Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000 13 AKUREYRI Morgunblaðið/Knstján Þessir vel klæddu kokkar tóku sér frí frá matseldinni í gær til þess að geta tekið þátt í hátíðarstemmningunni í miðbænum á Akureyri. Morgunblaðið/Kristján Börnin sungu af innlifun í verslunum, stofnunum og fyrirtækjum vítt og breitt um bæinn og myndaðist oft biðröð, enda mörg börn á ferli. Söngur og gleði á öskudegi AKUREYRSK ungmenni tóku daginn snemma í gærmorgun, klæddu sig upp í alls kyns furðu- búninga og héldu í bæinn fyrir allar aldir. Þar voru t.d. draugar, álfar, birnir og margar fleiri ver- ur sem sungu og dönsuðu fyrir „nammi“. Lagaúrvalið var mikið og flestir búnir að æfa tvö til þrjú lög til að fá smá gott í poka. Þeg- ar líða tók á morguninn var kött- urinn sleginn úr tunnunni og biðu börnin í langri biðröð eftir því að fá að taka þátt í þeirri skemmti- legu hefð á öskudeginum á Akur- eyri. Kristinn H. Gunnarsson formaður stjdrnar Byggðastofnunar Byggðakvóti Grímseyiuga kæmi sér betur í Hrísey KRISTINN H. Gunnarsson formað- ur stjórnar Byggðastofnunar telur að ekki eigi að úthluta byggðakvóta til Grímseyjar, fremur eigi að útdeila þeim byggðakvóta sem þangað á að fara til Hríseyinga. Þetta sagði Kristinn á hádegisverðarfundi á Ak- ureyri í gær, en að honum stóðu At- vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Há- skólinn á Akureyri og sjónvarps- stöðin Aksjón. Við umræður um byggðakvóta sagði Kristinn að 1.500 tonn, það magn sem Byggðastofnun hefur til umráða væri ekki nægilega mikið. Sagði hann að sín skoðun væri sú að ekki ætti að úthluta byggðakvóta til Grímseyjar, heldur ætti að nota það, sem í hlut eyjarinnar hefði komið, í Hrísey. Þar væru vandamálin, ekki í Grímsey. Takmarkið með byggða- kvóta væri að hann kæmi sem flest- um til góða. Taldi Kristinn að það magn sem Byggðastofnun hefur til umráða, 1.500 tonn væri ekki nægilega mikið. Stofnunin þyrfti að hafa yfir meira magni að ráða til að geta brugðist við þegar upp koma erfiðleikar í at- vinnulífi, líkt og varð í Hrísey eftir að pökkunarstöð Snæfells var flutt úr eynni og til Dalvíkur. Kristinn var spurður hvort Ólafsfjörður væri ekki inni í myndinni varðandi byggða- kvóta, en hann sagði vandann þar stærri en svo að byggðakvóti myndi leysa málin. „En við gætum gert gagn í Hrísey,“ sagði hann. Tregða í embættismanna- kerfínu Kristinn var einnig spurður hvort hann myndi beita sér fyrir því að Byggðastofnun yrði fundinn staður á landsbyggðinni og sagði hann það koma vel til greina. Það væri í raun eðlilegra að stofnunin hefði höfuð- stöðvar á landsbyggðinni. Engin ákvörðun lægi enn fyrir um hvort af slíkum flutningi yrði, en Kristinn benti á að þróunarsvið stofnunarinn- ar væri á Sauðárkróki og eflaust myndi það vaxa í framtíðinni. Sagði Kristinn iðulega vera mikla tregðu hjá embættismannakerfinu þegar að breytingum kæmi og væri heilmikið viðfangsefni við það að glíma. Stjórn- málamenn þyrftu að leggja mikla vinnu í að fá embættismenn til að endurskoða afstöðu sína. Stjórn- málamenn væru reiðubúnir að beita sér fyrir breytingum en mikil tregða í kerfinu ylli því að hægt gengi. V etrariþróttahátíð fþróttasambands íslands sett á Akureyri á laugardag Vetur konungur setti dagskrána úr skorðum VETRARÍÞRÓTTAHÁTÍÐ fþróttasambands íslands var sett við hátíðlega athöfn í Skautahöll- inni á Akureyri sl. laugardag. Sig- urður J. Sigurðsson, forseti bæjar- stjórnar, setti hátíðina í forföllum Kristjáns Þórs Júlíussonar bæjar- stjóra. Vetur konungur setti tölu- vert strik í reikninginn þessa fyrstu helgi vetraríþróttahátíðar- innar og féll öll dagskrá í Hlíðar- fjalli niður um helgina vegna veð- urs. í Skautahöllinni fór hins vegar vel um gesti og eftir að ávörp höfðu verið flutt við setninguna