Morgunblaðið - 09.03.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000 25
ERLENT
Assad Sýrlandsforseti leysir rfldsstjórnina frá störfum
Lofar umbótum á sviði efna-
hagsmála og stjórnsýslu
Daraaskus, Beirút. AFP, AP.
HAFEZ al-Assad
Sýrlandsforseti leysti
á þriðjudag ríkisstjóm
landsins frá störfum
og tilnefndi landstjór-
ann í Aleppo, Moham-
med Mustafa Miro, í
embætti forsætisráð-
herra í stað
Mahmouds el-Zouebis
sem gegnt hefur starf-
inu í 13 ár.
Líkur eru taldar á
því að Farouk al-
Shara utanríkisráð-
herra og allt að fjórir
ráðherrar af 37 haldi
embættum sínum en
ný stjórn tekur senni-
lega við á laugardag.
Fari svo að al-Shara
hafi áfram umsjón með utanríkis-
málunum þykir víst að lítil breyting
verði á stefnu Sýrlendinga gagn-
vart Israel og deilunni um Gólan-
hæðir, sem Israelar hafa hersetið
síðan 1967.
„Nýja stjórnin mun aðeins fást
við innanríkismálin og ekki hafa
umtalsverð áhrif á utanríkisstefn-
una,“ sagði George Jabbour,
stjórnmálafræðingur við háskólann
í Damaskus, vinur Miros og fyrr-
verandi ráðgjafi Assads. „Þegar til
kastanna kemur munu æðstu ráða-
menn, þ.e.a.s. Assad, ráða þar ferð-
inni.“
Fyrir tilstuðlan Bandaríkja-
manna reyndu ríkin
tvö í janúar að semja
um deilumál sín. Það
tókst ekki en dagblað-
ið As-Safir sem er gef-
ið út í Líbanon og er
hliðhollt Sýrlending-
um, fullyrti í fyrirsögn
að líkumar hefðu auk-
ist á því að aftur yrði
sest við samninga-
borð. Stjórnarskiptin
væru fyrsta skrefið í
þá átt.
„Þetta er vísbend-
ing um að aftur verði
hafnar friðarviðræður
milli Sýrlendinga og
ísraela,“ hafði blaðið
eftir stjórnmálaskýr-
endum sínum í Dama-
skus, höfuðborg Sýrlands.
Líbönsk blöð sögðu að nýir ráð-
herrar myndu koma úr röðum
„ungra manna, háskólakennara og
sérfræðinga í tölvufræðum og sam-
skiptatækni". Rætt er um að konur
taki við ráðuneytum menningar-
mála og æðri menntunar.
Orðrómur hefur verið á kreiki
um uppstokkun í stjórninni árum
saman en hún hefur verið nær
óbreytt í átta ár. Er forsetinn var
endurkjörinn í fyrra og fékk nær
100% atkvæða flutti hann ræðu þar
sem greina mátti óánægju með
frammistöðu ríkisstjórnarinnar.
Kreppa hefur verið í efnahagslíf-
inu undanfarin tvö ár, atvinnulífið
er njörvað niður með boðum og
bönnum, meðal annars geta menn
fengið yfir 20 ára fangelsi fyrir að
höndla með erlendan gjaldeyri án
leyfis. Sýrlenskir kaupsýslumenn
hafa lengi hvatt til umbóta og blöð
landsins, sem eru annaðhvort ríkis-
rekin eða háð yfirvöldum, birta
nánast daglega harða gagnrýni á
svifaseina skriffinna, misnotkun á
almannafé og aðra spillingu.
Líbanska dagblaðið An-Nahar
sagði að stjórnin hefði orðið að
víkja vegna þess að hún hefði ekki
framfylgt þeirri stefnu sem Assad
forseti hefði boðað í upphafi fimmta
kjörtímabils síns 1999. Hann hefði
þá rætt um nauðsyn þess að „gera
umbætur á sviði stjórnsýslu og
efnahagsmála, ýta undir fjárfest-
ingar og efla útflutning".
Assad hefur í reynd verið ein-
ræðisherra Sýrlands um langt ára-
bil en í gær voru liðin 37 ár síðan
Baath-flokkur hans náði völdum.
