Morgunblaðið - 31.03.2000, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reiði í Barclays-bankanum
Laun yfírmanns
fjórfaldast
LAUN sir Peters Middletons,
stjórnarformanns Barclays-bankans
í Bretlandi, hafa meira en fjórfaldast
á einu ári. Að sögn netútgáfu BBC
ríkir mikil reiði meðal starfsmanna
yfir því hve laun æðstu manna bank-
ans hafa vaxið hratt en skýrt var frá
launatölunum níu dögum áður en
bankinn fækkar störfum um 7.500 í
spamaðarskyni.
í ársskýrslu bankans kemur fram
að Middleton fékk í fyrra 1,76 millj-
ónir punda í laun og aukagreiðslur
eða sem svarar um 210 milljónum
króna. Nýr framkvæmdastjóri,
Matthew Barrett, fékk 1,3 milljónir
punda fyrir þriggja mánaða vinnu í
fyrra, var ráðinn í október.
Talsmenn bankans benda meðal
annars á að laun yfirmannanna séu
árangurstengd og Middleton hafi um
hríð verið bæði stjórnarformaður og
framkvæmdastjóri. Tekjur bankans
hafi aukist um 30% og því eðlilegt að
Middleton njóti þess. En tekið er
fram að um sé að ræða aukagreiðslu í
eitt skipti fyrir öll og ekki verði um
endurtekningu að ræða á þessu ári.
Ekki kemur fram í frétt stöðvarinn-
ar hvort þá skipti engu hve mikil
tekjuaukningin verði í ár.
„Ósiðlegar" greiðslur
Talsmenn stéttarfélaga og stjórn-
málamenn hafa gagnrýnt greiðslurn-
ar. Roy Murphy, framkvæmdastjóri
sambands breskra bankamanna,
sagði að með greiðslunum væri sýnd-
ur skortur á tillitssemi. Þingmaður-
inn Martin Salter sagði að í sveitar-
félögum þar sem menn myndu finna
mest fyrir lokun 171 útbús bankans
yrði litið svo á að greiðslurnar væru
„allt að því ósiðlegar".
AP
„Friðarmúrinna
LISTAMAÐURINN Clara Halter, Jean Tiberi, borgarstjóri Parísar, og Jacques Chirac, forseti Frakklands,
vígðu í gær „Friðarmúrinn“, sem svo er kallaður, en hann verður á Champ de Mars eða á Marsvöllum fram í júní
næstkomandi. Er orðið „friður" ritað á glermúrinn á 32 tungumálum og með 13 ólikum rittáknum. Segir
listamaðurinn, að Grátmúrinn í Jerúsalem hafi haft áhrif á mótun verksins.
Hindley fær ekki frelsi
London. Morgfunblaðið.
Lifrarbólguótti í Bretlandi
FIMM dómarar brezku lávarða-
deildarinnar höfnuðu í gær beiðni
Myru Hindleys um að hún fengi að
ganga laus og úrskurðuðu að í henn-
ar tilfelli þýddi ævilangt fangelsi
það og annað ekki. Lögfræðingar
Hindleys hafa sagt að málinu verði
vísað til mannréttindadómstóls
Evrópu.
Myra Hindley myrti með Ian
Brady fimm ungmenni fyrir 40 ár-
um. Hún var þá dæmd í ævilangt
fangelsi, en dómarinn lagði engar
línur um framkvæmd dómsins.
Fangelsisvistin var svo ákvörðuð 25
ár, en síðan breyttu ráðherrar henni
í lífstíðarfangelsi.
Myra Hindley
rak lausnarbeiðni
sína á þeirri for-
sendu að pólitísk-
ir ráðherrar
hefðu ekki heim-
ild til þess að
hringla með fang-
elsisdóma.
Dómarar lá-
varðadeildarinnar sögðu að illskan í
athæfi Hindleys útilokaði að hún
fengi nokkurn tímann að verða
frjáls manneskja aftur.
Fyrir nokkru leitaði Ian Brady til
dómstóla vegna þess að hann vildi fá
að halda hungurverkfalli til streitu
og deyja í friði, en dómur féll á þá
leið að sjúkrahúsyfirvöld í Ashworth
gerðu rétt í því að neyða í hann nær-
ingu og halda honum á lífi.
