Morgunblaðið - 09.03.2000, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ferð Albright um SA-Evrópu
Kaldar mót-
tökur í Bosníu
Prag, Brcko. AFP, AP.
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, hélt frá
ættlandi sínu Tékklandi í gær, eftir
þriggja daga opinbera heimsókn,
með fyrirheit um að eiga eftir að
leggja leið sína þangað aftur - ekki
þó sem forseti. Breytti þar engu um
að Vaclav Havel Tékídandsforseti
hvetti hana opinberlega til að gefa
kost á sér til að verða eftirmaður sinn
þegar kjörtímabilinu lýkur árið 2003.
Albright var greinilega hrærð yfir
móttökunum sem hún fékk í fæðing-
arlandi sínu, en í heimsókninni tók
hún meðal annars þátt í minningar-
athöfnum í tilefni af því að 150 ár eru
liðin frá fæðingu Tomas Masaryks,
íyrsta forseta Tékkóslóvakíu, og var
veitt heiðursviðurkenning háskólans
í Brno (Brúnn). Tékkland var fyrsta
landið af fjórum í Mið- og Austur-
Evrópu, sem hún hyggst sækja heim
í þessari ferð, sem væntanlega verð-
ur hennar síðasta til þessara landa
áður en ráðherratíð hennar lýkur í
haust, er kjörtímabil Bills Chntons
forseta rennur út.
Mótttökumar sem hún fékk í
Brcko í Bosníu, þangað sem hún hélt
frá Prag, voru ekki eins hjartnæm.
Hundruð Bosníu-Serba hrópuðu ók-
væðisorð að henni og reyndu að grýta
hana með eggjum, en heimsókn AI-
bright til þessarar stríðshrjáðu borg-
ar var fyrst og fremst til að leggja lið
tilraunum til að koma þar á friðsam-
legu samlífi þjóðabrotanna þriggja,
Serba, Króata og Bosniu-múslíma.
Og í bænum Kiseljak, sunnarlega í
Bosm'u, voru allt að 10.000 Króatar
saman komnir til að mótmæla 45 ára
fangelsisdómi sem stríðsglæpadóm-
stóll Sameinuðu þjóðanna í Haag
felldi yfir króatíska herforingjanum
Tihomir Blaskic íyrir skemmstu,
fyrir voðaverk framin í Bosníu-stríð-
inu gegn óbreyttum borgurum af
þjóðemi múslíma.
Brcko lýst fjölþjóðlegt
stjórnsýslusvæði
Til stóð að Albright tæki í Brcko
þátt í athöfn þar sem formlega átti að
lýsa borgina fjölþjóðlegt stjómsýslu-
svæði, en ákvörðun hafði verið tekin
um það í fyrra í því skyni að koma til
móts við kröfur allra þjóðabrotanna
þriggja.
Brcko hefur á að skipa fjölþjóð-
legri borgarstjóm, sem heíúr hlotið
staðfestingu hinna alþjóðlegu emb-
ættismanna sem farið hafa með yfir-
AP
Madeleine Albright, utanrikisráðherra Bandaríkjanna, sem fæddist í Prag undir nafninu Marie Korbelova, flyt-
ur ræðu utan við Hradjín-forselahöllina á þriðjudag.
stjóm borgarinnar frá því Bosníu-
stríðinu lauk fyrir fimm ámm. íbúar
Brcko em undanþegnir herþjónustu,
sem er hugsað sem táknræn aðgerð í
þágu friðar.
En þegar bílalest Albright nálgað-
ist byggingu borgarstjómarinnar
hófu um 300 mann hópur Serba að
hrópa „morðingjar", „þjófar“ og önn-
ur ókvæðisorð. Einnig heyrðist
„Dodik svikari", en Milorad Dodik
fer fyrir stjóm Bosníu-Serba, sem
ráða yfir helmingi landsvæðis Bosn-
íu, en hann hefur fylgt samstarfsfúsri
stefnu gagnvart Vesturlöndum.
Albrigth hélt aftur til Sarajevo,
höfuðborgar Bosníu, siðdegis í gær,
þar sem hún átti að hitta æðstu
stjómmálamenn landsins. Siðan á
leið hennar að liggja á fúnd Dokiks í
Banja Luka, stjómarsetri hlutalýð-
veldis Bosníu-Serba. Dodik hefur
boðið stjóm Slobodans Milosevics í
Belgrad birginn og ekki farið að fyr:
irmælum hennar. Bandaríkin og
fleiri lönd saka Milosevic um að
kynda áfram undir misklíð milli þjóð-
ernahópa, ekki bara í Kosovo heldur
ekki síður í Bosníu, þar sem hann
hefur leynt og ljóst reynt að grafa
undan bosm'u-serbneskum stjórn-
málamönnum sem sýnt hafa vilja til
málamiðlana.
