Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000
~
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Dylgjur Davíðs
Oddssonar
í FRÉTTUM fjöl-
miðla mánudaginn 6.
þessa mánaðar birtust
fregnir af umræðum á
Alþingi um frumvarp
sem lagt hefur verið
fram um eftirlit með
fjárreiðum stjórnmála-
flokkanna. Var meðal
annars vakið máls á að
atburðirnir í Pýska-
landi að undanförnu
gíefu tilefni til þess að
skylda íslenska stjóm-
málaflokka til þess að
gera grein fyrir fjár-
reiðum sínum. Davíð
Oddsson, forsætisráð-
herra, hélt því fram,
að Öryrkjabandalag Islands hefði
stutt kosningabaráttu Samfylking-
arinnar og vísaði til auglýsinga Ör-
yrkjabandalagsins í dagblöðum síð-
astliðið vor. Þar vakti bandalagið
athygli á kjörum öryrkja hér á
landi. Sagði Davíð að Samfylkingin
hefði notað fjármuni Öryrkja-
bandalagsins „blygðunarlaust“.
Öryrkjabandalag íslands hefur
öiðru hverju orðið að heyja harða
varnarbaráttu til þess að vernda
kjör öryrkja. Hefur þá engu máli
skipt hvaða flokkar hafa verið við
stjórnvölinn. Þannig var efnt til
andófs haustið 1986 þegar í bígerð
var að skerða framkvæmdasjóð
fatlaðra. Framsóknarflokkurinn
átti þá hlut að máli og formaður
Öryrkjabandalags Islands var
flokksbundinn framsóknarmaður.
Það tókst að hnekkja þessum
áformum stjórnmála-
manna, enda lögðust
allir forystumenn ör-
yrkja á eitt, þar með
talinn fyrrverandi
þingmaður sjálfstæð-
ismanna, baráttu-
kempan Oddur Ólafs-
son á Reykjalundi.
Veturinn 1990 hóf-
ust mikil átök vegna
heimilis einhverfra á
Seltjarnamesi. Af því
tilefni birtu Öryrkja-
bandalag íslands og
Landssamtökin
Þroskahjálp auglýs-
ingu í fjölmiðlum sem
kom mjög illa við
ýmsa, þar á meðal nokkra stjórn-
málamenn sem töldu að vegið væri
að sér.
Samtök fatlaðra hafa nokkrum
sinnum gefið út bækling fyrir kosn-
ingar til Alþingis þar sem vakin
hefur verið athygli á aðstæðum ör-
yrkja. Hafa ýmsir stjórnmálamenn,
þar á meðal núverandi fulltrúar
Samfylkingarinnar á Alþingi, iðu-
lega talið veist harðlega að sér. En
aldrei minnist ég þess að þeir hafi
sakað Öryrkjabandalag Islands um
að ganga erinda Sjálfstæðis- eða
Framsóknarilokks.
Orðhengilsháttur
Davíðs
Þegar Davíð Oddsson var borg-
arstjóri kom stundum til snarpra
deilna milli hans og forystumanna
öryrkja. Skömmu fyrir árið 1990
Arnþór
Helgason
flutti Félagsmálastofnun Reykja-
víkur í húsnæði til bráðabirgða þar
sem aðgengi fyrir hreyfihamlaða
var afleitt. Þessu mótmælti Ör-
yrkjabandalag Islands ásamt fleiri
samtökum. Af þessu tilefni tóku
fjölmiðlar Davíð Oddsson, borgar-
stjóra, tali. Hann sagði m.a. um for-
mann Öryrkjabandalagsins:
„Þessi Arnþór Helgason hefur
látið leiðast út í það að láta nota sig
í þágu borgarstjórnarminnihlutans
til þess að misbeita samtökum ör-
yrkja í vafasömum, pólitískum til-
gangi í þessu máli.“
Ég taldi ómaklega að mér vegið
og svaraði fullum hálsi. Þóttu mér
þessi ummæli Davíðs þeim mun
merkilegri sem hann hafði oft
reynst öryrkjum haukur í horni. En
Öryrkjabandalagið
Ég hélt að forsætis-
ráðherra hefði þroskast
svo í starfí, segir Arn-
þór Helgason, að hann
gætti þess að missa ekki
stjórn á sér og fara með
þvílíkt fleipur sem
heyra mátti frá Alþingi.
ég gerði mér um leið grein fyrir því
að borgarstjóri varð að láta skap-
bresti sína bitna á þeim þjóðfélags-
hópi sem hann taldi að síst gæti
borið hönd fyrir höfuð sér.
Samviska Davíðs
Síðastliðinn vetur lét Öryrkja-
bandalag Islands taka saman gögn
sem sýndu mun lakari stöðu ör-
yrkja hér á landi en á öðrum
Norðurlöndum. Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, lét sérfræðinga
sína taka saman skýrslu sem sýndi
þvert á móti að öryrkjar hefðu að
ýmsu leyti sterkari stöðu hér á
landi en þekktist annars staðar á
Norðurlöndum. Þessi ósannindi
voru rekin ofan í hann og varafor-
maður Öryrkjabandalagsins
harmaði að forsætisráðherra
þyrfti að byggja málflutning sinn
á slíkum rangfærslum. Síðan kom
út bók Stefáns Ólafssonar, próf-
essors, um íslensku leiðina þar
sem skýrt kemur í ljós að upp-
lýsingar Öryrkjabandalags Is-
lands voru réttar.