Sonur og arftaki
tjáir sig
Sonur Assads og líklegur arftaki,
Bashar Assad, sagði í viðtali á
þriðjudag við arabíska dagblaðið A1
Hayat, sem gefið er út í London, að
hann hefði sent stjórnvöldum til-
lögur um nýja ráðherra og mark-
miðið með stjórnarskiptunum væri
að bæta stjórnsýsluna. Þörf væri á
umbótum á öllum sviðum, hvort
sem rætt væri um efnahagsmál,
upplýsingaöflun, menntun eða
tækni. Auk þess þyrfti að bæta
samskipti Sýrlendinga við umheim-
inn.
„Umbætur í ríkisstjórninni eru
lykilatriði í þessu ferli,“ sagði
Bashar Assad. Hann sagði að
fyrsta verkefnið yrði að draga úr
spillingu og gera stjórnsýsluna nú-
tímalegri. Nýi forsætisráðherrann
er 59 ára gamall, menntaður í hug-
vísindum í Damaskus og lauk dokt-
orsprófi við háskóla í Armeníu.
Hann er sagður vinnusamur og
heiðarlegur, hefur undanfarin sjö
ár stjórnað Aleppo, sem er næst-
stærsta borg Sýrlands og er sagður
njóta þar mikilla vinsælda. Er Miro
sagður hafa farið að dæmi kalífans
sögufræga, Harúns al-Rashíds og
dulbúist til að geta fylgst með
raunverulegri frammistöðu emb-
ættismanna í Aleppo.
Á erfitt verkefni
fyrir höndum
Verkefni Miros verða erfið viður-
eignar, er meðal annars bent á að
skapa þurfi fjölda starfa vegna
þess að reiknað er með að íbúa-
fjöldinn muni á næstu 25 árum
vaxa úr 18 milljónum í 25. Sýrland
á ekki aðild að Heimsviðskiptast-
ofnuninni, WTO og enn hefur ekki
tekist að semja við Evrópusam-
bandið um fríverslun sem ætlunin
var að hæfist árið 2010.
Mohammed Mustafa
Miro, væntanlegur
forsætissráðherra
Sýrlands.
Danmörk
Kjara-
samning'-
ar sam-
þykktir
Morgunblaðið. Kaupmannahöfn.
KJARASAMNINGAR
danski-a atvinnurekenda og
verkalýðsfélaganna eru nokk-
urn veginn í höfn eftir að at-
kvæðagreiðslu um þá lauk með
því að þeir voru samþykktir
með 80.07 prósentum greiddra
atkvæða. Undantekning eru
samningar flutningaverka-
manna sem felldu sína samn-
inga. Alls eru því samningar
fyrir um sex hundruð þúsund
launþega komnii' á hreint
næstu fjögur ár því flestir
samninganna gilda það tímabil.
Auk launahækkana fela
samningarnir í sér fimm auka-
frídaga, sem flest verkalýðsfé-
lögin höfðu sett á oddinn. Eftir
verkföllin vorið 1998 var bæði
atvinnurekendum og verkalýðs-
forystunni í mun að samninga-
ferlið gengi sem best fyrir sig
og það rættist. Verkalýðsfor-
ystan hafði samþykkt samning-
ana 1998 en þeir voru þá felldir í
atkvæðagreiðslu í félögunum. Á
endanum batt danska þingið
enda á verkfóllin með lagasetn-
ingu. Það er mat manna að
samningarnir núna hafi verið
vel undirbúnir og árangurinn
eftir því. Eftir þessa lotu er því
séð fram á rólega tíma á vinnu-
markaðnum næstu fjögur árin.
www.landsbanki.is
Aðalfundur
#
Landsbanka Islands hf.
r
Aðalfundur Landsbanka Islands hf. verður haldinn á Grand Hótel
Reykjavík, Sigtúni 38, föstudaginn 17. mars 2000 og hefst kl. 14:00.
Dagskrá: 1. Aöalfundarstörf samkvæmt 13 gr. samþykkta félagsins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum.
3. Tillaga um kaup félagsins á eigin hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.
4. Önnur mál sem eru löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi skulu hafa borist í hendur stjórnar meö skriflegum hætti, eigi síðar en sjö dögum
fyrir aöalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoöenda munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
á Laugavegi 77, Reykjavík, hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aöalfund.
Aögöngumiöar aö fundinum veröa afhentir hluthöfum og umboösmönnum hluthafa á skrifstofu Landsbankans, Laugavegi 77,
Reykjavík, frá 13. - 16. mars. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn veröa afhent við upphaf fundarins.
Bankaráð Landsbanka íslands hf.
Landsbankinn
Betri banki