Morgunblaðið - 31.03.2000, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Boðið upp í skákveislu á öflugu Heimsmóti og Reykjavfkurmóti
Tveir sterkustu skák-
menn heims á sama móti
Garrí Kasparov fer yfir skák sína við Jan Timman ásamt Friðriki Ólafssyni, John Speclman og Viktori Korts-
noj á 33. heimsbikarmótinu, sem haldið var á íslandi 1988. Kasparov, Friðrik, Timman og Kortsnoj eru meðal 12
þátttakenda á Heimsmótinu í skák, sem hefst í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs á morgun og lýkur á sunnudag.
Tveir sterkustu skák-
menn heims, Vishwan-
athan Anand og Garrí
Kasparov, tefla á
Heimsmótinu sem hald-
ið verður í Salnum í
Kópavogi um helgina. 5.
apríl hefst síðan mjög
öflugt Reykjavíkurmót,
sem að þessu sinni fer
fram í Ráðhúsinu, og
leiða þar saman hesta
sína þekktir skákmenn
frá 20 löndum.
EITT sterkasta skákmót, sem haldið
hefur verið á íslandi, hefst á morgun
í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs.
Á Heimsmótinu í Kópavogi tefla
tveir stigahæstu skákmenn heims,
Garri Kasparov og Vishwanathan
Anand, og er það í fyrsta skipti, sem
það gerist á skákmóti hér á landi.
Kasparov og Anand komu til lands-
ins í gær ásamt Jan Timman, ívani
Sokolov og Alexi Wojtkiewicz. Sjötti
erlendi skákmaðurinn er Viktor
Kortsnoj, sem kemur til landsins í
dag. Sex Islendingar tefla á mótinu.
Þeir eru Jóhann Hjartarson, Hannes
Hlífar Stefánsson, Margeir Péturs-
son, Jón L. Árnason, Helgi Ólafsson
og Friðrik Ólafsson, sem hyggst
dusta rykið af peðunum. 5. apríl
hefst síðan eitt öflugasta Reykjavík-
urmót, sem haldið hefur verið, og
verður teflt í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þar keppa skákmenn frá 20 löndum
og hafa sennilega aldrei áður verið
fulltrúar jafnmargra þjóða á þessu
móti.
„Það er mjög auðvelt að fá útlend-
inga tíl að tefla á íslandi," sagði Ás-
kell Örn Kárason, formaður Skák-
sambands íslands, þegar hann var
spurður hvernig hefði gengið að
skipuleggja mótin. „Það hefur því
ekki þurft að ganga á eftír neinum
þótt vissulega hafi þurft að semja við
skákmenn á borð við
Kasparov. Bæði er
hans tími takmarkað-
ur og einnig þurfti að
semja um hans þókn-
un.“
Áskell Öm sagði að
kröfur Kasparovs um
þóknun hefðu verið
mjög viðráðanlegar,
en niðurstaðan væri trúnaðarmál.
Hann kvað Kasparov einnig vilja vita
nánast allt um skipulag mótsins
þannig að augljóst væri að hann vildi
tryggja að ekkert gæti komið sér á
óvart og hafa sem mesta stjórn á um-
hverfínu.
Rafeindaborð gera kleift
að sýna leiki jafnharðan
Nýjasta tækni verður notuð til að
miðla skákunum á heimsmótinu í
Kópavogi og gerbreytir hún allri að-
stöðu til að fylgjast með skákunum.
„Við verðum með rafeindaborð,
sem varpa upp leikjunum jafnóðum,
og skákimar verða allar sendar
beint út á netinu,“ sagði hann. „Þeir,
sem em að koma inn í miðja skák
geta byrjað á upphafínu og séð
hvemig hún hefur teflst fram að
því.“
Áskell Öm sagði að það væri að
nokkru leyti tilviljun að þessi tvö
sterku mót bæri upp á sama tíma.
„Heimsmótið í Kópavogi hefur
haft árs aðdraganda og átti upphaf-
lega að halda það í haust, en það
dróst af ýmsum ástæðum," sagði
hann. „Bæði tók fjármögnun tíma og
erfitt var að láta allt passa saman.