Fyrir skömmu úrskurðaði mann-
réttindadómstóll Evrópu að brezki
innanríkisráðherrann hefði brotið
lög með afskiptum af dómi yfir
tveimur unglingum, sem myrtu
þriggja ára dreng. Jack Straw inn-
anríkisráðherra fól í framhaldi af
þeim úrskurði sérstökum dómara að
kveða upp úr um frelsissviptingu
piltanna tveggja.
London. Daily Telegraph.
ÓTTAST er, að allt 4.500 konur
kunni að hafa sýkst af lifrarbólgu
eftir að í ljós kom, að kvensjúk-
dómalæknir og sjúkraliði, sem eru
haldnir sjúkdómnum, höfðu smitað
nokkrar konur.
Breska heilbrigðisráðuneytið hóf
rannsókn á þessu máli fyrir
skömmu en þá þótti víst, að kven-
sjúkdómalæknir við sjúkrahús í
Boston í Lincoln-skíri hefði smitað
konu, einn sjúklinga sinna. Við at-
hugun á um 1.500 öðrum konum,
sem hann hafði annast, fundust
þrjár með smit. Er enn eftir að
skoða um 1.000 konur.
Vitað er einnig, að annar heilsu-
gæslustarfsmaður, sem sjúkur er
af lifrarbólgu, hefur smitað tvær
konur og verður athugað með allt
að 2.000 konur, sem verið hafa á
þremur sjúkrahúsum í London.
Vegna þessara mála hafa verið
settar fram kröfur um, að allir
læknar og aðrir heilsugæslustarfs-
menn fari reglulega í læknisskoð-
un, einkum með tilliti til smitsjúk-
dóma.
Um er að ræða lifrarbólgu af C-
stofni en um 20% þeirra, sem smit-
ast, losa sig við veiruna á sex mán-
uðum án nokkurrar meðferðar. í
öðrum tilfellum leggst hún á lifrina,
jafnvel ekki fyrr en 20 árum eftir
smitun, og getur valdið alvarlegri
lifrarbilun og krabbameini.
Myra Hindley
Nýtt fyrirmyndar-
hagkerfi Evrópu
Reuters
Gestur á bflasýningu í Genf skoðar hátæknifjarskiptabúnað sem gerir bfleigandanum
kleift að eiga umfangsmikil samskipti um Netið.
eflir Rudi Dornbusch
©The Project Syndicate.
HAGFRÆÐINGAR heimsins æða um fram
og aftur og reyna að átta sig á og útskýra
methagvöxt- í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir
hagvöxt í átta ár eru engin merki aukinnar
verðbólgu sjáanleg þar í landi. Það sem meira
er, þar virðist enginn hafa áhuga á hefðbund-
inni hagfræði. Það er annaðhvort „nýja hag-
fræðin“, Netið eða dauði.
Fjárfestar í Bandaríkjunum eiga erfitt með
að útskýra hvers vegna hagnaður fyrirtækis
nægir ekki til að spá fyrir um hvaða verðbréf
eru líkleg til að borga sig og hver ekki. Fyrir-
tæki sem gerir ekki ráð fyrir ,,.com“ í nafni
sínu eða framtíð virðist dauðadæmt. Þeir,
sem krækja sér í ný viðskiptasambönd, geta
flogið upp í hæstu hæðir en haldi menn sig við
„gömlu hagfræðina" er eins víst, að verðþréf-
in verði einskis virði.
Fræðingar af gamla skólanum halda því
fram, að slík velgengni án hagnaðar geti ekki
enst og bráðlega muni verðbréfamarkaðurinn
ná áttum á ný. Þegar það gerist muni ljóminn
af þessum langa hagvexti hverfa og enginn
muni þá eftir „nýju hagfræðinni" frekar en
snjónum sem féll í fyrra.
Vert er að velta fyrir sér nýju sjónarhorni á
þessu máli, þ.e., að Bandaríkin eru ekki ein-
stök hvað þetta varðar því að Evrópa tekur
þátt í þessum nýja hagfræðileik. Verðbréfa-
markaðir Evrópu eru fyrstu þátttakendurnir
enn sem komið er en það mun breytast.
Veik staða evrunnar
Af hverju er Evrópa svo hikandi? Staða
evrunnar er veik; það hefur ekki glampað
eins mikið á hana og vonast var til þegar hún
var sett á markað á síðasta ári. Evrópskar
ríkisstjómir halda aftur af sér og engar mikil-
vægar umbætur á vinnumarkaði liggja í loft-
inu né aðgerðir sem miða að því að draga úr
reglugerðarveldinu. Að vísu er í mótun í
Þýskalandi skattareglugerð sem gerir stór-
um fjármálastofnunum kleift að selja meiri-
hlutaeign sína í fyrirtækjum án þess að vera
refsað með fjármagnstekjuskatti en þrátt
fyrir það hafa ríkisstjórnir Evrópulanda ein-
ungis leyft hagræðingu í bankakerfinu og ein-
staka samruna íyrirtækja landa í milli.