Nú, þegar menn vilja að fjár-
reiður stjórnmálaílokka verði
gerðar opinberar, bregst forsætis-
ráðherra við og missir stjórn á
skapi sínu. Brigslar hann Öryrkja-
bandalagi Islands um stuðning við
Samfylkinguna í síðustu kosning-
um. Hefði Davíð stillt betur skap
sitt mátti hann muna að fram-
kvæmdastjóri bandalagsins var
einn af stofnendum Vinstri hreyf-
ingarinnar - græns framboðs og
þáverandi formaður Öryrkja-
bandalagsins yfirlýstur stuðnings-
maður Sjálfstæðisflokksins. Stafar
ofsi Davíðs vafalaust af því að það
hentar ekki ýmsum að birta upp-
lýsingar um tengsl fyrirtækja og
fjármálafólks við Sjálfstæðisflokk-
inn. Þá ýfir það harma Davíðs að
minnst sé á ástandið í flokki
Kristilegra demókrata í Þýska-
landi sem geldur nú fyrir fjár-
málaspillingu Kohls, fyrrverandi
kanslara. Er það eðlilegt þegar
haft er í huga að Davíð bauð Kohl
til kvöldverðar síðastliðið haust,
en daginn eftir var þessi vinur
hans orðinn óferjandi og óalandi.
Það er vissulega rétt og skylt að
bera umhyggju fyrir vinum sínum
en óþarft að láta það bitna á ís-
lensku þjóðinni!
Sannleikurinn
er sagna verstur
Þegar Öryrkjabandalag íslands
hóf jafn harðskeytta baráttu og
raun bar vitni síðastliðinn vetur sök-
uðu ýmsir flokksgæðingar núver-
andi stjórnarflokka bandalagið um
ósannindi vegna þess að sannleikur-
inn kom flokksmönnum þeiiTa í
opna skjöldu. Síðasta upphlaup Da-
víðs sýnir áþreifanlega í hvert óefni
stefnir. Forystumen stjórnarflokk-
anna reyna með öllum tiltækum
ráðum að kæfa gagnrýna og
hreinskilna umræðu með upphlaup-
um og hótunum. Jafnvel er gengið
svo langt að starfsmenn sumra fjöl-
miðla eru lagðir í einelti. Þannig
stefna þeir Islendingum hraðfara í
ástand kúgunar og innrætingar sem
þeir segja að tíðkist á eyju nokkurri
undan austurströnd Bandaríkjanna.
Við þessu verður að bregðast með
einum eða öðrum hætti. Reka verð-
ur ofan í þá dylgjur þeirra og gera
þeim skylt að skýra mál sitt með
öðru en hálfkveðnum setningum og
orðhengilshætti. Ég hélt að forsæt-
isráðherra hefði þroskast svo í starfi
að hann gætti þess að missa ekki
stjórn á sér og fara með þvflíkt
fleipur sem heyra mátti frá Alþingi.
Megi félög öryrkja ekki vekja máls
á kjörum félagsmanna sinna er veg-
ið að tjáningarfrelsi í landinu.
Vegna ofurvalds einkavæddra fjöl-
miðla eiga félögin þess ekki annars
kost en birta auglýsingar um hugð-
arefni sín. Það stríðir hins vegar
gegn velsæmiskennd forystumanna
bandalagsins að styrkja stjórnmála-
flokka með fjármunum þess.
Höfundur var formaður Öryrkja-
bandalags fslands á árunum 1986-
1993.
tð-
*
Skuldabréf til 60 mánaða - Fyrsta afborgun í júní 2000 - Euro-Visa raðgreiðslur til 36 mánaða
Toyota Landcrusier - árg. ‘95
- Ek. 147 þús. - sjálfsk.
- Verð kr. 2.950.000,-
Ssangyong Musso - árg. '98
- Ek. 45 þús. - beinsk.
- Verð kr. 2.290.000,-
Toyota Corolla - árg. '99
- Ek. 5 þús. - beinsk.
-Verðkr. 1.070.000,-
Nissan Micra - árg. '97
- Ek. 24 þús. - beinsk.
- Verð kr. 870.000,-
Nissan Sunny - árg. '93
- Ek. 122 þús. - beinsk.
-Verðkr. 510.000,-
- Ek. 161 þús. - beinsk.
- Verð kr. 840.000,-
Nissan Maxima - árg. '98
- Ek. 13 þús. - sjáfsk.
- Verð kr. 2.520.000,-
Opel Astra - árg. ‘99
- Ek. 10 þús. - beinsk.
-Verðkr. 1.250.000,-
Nissan Primera - árg. '97
- Ek. 47 þús. - beinsk.
-Verðkr. 1.390.000,-
Isuzu Trooper - árg. '99
- Ek. 20 þús. - beinsk.
- Verð kr. 2.890.000,-
Umboösmenn: Akranes: Bjöm Lárusson sími 431 1650 - Akureyri: Sigurður Valdimarsson sími 461 2960 - Borgarnes: Bíiasala
Vesturiands sími 437 1577 - Egilsstaðlr: Víkingur Vélaverkstæði sími 471 1244 - Höfn Hornafirði: Bílverk sími 478 1990 - Húsavík:
S.C. Bílaverkstæði sími 464 1 060 - ísafjörður: Bílasalan ísafjarðarflugvelli sími 456 4712 - Keflavík: Bílasala Reykjaness sími 421
6560 - Reyðarfjörður Lykill sfmi 474 1199 - Sauðárkrókur: Bifreiðaverkstæði Áka sími 453 5141 - Selfoss: Betri bflasalan sími
482 3100 - Vestmannaeyjan Bílkaup/Bláberg sími 488 2270
BÍLAHÚSIÐ
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavík
Símar: 525 8096 - 525 8020 - Símbréf 587 7605
T