Þar kom að ljóst varð að hægt væri
að tengja Reykjavíkurskákmótið,
sem er liður í dagskrá menningar-
borgar Reykjavíkur og er haldið
annað hvert ár á síðari hluta vetrar.
Það var hægt að nýta sér með því að
fá keppendur af fyrra mótinu til að
keppa á því síðara. Þannig munu allir
útlendu keppendumir á heimsmót-
inu nema Kasparov og Anand einnig
keppa á Reykjavíkurmótinu.“ Áskell
Örn sagði að ekki mætti gleyma sál-
fræðiþættinum þegar íylgst væri
með skákmóti.
„Þegar keppt er á móti með svona
stuttum umhugsunartíma verður
mannlegi þátturinn meira yfirgnæf-
andi,“ sagði hann. „Hættan á mistök-
um verður meiri og það
reynir meira á einbeitingu
og jafnvel vissa heppni.
Það er ljóst að Kasparov,
sem er óumdeilanlega
sterkasti skákmaður í
heimi, tekur meiri áhættu
því að líkur em meiri á
óvæntum úrslitum.“
Umhugsunartími á
keppanda og skák verður 25 mínút-
ur. Teflt verður í tveimur riðlum og
verða Anand og Kasparov í sitthvor-
um riðlinum. I kvöld verður dregið
um það hvar hinir skákmennimir
lenda og í hvaða röð verður teflt í
riðlunum, en þannig hefur verið
gengið frá málum að þrír erlendir og
þrír íslenskir skákmenn verða í
hvorum riðli. Teflt verður í riðlunum
á morgun og til úrslita á sunnudag.
Fyrstu verðlaun í mótinu eru rúmar
300 þúsund krónur, önnur verðlaun
um 250 þúsund krónur og þriðju
verðlaun 175 þúsund krónur. Verð-
laun eru veitt fyrir sex fyrstu sætin.
Mótíð verður sett klukkan eitt á
morgun og hefst það að nýju á sama
tíma á sunnudag.
Áskell Örn sagði að það væri mis-
jafnt eftir hverju áhorfendur á skák-
mótum væru að slægjast. Sumir
kæmu til að sjá skáksnillingana og í
þessu tilfelli heimsmeistarann. Aðrir
væru uppteknari af skákunum sjálf-
um.
„Ég býst við að skákir íslending-
anna muni vekja mesta athygli og
það eru alltaf vissar vonir um að ein-
hverjum þeirra takist að gera heims-
meistaranum skráveifu,“ sagði hann.
„Einnig verða úrslitaskákirnar í
Heimsmótinu áhugaverðar og má
búast við að fylgst verði með þeim út
um allan heim á netinu í gegnum
gáttina strik.is.“
Áskell Öm sagði að það væri fagn-
arefni að Friðrik Ólafsson ætlaði að
taka fram taflmennina á nýjan leik:
„Hann er ótrúlega sleipur ennþá.
Þótt hann sé kominn á sjötugsaldur
er hann enn mjög snarpur í hraðskák
og ég hugsa að þetta fyrirkomulag
henti honum betur en að tefla lengri
skákir."
Einnig er ætlunin að vera með
skákskýringar bæði á netinu og mót-
inu sjálfu þar sem Þröstur Þórhalls-
son stórmeistari og Sævar Bjama-
son alþjóðameistari verða meðal
skýrenda.
Beinar útsendingar
á Skjáeinum
Áskell Örn sagði að sér litist mjög
vel á samstarfið við Skjáeinn um út-
sendingar frá mótinu. Sýnt verður
frá undankeppninni í rúman klukku-
tíma fyrri daginn og fyrirhuguð er
fjögurra til fimm klukkustunda út-
sending frá úrslitunum á sunnudag.
Þessa útsendingu verður einnig
hægt að ná á netinu og verður hún
meðal annars spegluð á einum vin-
sælasta skákvef heims, ICC. Meðal
styrktaraðila skáksambandsins eru
Íslandssími, Ericsson og OZ. Fyrir-
tækið OZ.COM hannar sérstaakt
skákumhverfi fyrir netið og Strik.is
hefur keypt öflugan netþjón til að
nota við útsendingarnar.
