjó en stjómendur FBA sýsluðu hins vegar með peninga sem í raun væra ekld þeirra aflafé. Þeir hefðu þvert á móti fengið til sín t.d. Fiskveiðasjóð og Iðnlánasjóð, sjóði sem væri búið að tryggja í öllum helstu atvinnugreinum þjóðarinnar. Kristján L. Möller, þingmaður Sam- fylkingar, sagði það afar ósmekklegt hjá Pétri - sem hann kallaði talsmann Sjálfstæðisflokksins í þessu máli - að réttlæta há laun stjómenda FBA á þeirri forsendu að þau kæmu hinum lægst launuðu til góða. Guðjón Guðmundsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kvaddi sér þá hljóðs til að mótmæla því að Pétur H. Blöndal hefði talað sem talsmaður Sjálfstæðisflokksins í þessu máli. Hann hefði hins vegar málfrelsi eins og aðrir þingmenn flokksins. Blaut tuska framan í launafólk Jóhanna Sigurðardóttir sagði í seinni ræðu sinni að það lægi nú fyrh-, eftir svör viðskipta- og iðnaðarráð- herra, að íúlltráar ríkisins í stjóm FBA hefðu tekið ákvarðanirnar um ofurkjör til stjómenda bankans. „Þessi ákvörðun ríkisvaldsins er til skammar," sagði Jóhanna, „og sem blaut tuska framan í launafólk sem stendur núna í harðri kjarabaráttu“. Valgerður Sverrisdóttir ítrekaði í lokaorðum sínum að ríkisstjórnin hefði ekki komið að ákvörðun um launakjör og árangurstengdar greiðslur. Svaraði hún einnig spum- ingu Jóhönnu um sitt álit á launakjör- um í FBA. Kvaðst hún fylgjandi ár- angurstengdu launakerfi enda væru slík kerfi til þess fallin að tengja bet- ur saman hagsmuni hluthafa og starfsmanna og væra m.a. þekkt í at- vinnulífi hér á landi. „Það er ekki að undra að há laun stjórnenda FBA hafi valdið undran og reiði hjá mörg- um almennum launþegum sem nú standa í erfiðri kjarabaráttu,“ sagði Valgerður. „Ég hefði sjálf ekki getað skrifað upp á svo há laun, hefði málið komið til minna kasta.“ ALÞINGI 23 komu á slysadeild um síðustu áramot vegna áverka af völdum skotelda Þrír lagðir inn á sjúkrahús TUTTUGU og þrír komu á slysá- og bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur um áramótin síðustu vegna áverka af völdum skotelda og þurfti að leggja þrjá þeirra inn á sjúkrahús, að því er fram kemur í skriflegu svari Ingibjargar Pálma- dóttur, heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra, við fyrirspum Astu Möller, þingmanns Sjálfstæðis- flokksins. Vora andlitsáverkar al- gengastir (13) og/eða augnáverkar (6) eða í 83% tilvika, en í 4% tilvika urðu hendur og fingur fyrir barð- inu á skoteldum. Nær alltaf var um einhvem brana að ræða. Alls komu 147 í bráðamóttökuna frá kl. 12 á gamlársdag 1999 til kl. 12 á nýársdag en þar af vora 102 (69%) með áverka. Reyndust 23 þeirra (23%) hafa slasast af ein- hvers konar sprengjum, blysum, tertum eða flugeldum. Karlmenn vora í meirihluta slasaðra (18 af 23) og voru flestir í aldurshópunum 3- 10 ára (9) og 37-47 ára (10). Enginn hinna slösuðu hafði notað hh'fðar- gleraugu en einn hlífðarhanska. Það er álit yfirlæknis slysa- og bráðamótttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur að slys hafi verið heldur fleiri um síðustu áramót en árin á undan en nákvæmar upp- lýsingar liggja ekki fyrir. Upplýs- ingar frá augnlækningadeild Landspítalans leiða í ljós að þang- að komu sex manns um áramótin með augnáverka eftir sprengjur og skotelda, þar af þríi- sem komu ekki frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Enginn þeirra notaði öryggis- gleraugu en tveir hafa hugsanlega hlotið varanlegan augnskaða. ,Ástæða virðist því vera til að hafa uppi sérstakar varáðarráðstafanir um næstu áramót til að spoma við slysum af völdum skotelda," segir í svari heilbrigðisráðherra. Óvíst sé hins vegar hvort bann við notkun þeirra bæri árangur. Um 60% al- varlegra slysa í Danmörku hafi verið af völdum ólöglegra skotelda. Þyngri viðurlög vegna brota er tengjast barnaklámi SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra mælti í vikunni fyrir frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum sem felur m.a. í sér þyngingu refsingar við brotum er tengjast framleiðslu eða innflutningi á barnaklámi. „Af augljósum ástæðum þykir rétt að leggja þyngri refsingar við brotum þegar klámefni tengist bömum,“ sagði Sólveig m.a. í fram- söguræðu sinni. „Með því er leitast við að veita börnum frekari vernd gegpi þeirri misnotkun sem felst í framleiðslu og dreifingu barna- kláms, auk þess sem lögð er sérstök áhersla á alvarleika þessara brota.