Morgunblaðið - 31.03.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000 31
NÝJA BÍLAHÖLLIN
STEINAR WAAGE
ek. ZO þ.km. blár,
samL 5-gíra, S-dyra. Verfi 890 þús.
ek. 116 b km. silfur, leður.
toppl, xenon, II" felgur, einn með öllu. Verð 3.396 |iós,
áhv. 1.400 |iús.
ek. 24 ti.km. d-blár og grár, 5-gíra, 33" dekk. álfelgur,
brenakantar, cd o.fl. Verö 2.656 þús., áhv. lán 1.650 þus.
ek. 59 Mm, grænn,
r-öllu, leður, toppl. loftpúðar. Verö 5.39D þús.
loYflta Carina E 1800, árg. 9?, ek. 68 b.km, siiiur,
5-gíra, r-r, saml. Verð 1.620 þús.
ek. 45 ti.km, grænn,
5-gita, vindsk., álfelgur, saml., r-r. Vetö 1.251 þús., áhv.
700 þús.
NASAjátar
mistök
Pasadena. AP.
DANIEL Goldin, yfirmaður NASA,
bandarísku geimvísindastofnunar-
innar, axlaði í fyrradag alla ábyrgð á
því, að tvö Marsför hefðu týnst og
eyðilagst.
Fyrr í vikunni var birt skýrsla um
afdrif Marsfaranna og var NASA
harðlega gagnrýnd fyrir óstjórn,
óraunhæfar væntingai- og fyrir að
ráðast í verkefni þó ekki væri nægt fé
fyrir hendi. Goldin, sem hefur gert
orðin „hraðari, betri og ódýrari“ að
einkunnarorðum sínum, viðurkennir
nú, að of mikið hafi verið sparað við
gerð geimfaranna, Mars Climate Or-
biter og Mars Polar Lander.
Richard Cook, verkefnisstjóri
beggja Marsáætlananna, viðurkenndi
einnig, að margt hefði farið úrskeiðis
en sagði, engum einum um að kenna.
Fjármagnið hefði verið skammtað úr
hnefa og því hefðu tilraunir ekki verið
nægar, en Mars Polar Lander kostaði
um 12 milljarða ísl. kr. Frá 1993 hafa
10 geimskot misfarist og er kostnaður
við þau sagður um 38 milljarðar kr.
IC Metall slakar á kröf-
um í kjarasamningum
Nýkomnir dömuskór
www.notadirbilar.is
Boðuðu syndlaust líferni
en myrtu folk á laun
Ný fjöldagröf
fundin í Uganda
Schröder
í smiðju
hjá Blair
Berlín. The Daily Telegraph.
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, reynir nú ákaft að ýta
undir umbætur í anda markaðsvæð-
ingar í efnahagi landsins. Vill hann
m.a. að milljónum launþega verði
gert kleift að eignast hlut í fyrirtækj-
um sem þeir vinna hjá og er sagt að
hann voni að í kjölfarið muni áhrif
stéttarfélaga á þróun efnahagsmála
minnka.
Schröder þykir hafa fengið aukið
sjálfstraust eftir að stuðningur við
helstu andstæðinga flokks jafnaðar-
manna, Kristilega demókrata,
hrundi. Þeir urðu uppvísir að því að
brjóta árum saman lög um fjármögn-
un stjórnmálahreyfinga.
Kanslarinn er sagður hafa farið í
smiðju til Tony Blairs og Verka-
mannaflokksins breska með hug-
myndum sínum um að launþegar fái
aukið ráðrúm til lífeyrisspamaðar og
verður beitt skattaafslætti í þessu
skyni. Kosturinn er ekki síst að þá
verða launþegar síður háðir greiðsl-
um úr almannatryggingakerfinu
sem þegar er talið ofhlaðið. Bent hef-
ur verið á að það
rísi vart undir
skyldum sínum á
næstu áratugum.
Eignist launþeg-
ar hins vegar í
auknum mæli
hlutabréf í fyrir-
tækjunum minnki
líkur á verkföllum
Gerhard og framleiðni
Schröder aukist.