Fjöltefli á Langjökli
Íslandssími og Ericsson hafa einn-
ig gert samning við Kasparov um að
hann tefli fjöltefli við tíu þjóðþekkta
íslendinga uppi á Langjökli á mánu-
dag.
19. alþjóðlega Reykjavíkurskák-
mótið hefst 5. apríl og stendur til 13.
apríl og er að þessu sinni liður í dag-
skrá menningarborgar. Á mótinu
em sjö skákmenn, sem eru á lista Al-
þjóða skáksambandsins yfir 100 öfl-
ugustu skákmenn heims og auk
nokkurra, sem banka þar á dyrnar.
Þekktastur er sennilega Viktor
Kortsnoj, sem nú er orðinn 69 ára
gamall. Hann var einn af fulltrúum
sovéska skákskólans, en flúði land
1976 og átti lengi síðan í miklum úti-
stöðum við sovésk stjórnvöld. Hann
háði tvö einvígi við Anatolí Karpov
um heimsmeistaratitilinn, 1978 og
1981, þegar kalda stríðið var í al-
gleymingi. Árið 1988 vann Jóhann
Hjartarson það afrek að leggja
Kortsnoj í áskorendaeinvígi í St.
John í Kanada. Eftir einvígið bloss-
uðu upp deilur milli Kortsnojs og ís-
lensku sendinefndarinnar, en þær
eru fyrir löngu úr sögunni. Kortsnoj
er nú í 28. sæti á lista FIDE yfir þá,
sem eru með flest elo-stig.
Short á uppleið eftir hálfgerða
útlegð úr skákinni
Bretinn Nigel Short er í 14 sæti
listans og efstur þátt-
takenda í Reykjavík-
urmótinu. Hann
fæddist 1965 og þóttí
snemma undrabarn á
skáksviðinu. Hann
náði lengst árið 1993
er hann öðlaðist rétt-
inn til að skora á
heimsmeistarann eft-
ir langt einvígi við Jan Timman, sem
einnig verður meðal þátttakenda nú.
Einvígi Shorts við Kasparov, sem
háð var í London reyndist sögulegt,
ekki síst fyrir þær sakir að þeir höfn-
uðu samstarfi við FIDE og stofnuðu
eigin samtök til að halda einvígið.
Ekki er enn séð fyrir endann á af-
leiðingum þessarar ákvörðunar
Shorts og Kasparovs. Short er þó að
ná sér á strik aftur eftir að hafa verið
hálfgerður útlagi í skákinni um ára-
bil og var í fyrra sæmdur heiðurs-
orðu breska heimsveldisins, MBE.
Jan Timman hefur margsinnis
teflt á íslandi og hefur lýst yfir því að
hvergi þyki sér betra að tefla. Hann
er í 31. sæti lista FIDE og er auk
þess að tefla ritstjóri skáktímaritsins
New ín Chess og skrifar mikið um
skák.
Ivan Sokolov er frá Bosníu, en
flúði heimaborg sína, Sarajevo, á
meðan hún var í umsátri og fór til
Hollands. Sokolov var meðal kepp-
enda á síðasta Reykjavíkurmóti og
sigraði á alþjóðaskákmótinu á Akur-
eyri 1995. Hann er keppnismaður og
iðulega miklar sviptingar í skákum
hans.
Frá Bandaríkjunum koma Larry
Christiansen og Nick DeFirmian,
sem tókust á um 18. sætið á Reykja-
víkurskákmótínu 1998. Christian-
sen, sem nú er í 96. sæti heimslist-
ans, hafði þá betur. Christiansen
mun vera af dönskum ættum, en
hann er einnig með indíánablóð í æð-
um.. Bæði Christiansen og DeFirmi-
an hafa um árabil átt fast sæti í ól-
ympíuskáksveitum lands síns.
Éistlendingurinn Jaan Ehlvest er
í 54. sæti heimslistans og er líklegur
til að blanda sér í toppbaráttunna á
Reykjavíkurmótinu. Hann er fædd-
ur 1962 og var um tíma í hópi tíu
stigahæstu skákmanna heims. I
heimalandi sínu líta margir á hann
sem arftaka skákjöfurins Pauls Ker-
es og getur Ehlvest enn velgt hveij-
um sem er undir uggum.