“ Vakti Sólveig sérstaka athygli á nauðsyn þess að fylgjast með þróun erlendrar löggjafar i þessu efni. Einnig væri samvinna við erlend lögregluyfirvöld mikilvæg, einkum þegar um dreifingu barnakláms milli Ianda á Netinu væri að ræða. Þá er í frumvarpinu lagt til að al- mennt sektarhámark almennra hegningarlaga verði afnumið en það hefur verið íjórar m. kr. frá 1985. Ennfremur að hcimilt verði við ákvörðun refsingar að taka tillit til þess hvort sakborningur hefur upplýst um aðild annarra að broti. Frumvarpinu vel tekið Frumvarp dómsmálaráðherra hlaut góðar undirtektir og fagnaði Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingar, t.d. afnámi sektar- hámarks og sagði tímabært að treysta dómstólum til að ákveða hver sekt skyldi vera. Ennfremur fagnaði hún sérstaklega þeim ákvæðum er lúta að barnaklámi en Bryndís mælti einmitt að lokinni umræðu um frumvarp ráðherra sjálf fyrir frumvarpi sem kveður á um að bætt verði málsgrein við 210. gr. hegningarlaga þar sem lögð verði sérstök refsing við því að búa til, flytja inn eða dreifa barnaklámi. Kolbrún Halldórsdóttir, þing- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, tók mjög í sama streng og kynnti frumvarp, sem dreift var í gær, um hetrar refsing- ar við brotum tengdum barnaklámi. Samræmd slysa- skráning um næstu áramót STEFNT er að því að sam- ræmd slysaskráning hefjist um næstu áramót, þar sem allir aðilar sem nú skrá slys taki upp samræmt skráning- arkerfi. Landlæknir verður ábyrgðarmaður Slysaskrár Islands og umsjónarmaður hennar, en skráin verður afar umfangsmikil þar sem gert er ráð fyrir um 100 þúsund skráningum á ári. Þetta kom fram í svari Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingamál- aráðherra, við fyrirspurn Astu Möller, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á Al- þingi í gær. Ingibjörg sagði að hér væri um samvinnu- verkefni margra aðila að ræða, en sérstaklega bæri þó að þakka frumkvæði slysa- deildar Sjúkrahúss Reykja- víkur og yfirlæknis hennar í málinu. „Stefnt er að sameiginlegu skráningarkerfi allra þeirra sem skrá slys, þar með talið sjúkrahúsa, heilsugæslust- öðva og annarra," sagði Ingi- björg. „Markmiðið er að skrá öll slys, meiðsl sem verða á fólki, umferðaróhöpp verði skráð, staður, tími, kring- umstæður og eðli slyss eða atviks." Itrekaði hún í seinni ræðu sinni að hér væri verið að tala um skráningu allra slysa, bæði á sjó og landi. „Samræmd slysaskráning verður mjög gott og virkt tæki til að reyna að greina or- sakir slysa og beita markvis- sum forvörnum og jafnvel af- mörkuðum aðgerðum," sagði heilbrigðisráðherra og bætti við að þessi skráningargrunn- ur yrði einstæður í veröldinni. Ingibjörg upplýsti að Tölvun- efnd hefði nú til afgreiðslu umsókn um starfsleyfi Slysa- skrár íslands og að taka þyrfti til við að hanna nauð- synlegan hugbúnað, fengi hún jákvæða afgreiðslu hjá nefnd- inni. Sagði Ingibjörg að það verkefni yrði að sjálfsögðu boðið út. Kom einnig fram í máli ráðherrans að mikil sam- staða væri um þetta mál í öll- um heilbrigðisstéttum. Aiþingi FUNDUR hefst í Alþingi í dag kl. 10.30. Eftirfarandi mál verða þar á dagskrá: 1. Lyíjalög og almannatrygging- ar (Lyíjamálastofnun o.fl.), 1. umræða. 2. Félagsleg aðstoð, 1. umræða. 3. Almannatryggingar, 1. um- ræða. 4. Markaðssetning vistvænna og lífrænna afurða, 1. umræða. 5. Veitinga- og gististaðir (nekt- ardansstaðir o.fl.), 1. umræða. 6. Stofnun hlutafélags um rekst- ur Póst- og símamálastofnunar (fyrirsvar eignarhluta ríkis- ins), l.umræða. 7. Félagsþjónusta sveitarfélaga (heildarlög), 1. umræða. 8. Réttindagæsla fatlaðra, 1. um- ræða. 9. Málefni innflytjenda, fyrri um- ræða. 10. Verðbréfaviðskipti og verð- bréfasjóðir, 1. umræða. 11. Húsgöngu og fjarsölusamn- ingar (heildarlög), 1. um- ræða. 12. Vátryggingasamningar (slysa- og sjúkratryggingar), 1. umræða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.