Aform kanslarans fengu byr í
seglin er stærsta stéttarfélag Þýska-
lands, IC Metall, með um 750 þúsund
félaga, slakaði nýlega mjög á kröfum
sínum um launahækkanir og sætti
sig við að hækkunin yrði 2,6% næstu
tvö árin. Krafan var 5,5%. Auk þess
var aflýst fyrirhuguðum verkföllum í
allmörgum fyrirtækjum.
IC Metall fékk þó ekki fullnægt
kröfum um að eftirlaunaaldur yrði
lækkaður úr 65 árum í 60. Hins vegar
samþykkti þýska stjómin í gær að
foreldrar gætu tekið sér launalaust
leyfi frá vinnu í allt að þrjú ár og
fengið tryggingu fyrir því að störfin
biðu þeirra að því loknu.
Fulltrúar atvinnurekenda sögðu
samninga IC Metall merki um nýja
stefnu í málefnum vinnumarkaðarins
hjá þýskum stéttarfélögum. Hóflegir
samningar væru nú taldir liður í bar-
áttu gegn atvinnuleysi og verðbólgu.
Subaru Impreza 2.0 STW. árg. i, ek. 27 b.ktn. 5-
gfra, saml, r-r. Vei
Rushojwa. Reuters, AP, AFP.
SAMRÆÐUR, kynlíf og jafnvel
notkun sápu vom óheimil hjá dóms-
dagssöfnuðinum Endurreisn boðorð-
anna tíu, en hátt á fjórða hundrað
safnaðarmeðlimir brannu inni í
kirkju sinni í nágrenni við þorpið
Kanungu fyrir um hálfum mánuði.
Þó safnaðarmeðlimir kynnu að reyna
að forðast hvaðeina það sem talist
gæti syndsamlegt kom það ekki í veg
fyrir að þeir væra myrtir af leiðtog-
um safnaðarins. í gær var fjöldi lát-
inna kominn á áttunda hundrað eftir
að lögi’egla fann enn eina fjöldagröf-
ina, að þessu sinni á landi Joseph
Nyamurinda, eins safnaðarmeðlima.
Æðsti leiðtogi Endurreisnar boð-
orðanna tíu var fyrrum stjórnmála-
maðurinn og sjálfskipaði spámaður-
inn Joseph Kibwetere. Hann kvaðst
vera í beinu sambandi við Krist, en
var af öðram lýst sem ofbeldis-
hneigðum manni sem oft fengi ofsa-
fengin köst. Með Kibwetere störfuðu
Gredonia Mwerinda, fyrram gleði-
kona, sem sagði Maríu mey hlýða á
sig, og loks „faðir“ Dominic Kat-
aribabo, kaþólskur prestur með
meistaragráðu í guðfræði sem svipt-
ur hafði verið hempunni.
Sagður guðhræddur
og námfús
Kataribabo hefur verið lýst af
bæði nágrönnum sínum og ættingj-
um sem námfúsum og trúuðum
manni. Kataribabo virðist þó hafa
lumað heldur á óhugnanlegu leynd-
armáli, því eftir að lögregla hafði lok-
ið rannsókn sinni á landareign hans í
fyrradag, hafði hún grafið upp 155
lík úr tveimur fjöldagröfum. Annarri
gröfinni hafði verið komið fyiir inn-
an dyra en hinni í garði prestsins og
virðist sem margir hinna látnu hafi
verið kyrktir á undanförnum mánuð-
um.
Vitað var að Kataribabo hafði ver-
ið að grafa í garði sínum en engum
datt í hug sú ástæða sem þar lá að
baki. „Hann var góður maður og
reyndist safnaðarmeðlimum vel,
hann var góður við fjölskyldu sína og
kom almennt vel fram við fólk,“
sagði Bagambe Apex, frændi Kat-
aribabo. ,Að þetta ætti eftir að ger-
ast hvarflaði aldi’ei að okkur.“
Ættingjar prestsins era því sann-
færðir um að upphafsmennirnir hafi
verið þau Kibwetere og Mwerinda.