Norðurlandabúar hafa oft verið
fjölmennari á Reykjavíkurmótum en
nú, en meðal þeirra eru þó þekkt
nöfn. Tiger Hillarp-Persson stendur
á þrítugu og hefur oft náð góðum
árangri. Hæst ber sigur hans á
Skákþingi Norðurlanda í Kaup-
mannahöfn á síðasta ári. Evgeníj
Agrest, sem er í 81. sætí á listanum
yfir stigahæstu skákmenn heims,
teflir nú í fyrsta skipti á Islandi.
Hann er rússneskur að uppruna, en
teflir undir sænsku flaggi. Heikki
Westerinnen kemur frá Finnlandi.
Hann er fæddur árið 1944 og hefur
teflt á 14 ólympíumótum fyrir hönd
Finnlands.
Þátttakendur frá öðrum
menningarborgum Evrópu
Reykjavíkurmótið er með sér-
stöku sniði að þessu sinni að því leyti
að það er liður í hátíðarhöldum
menningarborgarinnar. Borgin bauð
mótshöldurum af því tilefni sérstak-
an styrk til að kosta þátttöku skák-
meistara frá öðrum menningarborg-
um. Lengst að koma Andrea Drei frá
Bologna á Italíu og Jorge Arizmedi
Martinez frá Santiago del Compost-
ela á Spáni. Alþjóðameistarinn
Emmanuel Bricard kemur frá
Avignon í Frakklandi og stór-
meistarinn Tomas Oral frá Prag,
höfuðborg Tékklands. Stórmeistar-
inn Tomasz Markowski kemur frá
Kraká í Póllandi og Olli Salmensuu
frá Helsinki er talinn einn efnilegasti
skákmaður Finna um þessar mund-
ir. Leif Erlend Johannessen frá
Björgvin er nýbakaður stórmeistari.
Heimsmeistarar
framtíðarinnar?
Á þessu Reykjavíkurmóti gefst
einnig tækifæri til að fylgjast með
skákmönnum, sem gætu orðið arf-
takar þeirra, sem nú tróna á toppin-
um. Bu Xiangzhi nefnist undrabaiTi
frá Kína. Hann er aðeins 14 ára gam-
all og hefur þegar náð þremur áföng-
um að stórmeistaratitli.
Luke McShane kemur frá
Englandi. Hann er aðeins
16 ára, en var farinn að
tefla á alþjóðlegum mótum
10 ára gamall. Hann þykir
hafa sýnt stórmeistara-
styrk og nálgast nú lokaáf-
angann að þeim titli. Rúss-
ar binda miklar vonir við
að Alexander Grischuk, sem er 16
ára, geti orðið arftaki Kasparovs.
Grisjúk er með 2581 elo-stig.
„Xiangzhi og Grisjúk eru topp-
menn í sínum aldursflokkum og það
lítur nú út fyrir það að eftir nokkur
ár verði þeir komnir í hóp sterkustu
skákmanna í heimi,“ sagði Áskell
Örn og bætti við að reynt hefði verið
að velja inn í mótið með það í huga að
þar yrðu spennandi skákmenn.
Einnig hefði verið lögð áhersla á fjöl-
breytni og því væru skákmenn frá 20
löndum. Þá sýndi þetta mót að skák-
in gæti höfðað til allra aldurshópa:
„Viktor Kortsnoj er aldursforsetinn,
69 ára gamall, og enn einn af allra
sterkustu skákmönnum í heimi, og
síðan Kínverjinn, sem er 55 árum
yngrien Kortsnoj. Þeir tefla þarna á
jafnréttisgrunni og sömu forsend-
um. Við þurfum enga aldursflokka í
skákinni. Það er sennilegt að þeir
verði í toppbaráttunni og því nokkr-
ar líkur á að þeir mætist, sem yrði
mjög skemmtilegt.“
Mannlegi
þátturinn mikil-
vægari þegar
umhugsunartími
erlítill
Vonirum að ein-
hver íslending-
anna geri heims-
meistaranum
skráveifu