Þótt ríkisstjórnirnar taki lítil skref í einu,
eru verðbréf „nýju hagfræðinnar“ það sem
koma skal á verðbréfamörkuðum Evrópu.
Þetta má sjá á miklum fjölda samruna, innan
landa og milli þeirra en einnig í fjármálast-
efnu rótgróinna fyrirtækja. Siemens sníður
sér sinn eigin stakk á hálfleiðarasviðinu og
opinbert hlutafjárútboð þess verður eitt hið
stærsta sem sögur fara af í Evrópu. Nú þegar
er fyrirtækið ofmetið og verslað er með hluta-
bréf þess á gráu svæði á þrefóldu raunvirði.
Ekki má gleyma því að önnur fyrirtæki
skoða nú fjárfestingar sínar og velta fyrir sér
hvar megi skera niður og hvað megi selja. A
sama tíma eru stórar fjármálastofnanir eins
og Deutsche Bank að losa um mikið fjármagn
sem þær eiga bundið í iðnfyrirtækjum. Þann-
ig geta þær lagt til áhættufjármagn að hætti
Bandaríkjamanna og tekið þátt í opinberum
hlutafjárútboðum.
Lengi vel fengu viðskipti af þessu tagi ein-
hverja athygli og hún er sífellt að aukast. Það
á sér ekki eingöngu stað í Þýskalandi, sem
hefur annars verið þekkt fyrir íhaldssemi á
viðskiptasviðinu, heldur einnig í Sviss, Italíu,
Spáni og Frakklandi þar sem nýja hagfræðin
er jafnvinsæl.
Ekki mun líða á löngu þar til ríkisstjórnir
Evrópu munu fagna hæfni „nýju hagfræðinn-
ar“ til að búa til peninga og jafnvel krefjast
hluta af gróðanum. Þegar verðbréfagengið
rýkur upp mun heimurinn vilja fá að vera
með. Bandaríkin og Austurlönd fjær munu
leggja til fjármagn til að fá sína sneið af kök-
unni. Þetta gæti verið annað tækifæri fyrir þá
sem misstu af lestinni í Bandaríkjunum eða
fyrir þá sem vilja endurtaka leikinn.
Fræðingar af gamla skólan-
um halda því fram, að slík
velgengni án hagnaðar geti
ekki enst og bráðlega muni
verðbréfamarkaðurinn ná
áttum á ný.
Reynslan í Japan
Vöxtur af þessu tagi á verðbréfamarkaðin-
um mun auka verðmæti evrunnar og fjölga
erlendum fjárfestingum í Evrópu, ekki síst
vegna mögulegra fjármagnstekna. Þetta
gerðist einmitt í Japan á síðasta ári; endur-
skipulagning fyrirtækja var fyrsta skrefið til
að auka verðgildi verðbréfanna. Síðan urðu
hátækni og ný hagfræði töfraorðin sem juku
matsverð japanskra fyrirtækja umfram hin
bandarísku. Að sjálfsögðu steig verðgildi
jensins líka.
Þessi væntanlegi vöxtur er sem himna-
sending fyrir hagkerfi Evrópu sem er fast í
sama farinu. Evrópa er steinrík en auður
hennar liggur ónotaður. Mannauður álfunnar
er mikill en er hlekkjaður fjötrum framtaks-
leysis, reglugerða sem hamla framleiðni,
skriffinnsku en einnig skorti á hvata til að
hagnast. Við getum kallað það skort á græðgi.
Leiðtogar Evrópu ættu að fagna þessum
frelsandi vindum. Þeir munu auðvelda lífið í
Evrópu og gera hana frjálsari. Hin nýja hag-
fræði Evrópu er á leiðinni. Auðurinn sem hún
mun gefa af sér mun hrista svo duglega upp í
ríkisstjómum að þær munu létta höftum af
öðrum þáttum hagkerfis Evrópu.
Rudi Dornbusch er Ford-kennari í hagfræði
við MIT-háskólann og fyrrverandi aðalráð-
gjafí Alþjóðabankans sem og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins. Millifyrirsagnir eru Morgun-
blaðsins.