Brcko hafði frá því stríðinu lauk
verið þar til í fyrra á valdi Bosníu-
Serba einna, en fyrir ári var borgin
færð undir samstjóm þeirra og sam-
bandsstjórnar Bosmu-Króata og
múslíma.
Kohl býð-
ur veð-
setningu á
eigin húsi
Berlfn. AFP, AP.
Myra Hindley og Ian Brady enn í fréttunum í Bretlandi
Saman myrtu þau fímm
ungmenni fyrir 40 árum
Daily Telegraph
Ian Brady og Myra Hindley. Myndirnar voru teknar er réttað var í máli
þeirra í Bretlandi fyrir fjörutíu árum.
HELMUT Kohl, fyrrverandi kanzl-
ari Þýzkalands, hefur lýst sig reiðu-
búinn að veðsetja eigið hús til að
hjálpa til við að mæta sektum sem
flokkur hans, Kristilegir demókratar
(CDU), þarf að greiða vegna ólög-
legra leynisjóða flokksins sem haldið
var úti í valdatíð Kohls. Þýzka viku-
blaðið Wirtschaftswoche greindi frá
því í gær að þetta kæmi fram í næsta
hefti blaðsins, sem kemur út í dag.
Blaðið segir Kohl tilbúinn að veð-
setja hús sitt í Oggersheim við
Ludwigshafen, en hann er nú að
safna yfir sex milljónum marka, um
220 milljónum króna, til að mæta
sektum sem reiknað má með að
flokknum verði gert að greiða, í sam-
ræmi við ákvæði laga um fjármögn-
un stjórnmálaflokka, fyrir þær u.þ.b.
tvær milljónir marka sem Kohl hefur
viðurkennt að hafa tekið við frá
ónafngreindum velunnurum og
geymdar voru á leynireikningum,
framhjá opinberu bókhaldi flokks-
ins, á árunum 1993-1998.
Kohl hefur ítrekað neitað að gefa
upp hverjir hinir ónafngreindu vel-
unnarar voru, og sætir rannsókn
málið rannsókn bæði af hálfu þings
og saksóknara.
En hann hefur nú þegar nefnt
nokkra þeirra sem hafa lagt honum
lið í nýjustu fjársöfnuninni. Þar á
meðal eru, að sögn Wirtschafts-
woche, leikkonan Uschi Glas og
Berti Vogts, fyrrverandi landslið-
sþjálfari Þýzkalands í knattspymu.
London. Morgunblaðið.
HANN er 62 ára. Hún er 57. Fyrir
nær 40 árum myrtu þau fimm ung-
menni. Nú berst Ian Brady fyrir því
að fá að deyja í friði en Myra Hind-
ley vill fá frelsi sitt á nýjan leik.
1966 var Ian Brady fundinn sekur
um morð á John Kilbride, tólf ára,
Lesley-Ann Downey, tíu ára, og
Edward Evans, sautján ára. Hann
var dæmdur í þrisvar sinnum lífstíð-
arfangelsi án möguleika til náðunar.
Myra Hindley var fundin sek um
morðin á Lesley-Ann og Edward og
um vitorð í morðinu á John. Hún var
dæmd í ævilangt fangelsi.
Sannað þótti, að Myra Hindley
hefði lokkað fórnarlömbin á vald sitt
og Brady og þau síðan verið svívirt
og myrt. Líkin voru grafin á Moor-
heiði. Þegar Brady og Hindley voru
handtekin var henging enn við lýði á
Bretlandi en var afnumin rétt áður
en dómarnir féllu. 1987 játuðu þau
svo að hafa einnig myrt Keith Benn-
ett, tólf ára, og Pauline Reed, sextán
ára.
Myra Hindley og Ian Brady stóðu
í bréfaskiptum í fangelsunum í sex
ár en þá batt Myra endi á það sam-
band þeirra.
Brady fór í
hungurverkfall
Ian Brady gisti ýmis fangelsi
framan af en 1985 var hann fluttur í
Ashworth-sjúkrahúsið. f lok sept-
ember sl. hóf hann hungurverkfall
vegna þess að hann var fluttur fyrir-
varalaust á deild fyrir sjúklinga með
alvarleg, geðræn vandamál. For-
ráðamenn sjúkrahússins gáfu þá
skýringu, að þeir hefðu óttast að
Brady stytti sér aldur. Þegar ekkert
lát varð á hungurverkfallinu tóku
sjúkrahúsmenn fram fyrir hendurn-
ar á Brady og neyddu ofan í hann
næringu. Hann hefur nú höfðað mál
vegna þess og krefst þess að fá að
deyja í friði.
Staða fanga í fangelsi er ljós.
