Morgunblaðið - 09.03.2000, Page 59

Morgunblaðið - 09.03.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MARS 2000 59 BRÉF TIL BLAÐSINS Krabbameinið þekkir ekki aldursmörkin Frá Elínu Pálmadóttur: í FRÉTTUM frá Krabbameinsfé- laginu kemur nú fram í fjölmiðlum að konur mæti illa í brjóstaskoðun. Aðeins mæti um helmingur af kon- um á aldrinum fram að 69 ára, sem boðið er og minntar á með bréfi. Það þykir auðvitað ótækt og raunar nær óskiljanlegt. íslenskar konur gera sér ekki grein íyrir hvflíkur lúxus þetta tilboð er. Ég hefi alltaf verið óskaplega þakklát fyrir að hafa átt þess kost. Alltaf mætt þegar ég fékk bréf um að koma. Þar til ég áttaði mig á að ég beið árangurslaust eftir áminningu um að tími væri kominn fyrir næstu skoðun - því á þeim tíma væri ég orðin 69 ára gömul. Fullorðnar konur fá engu síður brjóstakrabbamein út ævina en þær yngri. Frönsk krabbameinssamtök hvetja t.d. sérstaklega konur til að fara í reglulega skoðun frá fimmtugu og fram úr. Ég furðaði mig á þessu og hefi talað um það við lækna á staðnum. Mér skildist að þessi til- högun miðaði við statistíkina, að hafa í lagi samanburðartölur við nágrannalöndin, einkum Svía, ef ég hefi skilið loðin svör rétt. Samt læðist nú að mér lúmskur grunur um að þarna sé kannski enn á ferð þetta nokkuð séríslenska við- horf að eftir ákveðin aldursmörk nái fólk ekki máli. Kemur m.a. fram í öðruvísi og öllu veni skattlagingu á tekjur en á annað fólk í landinu og stundum talað við þetta fólk eins og dómgreindin hafi horfið á tilteknu ári. Ohætt sé að bera á borð að með hærri sköttum á tekjur sé það ein- mitt betur sett en með lægri skatt- lagningu á sömu upphæð! Hvað um það þá verðum við að vona að þetta viðhorf nái a.m.k. ekki til fleiri þátta heilbrigðismála! En hvatningin nú til ungra kvenna um að skila sér betur í PALLALVFTUR Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - simi 461-1070 SLYSAUARNAFÉLAQID LANDSBJÖRG Londssomband björgunarrreita Happdrætti Slysavarnafélagsins Landsbjargar Dregið hefur verið í fyrsta útdrætti happdrættisins. Aðeins dregið úr greiddum miðum. Eftirtaldir aðilar hlutu vinning: 1. IBM PC heimilistölva fró Nýherjo oð verðmæti 160.000 kr. Nofn: Asto Gunnorsdóttir, Álokvísl 70,110 Reykjovík Miðinr. 17421 2. Ferð til Dublinor fyrir tvo oð verðmæti 75.000 kr. Noin: Július Gestsson, Stekkjorgerði 11, 600 Akureyri Miði nr. 54618 3. Ferð til Dublinor fyrir tvo oð verðmæti 75.000 kr. Noln: Pórður Jónsson, Úthlið 2,220 Hofnoriirði Miðinr. 61916 _____ *s5&s&sr ' HERBALIFE ' DREIFINGARAÐILINN ÞINN Heimir Bergmann sjáltstæður dreifingaraðili. S. 698 3600. ^^^NetfangijTeimbergSislandial^^ krabbameinsskoðun gefur til kynna að nægt svigrúm sé til skoðunar hjá Krabbameinsfélaginu. Þó í fréttum og auglýsingum sé vandlega tekið fram að hún nái aðeins til kvenna að 69 ára aldri, þá er eldri konum nefni- lega velkomið, ef þær taka sig fram um það sjálfar, að koma og vel tekið á móti þeim. Fyrir því hefi ég ágæta reynslu. En málið er að eftir þessar kynningar, og fyrr, átta konur sig ekki á því að nú verður það að vera að eigin frumkvæði og án hvatning- ar. Einkum þar sem þær hafa vanist því að fá bréf. Úr því enginn annar virðist ætla að vekja athygli á þessu vil ég ekki láta hjá líða að benda kon- um eldri en 69 ára á að þær geta far- ið í brjóstaskoðun, svo mikilvæg sem hún er, og því er vel tekið. Að nú, eft- ir sjötugt, sé það eigið framtak sem getur stuðlað að því að illkynjað ber í brjósti finnist nógu snemma. Og að enginn annar lætur