Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
__________UMRÆÐAN
Stefni á stjórn-
arsæti í SFR
ÖLL erum við í ein-
hvers konar fag- eða
stéttai’félögum. Með
þátttöku í þessum fé-
lögum viljum við vinna
að framgangi kjara-
mála okkar og fá tæki-
færi til ánægjulegs og
þroskandi samstarfs
við okkai- félaga. En til
þess að félagsstarf
verði ánægjulegt og
þroskandi fyrir með-
limina þurfa fundir fé-
lagsins að vera góðir,
umræður þeirra upp-
byggilegar, foi-ystu-
mennirnir vel að sér í
félagsstörfum og
mannlegum samskiptum og umfram
allt lýðræðissinnaðir í starfi.
Lýðræði hefur verið talið það
stjórnarfoiTn þar sem æðsta valdið
er hjá meirihlutanum, þar sem
stjómað er í þágu allra félagsmanna
og valið í trúnaðai-stöður með al-
mennum kosningum. Fyrir kemur að
þeir sem hafa valdið hættir til að
gleyma sér.
Eitt af meginhlutverkum forystu-
manna félaga er að byggja upp og
viðhalda heilbrigðum félagsanda
meðal félagsmanna. Félagsmenn
verða að geta litið á sig sem heild, ail-
h- jafnir, ekki má skipta félaginu í
hópa því þannig skapast óeining.
Forystumenn sem ekki skilja þetta
eru hlutverki sínu ekki vaxnir.
Undh'ritaður er í Starfsmannafé-
lagi ríkisstofnana og brátt fer í hönd
aðalfundur með laga-
breytingum og stjórn-
arkjöri. Á fundi trúnað-
armannaráðs þann 22.
febrúar síðastliðinn átti
að vinna tillögu ráðsins
um stjórn SFR til
næstu tveggja ára.
Uppstillingarnefnd
vinnm' forvinnu, gerir
tillögu til tmnaðarráðs
og síðan velur trúnað-
arráð úr þeim nöfnum
auk tilnefninga úr sal.
Formaður uppstilling-
arnefndar, sem jafn-
framt er formaður
lagabreytinganefndar
og varaformaður
stjómar, kynnti 10 nöfn og útlistaði
allar þær venjur og hefðir sem notað-
ar voru við valið.
Því næst óskaði fundarstjóri eftir
tilnefningum úr sal. Ein tilnefning
barst og var undirritaður hinn
„óheppni". Ég segi óheppni því það
skipti engum togum að formaður
uppstillingamefndar hljóp við fót í
ræðustólinn og hellti sér yfir mig.
Hún linnti ekki látunum fyrr en búið
var að troða þeirri skoðun upp á sem
flesta fundarmenn að listi uppstill-
ingamefndar væri hinn eini sanni og
ekki mætti hrófla við. Það getur ekki
tahst lýðræði né félaginu til fram-
dráttar ef fyrirfram er ákveðið hverj-
ir megi gefa kost á sér í stjórn og
hverjir ekki. Áhugasamir era settir
út í kuldann en aðrir kallaðir til. Sú
hefð að einungis megi stinga upp á
Stéttarfélög
Eitt af meginhlutverk-
um forystumanna fé-
laga, segir Valdimar
Leó Friðriksson, er að
byggja upp og viðhalda
heilbrigðum félagsanda
meðal félagsmanna.
einum frá hverjum starfshópi er úr-
elt enda hressiléga brotin þegar for-
manni uppstillingarnefndar hentaði.
Ágætu félagar (4.700 manns um
land allt) og aðrir tilheyrendur. Ég
hef starfað í félagsmálum í 20 ár og
er ýmsu vanur, en þessi framkoma
var ekki einungis formanni uppstill-
ingarnefndar til skammar heldur og
félaginu öllu. Satt best að segja hélt
ég að þetta yrði minn síðasti dagur í
félagsmálum, en mér var bent á að
þrátt fyrir skítkastið hefði ég fengið
50% atkvæða á fundinum og því
hvattur til að halda áfram.
Með á annað hundrað stuðningsyf-
irlýsingar í farteskinu held ég
ótrauður áfram og stefni á stjómar;
sæti í SFR til næstu tveggja ára. í
SFR er nefnilega sá varnagli á að
fullgildur félagsmaður getur með
ákveðnum fjölda undirskrifta kallað
á allsherjarkosningu.
Ég mun í næstu grein þýða þær
breytingar sem lagabreytinganefnd
hyggst leggja fyrir aðalfund þann 25.
mars. Þær breytingar bjóða upp á
eilífðarsetu stjórnar og formanns
SFR.
Veram vakandi,__________________
Höfundur er stuðningsfulltrúi og er i
framboði til stjórnar SFR.
Valdimar Leó Frið-
riksson
KANEBO DAGAR
I SNYRTIVORUDEILD HAGKAUPS
KRINGLUNNI KL. 12-17 í DAG,
9. MARS. TIL LAUGARDAGSINS 11. MARS
SIGURBJORN SVANSSON, FORÐUNARFRÆÐINGUR OG
SERFRÆÐINGUR KANEBO KYNNA ÞAÐ NYJASTA FRÁ LANDI
SÓIARUPPRASARINNAR.
BOÐIÐ ER UPP A FORÐUN, HUÐGREININGU OG FAGLEGA RAÐGJOF
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000
Lífgaðu upp á tilveruna með nýju vor- og
sumarlitunum frá HELENA RUBINSTEIN
47
V
Ghesilegir kaupaukar
Kynningar á eftirtöldum stöðum:
Fimmtudag og
fóstudag:
'Z'
SNYRTIVERSLUNIN
BYLGJAN
Kópavogi, s. 564 2011
Föstudag og
laugardag:
I snyrtivöruverslun
Hafnarfirði, s. 555 2615
XÁEH/r rt.J’ ywóV^u»v\ vóVoyw
KoppAndt
vtféx.&bJchM
tnfyutúuvúátnuC
Sl.OLAGt.HttiNI
Eyjaolóð 7*101 Reykjavik ♦ Simi Sl I 2200
PERSONULEG SERVERSLUN I UTIVIST
«T
• 3 mismunandi gerðir bakka, fylltir girnilegum samlokum
• Pöntunarsími er 5656000, alla virka daga milli kl. 8 - 16
SOmlr
'&á
-