var sýnd- ur listdans á svellinu og verðlaun veitt fyrir frammistöðu á íshokkí- móti yngri flokka, þar sem um 100 þátttakendur frá Skautafélagi Ak- ureyrar, Skautafélagi Reykjavíkur og Birninum reyndu með sér. Þá tóku félagar í Hestamannafélaginu Létti þátt í setningarathöfninni og sýndu gæðinga sína á svellinu. Auk Sigurðar J., forseta bæjar- stjórnar, fluttu ávörp þau Björg Blöndal, sem situr í varstjórn ÍSI, Egill Jóhannsson, formaður Skíða- sambands íslands, og Magnús Finnsson, varaformaður Skauta- sambands íslands, en kynnir var Hermann Sigtryggsson. Eftir að formlegri dagskrá lauk var skauta- svellið opið fyrir almenning og var mjög fjölmennt á svellinu á tíma- bili. Til stóð að halda skíðamót, bæði í alpagreinum og göngu og snjó- brettamót í Hlíðarfjalli um helgina en þeim varð að fresta um viku vegna veðurs. Þá varð heldur ekk- ert af heimsókn Björns Bjarnason- ar menntamálaráðherra norður en hann ætlaði að vígja formlega nýtt og glæsilegt bjálkahús í Strýtu í Hlíðarfjalli á sunnudag. Morgunblaðið/Kristján Almenningi var boðið á skauta- svellið að lokinni formlegri setn- ingu Vetraríþróttahátíðarinnar og settu margir undir sig skaut- ana í tilefni dagsins. Morgunblaðið/Kristján Hart var barist í leikjum Skautafélags Akureyrar, Bjarnarins og Skautafélags Reykjavíkur á unglingamótinu sem fram fór í tengslum við Vetraríþróttahátíðina. Myndin er úr leik SA og Bjarnarins. Morgunblaðið/Kristján Þessar ungu skautadrottningar sýndu listdans á svellinu við setningu Vetraríþróttaháti'ðar ÍSÍ á laugardag. Kirkjuvika í Akureyrarkirkju Sænskur kór í heimsókn KIRKJUVIKA stendur nú yfir í Akureyrarkirkju en í dag, fimmtudag, munu prestar ásamt Ónnu Ólafsdóttur, fræðslustjóra Hjálparstofnun- ar kirkjunnar, heimsækja Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akur- eyri þar sem þau kynna og ræða um alþjóðasamstarf hjálparstofnana kirkna. Kyrrðar- og fyrirbænastund verður í hádeginu í dag og hefst hún með orgelleik en í lokin er boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimili. Opið hús verður fyrir eldri borgara frá kl. 15 til 17 í dag. Kammerkór Tónlistarskólans í Pitea undir stjórn Erics West- berg syngur og einnig Ömmu- kórinn undir stjórn Sigríðar Schiöth. Þóra Björg Magnús- dóttir hjúkrunarfræðingur seg- ir í máli og myndum frá dvöl sinni í Afríku og einnig verður almennur söngur og kaffiveit- ingar. Um kvöldið kl. 20 verða kór- tónleikar í kirkjunni þar sem kammerkór, orgelleikari og slagverksleikari frá Tón- listarháskólanum í Pitea í Norður-Svíþjóð flytur verk eft- ir ýmsa höfunda. Metrar yfir sjávarmáli AÐALSTEINN Svanur Sig- fússon myndlistarmaður opn- ar sýningu á Café Karólínu á Akureyri annað kvöld, föstudags- kvöldið, 10. mars kl. 20. Aðal- steinn Svanur Sig- fússon er búsettur á Akureyri og hefur stundað myndlist í tæpa tvo áratugi samhliða annarri iðju og einkum fengist við málverk. Á síðustu misserum hefur hann snúið sér að ljós- myndun og tölvugrafík og á þessari sýningu eru ljósmynd- ir af íslensku búsetulandslagi. Sýningin ber yfirskriftina m.y.s. (metrar yfir sjávar- máli) og er nítjánda einka- sýning Aðalsteins. Hún er haldin í tilefni af fertugs- afmæli listamannsins, sem ber einmitt upp á opnunar- daginn. Kvartett Sunnu Gunnlaugs SUNNA Gunnlaugs djass- píanísti leikur með kvartett sínum skipuðum þeim, Tony Malaby á saxófón, Drew Gress á bassa og Scott McLemore á trommur á tón- leikum á Akureyri og Húsa- vík. Tónleikarnir verða í Gryfju Verkmenntaskólans á Akur- eyri á föstudagskvöld, 10. mars, og hefjast þeir kl. 21. Á laugardag leikur kvartettinn í Borgarhólsskóla á Húsavík kl. 17. Á efnisskrá tónleikanna eru lög eftir Sunnu og útsetning- ar hennar á íslenskum lögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.