Kataribabo sást engu að síður kaupa
40 lítra af brennisteinssýra nokkrum
Afdrif Marsfaranna
AP
Fangar draga lík upp úr íjöldagröf á landareign Joseph Nyamurinda,
eins meðlima sértrúarsafnaðarins Endurreisn boðorðanna tíu.
dögum fyrir eldsvoðann í kirkjunni í
Kanungu og granar lögreglu að
brennisteinssýran hafi verið notuð
til verksins.
Núverandi dvalarstaður prestsins
er hins vegar óþekktur. I fyrstu var
talið að Kataribabo hefði farist
ásamt safnaðarmeðlimum í kirkju-
brunanum, en nú telur lögregla
prestinn hafa flúið ásamt hinum leið-
togum safnaðarins.
Strangur agi og
sjálfsafneitun
Ströngum aga var haldið uppi inn-
an safnaðarins og hittust menn og
konur einungis á bænastundum,
jafnvel þegar um hjón var að ræða.
Þá vora samræður bannaðar og tjáði
fólk sig þess í stað með látbragði.
Notkun sápu var einnig á bannlist-
anum og þvoðu safnaðarmeðlimir
sér með þvottalegi ætluðum til fata-
þvottar.
Allt lífemi einkenndist þannig af
sjálfsafneitun og var m.a. fastað tvo
daga í viku. Lunganum úr deginum
var síðan varið til bænahalds og
vinnu, auk þess sem fólk var vakið
upp á nóttunni til klukkutíma bæna-
lesturs.
Öll samskipti við nágranna vora
enn fremur í lágmarki og olli guð-
sótti safnaðarmeðlima hræðslu
sumra. „Eftir því sem tíminn leið ótt-
uðumst við þá meira og meira,“ sagði
Kisembo Didas, bóndi í Rugazi. „Við
héldum að þetta fólk væri hættulegt,
að það væri djöfladýrkendur. Það
hegðaði sér afbrigðilega og átti það
til að lamast úti á miðri götu og tala
síðan tóma vitleysu.“
Hinn strangi agi sem haldið var
uppi virðist þó hafa riðlast þegar
endalok heimsins, sem Kibwetere
hafði spáð, létu á sér standa í lok síð-
asta árs. Margir safnaðarmeðli-
manna höfðu verið beðnir um að
selja eigur sínar og gefa Endurreisn
boðorðanna tíu ágóðann þegar þeir
gengu í söfnuðinn. Þegar heimsendir
lét hins vegar á sér standa fóra sum-
ir að æskja endurgreiðslu og er það
talin möguleg ástæða fjöldamorðs-
ins.
Faðir Paul Ikazire var, að eigin
sögn, meðal leiðtoga safnaðarins þar
til hann yfirgaf söfnuðinn árið 1994.
Ikazire lýsti Kibwetere sem ofbeld-
ishneigðum manni sem oft hefði
fengið ofsafengin köst. Hann sagði
raunveralegan leiðtoga hópsins þó
hafa verið Gredonia Mwerinda.
„Hún kom oft á tíðum með skilaboð
frá Maríu mey og erkienglinum Mi-
kjáli,“ sagði Ikazire. „Hún kom þá og
sagði hluti á borð við, María mey vill
að þið færið söfnuðinum meira fé.“
Æ fleiri lík hafa fundist síðan
kirkjan í Kanungu brann 17. mars sl.
og í gær grófu fangar upp 81 lík, flest
af konum og börnum, í hæðunum á
landareign Nyamurinda. Að sögn
nágranna hans „hvarf' fólk reglu-
lega þai’ í hæðunum. „Hópar frá
ýmsum landshlutum komu þangað
og eftir nokkra daga hurfu þeir,“
sagði Kensi Ntuaydubale nágranni
Nyamurinda.
Rannsókn lögreglu á þó enn eftir
að beinast að fimmtu landareign
dómsdagssafnaðarins og því ekki
ólíklegt að tala látinna eigi enn eftir
að hækka.
Langur laugardagur
Opið iaugardag 10-16
Teg. 136
Litir: Hvítir og svartir
Stærðir: 36-41
Verð kr. 3.995.
Teg. 401
litir: Hvítir og svartir
Stærðir: 36-41
Verð kr. 3.995.
Teg. 97710
Litur: Svartir
Stærðir: 36-41
Verð kr. 2.995.
OOMUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík - sími 551 8519