sig það varða en þær sjálfar. Ég varð að vísu dálítið spæld þeg- ar ég uppgötvaði þetta, eftir að hafa alla ævi haft ómælda trú á þessari ágætu starfsemi. Ekki síst dáðist ég að þeim rannsóknum sem þarna eru unnar og vonandi eiga efth' að koma öllum aldurshópum til góða í fram- tíðinni. Og auðvitað vjll hver al- mennileg manneskja leggja sitt til heilsufarsupplýsinga, hvort sem það er hjá Krabbameinsfélaginu eða Is- lenskri erfðagreiningu, enda njótum við öll góðs af framförum á lækni- ingasviði ef sjúkdóma ber að. Er ekki einu sinni boðið upp á að af- þakka þau gæði! Ég vil semsagt hvetja konur, þótt þær séu „komnar á aldur“, til að halda áfram að fara í brjóstaskoðun. Bara hringja sjálfar. Krabbameinið virðist nefnilega ekki vita af þessum aldursmörkum. ELÍN PÁLMADÓTTIR blaðamaður. Myndlistarsýning Elísabet Ýr Sigurðardóttir opnar sína fyrstu myndlistarsýningu á Kaffi 17, Laugavegi 91, föstudaginn 10. mars. Opnunartími: Mán.—fim. kl. 11.00—18.00 Föstud. kl. 11.00-18.30 Laugard. kl. 11.00—17.00 Verið velkomin Markvisst tölvunárn NTVr skóliirnir i Kópavogi og Hafiidrfirði b jóðrt upp <i tvö brtgnýt og nwrkviss tölvunóiriskeid íyrir byrjeudur. 60 klst. cöa 90 konnslustumlir: J »- Grunnatrtði i upplýstngatækni ► Windows 98 stýrikeríið »- Wordritvinnslci ► Excel töflureiknir ► Acœss gagnagrunnur - PowerPoint (gerð kynningarefnis) ► Internetið (vefurlnn ogtölvupóstur) ♦ 48 klst oða 72 kennslust undir: ) ► Almennt um tölvur og Windows 98 ► Wordritvlnnsla ► Excet töflureiknir ► Intemetið (vefurinn og tölvupóstur) Boðið er upp á bæði morgun og kvoldnomskeid og hefjcist n<estu nániskeið 14. og 20. mrtrs. IJpplýsingrtr og innrit un í simum SSS 4980 Og 544 4500. Nýi tölvu- & viöskiptaskólinn Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirðl - Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981 Hl(ðasmára9- 200 Kópavogi - Simi: 544 4500 - Fax: 544 4501 Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasiða: www.ntv.is Hrísrimi — 3ja herb. — bílskýli Vorum að fá í einkasölu mjög góða um 90 fm 3ja herb. íbúð á 1. hæð í 2ja hæða fjölbýli. Sérinngangur og -verönd. Gott útsýni. Næg bílastæði. Góðar innréttingar og sérþvottaherb. Stæði í mjög góðu bílskýli undir húsinu. Ekkert áhv. Eignahöllin fasteignasaia, Hverfisgötu 76, Reykjavfk, sími 552 4111, fax 552 3111. - ctlvöru örívícldarliörmuii... Kennt er á 3D Studio Max sem er eitt öflugasta þrívíddarforritid á markaðinum í dag og læra nemendur m.a. að vinna með líkanagerð, efnisáferðir, myndsetningu og hreyfi my ndagerð fyrir sjónvarp og filmur. Námskeiðð er 120 klst. eða 180 kennslustundir. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga frá 18 - 22 og á laugardögum frá 13:15 -17:15. Næsta nám- skeið byrjar 21. mars og lýkur 3. júni. ssmwíommi Stoídn R. Þorsson Ég frétti hjá vini mínum að NTV væri að kenna á 3D studio MAX. Þar sem ég er tækniteiknari og notkun þrívíddarforrita fer vaxandi á teiknistofum, nýtist þetta nám mjög vel í mínu starfi og frekara námi. Það er vel staðiðað kennslu og eru námsgögn og öll aðstaða til fyrirmyndar. Ég mæli hiklaust með þessu námskeiði fyrir alla sem hafa áhuga á Þrívíddarvinnu. Upplýsmgcvt” og miiritun í símiuii 544 4500 og 555 4980 ♦ MÍM Nýi tölvu- & IKKV viðskiptaskolinn Hólshrauni 2 - 220 Hafharfirði - Slmi: 555 4980 - Fax: 555 4981 Hlíöasmári 9 - 200 Kópavogi - Sfmi: 544 4500 - Fax: 544 4501 Töivupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasíða: www.ntv.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.