Hann hefur rétt til að fara í hungur-
verkfall og fangelsisyfirvöld mega
hvorki bera honum vott né þurrt,
hafi hann mælt svo um áður en
hungurverkfallið hófst og hann þá
verið talinn heill á geðsmunum. Á
sjúkrahúsum gilda aðrar reglur. Og
yfirmenn Ashworth benda á, að Ian
Brady hafi verið úrskurðaður trufl-
aður á geði.
Ian Brady hefur sagt, að hann eigi
þá ósk eina eftir að fá að deyja.
Hann segist reiðubúinn til að fara
með málið fyrir mannréttindadóm-
stólinn í Haag, neiti brezka dóm-
skerfið honum um þessa bón.
Brady hefur skrifað BBC langt
bréf, þar sem hann m.a. segist dauð-
þreyttur á lífinu í Ashworth, sem
hann kallar ruslakistu fyrir geð-
sjúklinga. Segist hann vart geta
beðið þess dags, sem hann yfirgefi
þennan óþverrastað í líkkistu.
Hindley rekur
mál sitt í BBC
Hindley hefur líka staðið í bréfa-
skiptum við fjölmiðla. Fyrir fimm
árum sendi hún The Guardian grein
um sín yngri ár og síðar stóð hún
m.a. í bréfasambandi við Duncan
Staff hjá BBC, þar sem hún á 150
blaðsíðum rakti sína hlið mála. Þessi
bréf urðu undirstaða sjónvarpsþátt-
ar, sem sýndur var í BBC á miðviku-
dagskvöld. Þar var lesið úr bréfum
Hindley, þar sem hún lýsti sjálfri
sér sem viljalausu verkfæri Brady
og fjallaði einhliða um sekt sína og
eftirsjá. I einu tilviki er til
segulbandsupptaka af pyndingum
þeirra Brady, en um það atvik kaus
Hindley að fjalla sem allra minnst.
Þannig var ekki síður áberandi,
hverju hún kaus að sneiða hjá, en
hvað hún sagði.
Margir urðu til að mótmæla þætt-
inum, þ. á m. aðstandendur fórnar-
lamba hennar og Brady og Ian Bra-
dy, sem hefur jafnan mótmælt öllum
röddum þess efnis, að Myra Hindley
kunni að fá að fara frjáls ferða sinna.
Fyrr á árinu var Hindley flutt úr
fangelsi í sjúkrahús, þar sem gerð
var á henni höfuðaðgerð; önnur að-
gerðin á nokkrum árum. Hún var þá
úrskurðuð nægilega heil á geðsmun-
um til að tekið væri mark á ósk
hennar um það, að ef hún félli í dá á
meðan á uppskurðinum stæði, yrði
ekki reynt að lífga hana við. Að sögn
lækna tókst uppskurðurinn vel.
Ber brigður á
rétt ráðherra
Þegar Myra Hindley var dæmd í
ævilangt fangelsi, lagði dómarinn
ekki aðrar línur um framkvæmd
dómsins en þær, að fangelsisdvölin
skyldi vera til mjög langs tíma. Sext-
án árum síðar var ákveðið, að refs-
ingin skyldi vera 25 ára fangelsi en
síðan breyttu ráðherrar því í lífstíð-
arfangelsi og Jack Straw, sem nú
situr á innanríkisráðherrastóli, hef-
ur sagt, að ekki hvarfli að honum að
láta Hindley lausa. En hún heldur
því nú fram, að ráðherrar hafi ekk-
ert vald til þess að hringla með fang-
elsisdóm sinn. Hún segist hafa setið
inni þau 25 ár, sem tiltekin voru, og
gott betur og nú eigi hún allan rétt á
því að fá að ganga laus.
Mál hennar er nú fyrir dómstóli
lávarðadeildarinnar. En eins og
Brady segist hún vera reiðubúinn að
leita réttar síns fyrir mannréttinda-
dómstóli Evrópu, fái hún ekki sínu
framgengt í Bretlandi.
Ávordögum 1966 stóðu Ian Brady
og Myra Hindley hlið við hlið í rétt-
arsalnum í Chester Castle. Nú, 34
árum síðar, standa þau aftur í rétt-
arsal; reyndar ekki þeim sama og
ekki saman, því hann sækir sitt mál í
Liverpool, en hún í London. Málatil-
búnaðurinn er líka ólíkur, en takm-
arkið er eitt og hið sama; að losna úr
þeirri fangavist, sem þau voru
dæmd í eftir morðin á Moorheiðinni.
■ --------..— -C
//Ifmadisþakkir
Innilegar þakkir fœri ég öllum þeim, sem
heimsóttu mig og glöddu með gjöfum og skeyt-
um á nírœðisafmœli mínu 25. febrúar.
Guð geymi ykkur öll.
Anna Jónsdóttir,
Langagerði 9.
^ 2